Morgunblaðið - 21.08.2018, Page 27

Morgunblaðið - 21.08.2018, Page 27
á árunum 1978-82, var síðan mat- ráðskona við dvalarheimilið í Hátúni og hafði umsjón með félagsstarfi aldraðra á Eskifirði þar til hún lét af störfum fyrir fáeinum árum. Katrín og eiginmaður hennar settu á stofn Verkstæði Kötu á Eski- firði 1992 en þar stóð hún fyrir fjölda handverksnámskeiða fyrir börn og fullorðna. Auk þess hönnuðu þau hjónin þar ýmsar minja- og gjafavör- ur en Kristján, eiginmaður hennar, hannaði m.a. listmuni úr gömlum hestaskeifum. Katrín hefur lengi málað olíu- myndir, málað á striga, keramik og silki, unnið í leður og hannað og unn- ið glerlistaverk: „Eftir að ég lærði glerlistina úti í Danmörku hef ég einbeitt mér helst að glermunum, matarstellum og skúlptúrum. Ég var lengi með verkstæði úti í bæ en er nú að dunda mér við þetta hér heima í kjallaranum.“ Fjölskylda Katrín giftist 12.5. 1973 Kristjáni Ragnarssyni, f. 25.11. 1948, fyrrver- andi bæjarverkstjóra á Eskifirði. Hann er sonur hjónanna Ragnars Sigurmundssonar, f. 26.8. 1916, d. 4.10. 2007, vélstjóra á Eskifirði, og Sigríðar Rósu Kristinsdóttur, f. 10.8. 1923, d. 17.11. 2016, húsfreyju og verkakonu. Börn Katrínar og Kristjáns eru 1) Guðmundur Ragnar Kristjánsson, f. 13.1. 1974, pípulagningarmaður í Hveragerði, en kona hans er Halla Eyjólfsdóttir leikskólakennari og eru synir þeirra Alexander, Viktor og Atli; 2) Lilja Bára Kristjáns- dóttir, f. 29.10. 1975, kennari á Dal- vík, og eru dætur hennar Katla Rún og Hekla Rán; 3) Vilhelm Arnar Kristjánsson, f. 7.1. 1983, húsasmið- ur í Álaborg í Danmörku, en kona hans er Mette Kloster fasteignasali og 4) Sturla Halldór Kristjánsson, f. 2.9. 1984, bifvélavirki og starfs- maður Marel, búsettur í Reykjavík, en kona hans er Unnur Hólmfríður Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og eru börn þeirra Jörgen Gauti og Gígja Margrét. Systkini Katrínar: Hákon Guð- mundsson, f. 17.10. 1942, rafvirki á Akureyri; Ólafur Njáll Guðmunds- son, f. 25.6. 1945, fórst með ÍS Dóra í Ísafjarðardjúpi 1989, sjómaður á Ísafirði; Ketill Guðmundsson, f. 21.3. 1955, d. 17.7. 1985, lengi starfsmaður við Sparisjóð vélstjóra í Reykjavík. Foreldrar Katrínar voru hjónin Guðmundur E. Guðmundsson, f. 16.5. 1917, d. 15.6. 1985, lengi verk- stjóri hjá Norðurtanganum á Ísa- firði, og Lilja Halldórsdóttir, f. 4.6. 1919, d. 13.2. 