Morgunblaðið - 22.08.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018
reginn.is
reginn@reginn.is
Sími: 512 8900
HLUTHAFAFUNDUR REGINSHF.
VERÐURHALDINN 13. SEPTEMBER2018
Stjórn Regins hf. boðar til hluthafafundar í
félaginu og verður hann haldinn á skrifstofu
Regins, Hagasmára 1, 201 Kópavogi,
fimmtudaginn 13. september 2018 og hefst
stundvíslega kl. 8:30.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Tillaga stjórnar um skipan og fyrir-
komulag tilnefningarnefndar fyrir félagið.
Stjórn Regins hf. leggur til við hluthafafund
félagsins að eftirfarandi tillaga verði samþykkt:
„Hluthafafundur Regins hf. þann 13. september
2018 samþykkir að koma á fót tilnefningarnefnd
semstarfaskalsamkvæmtstarfsreglumnefndar-
innar sem liggja fyrir sem fylgiskjal með tillögu
þessari og skulu skoðast sem hluti hennar. Við
kjör nefndarmanna tilnefningarnefndar í fyrsta
skipti skulu nefndarmenn kosnir á hluthafafundi
13. sept-ember 2018 úr hópi þeirra sem gefið
hafa kost á sér fyrir fundinn, en að öðru leyti
skal farið eftir starfsreglum nefndarinnar eftir
því sem við getur átt.“
2. Tillögur stjórnar að breytingum á
samþykktum félagsins.
Stjórn Regins leggur til við hluthafafund
félagsins að gerðar verði eftirfarandi breytingar
á samþykktum félagsins.
Tillaga um nýja 22. gr. samþykkta
Við IV. kafla samþykkta félagsins skal bætast ný
grein sem verður 22. gr. og skulu númer greina
sem á eftir henni koma breytast í samræmi við
það. Hin nýja grein skal vera svohljóðandi:
22. gr.
„Félagið skal hafa starfandi tilnefningarnefnd
sem hefur það meginhlutverk að tilnefna
einstaklinga til stjórnarsetu í félaginu á aðalfundi
félagsins, eða eftir atvikum á hluthafafundi þar
sem stjórnarkjör er á dagskrá.
Nefndarmenn tilnefningarnefndar skulu að
lágmarki vera þrír og skulu þeir kjörnir til tveggja
ára á aðalfundi félagsins. Nefndin skal vera
sjálfstæð í störfum sínum og skulu stjórnarmenn
félagsins ekki eiga sæti í nefndinni.
Formaður tilnefningarnefndar skal kjörinn af
nefndinni sjálfri á fyrsta fundi eftir skipun.“
Viðbætur við 15. gr. samþykkta
Þær breytingar skulu gerðar á 15. gr. samþykkta
félagsins að annars vegar verði bætt inn
nýjum tölulið nr. 9 sem verði svohljóðandi:
„Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd,
sé skipunartími nefndarmanna liðinn eða ef
nefndarmaður hefur látið af störfum.“ Númer
töluliða sem á eftir koma skulu taka breytingum
til samræmis við þetta.
Hins vegar verði bætt við þann tölulið
sem nú er nr. 9 orðunum „og til nefndar-
manna tilnefningarnefndar“ á eftir orðinu
„stjórnarmanna“.
Ákvæði 15. gr. samþykkta félagsins verður eftir
breytinguna svohljóðandi:
„Á aðalfundi skulu tekin til afgreiðslu eftirfarandi
mál:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl.
starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt
skýrslu endurskoðanda lagður fram til
staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð
hagnaðar eða taps á næstliðnu reikningsári.
4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu lögð
fram til samþykktar.
5. Ákvörðun um heimild til stjórnar um kaup á
eigin bréfum.
6. Tillögur til breytinga á samþykktum, ef
einhverjar hafa borist.
7. Kosning félagsstjórnar.
8. Kosning endurskoðanda.
9. Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd,
sé skipunartími nefndarmanna liðinn eða ef
nefndarmaður hefur látið af störfum.
10.Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og
til nefndarmanna tilnefningarnefndar fyrir
næsta kjörtímabil.
11. Önnur mál.“
3. Ákvörðun um þóknun
tilnefningarnefndar.
Stjórn Regins hf. leggur til við hluthafafund
félagsins að nefndarlaun fyrir setu í tilnefningar-
nefnd fram að næsta aðalfundi verði þannig
að þóknun formanns tilnefningarnefndar verði
90.000 kr. á mánuði og annarra nefndarmanna
60.000 kr. á mánuði.
