Morgunblaðið - 22.08.2018, Page 9

Morgunblaðið - 22.08.2018, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tæknifyrirtækið Valka hefur vaxið hratt á síðustu árum og er þessa dagana að bæta við tug starfs- manna; tæknifólki, smiðum og skrifstofufólki. Eftir þessar ráðn- ingar verða starfsmennirnir um 80 talsins, en þeir voru um 30 fyrir rúmlega þremur árum. Risasamningur við Samherja Fyrirtækið sérhæfir sig í tækni- lausnum fyrir sjávarútveg og fisk- vinnslu og hefur verið í landvinn- ingum heima og erlendis, að sögn Helga Hjálmarssonar, fram- kvæmdastjóra Völku. Verkefna- staðan er góð, en stærsta einstaka verkefnið tengist risasamningi við Samherja síðasta vor. Samningurinn er upp á 20 millj- ónir evra, eða tæplega 2,5 millj- arða króna, og í honum fólst endurnýjun á búnaði í frystihúsi Útgerðarfélags Akureyringa á Akureyri og búnaður í nýja verk- smiðju Samherja, sem er í bygg- ingu á Dalvík. Víða um heim Á Akureyri er unnið við upp- setningu á tækjum þessa dagana, en frystihúsið á Dalvík verður tek- ið í notkun næsta sumar. Helgi segir að á Dalvík framleiði Valka heildarvinnslukerfi í nýja húsið; snyrtilínur, skurðarvélar og búnað fyrir afurðadreifingu, flokkun og pökkun. Meðal annarra birgja í húsið má nefna Vélfag á Ólafsfirði með flökunarvélar og Baader með roðflettivélar. Helgi segir að Valka hafi selt búnað víða um heim og nefnir Noreg, Bandaríkin, Holland og Litháen, en markaðslöndunum sé að fjölga. Víðar hefur búnaður fyrirtækisins og lausnir vakið at- hygli og þá einkum vatnsskurð- arvél, sem fjarlægir beingarðinn úr flakinu og sker hann í bita eftir þörfum kaupenda án þess að mannshöndin komi þar nærri. Innanlands má nefna að Valka hefur lengi verið í samstarfi við HB Granda, setti upp heildarkerfi fyrir bolfiskvinnslu Loðnuvinnsl- unnar á Fáskrúðsfirði, vatns- skurðarvél og flokkari frá Völku eru um borð í Sólbergi, nýlegum frystitogara Ramma í Fjallabyggð, og í sumar samdi fyrirtækið um vinnsluhugbúnað í skip Skinn- eyjar-Þinganess og Gjögurs sem verið er að smíða hjá norska fyrir- tækinu Vard. Úr Víkurhvarfi í Vesturvör Síðastliðið vor flutti Valka úr tæplega þúsund fermetra húsnæði við Víkurhvarf í Kópavogi, þar sem orðið var þröngt um starf- semina, í tæplega þrjú þúsund fer- metra við Vesturvör 29 í Kópa- vogi. „Þetta var mikil breyting fyrir okkur,“ segir Helgi. „Fyrirtækið hefur hins vegar stækkað mikið og við erum farin að huga að frekari stækkun.“ Hraður vöxtur Völku  Sókn á mörkuðum heima og erlendis  Hátæknilausnir fyrir útgerð og fiskvinnslu  Huga að stærra húsnæði Nákvæmni Vatnsskurðarvélar frá Völku er að finna víða um heim. Morgunblaðið/Hari Vesturvör Helgi Hjálmarsson og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í nýjum höfuðstöðvum Völku síðastliðið vor. Fimmtán ára saga » Fyrirtækið Valka var stofnað 2003 af Helga Hjálmarssyni. » Árið 2008 voru starfsmenn Völku orðnir sjö talsins. » Árið 2011 var fyrstu fiskflök- unum rennt í gegnum vatns- skurðarvél frá Völku. » Vélarnar skera fiskinn af ná- kvæmni með kraftmikilli en mjórri vatnsbunu. » Hröð þróun hefur verið í há- tæknilausnum fyrir útgerð og fiskvinnslu á síðustu árum. GÓÐ HEYRN GLÆÐIR SAMSKIPTI! Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess að þau þekkja tal betur en önnur tæki. Tæknin sem þekkir tal Nýju ReSound LiNX 3D eru framúrskarandi heyrnartæki ReSound LiNX3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.