Morgunblaðið - 22.08.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
20% afslátturaf öllum CHANELvörum
Chanel kynning í
Snyrtivöruversluninni
Glæsibæ miðvikudag,
fimmtudag og föstudag
Gréta Boða kynnir fallegu
haustlitina ásamt nýja
CC kreminu
Verið velkomin
FALLEG OG VÖNDUÐ
LEIKFÖNG
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr náttúrulegum efnivið,
tré og silki
Lísbet Sigurðardóttir
lisbet@mbl.is
Þessa dagana eru grunnskólar
landsins að opna dyr sínar á ný eftir
sumarleyfi. Eftirvænting ríkir á
meðal skólabarna sem eru ýmist að
snúa aftur í skólana eða að taka sín
fyrstu skref í yngstu bekkjum
grunnskólanna. Um 4.580 börn
hefja nám í fyrstu bekkjum grunn-
skóla landsins samkvæmt tölum frá
Menntamálastofnun. Vilhjálmur
Sturla, framkvæmdastjóri sölusviðs
hjá A4 segir að umhverfið á skóla-
vörumarkaðinum hafi breyst um-
talsvert síðustu tvö ár. „Þetta eru
forvitnilegir tímar sem við erum að
lifa því það hafa orðið heilmiklar
breytingar á markaðnum núna síð-
ustu tvö árin,“ segir Vilhjálmur og
vísar til þess að sveitarfélög útvega
nemendum námsgögn í auknum
mæli. Í fyrra var tekin ákvörðun í
borgarráði Reykjavíkur um að út-
vega skyldi námsgögn fyrir nem-
endur í grunnskólum borgarinnar
fyrir skólaárið 2018-2019. Vil-
hjálmur segir að nú sé til að mynda
mun meira álag á skiptibókamörk-
uðum en álagið sé minna í sölu á al-
mennum ritföngum eftir ákvörðun
borgarráðs, líkt og við hafi verið að
búast. „Við gerðum okkur grein
fyrir því að það yrðu breytingar
þegar stærsta sveitarfélag landsins
væri farið að kaupa inn fyrir for-
eldra, en það er samt búið að vera
ótrúlega mikið að gera,“ segir Vil-
hjálmur. Hann segir hins vegar að
sala á skólatöskum og pennaveskj-
um sé með betra móti í ár heldur en
í fyrra. „Það er traffík sem ekki
hefur breyst, fólk er áfram að
kaupa töskur og annan búnað. Það
er bara ánægjulegt.“ Hann segir
jafnframt að tískubylgjan í skóla-
töskum í ár sé augljós og krakkar
hafi sterkar skoðanir í þeim efnum.
Svokallaðar breytitöskur þar sem
pallíettur eru allsráðandi hafi verið
vinsælastar í ár. „Við hefðum þurft
að panta um tíu sinnum meira inn
af þeim, þær seldust bara strax
upp. Það er gaman að horfa á hvað
krakkarnir virðast hafa mikið um
þetta að segja, þau gera strangar
kröfur.“
Krakkarnir hafa sterkar
skoðanir á skólatöskunum
Kátur Þór Jónsson, 5 ára, er að fara í fyrsta
bekk í Ingunnarskóla. Hann fann sér drauma-
skólatöskuna og hlakkar til að sjá nýja skól-
ann sinn og hitta skólafélaga sína.
Spennt Perla Sólbrá Jónsdóttir, 8 ára, er að
byrja í þriðja bekk í Sjálandsskóla. Henni
finnst gaman í stærðfræði, íþróttum og tón-
mennt í skólanum.
Gaman Erla Sólbjört Jónsdóttir, 10 ára, er að
byrja í 5. bekk í Lækjarskóla. Uppáhaldsfag
Erlu Sólbjartar er stærðfræði. Svo finnst
henni líka gaman að læra íslensku.
