Morgunblaðið - 21.08.2018, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018
✝ SigurbjörgGuðmunds-
dóttir sérkennari
fæddist á Akureyri
28. mars 1938. Hún
andaðist á heimili
sínu á Akureyri 15.
júlí 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Þórunn
Jónsdóttir hús-
freyja, f. 13. októ-
ber 1908, d. 28. jan-
úar 1991, og Guðmundur
Jónasson, járnsmiður og leigu-
bílstjóri, f. 3. maí 1909, d. 9. júlí
1972. Þau voru búsett á Akur-
eyri og Sigurbjörg var fyrsta
barn þeirra hjóna af fjórum.
Systkini hennar eru: Jónína, f.
6. febrúar 1940, Axel, f. 7. októ-
ber 1942, d. 8. júlí 2016, og Jón
Oddgeir, f. 16. nóvember 1949.
Árið 1968 giftist Sigurbjörg
Vilbergi Alexanderssyni, f. 30.
september 1937, og eiga þau
tvær dætur, Þórunni og Sig-
urbjörgu Gróu. Þórunn, f. 1965,
er sjúkraliði og býr ásamt eig-
inmanni sínum og þremur börn-
um í Noregi. Sigurbjörg Gróa, f.
1981, er tölvunarfræðingur og
býr með tveimur börnum sínum
í Kópavogi.
Sigurbjörg lauk kenn-
araprófi frá KÍ 1960 og starfaði
allan sinn starfsaldur sem kenn-
ari. Nýútskrifuð réð hún sig að
Barnaskóla Akureyrar og
kenndi þar tvo vetur. Sumarið
eftir fór hún til Kaup-
mannahafnar og sótti námskeið
í Askov Höjskole, þar sem hún
las danskar bókmenntir og upp-
eldis- og kennslufræði ásamt
ýmsu öðru sem kom sér vel fyr-
ir kennara að kynnast. Frá As-
kov lá leið hennar til Kaup-
mannahafnar þar sem hún
settist í Emdrup skole, sem sér-
hæfði sig í fræðslu sem hentaði
ungum kennurum. Um haustið
réð hún sig sem forfallakennara
í skóla í Lyngby og
það fannst henni
mikil lífsreynsla
fyrir ungan kenn-
ara. Þegar hún
kom heim frá Dan-
mörku gerði hún
stuttan stans í skól-
anum í Kjósinni.
Um það leyti
kynntist hún mann-
inum sínum, sem
var kennari við
Skóla Ísaks Jónssonar. Vilberg
var beðinn að leysa af skóla-
stjórann á Ólafsfirði og það
varð úr að þau fluttu til Ólafs-
fjarðar og voru þar veturinn
1966 við kennslu. Eftir vetr-
ardvöl á Ólafsfirði lá leið þeirra
til Akureyrar þar sem Vilberg
tók við stöðu skólastjóra í Skól-
anum í Þorpinu (síðar nefndur
Glerárskóli) og Sigurbjörg
kenndi þar fram til ársins 2002
þegar þau fóru bæði á eftirlaun.
Sigurbjörg bætti við sig ýmsu
námi og lauk sérkennaraprófi
árið 1973. Auk þess fékk hún
orlof frá kennslu árið 1979 og
fóru þau hjónin til Danmerkur
og á kunnuglegar slóðir, sem
var Emdrup. Þetta var mikil
vinna en ánægjuleg og lær-
dómsrík dvöl sem innprentaði
þeim nýjar hugmyndir og
reyndist þeim hið besta vega-
nesti til næstu ára. Árið 1992
fóru þau hjónin aftur í náms-
orlof og þá til Skotlands, Glas-
gow, sem varð þeim einnig dýr-
mæt reynsla.
Útför Sigurbjargar fór fram í
kyrrþey að hennar ósk hinn 20.
júlí 2018.
Þau mistök urðu við vinnslu
laugardagsblaðs Morgun-
blaðsins að röng mynd birtist
með minningargrein um Sigur-
björgu. Morgunblaðið biður alla
hlutaðeigandi velvirðingar á
mistökunum um leið og birt er
rétt mynd af henni.
