Morgunblaðið - 22.08.2018, Side 15

Morgunblaðið - 22.08.2018, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018 Hraðþrif á meðan þú bíður Hraðþrif opin virka daga frá 8-18, um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir. Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is Verð frá 4.300,- (fólksbíll) Bíllinn er þrifinn létt að innan á u.þ.b. 10 mínútum. Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi SÆNSK GÆÐI Í 90 ÁR Sænska fyrirtækið Mora hefur framleitt bað- og eldhústæki í meira en 90 ár. Tengi hefur mikla og góða reynslu af vörunum frá Mora. Sandgerðisdagar, árleg bæj- arhátíð í Sandgerði, hófust í fyrradag undir einkunnarorð- unum „Sameinuð stöndum við!“. Hátíðin stendur til 26. ágúst og fer nú fram í fyrsta skiptið í nýju sameinuðu sveitarfélagi Sand- gerðis og Garðs. Meðan á hátíð- inni stendur munu bæjarbúar skreyta hús sín í ýmsum litum og meðal viðburða verða dorgveiði, pottakvöld í sundlauginni, dag- skrá fyrir unga fólkið, knatt- spyrnumót, saltfiskveisla og hin vinsæla Lodduganga. Á laugardaginn verður svo kvölddagskrá á hátíðarsviði við grunnskólann í Sandgerði og lýk- ur henni með flugeldasýningu í umsjón björgunarsveitarinnar Sigurvonar við Sandgerðishöfn. Í tilkynningu um hátíðina segir að óvíst sé hvort þetta verði í síð- asta skipti sem hátíðin er haldin þar sem nú hafi Sandgerði og Garður sameinast. Bæjarhátíð Á myndinni sjást Sandgerðingar og aðrir í Loddugöngunni. „Sameinuð stöndum við!“ „Ég er nú staddur norður á Strönd- um, en berjasprettan á Vesturlandi er víðast hvar mjög lítil. Ég er búinn að finna samtals tólf aðalbláber,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og áhugamaður um ber, í samtali við Morgunblaðið. „Við fáum engin ber að vestan, og í fyrra var bláberjasalan alveg afleit hjá okkur,“ segir Guðrún Davíðs- dóttir, eigandi Vínbersins á Lauga- vegi, sem þrátt fyrir að hafa hætt að selja vínber fyrir 21 ári, hefur selt villt ber á haustin. Guðrún skiptir við berjatínslufólk á Vestfjörðum, en hún segir ekki sama hvernig farið sé með berin og reynslan af þessum aðilum sé góð. Þeir hafi haft samband við hana í gær og sagt að það yrðu engin ber. Um dræma sölu á bláberjum í fyrra hefur hún Costco-áhrifin grun- uð, enda var mikið flutt inn af ódýr- um berjum, sem þau íslensku geti vart keppt við í verði. „Svo er Vínberið fyrst og fremst konfektbúð í dag, með 80 tegundir af súkkulaðiplötum, konfektkassa og konfekt í lausu, svo seljum við kaffi til að taka með. Áður var Vínberið matvörubúð en með tilkomu lág- vöruverslana þá breyttist það í kon- fektverslun.“ ernayr@mbl.is Fann aðeins tólf aðalbláber  Slæmt berjasumar vestanlands í ár  Vínberið skiptir við berjatínslufólk að vestan sem sagði „engin ber í ár“ Morgunblaðið/Júlíus Sigurjónsson Aðalbláber Fyrir tveimur árum þegar uppskeran að vestan kom í Vínberið. Hinn kunni fjallagarpur Simon Yates flytur í kvöld klukkan átta fyrirlestur í Bíó Paradís þar sem hann mun fjalla um leiðangur, sem hann er nýkominn úr, til Grænlands og ferðir sínar víða um heim. Yates sneri í vikunni aftur til Ís- lands frá Grænlandi, þar sem hann kannaði afskekktar slóðir, og mun segja frá þeim leiðangri. Hann sigldi á skútunni Iorana frá Flateyri til Nansen-fjarðar og Kangerlussuaq á austurströnd Grænlands þar sem hann og félagar gengu á nokkur fjöll. Yates er einna þekktastur fyrir að hafa árið 1985 er hann gekk á Siula Grande í Andesfjöllum skorið á lín- una sem tengdi hann við klifurfélaga sinn, Joe Simpson. Varð hann þeim þannig báðum til bjargar. Segir frá þessu í bókinn Touching the Void (Í snertingu við tómið) og samnefndri heimildarmynd. Í fyrirlestrinum fer Yates yfir lífs- hlaup sitt á fjöllum, en hann hefur ferðast um allan heim bæði sem klifrari og leiðsögumaður, klifið fjöll eftir nýjum leiðum og gengið á nokkra afskekktustu staði veraldar. Yates var einnig þátttakandi í leiðangri á fjallið Ama Dablam í Himalajafjöllum sem sagt var frá í íslensku heimildarmyndinni Ama Dablam - Beyond the Void (Ama Dablam - handan tómsins) eftir Ingvar Ágúst Þórisson frá árinu 2008. Yates hefur verið tíður gestur á Íslandi á undanförnum árum, bæði til að klifra og í tengslum við ferðir sínar til Grænlands. Fyrirlesturinn er í samstarfi við Fjallakofann. Afskekktir staðir og ótroðnar slóðir  Simon Yates fjallagarpur segir frá Ljósmynd/Ingvar Ágúst Þórisson Fjallagarpur Simon Yates í Nansen-firði á Grænlandi með hrikalegan fjalla- hring að baki. Yates segir frá ferðum sínum í Bíó Paradís í kvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.