4. Kosning tilnefningarnefndar.
Stjórn Regins hf. leggur til að fyrstu nefndar-
menn tilnefningarnefndar verði kjörnir með
beinni kosningu á hluthafafundinum þann 13.
september 2018 úr hópi þeirra sem gefið hafa
kost á sér fyrir hluthafafundinn.
Um kosningu nefndarmanna við fyrstu skipun
fer eftir fyrirliggjandi drögum að starfsreglum
tilnefningarnefndarinnar að því leyti sem við
getur átt, þó þannig að við fyrstu skipun verði
kosið á milli þeirra framboða sem borist hafa
fyrir hluthafafundinn.
Reglur samþykkta um stjórnarkjör gilda eftir
því sem getur átt um kosningu nefndarmanna
í tilnefningarnefnd, sbr. 23. gr. samþykkta
félagsins.
5. Önnur mál.
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja
hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður
skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð
og skal það dagsett. Óskað er eftir að umboð
berist Regin fyrir dagsetningu hluthafafundar
á reginn@reginn.is og skal það vera undirritað
af hluthafa eða prókúruhafa. Einnig er
fundarmanni heimilt að framvísa umboði við
mætingu á hluthafafund en þá skal þess gætt
að mæta tímanlega til að hægt sé að yfirfara
umboð m.t.t. gildis þess. Jafnframt er bent á
að fundarmenn þurfa að vera reiðubúnir að
sanna á sér deili og því rétt að þeir hafi skilríki
meðferðis. Umboð verða ekki afturkölluð svo
gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur
verið framvísað við afhendingu fundargagna
eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem
fyrr er.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið
til meðferðar á hluthafafundinum, ef hann gerir
skriflega kröfu um það til stjórnar áður en vika
er til hluthafafundarins. Nánar um heimildir
hluthafa til að fá mál tekin til meðferðar á
fundinum vísast til 18. gr. samþykkta félagsins
sem finna má á heimasíðu þess,
www.reginn.is/fjarfestavefur
Óskað er eftir framboðum í tilnefningarnefnd
sem skal skipuð að minnsta kosti þremur
nefndarmönnum sem skulu hafa nauðsynlega
þekkingu og reynslu miðað við störf
nefndarinnar. Meirihluti nefndarmanna skal vera
óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess
samkvæmt sömu reglum og gilda um óhæði
stjórnarmanna, sbr. lið 2.3 í Leiðbeiningum um
stjórnarhætti fyrirtækja. Þá skal að minnsta
kosti einn nefndarmaður vera óháður stórum
hluthöfum félagsins, þ.e. þeim sem ráða 10%
eða meira af heildarhlutafé eða atkvæðamagni
í félaginu, einn eða í samstarfi við aðra sbr. lið
2.3 í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja.
Við framangreint mat er litið heildstætt til beinna
og óbeinna tengsla nefndarmanna.
Sérstök athygli er vakin á að óskað er eftir
tillögum um framboð skriflega með minnst
sjö sólarhringa fyrirvara fyrir hluthafafund,
eða fyrir kl. 8:30 fimmtudaginn 6. september
2018. Skulu tilkynningar um framboð berast á
netfangið tilnefningarnefnd@reginn.is
Upplýsingar um frambjóðendur til tilnefningar-
nefndar verða birtar eigi síðar en tveimur
dögum fyrir hluthafafund.
Hluthafafundur er lögmætur ef löglega er til
hans boðað, án tillits til þess hversu margir
sækja hann, sbr. 16. gr. samþykkta félagsins.
Gögn vegna fundarins eru aðgengileg á
skrifstofu félagsins í Smáralind, 1. hæð,
Hagasmára 1, 201 Kópavogi og á vefsvæði
tengt hluthafafundi á heimasíðu félagsins
www.reginn.is/fjarfestavefur en endanleg dag-
skrá og tillögur verða aðgengileg a.m.k. viku
fyrir hluthafafund, sbr. 18. gr. samþykkta
félagsins. Hluthafafundur félagsins verður án
pappírsgagna.
Kópavogur, 21. ágúst 2018.
Stjórn Regins hf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hraðfrystihúsið-Gunnvör (HG) hefur
sótt að nýju um starfs- og rekstrar-
leyfi fyrir mikla aukningu heimilda til
fiskeldis í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi,
aðallega á regnbogasilungi. Rúmt ár
er síðan úrskurðarnefnd felldi úr gildi
starfsleyfi Umhverfisstofnunar
vegna þessa eldis í kjölfar kæru veiði-
réttarhafa. Áfram leggur HG þó
áherslu á að eiga kost á að nýta að-
stöðuna til þess að ala lax.