Glaður Kristófer Kári Níelssen, 5 ára, er að
byrja í Ísaksskóla. Hann segir gott að eiga
nestisbox og vatnsbrúsa. Og auðvitað tösku til
þess að setja skóladótið í.
Morgunblaðið/Eggert
Skipulögð Brynja Fjalarsdóttir, 8 ára, er að byrja í 3. bekk í Laugarnes-
skóla. Hana langar í dagbók til þess að skipuleggja sig. Í skólanum finnst
henni skemmtilegast að fara út í frímínútur.
Grunnskólar hefjast á ný
Hópur erlendra ferðamanna sem
gerðust sekir um utanvegaakstur
við Jökulsárlón á Breiðamerkur-
sandi á sunnudag og í friðlandinu
við Grafarlönd á Öskjuleið á
mánudag, greiddi samtals 1,4
milljónir í sekt í gær. Þetta kem-
ur fram á Facebook-síðu lögregl-
unnar á Norðurlandi eystra. Þar
segir að embættið hafi lokið
rannsókn er varðar utanvega-
akstur hóps 25 erlendra ferða-
manna á sjö breyttum jeppa-
bifreiðum.
Ekki var þó öllum ökutækj-
unum sjö ekið utan vega í þessum
tilvikum, en hópurinn hafði þó
verið að ferðast saman sem ein
heild og tjón á landi af völdum
fjögurra bifreiða var staðfest.
Töluverðar skemmdir voru
unnar á landi við vesturströnd
Jökulsárlóns og gríðarlegt tjón á
landi í Grafarlöndum norðan
Herðubreiðar. Við rannsókn
málsins kom fram hjá aðilum
máls að um kunnáttuleysi og van-
þekkingu hefði verið að ræða og
var beðist afsökunar vegna þess
tjóns sem unnið var.
Viðkomandi ferðamenn óskuðu
þess jafnframt að fá að aðstoða
við lagfæringar þess lands sem
varð fyrir tjóni, en var það mat
landvarða að betra væri að fá til
verksins sértækan búnað og fólk.
Ferðamennirnir greiddu 1,4 milljónir vegna utanvegaaksturs
„Það voru veiddar um fimmtán gæs-
ir á mann fyrsta daginn,“ sagði Áki
Ármann Jónsson, formaður Skot-
veiðifélags Íslands, um byrjun gæsa-
veiðitímabilsins sem hófst í fyrra-
dag. Gæsastofninn í ár er í sögulegu
hámarki.
„Það eru blendnar tilfinningar
með gæsastofninn af því að hann
getur valdið ofbeit uppi á hálendinu
þar sem gróðurinn er viðkvæmur,
svo það er mikilvægt að halda stofn-
inum innan vissra marka,“ segir Áki.
„Það er mikilvægt að ríkisvaldið opni
á veiðarnar alls staðar á miðhálend-
inu ef aðrar ástæður liggja ekki að
baki. Maður hefur farið að heyra það
núna að það sé farið að bera á ofbeit
þar.“
Áki segir að miðað við veðurhorfur
austan- og vestantil á landinu ætti
þetta að stefna í að vera mjög gott
gæsaár. „Það var mjög mikið af gæs-
um í fyrrasumar. Þetta ár var
kannski ólíkt flestum öðrum því það
kom ekkert veðurhret. Oft getur
vorið verið mjög gott en síðan komið
eitthvert stærðar hret. Núna í ár var
eiginlega stanslaust blíðviðri fyrir
norðan og austan. Fleiri ungar kom-
ast þá á legg og gæsum gengur betur
að verpa.“
Veiðimenn þóttu til fyrirmyndar í
byrjun veiðitímabilsins og voru nær
allir með veiðikort og skotfæraleyfi á
sér. „Ég skora á veiðimenn að hafa
sín mál í lagi og ganga vel um náttúr-
una,“ segir Áki.
Góð byrjun á
gæsaveiðitímabilinu
Gæsastofninn í sögulegu hámarki