Það var í eldhúsinu í Gránu-
félagsgötu 15 sem fundum okkar
bar fyrst saman og ég kynntist til-
vonandi mágkonu minni Sigur-
björgu. Ég komst fljótlega að því
að konan var ákveðin og hafði allt
á hreinu. Hún var að koma úr ferð
um Evrópu, Sigurbjörg var vel
sigld eins og það var kallað á þeim
árum. Samtalið snerist um mig og
mína persónu og eftir á að hyggja
var þetta eins konar úttekt á til-
vonandi mági eða á stráknum að
sunnan sem var að spá í systur
hennar. Henni var greinilega ekki
sama hvernig hann var og hvað
hann hugðist fyrir, henni fannst
greinilega mikilvægt að tilvon-
andi mannsefni einkasystur henn-
ar væri í lagi. Lillu var umhugað
um allt sem sneri að litlu systur
hennar. Sigurbjörg var staðföst
og ákveðin kona, þannig var skap-
ferli hennar, sem nýttist vel í
starfinu sem hún hafði valið sér,
að eiga við börn sem voru með
fjölbreytta eiginleika. Sigur-
björgu gekk vel að komast í gott
samband við fólk, hún átti stóran
vinahóp og þ.á m. útlendinga sem
við vorum kynnt fyrir; nutum við
þess í ferðum okkar til annarra
landa, bæði ein og í fylgd með Sig-
urbjörgu.
Fjölskyldan var henni kærust
og synir okkar voru hændir að
henni, hún gaf góð ráð og studdi
þá sem þess þurftu. Samveru-
stundirnar voru margar. Minnis-
stæðar eru ferðirnar til Ung-
verjalands og dvöl hjá þeim
hjónunum í Glasgow. Það var með
ólíkindum hvað hún var ratvís og
gott að hafa hana með sér. Örlög-
in höguðu því svo að nærvera
hennar við barnabörnin var ekki
eins mikil og hún hefði viljað;
eldri dóttir hennar Þórunn býr í
Noregi og yngri dóttirin Sigur-
björg í Kópavogi. Síðastiðin ár
var heilsu hennar farið að hraka
og í febrúar var hún greind með
krabbamein. Gerði hún sér fljót-
lega grein fyrir að hverju stefndi.
Meiri hetjulund og kjarki hef ég
ekki orðið vitni að.
Línurnar voru lagðar og allt
skipulagt, banalega var ákveðin
heima, athöfnin í kyrrþey og
sálmarnir ákveðnir. Skipulag og
regla á hlutunum samkvæmt
hennar ósk, þannig var hún og
þannig kvaddi hún þennan heim.
Ég bið almættið að styrkja Vil-
berg, Sigurbjörgu Gróu, Þórunni,
fjölskyldur þeirra og systkini í
sorg þeirra.
Blessuð sé minning Sigur-
bjargar Guðmundsdóttur.
Sveinbjörn Matthíasson.
Sigurbjörg
Guðmundsdóttir
✝ Stefanía
Guðmundsdóttir,
Stella, fæddist að
Hvoli í Innri-
Njarðvík 28. októ-
ber 1934. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Skógarbæ 1.
ágúst 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Guð-
mundur Alfreð
Finnbogason frá
Tjarnarkoti í Innri-Njarðvík, f.
8.11. 1912, d. 19.4. 1987, og Guð-
laug Ingveldur Bergþórsdóttir
frá Suðurgarði í Vest-
mannaeyjum, f. 18.11. 1908, d.
4.4. 1985.
Systkini Stefaníu: Óskírður
drengur, f. 22.11. 1933, d. 27.3.
1934, Guðbjörg Edda, f. 20.1.
hún lauk skyldunámi. Eftir það
stundaði hún nám við Flens-
borgarskóla og lauk þaðan
gagnfræðaprófi.
Stella hóf ung störf á bif-
reiðastöðinni Hreyfli þar sem
hún vann alla sína starfstíð. Þar
kynntist hún eiginmanni sínum
Kristófer Bonnesen Kristjáns-
syni bifreiðastjóra frá Vindási í
Landssveit. Þau hjónin byggðu
sér hús að Fífuhvammi 35 í
Kópavogi þar sem Stella bjó alla
sína tíð en síðustu þrjú árin
dvaldist hún að hjúkrunarheim-
ilinu Skógarbæ.
Síðustu árin fóru veikindi að
ágerast og andaðist hún að
kvöldi 1. ágústs.
Útför Stefaníu fór fram í
kyrrþey.
Þau mistök urðu við vinnslu
laugardagsblaðs Morgun-
blaðsins að röng mynd birtist
með minningargreinum um
Stefaníu. Morgunblaðið biður
alla hlutaðeigandi velvirðingar
á mistökunum um leið og birt er
rétt mynd af henni.