Tómar kvíar eftir 16 ár
HG hóf fiskeldi í Ísafjarðardjúpi á
árinu 2002, fyrst eldi á þorski og síðan
einnig regnbogasilungi. Eldið er rek-
ið undir merkjum dótturfélagsins
Háafells. Smám saman fjaraði undan
þorskeldinu vegna þess að ekki hefur
náðst að framleiða nógu góð seiði og
regnbogasilungur stóðst ekki sam-
keppni við laxinn sem eldisfiskur. Því
var ákveðið fyrir sjö árum að sækja
um að breyta leyfunum að hluta til í
lax. Hefur það ferli gengið illa og er
umhverfisskýrsla í biðstöðu hjá
Skipulagsstofnun vegna óvissu með
áhættumat Hafrannsóknastofnunar
sem ekki hefur lagastoð en gerir ekki
ráð fyrir að laxeldi verði heimilað í
Ísafjarðardjúpi. Fór svo að síðustu
fiskunum var slátrað upp úr kvíum
fyrirtækisins í vetur og er HG ekki
með neitt sjókvíaeldi eins og er. „Mik-
il þekking hefur skapast hjá starfs-
mönnum fyrirtækisins í rekstri slysa-
lauss sjókvíaeldis undanfarin 16 ár
sem mikilvægt er að missa ekki niður
heldur nýta og byggja á til framtíðar
og er umsóknin liður í því,“ segir í til-
kynningu sem birt var á vef HG í gær.
„Við erum enn með áform um að fara
í laxeldi. Á meðan við höfum ekki leyfi
til þess viljum við halda fyrri leyfum
okkar til eldis á regnbogasilungi og
þorski,“ segir Einar Valur Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri HG.
Háafell sækir nú um starfs- og
rekstrarleyfi til Umhverfisstofnunar
og Matvælastofnunar fyrir 6.800
tonna framleiðslu á regnbogasilungi
og 200 tonna framleiðslu á þorski á ári
í kvíum í Ísafjarðardjúpi. Fyrirtækið
var komið með leyfi fyrir þessu eldi
en úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála felldi starfsleyfi Um-
hverfisstofnunar úr gildi í júlí á síð-
asta ári í kjölfar kæru veiðiréttarhafa.
Gauti Geirsson, starfsmaður HG,
segir að úrskurðarnefndin hafi gert
athugasemdir við tæknileg mál, að-
allega við leyfisveitingaferlið hjá Um-
hverfisstofnun. Telur hann að búið sé
að taka tillit til þeirra atriða eftir sam-
ráð við Umhverfisstofnun. Þá hafi
regluumhverfið breyst síðan, meðal
annars sé ekki lengur gerð krafa um
samráð við heilbrigðisnefnd. Það var
eitt af þeim atriðum sem úrskurðar-
nefndin gerði athugasemdir við. „Við
erum búnir að fara vandlega yfir úr-
skurðinn og nýja umsóknin á að vera
algerlega samkvæmt réttu formi,“
segir Gauti.
Hann vonast til að afgreiðslu leyf-
isins gangi hratt fyrir sig enda sé búið
að fara í gegnum allt ferlið áður.
Þriðja kynslóð laxaseiða
Samhliða þessu hefur Háafell unn-
ið að umhverfismati fyrir allt að 7.000
tonna framleiðslu á laxi. Það er ekki
viðbót við hitt leyfið heldur segir
Gauti að áhugi sé á að geta ræktað
báðar tegundirnar og framleiðslan
fari þá eftir markaðsaðstæðum á
hverjum tíma.
Háafell er með seiðastöð á Naut-
eyri og framleiðir þar laxaseiði. „Við
erum núna í þriðja skipti með laxa-
seiði en höfum í tvígang þurft að
klekja út laxahrognum og selja seiðin
til keppinauta vegna þess að við höf-
um ekki haft leyfi til eldisins sjálfir,“
segir Einar Valur. Hann segir að
áhugi sé að nýta seiðin sem nú er ver-
ið að framleiða. Gauti segir að reynt
verði að koma þeim út í kvíar næsta
vor.
HG sækir að nýju um eldi í Djúpinu
Búið að bæta úr tæknilegum ágöllum við fyrra rekstrarleyfi sem úrskurðarnefnd felldi úr gildi
Sótt um leyfi fyrir regnbogasilungi og þorski en jafnframt unnið að því að fá heimild til laxeldis
Álftafjörður Brunnbáturinn Papey við sjókví þegar starfsmenn HG voru að
ljúka við að slátra regnbogasilungi upp úr kvíunum.