Morgunblaðið - 22.08.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þegar ég flutti hingað í hverf-ið fyrir átta árum kynntistég góðum nágrannakonumog við komumst fljótt að því
að við höfðum allar brennandi áhuga
á umhverfismálum. Við spjölluðum
oft saman um þau mál þegar við hitt-
umst úti í garði með börnin okkar.
Við vildum leggja okkar af mörkum
og í fyrravetur elduðum við og borð-
uðum öll saman einu sinni í viku,
þessar fjórar fjölskyldur sem búum
hér hlið við hlið. Það er betra fyrir
umhverfið að margir eldi saman, það
sparar bæði orku og mat. Fyrir nú ut-
an hvað það er gaman. Í þessum sam-
eiginlegu máltíðum spjölluðum við
um umhverfismál og komumst meðal
annars að því hversu mikið vantaði af
plastlausum vörum á Íslandi. Þegar
húsnæði losnaði hér í hverfinu þá
vissum við vinkonurnar ekki af fyrr
en við vorum komnar út í djúpu laug-
ina og búnar að stofna verslun,“ segir
Kristín Inga Arnardóttir, en hún og
nágrannakonurnar opnuðu versl-
unina Vistveru í sumar í Grímsbæ í
Reykjavík. Þar er boðið upp á um-
hverfisvænar og umbúðalausar
nytjavörur og gjafavörur.
„Þetta er hliðarverkefni hjá okk-
ur, því við erum allar í öðrum störf-
um. Við fjórar sem stöndum að búð-
inni myndum gott teymi, erum með
ólíka þekkingu og reynslu. Salbjörg
Rita Jónsdóttir er grafískur hönn-
uður, Jóhanna Gísladóttir er í dokt-
orsnámi í umhverfis- og auðlinda-
fræði, Elsa Þórey Eysteinsdóttir er
líffræðingur og ég er viðskiptafræð-
ingur.“
Aftur orðið flott að nýta
Þær vinkonurnar láta verkin
tala þegar kemur að umhverfis-
málum, þær stóðu fyrir átakinu
Plastlaus september í fyrra ásamt
fleirum og verða aftur með slíkt átak
nú í haust.
„Við sigrum ekki heiminn strax,
en allt sem fólk gerir í þessa átt skipt-
ir máli,“ segir Kristín og bætir við að
áhugi hennar á umhverfismálum hafi
kviknaði fyrir tuttugu árum þegar
hún eignaðist sitt fyrsta barn. „Þá fór
ég að hafa áhyggjur af umhverfinu og
ég var að rembast við að nota tau-
bleiur sem var ekki eins auðvelt þá og
það er í dag. En þar fyrir utan er ég
alin upp á heimili þar sem nýtni var í
hávegum höfð, foreldrar mínir sáu til
þess að það var aldrei mikil sóun á
mínu æskuheimili. Heimilið var stórt,
við vorum sex systkini og okkur var
til dæmis kennt að fara sparlega með
sjampó, því það endaði úti í sjó. Og að
nota handklæðin oft áður en þau
væru sett í þvott. Ég var líka í sveit
öll bernskusumrin hjá frænku minni
á Mýri í Bárðardal en þar var lifað á
landinu og lítið aðkeypt, allt var vel
nýtt. Þetta skiptir allt máli í meðvit-
und minni fyrir umhverfismálum,“
segir Kristín og bætir við að henni
finnist frábært að það þyki aftur flott
að nýta og endurnýta.
„Ég keypti til dæmis engan jóla-
pappír í fyrra, heldur endurnýtti alls-
konar umbúðir sem höfðu safnast
upp hjá mér. Ég bjó líka til jólaskraut
með því að klippa niður kökukassa og
ýmislegt fleira gerði ég í hvatn-
ingarátaki sem hét nýtnivika.“
Fólk er meðvitaðra en áður
Kristín segir að það sé mikil
vinna að baki því að finna vörur sem
henta í verslun þeirra vinkvennanna.
„Mikill tími fer í að skoða og
leita, en það er líka skemmtilegt. Við
erum mjög harðar við sjálfar okkur,
við viljum ekkert plast í búðina og við
tökum ekki inn vörur sem eru næst-
um því umhverfisvænar, þær verða
að vera það alla leið. Við erum búnar
að finna umhverfisvænar lausnir fyr-
ir flestallt sem fólk þarf að nota dags-
daglega heima hjá sér. Við viljum að
þetta sé nytjavöruverslun, en líka
gjafavörur inni á milli, þó helst með
notagildi. Við höfum fengið mjög góð
viðbrögð og fólk er rosalega ánægt.
