Morgunblaðið - 22.08.2018, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vísbendingar eru um að sala nýrra
íbúða í miðborg Reykjavíkur sé hæg-
ari en áætlað var. Minnst 500 nýjar
íbúðir eru nú til sölu eða á leið í sölu.
Fjárfestir í íbúðarhúsnæði í mið-
borginni, sem óskaði nafnleyndar,
segir framboðið mikið.
„Við erum að ráðast fullhratt í
þéttingu byggðar. Það er betra að
fara hægt í þéttingu á svo litlum
markaði. Þétting byggðar er af hinu
góða. En hvorki borgin né húsbyggj-
endur höfðu í huga að reisa hús sem
stæðu tóm. Framboð á miðborgar-
íbúðum virðist vera að aukast of mik-
ið á skömmum tíma. Líklegt má telja
að hluti þessa húsnæðis muni nýtast
í annað en íbúðir, til dæmis hótel-
íbúðir. Þeim væri alltaf hægt að
breyta í íbúðir, þegar viðhorf til þess
að búa í miðborginni hafa þróast.
Slíkt myndi strax stuðla að auknu
mannlífi í miðborginni. Það kemur
bankamönnum líka í opna skjöldu að
markaðurinn hafi breyst svona
mikið,“ sagði umræddur fjárfestir.
Annar reyndur byggingaraðili
sagði öllum ljóst að sala nýrra íbúða í
miðborginni myndi taka tíma.
Miðborgarálagið e.t.v. of hátt
Elvar Orri Hreinsson, sérfræðing-
ur hjá Íslandsbanka, segir aðspurð-
ur að vísbendingar um hægari sölu
nýrra miðborgaríbúða geti „bent til
mettunar á markaði fyrir dýrari
eignir, að verðlagning sé of há eða til
samverkandi áhrifa áðurgreindra
þátta“. „Almennt er sölutími íbúða
að styttast og er um þessar mundir
nokkuð styttri en t.d. í byrjun árs.
Þetta gæti þá bent til þess að mið-
bæjarálagið sé orðið hátt og að fólk
sjái hag sínum betur borgið með því
að kaupa íbúðir sem eru utan þess
svæðis,“ segir Elvar Orri.
Verktakafyrirtækið Þingvangur
byggði upp Hljómalindarreitinn og
er langt komið með Brynjureitinn.
Þá byggði það m.a. fjölda íbúða á
Grandavegi á gamla Lýsisreitnum.
Íbúðir á Klapparstíg við Hljóma-
lindarreit eru að koma í sölu hjá
Þingvangi. Sala íbúða á Brynjureit
hefst hins vegar um áramótin.
Pálmar Harðarson, framkvæmda-
stjóri hjá Þingvangi, segir flestar
þessara íbúða vera smærri íbúðir.
Margar henti því fyrstu kaupendum.
Hægt verði að fá íbúðir á 30-40 millj.
Markaðurinn gengur í bylgjum
Félagið Rauðsvík er að byggja 140
íbúðir við Hverfisgötu og Skúlagötu.
Sturla Geirsson, framkvæmda-
stjóri Rauðsvíkur, segir sölu á 70
íbúðum hefjast eftir áramótin. Hann
segir flestar þeirra vera smærri
íbúðir sem nú sé kallað eftir.
Sturla segir mikilvægt að horfa til
lengri tíma á fasteignamarkaði.
Sveiflur geti orðið til skamms tíma.
„Markaðurinn er svo hvikull.
Einn daginn er rífandi eftirspurn.
Næsta dag les maður að allt sé í
dróma. Fasteignamarkaðurinn
gengur alltaf í sveiflum. Þær eru
fljótar að ganga yfir. Eftirspurnin
er mismunandi milli tímabila. Að
lokum mun þetta allt seljast. Við
höfum engar áhyggjur af því. Þetta
eru falleg hús á góðum stað og góðar
íbúðastærðir.“
Salan var róleg í sumar
Kjartan Hallgeirsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Eignamiðlun og
formaður Félags fasteignasala, segir
aðspurður erfitt að fullyrða að nýjar
eignir í miðbænum seljist hægt.