1936, Finnbogi
Geir, f. 4.10. 1937,
Laufey Ósk, f. 10.9.
1940, Jón Björgvin,
f. 16.12. 1941, d.
27.4. 1942, Jón Már,
f. 16.8. 1943.
Eiginmaður
Stefaníu var Krist-
ófer Bonnesen
Kristjánsson, f.
21.12. 1927, d.
24.10. 1982. Sam-
býlismaður Stefaníu frá árinu
1989 var Örn Kristjánsson, f.
19.6. 1933, d. 6.1. 2011.
Stella ólst upp á Hvoli á heim-
ili foreldra sinna og var elst af
þeim systkinum sem komust
upp. Um 12 ára aldur dvaldist
hún um tíma hjá ættingjum sín-
um í Vestmannaeyjum þar sem
Nú er hún Stella frænka okk-
ar búin að kveðja.
Skrifað stendur í kristilegum
fræðum að ef allir sýndu náunga-
kærleika þá hyrfu þjáningar
heimsins.
Stella frænka átti nóg af kær-
leikanum. Hún var vinur allra,
elskaði blómin og lítil börn og
falleg lög í útvarpinu, gaf fugl-
unum brauðmola vætta í lýsi,
sérstaklega yfir háveturinn. Hún
hlúði að hinu smáa og viðkvæma
og gat spjallað við alla.
Í lífi okkar systkinanna má
segja að hún hafi gegnt tvöföldu
ömmuhlutverki. Við misstum
báðar ömmur okkar þegar við
vorum litlir krakkar og því röt-
uðu þau hlutverk til Stellu
frænku. Okkur verður hugsað til
þess í uppeldinu á okkar eigin
börnum í dag hvað Stella gaf
okkur mikið og hvað við viljum
gefa áfram til þeirra.
Sá eiginleiki að búa yfir mann-
gæsku, kærleika og gleði er ekki
öllum gefinn. Það var alltaf stutt
í gamanið og hláturinn, hvort
sem gripið var í gítarinn, farið í
laugina á Voffanum og eldaður
„Stellumatur“ á eftir eða farið í
ferðalög og tjaldútilegur eða
bara einfaldlega fengið sér gult
Wrigley‘s-tyggjó sem Stella lum-
aði alltaf á í veskinu. Það var allt-
af gleði í loftinu þegar Stella kom
heim til okkar í Hafnarfjörðinn
að passa okkur. Hún var oft hjá
okkur á jólunum og fór aðfanga-
dagur mikið til í það að bíða út í
glugga eftir því að Stella birtist á
Voffanum.
Sem börn og alveg fram yfir
unglingsár vorum við oftar en
ekki í Fífuhvamminum, jafnvel
heilu helgarnar og tilhlökkunin
yfir því að fá að fara til Stellu var
mikil.
Það gilti svo einu að hvort sem
maður kom í heimsókn sem barn,
unglingur eða fullorðinn eða ætl-
aði rétt að kíkja við, þá var töfr-
um líkast, á augabragði, full-
dekkað eldhúsborðið eins og um
stórveislu væri að ræða. Það gat
stundum endað í tveggja eða
þriggja tíma heimsókn enda var
líka alltaf hægt að spjalla, ætt-
fræðin var í sérstöku uppáhaldi
og í seinni ár frásagnir frá gamla
tímanum. Í bakgrunni allra þess-
ara minninga hljómar svo að
sjálfsögðu Litla flugan og létt og
glaðvær harmonikkutónlist úr
útvarpinu og Stella leysandi
krossgátur við eldhúsborðið.
Allra síðustu árin fjarlægðist
Stella okkur smátt og smátt
vegna veikinda sinna. Það var
sárt að sjá Stellu sem mundi allt,
gat rakið ættir, munað söng-
texta, nöfn á stöðum á landinu,
hverfa inni heim minnisleysisins.
Það var eitt sem hún missti aldr-
ei og það var að geta brosað sínu
hlýja brosi og það jafnvel þó bar-
áttan við veikindin léki hana
grátt.
Og nú er Stella okkar farin.
Það er okkar vissa að Stella lifi
nú í gleðinni á ný og hitti þá fjöl-
mörgu vini og ættingja sem einn-
ig eru farnir.
Það er ekki ólíklegt að hún sé
syngjandi á Voffanum á leið í
laugina.
Takk fyrir allt, elsku Stella
okkar.