Við finnum virkilega fyrir að það er
eftirspurn eftir þessum vörum. Sem
betur fer hefur meðvitund fólks auk-
ist í umhverfismálum og fólk er að
leita að umbúðalausum vörum, það
vill minna plast. Við seljum til dæmis
gamaldags rakvélar með fjölnota
rakvélarblöðum sem eru mjög vin-
sælar. Sama er að segja um stálrör til
að setja í drykki, sem fólk þvær og
notar aftur og aftur. Við erum með
fjölnota vaxdúka sem koma í staðinn
fyrir plastfilmu sem fólk setur yfir
skálar með matarafgöngum. Tann-
kremstöflur sem við seljum eftir vigt
eru líka vinsælar og sjampó sem er í
föstu formi eins og sápustykki. Hjá
okkur fást þvottastykki í stað upp-
þvottalagar í plastbrúsum og þvotta-
flögurnar hjá okkur hafa slegið í
gegn, sem eru settar í þvottavélar.
Við erum líka með þvottahnetur,
beint af trjám, sem hafa sápueig-
inleika og setja má í þvottavélar. Við
seljum grænsápu frá Mjöll/Frigg eft-
ir vigt, en hana má nota við öll heim-
ilisþrif. Allt brotnar þetta strax niður
í náttúrunni og þessar vörur eru um-
búðalausar.“
Keypti ekki föt í heilt ár
Kristín segist ekki gera kröfu
um að allir á hennar heimili séu eins
og hún þegar kemur að umhverfis-
málum.
„Hér búa hjá okkur hjónum
fimm börn og auk þess leigir þýsk
stúlka herbergi hjá okkur. Ég get
ekki stjórnað öllum öðrum í þessum
málum, en auðvitað bendi ég þeim á
hvað megi betur fara, hér er því um-
hverfisvænt uppeldi í gangi. Ég er
svolítið ýkt í þessum málum en get
ekki ætlast til að allir sem næst mér
standi séu það líka,“ segir Kristín og
bætir við að fólk þurfi að auka með-
vitund sína í þessum málum, þurfi að
venja sig á að kaupa minna og kaupa
notað.
„Til dæmis notuð leikföng fyrir
börnin okkar, nóg er til af þeim, það
sjáum við á bland.is. Börn þurfa ekki
svona mikið af öllu eins og neyslu-
hyggjan segir okkur. Og ekki við full-
orðna fólkið heldur. Fyrir rúmu ári
ákvað ég að kaupa engin föt á sjálf
mig í heilt ár. Og það var ekkert mál.
Vinkonur mínar sem vissu af þessu
gáfu mér notuð föt af sér og þetta er
minna mál en fólk heldur. Eftir þetta
hef ég minni áhuga á að kaupa mér
föt, ég afvandist því. Nú fæ ég stund-
um samviskubit við að versla í fata-
búðum, af því ég veit það þarf ekki að
framleiða svona mikið og fólk þarf
ekki að kaupa svona mikið.“
Kristín segir að almennt finnist
henni konur heldur áhugasamari en
karlar um umhverfismál. „Við sjáum
það í búðinni okkar, þangað koma
fleiri konur en karlar. En þeir karlar
sem gera sér ferð þangað á annað
borð eru sérlega áhugasamir, og
yngri karlmenn hafa mikinn áhuga á
umhverfismálum.“
Fyrir þá sem ekki eiga kost á
því að gera sér ferð í Vistveru í
Grímsbæ, er vert að taka fram að
þær vinkonurnar halda einnig úti
vefsíðu þar sem kaupa má vörur sem
hjá þeim fást: www.vistvera.is
Ólst upp við mikla nýtni í æsku
Henni var kennt í
bernsku að fara sparlega
með allt og hún var í
sveit þar sem allt var vel
nýtt. Kristín Inga lætur
sig umhverfið varða.
Morgunblaðið/Eggert
Vinkonur Þær láta sig umhverfið varða. Elsa, Kristín og Salbjörg í Vistveru í Grímsbæ, en Jóhanna var í útlandi.
Vænt Þvottasápa og þvottasápuflögur, hrein jurtasápa, selt eftir vigt.
Tannhirða Þær selja tannbursta úr bambus úr sjálfbærri framleiðslu.
Í GÓÐU FORMI
HEIMA Í STOFU
Æfingatæki fyrir
þol- og styrktarþjálfun,
sem auðvelt er að nota
heima í stofu.
Kíktu á úrvalið
í verslun
okkar eða á
fastus.is