Margar eigi eftir að koma í sölu.
Þá bendir hann á að vel gangi að
selja nýjar íbúðir á mjög háu fer-
metraverði í Jaðarleiti, Ofanleiti og í
Arnarhlíð í Vatnsmýri.
„Ég held að þessir fjórir mánuðir
fram að áramótum muni skýra stöð-
una. Það er erfitt að nota sumarið
sem mælikvarða. Það var rólegra í
fasteignasölunni en oft áður, sem
hefur áhrif á allan markaðinn. Ég
hef trú á að hann taki við sér. Svo
mun koma í ljós á hvaða svæðum
markaðurinn er sterkastur.“
Spurður hvort fjárfestar hafi
dregið úr íbúðakaupum bendir
Kjartan á að leigufélög hafi keypt
fjölda íbúða. Nú séu vísbendingar
um að þau hafi dregið úr kaupum.
„Þá hafa skammtímafjárfestar
keypt eignir af því að þeir hafa trú á
að verðið hækki. Það er auðvitað allt-
af verið að veðja á þennan markað.
Ef fjárfestar horfa fram á minni
verðhækkanir kann að draga úr slík-
um kaupum,“ segir Kjartan.
Með hágæðaíbúðir í sérflokki
Félagið Austurhöfn er að byggja
71 íbúð við Austurbakka við Hörpu.
Sveinn Björnsson, framkvæmda-
stjóri félagsins, segist aðspurður
vera vongóður um söluna.
„Við teljum að það sé markaður
fyrir það sem við erum að gera.
Þetta eru hágæðaíbúðir og staðsetn-
ingin er einstök. Það sem greinir
þessar íbúðir frá öðrum er að þó
nokkuð margar verða í stærri kant-
inum. Það er ekki verið að byggja
margar þess háttar íbúðir í miðborg-
inni. Þær henta til dæmis fólki sem
er að fara úr sérbýli. Margar íbúð-
anna sem snúa að hafnarbakkanum
eru 180 fermetrar,“ segir Sveinn. Þá
bendir hann á að hluti af kaupenda-
hópnum sé fjársterkir aðilar sem eru
ónæmari fyrir skammtímasveiflum
en almennir kaupendur á íbúða-
markaði. Meðal annars sé jafnvel
horft til erlendra kaupenda.
Dæmi um nýjar íbúðir í miðborginni
*Hverfisgata 40-44 og Laugavegur 27a-27b. **Miðað við söluvefi viðkomandi verkefna og upplýsingar frá verktökum.
Upplýsingar á vefjum kunna að vera úreltar. ***Alls um 140 íbúðir verða á þessum reit og öðrum semRauðsvík er að byggja.
Sprenging í framboðinu
Sölutölur benda til að nýjar íbúðir í miðborginni seljist hægar en áætlað var
Framkvæmdastjóri hjá Rauðsvík segir fasteignamarkaðinn ganga í bylgjum
Morgunblaðið/Baldur
Uppbygging Tvö félög eru að byggja á sitthvorum reitnum ofarlega á Hverfisgötu. Hluti íbúðanna er kominn í sölu.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
Starfshópur um aðgerðir gegn kyn-
ferðislegri áreitni og ofbeldishegðun
í íþrótta- og æskulýðsstarfi kynnti í
gær tillögur sínar í mennta- og
menningarmálaráðuneytinu. Tilefn-
ið var frásagnir 62 íþróttakvenna um
áreiti, ofbeldi og mismunun í íþrótta-
heiminum sem voru hluti #metoo-
vitundarvakningarinnar, en 17 frá-
sagnanna vörðuðu nauðganir.