Karvel Aðalsteinn, Guðlaug
Stella og Finnbogi Þorkell
Oft hefur verið brosað þegar
við rifjum upp fyrstu kynni okk-
ar Stellu. Við hjón fluttum á efri
hæð hússins við Fífuhvammsveg
35, skömmu fyrir jól 1977. Það
var hvasst og rigningin buldi á
rúðum og þaki. Okkur gekk illa
að sofna vegna þess að niðri var
glaumur og gleði, spilað á gítar
og sungið.
Við ræddum það okkar í milli
hvort þetta yrði svona oftar en
góðu hófi gegndi. Morguninn eft-
ir hittum við Stellu í fyrsta sinn.
Hún var miður sín vegna þess
að hún vissi ekki að við hefðum
flutt inn daginn áður. Kristófer
(Bonni) maður hennar var fimm-
tugur og vinir og kunningjar
komu til veislu. Þetta var upp-
hafið að langri og traustri vináttu
okkar og fyrstu kynni af ná-
grönnum sem urðu vinir okkar
einnig. Þar með vorum við komin
í afmælishópinn hennar Stellu.
Stella var trygglynd og traust
kona. Það fengum við og börn
okkar að reyna og njóta með
ýmsum hætti. Hún kallaði son
okkar afmælisstrákinn sinn, þar
sem hann fæddist á afmælisdegi
hennar. Tryggð hennar og sam-
viskusemi kom víða fram. Garð-
urinn naut hennar og hún gaf
okkur góð ráð í þeim efnum. Vor
og sumar naut hún þess að
stjana við blómin og átti til að
gleyma stað og stund og dunda í
garðinum fram yfir miðnætti.
Stella var glaðlynd og átti það
til að grípa gítarinn og syngja í
góðra vina hópi. Hún kunni urm-
ul texta og margir þeirra voru
ekki á hvers manns vörum. Suma
þeirra hafði hún lært í æsku í
Njarðvík eða Vestmannaeyjum.
Það hefði verið fróðlegt að skrá
þá texta.
Hún fór ung að vinna á skrif-
stofu Hreyfils og vann þar alla
starfsævi sína, 50 ár. Þar þekkti
hún hvern mann, ætt hans og
uppruna að því er virtist. Okkur
fannst jafnvel að hún gæti með
einhverjum hætti tengt flest fólk
við einhvern sem tengdist
Hreyfli. Hún var minnug á fólk
og atburði og fræddi okkur um
ýmislegt frá fyrri tíð.
Stella var trygg vinkona okkar
allt til loka. Allra síðustu árin fór
heilsu hennar hrakandi og alz-
heimer-sjúkdómurinn herjaði á
með vaxandi þunga. Hún þekkti
okkur alltaf og brosti út að eyr-
um þegar minnst var á börnin
okkar tvö, ekki síst „afmælis-
strákinn“. Það var ekki fyrr en
fáeinum dögum fyrir andlátið
sem hún brást ekki við heimsókn
okkar.
Við kveðjum með söknuði
góða og trausta vinkonu.
Megi hún hvíla í friði.
Sigríður Bjarnadóttir,
Guðmundur B.
Kristmundsson.
Stefanía
Guðmundsdóttir
Veðrið ber á
blóminu með sum-
arrigningu og
hreti. Fyrr en varir
lýkur sumri, fjallablómið lokar
blómkrónunni sinni, alltof fljótt.
Þú varst blóm með sterkar
rætur og tókst á við það sem líf-
ið hafði upp á að bjóða af öllum
krafti. Þú varst góður vinur
sem hjálpaðir mér við að
styrkja mínar rætur og skjóta
þeim fast í hina íslensku fjalla-
auðn.
Það er ótrúlegt hvað við höf-
um verið mikið samferða í líf-
inu, en þú oftar en ekki skref-
inu á undan.
Við kynntumst í starfi björg-
unarsveitanna, en það átti hug
okkar beggja, þá sérstaklega
fræðin um leit að týndu fólki.
Kennsla var okkur líka hugleik-
in, við störfuðum saman um
stund í Vatnsendaskóla, en þó
var aðalhugsjón okkar menntun
björgunarfólks.
Það er með tárum sem ég
skrifa þennan texta til þín, orð-
Edda Björk
Gunnarsdóttir
✝ Edda BjörkGunnarsdóttir
fæddist 13. janúar
1983. Hún lést 12.
ágúst 2018.
Útför Eddu
Bjarkar fór fram
20. ágúst 2018.
in þau koma ekki,
það koma bara tár
og minningar.
