Morgunblaðið - 22.08.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018
Styrmir Gunnarsson beinir kast-ljósinu að því að ESB þvælist
með öllum ráðum gegn útgöngu
Breta og vonist til að úlfúð og
erfiðleikar tryggi
uppgjöf þeirra.
Hann segir að þau
vinnubrögð sé um-
hugsunarefni fyrir
Íslendinga. ESB sé í
dag allt annað en
það sem við sömd-
um við um EES-
samninginn 1993 og
við liggi að skrifstofuveldi þess
hafi breyst í einhvers konar
skrímsli:
Þeir komu í veg fyrir að ákvörð-un löglega kjörinna stjórn-
valda í Grikklandi um að leggja
björgunarsamninga í efnahags-
málum undir þjóðaratkvæði í
Grikklandi næði fram að ganga
fyrir nokkrum árum.
Þeim tókst að flæma ítalskanforsætisráðherra úr embætti
með hótunum um efnahagslegar
refsiaðgerðir, sem Ítalar hefðu
ekki þolað.
Nú reyna þeir að brjóta niðurmeirihlutavilja brezku
þjóðarinnar eins og hann birtist í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Við erum sem sjálfstæð þjóð í
hættu stödd í samskiptum okkar
við Evrópusambandið. Þess vegna
eiga umræður hér ekki að snúast
um að tengjast því nánari böndum
heldur þvert á móti.
Fyrstu skrefin eru að hafnaþriðja orkupakka ESB og
draga aðildarumsókn Íslands að
ESB formlega til baka með sam-
þykkt Alþingis.
Í framhaldinu er tímabært aðhefja umræður um framtíð
EES-samningsins.“
Styrmir
Gunnarsson
Sláandi lýsing
STAKSTEINAR
N1 hf. býður til sölu:
Annars vegar rekstur fimm eldsneytisstöðva ásamt vörumerkinu
„Dælunni“ og tilheyrandi eignum.
Hins vegar reksturdagvöruverslunaráHelluásamt tilheyrandi eignum.
Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við Fyrirtækja-
ráðgjöf Landsbankans sem hefur umsjón með söluferlinu fyrir hönd
N1. Fyrirspurnirmá senda á fyrirtaekjaradgjof@landsbankinn.is. Fjár-
festar fá fjárfestakynningu afhenta gegn undirritun trúnaðaryfirlýs-
ingar og gera tilboð á grundvelli þeirra gagna. Óskað er eftir tilboðum
í annars vegar eldsneytisreksturinn og hins vegar dagvöruverslunina.
Tilboðsfrestur er til klukkan 16.00 þann 13. september 2018.
Dælan og fimm
eldsneytisstöðvar til sölu
Einnig til sölu dagvöruverslun á Hellu
Veður víða um heim 21.8., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 11 skýjað
Akureyri 10 rigning
Nuuk 8 skýjað
Þórshöfn 10 rigning
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 19 léttskýjað
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 16 heiðskírt
Lúxemborg 27 heiðskírt
Brussel 17 þoka
Dublin 24 léttskýjað
Glasgow 19 skúrir
London 24 heiðskírt
París 25 heiðskírt
Amsterdam 23 léttskýjað
Hamborg 23 léttskýjað
Berlín 23 heiðskírt
Vín 31 heiðskírt
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 29 léttskýjað
Madríd 32 léttskýjað
Barcelona 31 léttskýjað
Mallorca 31 léttskýjað
Róm 26 þrumuveður
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 20 heiðskírt
Montreal 23 léttskýjað
New York 21 alskýjað
Chicago 22 rigning
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:41 21:21
ÍSAFJÖRÐUR 5:35 21:37
SIGLUFJÖRÐUR 5:18 21:20
DJÚPIVOGUR 5:08 20:53
Talsvert vantar upp á viðhald ým-
issa landsbyggðarvega, sér í lagi
heimreiða upp að gistiheimilum,
veitingahúsum og öðrum þjónustu-
miðstöðvum, að sögn ferðaþjónust-
unnar. „Við erum að fá kvartanir yf-
ir [heimreiðinni] og gengur ansi illa
að fá Vegagerðina til að laga þokka-
lega,“ skrifaði Ingi Ragnarsson um
holur í heimreiðinni að gisti- og veit-
ingahúsinu sem hann rekur á Djúpa-
vogi í Facebook-hópinn Bakland
ferðaþjónustunnar.
„Samkvæmt vegalögum er þetta
náttúrlega á forræði Vegagerðar-
innar,“ sagði Ingi í samtali við
Morgunblaðið. „Það er náttúrlega
bara peningaleysið sem þeir kenna
um. Það hefur breyst mikið í sveit-
unum. Það eru ekki bara bændur
núna sem eru að keyra um þessi
svæði og viðhaldsleysið er vandamál
á mörgum ferðaþjónustubæjum.
Dekk hafa sprungið í heimreiðinni
okkar og margir veigra sér við því að
keyra niður til okkar þegar þeir sjá
veginn. Þegar maður sér veitinga-
stað en sér síðan drullusvað í áttina
að honum gefur það kannski ekki
góða mynd af framhaldinu.“
„Við sinnum öllu eins og við getum
samkvæmt því fjármagni sem við
fáum en fjármagn til viðhalds hefur
ekki fylgt þörfinni,“ sagði G. Pétur
Matthíasson, upplýsingafulltrúi
Vegagerðarinnar, um málið. „Við
höfum bara ekki haft mikið fé í hér-
aðsvegina. Þeir hafa einfaldlega set-
ið svolítið á hakanum. Þróunin hefur
verið í þá átt að umferðin hefur auk-
ist og líka kröfurnar til vegakerfis-
ins. Þar kemur líka vetrarþjónustan
inn í og snjómoksturinn. Ferða-
mennskan hefur líka gert það að
verkum að það er meiri umferð á
veturna. Þetta kallar alltaf á meiri
framkvæmdir og meiri þjónustu.
Þörfin er metin og við forgangs-
röðum eftir því fé sem við höfum.“
thorgrimur@mbl.is
Lítið fé
í héraðs-
vegina
Lítið viðhald nálægt
ferðamannastöðum
Kærunefnd útlendingamála veitti
einstæðri móður og þremur börnum
hennar frá Gana dvalarleyfi í gær á
grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Upphaflegri umsókn fjölskyldunnar
var synjað en breyttar aðstæður,
eftir að fjölskyldufaðirinn hvarf
sporlaust í mars sl., urðu til þess að
mál þeirra var endurupptekið.
Therese Kusi Daban, eiginmaður
hennar William Keremateng og
börn þeirra komu til Íslands fyrir
tveimur og hálfu ári. Sóttu þau um
hæli en umsókn þeirra var synjað.
Staðfesti kærunefndin synjunina.
Börnin eru tveggja, fjögurra og
sex ára gömul og einungis elsta
barnið man óljóst eftir dvöl í öðru
landi en á Íslandi. Magnús Davíð
Norðdahl, lögmaður fjölskyldunnar,
sagði í samtali við mbl.is í gær að
ómannúðlegt hefði verið að senda
fjölskylduna úr landi, m.a. af þessum
sökum. „Börnin og móðir þeirra geta
loks andað léttar og litið björtum
augum til framtíðar á Íslandi,“ sagði
hann.
Móðir og börn fá dvalarleyfi
Leyfi veitt á grundvelli þess að fjölskyldufaðirinn hvarf