2005, húsfreyja. Úr frændgarði Katrínar Guðmundsdóttur Sæmundína Messíana Sigurðardóttir verkakona á Ísafirði Albert Brynjólfsson formaður á Ísafirði Svanfríður Albertsdóttir húsfreyja á Ísafirði Halldór Sigurðsson skipstjóri á Ísafirði Lilja Halldórsdóttir húsfreyja og rak fatahreinsun á Ísafirði Jónína Barbara Sturludóttir húsfr. á Ísafirði og í Arnardal, af Arnardalsætt og Vigurætt Sigurður Guðmundsson húsm. í Arnardal í Skutulsfirði Híram Veturliðason b. í Hlöðuvík á Hornströndum, síðar í Hnífsdal ómas Albertsson prentari í Rvík TMessíana Tómasdóttir leik- og listakona í Rvík Alberta Albertsdóttir húsfreyja á Ísafirði elga Þuríður Marselíusardóttir húsfreyja á Ísafirði HÁslaug J. Jensdóttir framkvstj. á Ísafirði Frímann Aðalbjörn Sturluson skipatæknifr. í Kópavogi Sturla Halldórsson skipstj. og hafnarvörður hjá Ísafjarðarbæ Katrín Guðmundsdóttir Hákon Pétur Guðmundsson rafvirki á Akureyri Margrét Magnúsdóttir húsfreyja á Dynjanda Bæring Vagnsson hreppstjóri á Dynjanda Veturliði Vagnsson b. á Dynjanda í Jökulfjörðum Ketilríður Guðrún Veturliðadóttir húsfreyja og ljósmóðir á Hesteyri Guðmundur Theofílusson sjómaður á Hesteyri Sigurlína Jóakimsdóttir húsfreyja á Látrum Guðmundur Þeófílusson b. á Atlastöðum í Aðalvík Guðmundur Guðmundsson b. í Stakkadal í Sléttuhreppi Guðmundur Kristján Guðmundsson b. í Stakkadal Rannveig Guðmundsdóttir fv. alþm. og ráðherra Theofílus Þeófílusson húsm. á Látrum í Aðalvík Guðmundur E. Guðmundsson verkstjóri hjá Norðurtanganum og rak síðar fatahreinsun á Ísafirði Hólmaborgir Útsýni af pallinum heima hjá Katrínu á Eskifirði. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com 85 ára Rósant Hjörleifsson 80 ára Guðbjörg Magnea Magnúsdóttir Guðjón Jóhannes Hafliðason Magnús Guðmundsson Pálmi Lorensson Sesselja Ólafía Einarsdóttir 75 ára Ágústa Árnadóttir Erla Kristín Sigurðardóttir Gunnar Helgason Halldóra Sigríður Ásgrímsdóttir Jón Magni Ólafsson 70 ára Aðalheiður Helga Guðmundsdóttir Ingibjörg Stefánsdóttir Katrín Guðmundsdóttir Nijole Simniskiené Þórdís Elín Jóelsdóttir 60 ára Ágústa Sigurbjörg Ingólfsdóttir Ágústa Þorkelsdóttir Áslaug Helga Daníelsdóttir Jóhanna M. Steindórsdóttir Jón Alberts Kristjánsson Lyngmo Magdalena Helga Óskarsdóttir María R. Hauksd. Waage Sigríður Heiða Bragadóttir Svanhildur Benediktsdóttir 50 ára Ari Sigurðsson Elísabet Karlsdóttir Halldór Kristmundsson Ingólfur Arnar Kristjánsson Óttar Hreinsson Stefán Þórhallur Guðnason Svanfríður Linda Jónasdóttir Vilhjálmur Bergsteinsson Þorlákur Pétursson Þórunn Íris Þórisdóttir 40 ára Bryndís Valdimarsdóttir Elísabet Hrönn Egilsdóttir Guðfinna Björg Björnsdóttir Guðný Kristrún Guðjónsdóttir Hallgrímur Steinsson Ingigerður Stella Logadóttir Maik Kirchgaessner Stefán Svanur Sigurðsson Tómas Helgi Jónsson Yannick Víkingur Hafliðason 30 ára Arnar Bergþórsson Atli Már Atlason Ágústa Dóra Kristínardóttir Birna Hlín Hilmarsdóttir Davis Krumins Elva Björk Bjarnadóttir Grjetar Andri Ríkarðsson Guðmundur Ómar Guðmundsson Halldór Hallgrímsson Gröndal Karl Orri Einarsson Kristina Jasaité Reynir Gunnarsson Róbert Benedetto Patrizi Serghei Cusnir Súsan Ósk Scheving Thorsteinsson Sveinn Bjarnason Tuan Minh Nguyen Vilhjálmur Ólafsson Til hamingju með daginn 40 ára Bryndís er frá Stóra-Núpi í Gnúpverja- hreppi en býr í Hveragerði og er kennari í grunnskól- anum þar. Maki: Sævar Þór Helga- son, f. 1973, skólastjóri í Hveragerði. Börn: Ívar Dagur, f. 2005, og Valdimar Helgi, f. 2012. Foreldrar: Valdimar Jó- hannsson, f. 1951, og Svanborg R. Jónsdóttir, f. 1953, bús. á Stóra-Núpi. Bryndís Valdimarsdóttir 40 ára Guðný er Vest- urbæingur og hjúkrunar- fræðingur og vinnur á heilsugæslunni í Miðbæ. Hún er einnig með BA í ensku og bókmenntum. Systkini: Gréta Sigur- borg, f. 1968, Stefán, f. 1971. Hálfbróðir Guðnýjar er Geir, f. 1967. Foreldrar: Guðjón Eiríkur Ólafsson, f. 1945, sérkenn- ari og fv. fræðslustj., og Hildur Stefánsdóttir, f. 1946, hjúkrunarfræðingur. Guðný Kristrún Guðjónsdóttir 30 ára Elva er Hafnfirð- ingur og er að hefja störf á þjónustumiðstöðinni Klettabæ. Hún er með BS í sálfræði. Maki: Árni Óli Ólafsson, f. 1983, hljóðmaður hjá Gamla bíói. Börn: Bjarni Óli, f. 2013, Ylfa Ösp, f. 2017, stjúp- dóttir er Elíana Ísis, f. 2007. Foreldrar: Bjarni Arnar- son, f. 1962, og Sigurlaug Sverrisdóttir, f. 1964. Elva Björk Bjarnadóttir ● Rúnar Leifsson hefur varið dokt- orsritgerð sína í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Dýrafórnir og grafsiðir víkingaaldar á Íslandi (Ritual Animal Killing and Burial Customs in Viking Age Ice- land). Andmælendur voru Anne Ped- ersen, fornleifafræðingur við Þjóð- minjasafn Danmerkur, og James Morris, lektor við UCLAN. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Orra Vésteinssonar, prófess- ors í fornleifafræði. Aðrir í doktors- nefnd voru Anne Karin Hufthammer og Neil Price. Rannsóknin grundvallast á grein- ingu allra tiltækra dýrabeina úr ís- lenskum víkinga- aldarkumlum. Með því er ljósi varpað á dráp og greftrun dýra á grafreitum vík- ingaaldar hér- lendis. Gögn frá öllum kumlateig- um landsins, sem og úrtak frá Noregi, eru endurskoðuð á gagnrýninn hátt með það fyrir aug- um að draga fram einkenni þessara siða og setja þá í félagslegt og sögu- legt samhengi. Rannsóknin er framlag til aukins skilnings á þróun íslensks samfélags á 10. öld. Rúnar Leifsson Rúnar Leifsson lauk BA-prófi í fornleifafræði við Háskóla Íslands árið 2004 og MSc-prófi í dýrabeinafræði við University of York árið 2005. Á námstímanum hlaut hann doktorsnemastyrk frá Rannsóknarsjóði Rannís og hefur verið stunda- kennari við Háskóla Íslands meðfram námi. Þá sat hann eitt misseri við Univer- sitetet i Bergen og hefur auk þess stundað rannsóknir á Íslandi, í Noregi og í Bretlandi. Hann starfar nú hjá Minjastofnun Íslands. Rúnar er giftur Brynhildi Þórðardóttur, textíl- og fatahönnuði, dóttir þeirra heitir Úlfhildur Andrea. Doktor

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.