Morgunblaðið - 21.08.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 21.08.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 Til í mörgum stærðum og ge Nuddpottar Fullkomnun í líkamlegri vellíðan rðum Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gerðu ráð fyrir að rekast á alls konar fólk úr fortíðinni næstu vikurnar. Reiknaðu út hvað þú skuldar mikið og gerðu ráðstafanir út frá því. 20. apríl - 20. maí  Naut Misstu aldrei trúna, þótt einhver ský kunni að draga upp á himininn. Leitaðu hjálpar eða hafðu samband við sérfræðing svo hlutirnir séu rétt gerðir strax. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu ekki reiðiköst annarra setja þig út af laginu. Gleymdu því sem ætlast er til af þér og hlustaðu á þína eigin rödd. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Mundu að kapp er best með forsjá. Einhver hittir á snöggan blett á þér, haltu samt þínu striki. Einhver lofar bót og betrun, ætlar þú að gefa því séns? 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er eitt og annað sem svífur í lausu lofti hjá þér svo þú þarft að ná betri tökum á hlutunum. Til að forðast meiri spennu skaltu forðast frekjudollur sem verða á vegi þínum í dag. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er sama hvað þú ert að glíma við; þú ert örugglega ekki eina mann- eskjan sem svo er ástatt fyrir. Lausnin er innan seilingar og kemur skemmtilega á óvart. 23. sept. - 22. okt.  Vog Notaðu daginn í verslun og viðskipti. Reyndu að taka öllu með jafnaðargeði og gera það besta úr hlutunum. Þú hristir eitt matarboð fram úr erminni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Öll þurfum við einhvern tíma hjálp og stuðning. Gömul vandamál skjóta upp kollinum sem þú ættir að bera undir góðan vin. Til þess eru þeir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert að velta því fyrir þér hvort þú eigir að sýna meiri hörku í við- kvæmu máli. Að tala hreint út hreinsar andrúmsloftið. 22. des. - 19. janúar Steingeit Líklegt er að vinur þinn komi þér á óvart í dag. Fyrirhyggjulaus eyðsla verður þér bara til vandræða. Einhver lofar þér gulli og grænum skógum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nýjungar eiga til að rugla fólk í ríminu í fyrstu, en hæfnin og sjálfstraustið eykst með tímanum. Þér verða slegnir gullhamrar sem gera þig orðlausa/n. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert full/ur af krafti og vilt gera allt í einu. Kláraðu fyrst gömlu verkefnin. Þú getur sigrað heiminn ef þú bara vilt. Davíð Hjálmar Haraldsson segirfrá því á Leir að í ferð Ein- ingar-Iðju til Austurríkis á dög- unum hafi verið dálítið ort. Hér er sýnishorn og segist Davíð Hjálmari svo frá: – „Harpa leiðsögumaður fræddi okkur um allt sem fyrir bar og var nákvæm og talnaglögg. Margt af þessu var merkilegt, jafn- vel stórundarlegt, og settist í minnið. Austurríki er í svo miklum halla að ekki er hægt að brynna kúm í dalla. Við fjallavötn er samfelld sæld og friður 68 km niður. Á einu veitingahúsinu fengum við óvenjulegan súpudisk. Ég er ekki fyrir gálaust gisk, gaman finnst mér stundum samt að pæla. Ég fékk súpu í svo djúpan disk að dýpið þyrfti Hörpu til að mæla. Björn formaður stjórnaði öllu með röggsemi, fór fremstur og ruddi erfiðleikum úr vegi. Í bílnum var hann duglegur að rukka það sem hann sagðist hafa borgað fyrir okkur og safnaði þá í sekk. Enn man ég vorin með indæla for er ösluðu leðjuna trukkar. Í gólfinu á rútunni greina má spor, þar gengur hann Bjössi og rukkar. Ólygnir sögðu söfnunarsekk Björns miklum mun þyngri við heimför en brottför frá Íslandi. Safnast menn í sumarfrí með sína bestu vini. Formaðurinn fór þó í fjáröflunarskyni. Harpa var ekki bara afburða leiðsögumaður, hún var einnig af- skaplega hjálpsöm. Eitt sinn þurfti hópurinn á snyrtingu og var orð- inn dálítið tæpur. Þarna var gjald- hlið og var tímafrekt að setja ná- kvæma upphæð í þrönga rifu til að fá aðgang. Harpa fór þá að hjálpa til og skammtaði líka fyrir menn í rifuna. Að hliðinu menn hópuðust í keng og Harpa setti peninga í raufina en fyrst á þeim sem fremstir voru í spreng hún flýtti sér að opna buxnaklaufina.“ Ingólfur Ómar yrkir um veðrið: Sólarylur yljar brá eykur gleði mína alltaf finnst mér sælt að sjá sól í heiði skína. Enn yrkir Ingólfur Ómar: Þraut og pína þrengir að þungan skell má líða engan skyldi undra það þótt Ómar detti í ’ða. Halldór Blöndal (halldorblondal@simnet. is) Vísnahorn Ort í Austurríki „BAKSÝNISMYNDAVÉLIN HJÁLPAR ÞÉR AÐ FYLGJAST MEÐ FYLGJENDUM ÞÍNUM.“ „ÞÚ MISSIR EKKI DÓTTUR. VIÐ ÆTLUM AÐ BÚA HÉRNA!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sjá eitthvað sérstakt í hvort öðru. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann FÆTUR MÍNIR ERU KALDIR OG BLAUTIR! ÞETTA ER ÁHUGAVERT... SAGT ER AÐ LYKILLINN AÐ LANGLÍFI SÉ AÐ REYNA EITTHVAÐ NÝTT ÉG ER SAMMÁLA... EF VIÐ TELJUM BRAGÐTEGUNDIR AF ÍS MEÐ MÍNIR LÍKA! VIÐ HLJÓTUM AÐ HAFA SLYSAST ÚT Í ÞENNAN NÝMÓÐINS FLJÓTANDI STEIN! Víkverji flaug á dögunum meðbresku flugfélagi frá Spáni til Bretlands sem væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að flugstjórinn var með óvænt og óvenjulegt innlegg í upp- hafi ferðar. Kappinn birtist þá við enda gangsins með hljóðnema og Víkverji velti því fyrst fyrir sér hvort hann ætlaði hreinlega að hlaða í uppistand að hætti Ara Eldjárn og slíkra spéfugla. Því næst flögraði að Víkverja að eitthvað mikið hlyti að vera að fyrst flugstjórinn fyndi sig knúinn til að birtast farþegum með þess- um hætti; vélin væri örugglega bil- uð eða heimsstyrjöld skollin á. Jafnvel hvort tveggja. x x x Hvorugt var raunin. Flugstjórinnvar bara að tilkynna um örlitla töf á brottför vegna þrumuveðurs á leiðinni. Fljúga þyrfti framhjá veðrinu og biðröð hefði myndast á þeirri greiðu leið. Fyrir vikið yrð- um við að bíða þolinmóð í nokkrar mínútur uns röðin kæmi að okkur. Fyrst hann var kominn með „sviðið“ notaði flugstjórinn tæki- færið til að hnykkja á örygg- isþáttum flugsins; hvatti farþega til að kynna sér öryggisbúnað vél- arinnar á þar til gerðum spjöldum í vasanum á sætinu fyrir framan þá. Ekki endilega okkar sjálfra vegna heldur ekki síður vegna allra hinna um borð. Færi eitthvað úrskeiðis væri mikilvægt að við- brögð farþega yrðu fumlaus og á einn veg. x x x Víkverji fann að ekki þótti öllumviðstöddum þessa brýning þægileg og líklega hefur flugstjór- inn áttað sig á því sjálfur að hann væri orðinn helst til dramatískur; alltént lauk hann máli sínu á því að hann myndi að sjálfsögðu gæta ör- yggis farþega í hvívetna meðan á fluginu stæði og gera sitt allra besta til að koma okkur heilu og höldnu á áfangastað. Við það létt- ist andrúmsloftið í vélinni. x x x Skömmu síðar fór vélin í loftið ogallt gekk vel. vikverji@mbl.is Víkverji Því að ég, Drottinn, er Guð þinn, ég held í hægri hönd þína og segi við þig: „Óttast eigi, ég bjarga þér.“ (Jesaja 41.13)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.