Morgunblaðið - 22.08.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 22.08.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. Á G Ú S T 2 0 1 8 Stofnað 1913  196. tölublað  106. árgangur  MANNESKJAN OG SAMFÉLAGIÐ Í SÝNINGUNUM NÝTA OG ENDURNÝTA ER AÐ BYRJA 22. ÞJÁLFARATÍMABILIÐ Í ÞÝSKU 1. DEILDINNI UMHVERFISVÆNAR LAUSNIR 13 ALFREÐ GÍSLASON ÍÞRÓTTIRBORGARLEIKHÚSIÐ 30  Aðeins tvö frí- stundaheimili í Reykjavík eru fullmönnuð fyrir komandi skólaár, en 211 starfs- menn vantar í 103,3 stöðugildi. 15,8 þeirra eru stöðugildi með fötluðum börn- um og ungmenn- um og vantar 33 starfsmenn. Betur hefur gengið að ráða fólk til starfa í leik- og grunnskóla auk frístundaheimila heldur en í fyrra. 16 grunnskólar eru fullmannaðir, en 20 skólar eru ekki fullmannaðir. Helmingur leikskóla er fullmann- aður. Á leikskóla borgarinnar á eft- ir að ráða í 61,8 stöðugildi og 33,4 stöðugildi á eftir að manna í grunn- skólum borgarinnar. Óvíst er með dagsetningar inn- töku 128 leikskólabarna af þeim 1.400 sem hafa fengið boð um vist- un í haust. »4 211 starfsmenn vantar á frístunda- heimilin í borginni Mönnun Betur hef- ur gengið en í fyrra. Margar á 100 milljónir » Við Grandaveg í Reykjavík og í Lundi og við nýtt Kársnes í Kópavogi eru margar íbúðir í sölu á um 100 milljónir króna. » Lúxusmarkaður með íbúðir hefur stækkað ört síðustu ár. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vísbendingar eru um að sala nýrra íbúða í miðborginni gangi hægar en fjárfestar bundu vonir við. Nú eru til sölu, eða eru að koma í sölu, minnst 500 íbúðir á svæðinu. Miðað við verðþróun má ætla að ásett verð sé að minnsta kosti 25-30 milljarðar. Einn þessara fjárfesta ræddi við Morgunblaðið í trausti nafnleyndar. Hann sagði útlit fyrir að framboð á miðborgaríbúðum væri að aukast of mikið á skömmum tíma. Leita á ódýrari svæði Spurður um vísbendingar um hægari sölu í miðborginni sagði Elvar Orri Hreinsson, sérfræðingur hjá Íslandsbanka, að þær kynnu að benda til þess „að miðbæjarálagið sé orðið hátt og að fólk sjái hag sínum betur borgið með því að kaupa íbúðir sem eru utan þess svæðis“. Sturla Geirsson, framkvæmda- stjóri hjá Rauðsvík, segir mikilvægt að horfa til lengri tíma á fasteigna- markaði. Hann sé svo hvikull. „Einn daginn er rífandi eftirspurn. Næsta dag les maður að allt sé í dróma.“ Hægir á sölu lúxusíbúða  Vísbendingar eru um að sala nýrra íbúða í miðborginni sé hægari en áætlað var  Tugmilljarða fjárfesting í húfi  Sérfræðingur bendir á hátt miðborgarálag MSprenging í framboði … »6 Morgunblaðið/Valli Ráðhús Reykjavíkur Embættis- menn starfa fyrir kjörna fulltrúa. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Sérfræðingar í opinberri stjórnsýslu, sem rætt var við í gær, telja fram- göngu borgarritara og skrifstofu- stjóra Reykjavíkurborgar, þegar þeir sökuðu kjörinn borgarfulltrúa um að hafa brotið trúnað, vera ein- staka. Eva Marín Hlynsdóttir, sérfræð- ingur í opinberri stjórnsýslu og lekt- or við HÍ, telur líklegt að embætt- ismennirnir hafi hlaupið á sig. Annar sérfræðingur segist ekki muna eftir tilviki sem þessu. Emb- ættismenn starfi fyrir pólitískt kjörna fulltrúa, hvort sem þeir til- heyri meirihluta eða minnihluta. Allir embættismenn borgarinnar séu á ábyrgð borgarstjóra. Eva Marín sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að borgarfulltrú- inn sem um ræddi (Vigdís Hauks- dóttir) hefði ekki farið með upplýs- ingar innan úr stjórnsýslunni. „Vel mögulegt er að einhver eða einhverj- ir hafi hlaupið á sig og verið of fljótir að bregðast við með þeim hætti sem gert var,“ sagði Eva Marín. »4 Framgangan sögð einstök  Telur líklegt að embættismennirnir hafi hlaupið á sig Systurnar Erla Sólbjört og Perla Sólbrá Jóns- dætur eru spenntar að byrja aftur í skólanum. Þær voru í leit að drauma skólatöskunni þegar blaðamaður hitti þær fyrir í skólavöruverslun í gær. Um 4.500 nemendur hefja nám í fyrstu bekkjum grunnskóla landsins samkvæmt tölum frá Menntamálastofnun og má búast við að líf- legt verði í skólum landsins þegar fróðleiks- þyrstir nemendur setjast á skólabekk. »11 Eftirvæntingin mikil meðal skólabarna Morgunblaðið/Eggert Grunnskólar hefjast á ný eftir sumarleyfi  Hagnaður af rekstri samstæðu útgerðarfyrir- tækisins Brims hf. nam tæpum 1,7 milljörðum króna á árinu 2017. Til saman- burðar var hagn- aður af rekstri félagsins 116 milljónir árið á undan. Í ársreikningi félagsins kemur fram að í kjölfar yfirtökutilboðs á HB Granda í vor á Brim nú alls 37,02% í HB Granda. »16 Brim hagnaðist um 1,7 milljarða króna Guðmundur Krist- jánsson er aðaleig- andi Brims hf.  Aðsókn í djúpköfun í Silfru hefur minnkað um u.þ.b. 60-70% eftir að öryggiskröfur í gjánni voru hertar til muna í mars á síðasta ári, en ánægja er með hinar hertu örygg- iskröfur. Framkvæmdastjóri ferðaþjón- ustufyrirtækis á svæðinu segir að í dag snorkli í Silfru sama fólk og að líkindum hefði farið í djúpköfun. Tæpt eitt og hálft ár er frá því að banaslys varð í Silfru. »18 60-70% færri í djúpköfun í Silfru Silfra Kafarar snorkla í gjánni. Samið hefur verið við Íslenska aðalverktaka um jarðvinnu vegna byggingar meðferðarkjarna nýs Landspítala ásamt götum, veitum og lóð. Vinnur ÍAV verkið fyrir 2,8 milljarða króna á 20 mánaða framkvæmdatíma. Framkvæmdir eru hafnar. Meðferðarkjarninn verður sunnan við hús barnaspít- alans og mun ná yfir gömlu Hringbrautina. Áætlað er að göt- unni verði lokað til móts við Bar- ónsstíg í lok nóvember og mun umferð að og frá Barónsstíg því breytast. Þá hefur í sumar verið unnið að gerð bílastæða norðan við Umferðarmiðstöðina, til bráða- birgða. »14 Gömlu Hringbraut- inni verður lokað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.