Meðal tillagna hópsins er að
óheimilt verði að ráða til starfa hjá
íþrótta- og æskulýðsfélögum ein-
staklinga sem hlotið hafi refsidóma
fyrir brot sem falla undir kynferðis-
brotakafla hegningarlaga. Einnig er
lagt til að til staðar verði óháður aðili
sem tekið geti við upplýsingum um
ofbeldi og aðra óæskilega hegðun og
komið í réttan farveg og að skýrir og
samhæfðir verkferlar og viðbragð-
sáætlanir séu til staðar hjá félögum
og samtökum í íþrótta- og æskulýðs-
starfi. Enn fremur leggur hópurinn
til að fræðsluefni um kynferðislegt
ofbeldi og óæskilega hegðun verði
samræmt og þeir sem beri ábyrgð á
íþrótta- og æskulýðsstarfi hafi
grunnþekkingu á því hvernig bregð-
ast eigi við þegar mál af þessum toga
komi upp og að markvist verði unnið
í jafnréttismálum á vegum íþrótta-
hreyfingarinnar.
Frumvarp í smíðum
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðhera, kynnti
ríkisstjórninni tillögurnar í gær, en
hún segir frumvarp, byggt á tillög-
unni um óháðan aðila, vera í vinnslu
hjá ráðuneyti og ráðgert sé að það
komi fram í haust. Hafdís Inga
Helgudóttir Hinriksdóttir, fyrrver-
andi landsliðskona í handknattleik
og meðlimur hópsins, hrósaði Lilju
fyrir skjót viðbrögð eftir fjölmiðla-
umfjöllun um málefni íþróttakvenna.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kynning Tillögur starfshópsins
kynntar í ráðuneytinu í gær.
Iðkendur
fái öruggt
umhverfi
Tillögur íþrótta-
fólki til verndar
Stefán Karl Stefánsson
leikari er látinn, 43 ára
að aldri. Hann var
þekktastur fyrir túlkun
sinni á Glanna Glæp í
sjónvarpsþáttaröðinni
Latabæ. Banamein
hans var gallganga-
krabbamein sem hann
greindist með fyrir
tveimur árum.
Stefán var fæddur í
Hafnarfirði 10. júlí
1975, sonur hjónanna
Huldu Karenar Ólafs-
dóttur og Stefáns Björgvinssonar,
sem er látinn.
Stefán Karl útskrifaðist úr Leik-
listarskóla Íslands vorið 1999 og var
fastráðinn við Þjóðleikhúsið sama
ár. Fyrsta hlutverk hans var raunar
í Áramótaskaupi Sjónvarpsins árið
1994, þegar hann var 19 ára. Hann
lék í öðrum leikhúsum,
í sjónvarpi og nokkr-
um kvikmyndum.
Þekktastur var hann
fyrir leik sinni í Lata-
bæ. Hann lék fyrst í
leikriti Magnúsar
Scheving og túlkaði
síðan Glanna Glæp í
sjónvarpsþáttum fyrir
börn sem sýndir voru
um allan heim. Stefán
Karl lék titilhlutverkið
í söngleiknum „Þegar
Trölli stal jólunum“
sem sýndur var víðs vegar um
Bandaríkin og Kanada á árunum
2008 til 2015.
Meðal eftirminnilegra hlutverka
er leikur hans með Hilmi Snæ
Guðnasyni í verkinu „Með fulla vasa
af grjóti“ á árinu 2000, aftur 2002 og
síðast á nýliðnu ári en það var jafn-
framt eitt af síðustu hlutverkum
hans á leiksviði.
Stefán Karl hóf baráttu gegn ein-
elti og stofnaði samtökin Regnboga-
börn til að vinna að fræðslu á því
sviði. Hélt hann fjölda fyrirlestra í
skólum og víðar og aðstoðaði fólk.
Stefán Karl fékk ýmis verðlaun
fyrir leik sinn. Forseti Íslands
sæmdi hann riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu 17. júní sl. fyrir
framlag hans til íslenskrar leiklistar
og samfélags.
Eftirlifandi eiginkona Stefáns
Karls er Steinunn Ólína Þorsteins-
dóttir, leikkona og ritstjóri. Þau eiga
fjögur börn; Bríeti Ólínu, Elínu
Þóru, Júlíu og Þorstein.
Steinunn Ólína lét þess getið þeg-
ar hún tilkynnti lát eiginmanns síns
að engin jarðarför yrði og að ósk
hins látna yrði jarðneskum leifum
hans dreift í kyrrþey á úthafi fjær.
Andlát
Stefán Karl Stefánsson leikari