Minningarnar um
allar þær stundir
og drauma sem við
áttum saman. Þær
stundir sem við átt-
um hafa haft mikil
áhrif á mig og líf
mitt, það væri ekki
eins ef þú hefðir
ekki verið þar. Þú
varst eins og stóra systir mín;
leiðbeindir mér og gættir, þú
kunnir alltaf réttu svörin, sama
hver spurningin var.
Ég vil þakka þér fyrir sam-
fylgdina. Minningin um þig mun
fylgja mér og öllum þeim sem
þekktu þig ævilangt. Fjölskyldu
þinni votta ég mína dýpstu sam-
úð.
Einar Eysteinsson.
Í einum af sínum mörgum
pistlum sem Edda Björk skrif-
aði, þar sem hún lýsti baráttu
sinni við krabbameinið, hafði
hún eftir ömmu sinni spekina:
„Kvöldroði bætir, morgunroði
vætir.“ Myndlíkingin var veðra-
brigði. Kvöldroði táknaði þurrt
veður en morgunroði vætu.
Edda Björk rifjaði líka upp að í
barnshuga hennar boðaði kvöld-
roðinn alltaf skemmtilega tíma
með mikilli gleði. Þessi visku-
korn frá ömmu hennar geta líka
átt við líf og brotthvarf Eddu
Bjarkar enda vætti morgunroð-
inn margar kinnar sunnudags-
morguninn 12. ágúst síðastlið-
inn þegar við fréttum að
baráttunni væri lokið. Undan-
farna daga og kvöld hafa svo
minningar sótt á og margt flog-
ið í gegnum hugann. Það hefur
verið gott að hugsa til Eddu
Bjarkar í kvöldroðanum undan-
farna daga og finna hvernig
samvistir við hana hafa bætt líf-
ið og gert okkur öll svo miklu
ríkari.
Barátta Eddu Bjarkar hefur
orðið okkur, samferðafólki
hennar, mikilvæg áminning um
að lífið er áskorun og að það
eru í raun forréttindi að lifa
hvert ár. Sýn hennar og æðru-
leysi hefur líka kennt okkur
margt. Uppgjöf var ekki til í
hennar orðabók og mætti hún
hverri áskorun af ótrúlegum
krafti og þrautseigju. Hún lét
ekkert stoppa sig en naut þess
að hafa sterkt og öflugt bakland
í fjölskyldu sinni og einstökum
vinum, sem hún átti marga.
Edda notaði pistlana sína
ekki bara til að lýsa eigin bar-
áttu heldur til hvatningar fyrir
sjálfa sig og okkur hin sem þá
lásu. Það var í raun sama
hversu miklum erfiðleikum var
lýst; alltaf var niðurlagið hvatn-
ing, samanber að „sjaldan væri
svo lágskýjað og mikið dimm-
viðri að ekki mætti greina ljós-
glætu í fjarska“. Hún var líka
mjög ákveðin í að minna fólk á
mikilvægi þess að njóta lífsins
með sínum nánustu og skapa
minningar enda var hún dugleg
við það sjálf og höfðu vænt-
umþykja og hugulsemi yfirhönd
yfir veikindum á þeim vett-
vangi. Það var í raun óskilj-
anlegt hvaðan sú orka kom.
Edda Björk var ráðin til
starfa hjá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg haustið 2016 og
starfaði við Björgunarskólann í
fullu starfi en einnig var hún yf-
irleiðbeinandi við skólann á
sviði leitartækni. Starf hennar
var henni miklu meira en lífs-
viðurværi enda áttu björgunar-
sveitarstörf og allt sem þeim
tengdist hug hennar allan og
voru í raun lífsstíll hennar. Hún
var virkur félagi í Hjálparsveit
skáta í Garðabæ en bakgrunn-
inn sótti hún í skátastarf eins
og svo margir sem í björgunar-
sveitum starfa.
Edda Björk var okkur, sam-
starfsfólki hennar hjá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg, ekki
aðeins frábær vinnufélagi held-
ur einnig einstakur vinur sem
við kveðjum nú með söknuði.
Hún gáraði vatnið hvar sem
hún kom og skapaði með okkur
skemmtilegar minningar sem
við munum njóta að rifja upp
um ókomna tíð. Gárur minning-
anna munu lifa áfram og verða
okkur huggun og falleg minning
í kvöldroðanum.
Við, samstarfsfólk hennar og
vinir hjá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg, vottum fjölskyldu
hennar okkar dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Eddu
Bjarkar Gunnarsdóttur.
Jón Svanberg Hjartarson.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar