Morgunblaðið - 22.08.2018, Side 17

Morgunblaðið - 22.08.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Talið er að mjög erfitt verði að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð eftir komandi þingkosningar vegna fylgisaukningar tveggja flokka, Vinstriflokksins og Svíþjóðardemó- kratanna, sem þykja ekki vera lík- legir til stjórnarsamstarfs við aðra flokka. Samkvæmt nýlegri könnun rann- sóknafyrirtækisins Inizio fyrir dag- blaðið Aftonbladet er fylgi Sví- þjóðardemókratanna 18,8%, sex prósentustigum meira en í síðustu þingkosningum fyrir fjórum árum þegar flokkurinn fékk 49 þingmenn af 349. Kannanir í júní og júlí bentu til þess að Svíþjóðardemókratar fengju um 21% fylgi og yrðu næst- stærsti flokkur landsins, á eftir Sósíaldemókrötum, sem hafa mælst með 23-26% fylgi í sumar. Svíþjóðar- demókratar hafa tvöfaldað fylgi sitt í öllum þingkosningum frá árinu 2002 en nýjasta könnunin bendir til þess að hann verði talsvert frá því að endurtaka það í kosningunum sem fara fram sunnudaginn 9. septem- ber. Algerlega ný staða Hinir stjórnmálaflokkarnir í Sví- þjóð hafa ekki léð máls á stjórnar- samstarfi við Svíþjóðardemókratana vegna stefnu þeirra í innflytjenda- málum og ásakana um að þeir ali á kynþáttahatri. Flokkurinn á rætur að rekja til hreyfinga sem voru bendlaðar við nýnasisma. Á meðal stofnenda hans var Gustaf Ekström sem gekk í flokk sænskra nasista 1932 og síðan í Waffen-SS-hersveitir þýskra nasista í síðari heimsstyrj- öldinni. Flokkurinn hefur reynt að þvo af sér nasistastimpilinn undir forystu Jimmy Åkesson sem varð leiðtogi hans árið 2005. Samkvæmt nýjustu könnun Inizio er fylgi Vinstriflokksins nú 8,7%, þremur prósentustigum meira en í kosningunum fyrir fjórum árum. Verði þetta niðurstaðan verður það mesta fylgi flokksins í tuttugu ár, eða frá kosningunum árið 1998 þeg- ar hann fékk 12% atkvæðanna. Flokkurinn á rætur að rekja til Kommúnistaflokks Svíþjóðar sem var stofnaður árið 1921. Hann var nefndur Vinstriflokkurinn – komm- únistarnir árið 1967 en tók upp nú- verandi nafn árið 1990. Hann hefur aldrei átt aðild að ríkisstjórn en stutt stjórnir Sósíaldemókrata og Um- hverfisflokksins frá árinu 1998, m.a. minnihlutastjórn þeirra sem er nú við völd. Samkvæmt nýjustu könnun Inizio mælist nú fylgi Svíþjóðardemókrat- anna og Vinstriflokksins samtals 27,5% en það hefur verið um 30% síð- ustu vikur. Sænski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Niklas Ekdal seg- ir að ef kannanirnar ganga eftir komi upp algerlega ný staða á þinginu því að flokkarnir tveir séu ekki álitnir stjórntækir. „Um það bil þriðjungur sænskra kjósenda virðist núna ætla að kjósa þessa flokka. Á sama tíma er útlit fyrir að stóru miðflokkarnir eins og Sósíaldemókratar fái minna fylgi en nokkru sinni fyrr,“ hefur fréttavefur danska ríkisútvarpsins eftir Ekdal. „Allt bendir því til þess að mjög erfitt verði að mynda ríkis- stjórn eftir komandi kosningar. Fara þarf aftur til þriðja áratugar aldar- innar sem leið til að finna svipaða stöðu.“ Könnun Inizio bendir til þess að Sósíaldemókratar fái 24,6% at- kvæðanna og gangi það eftir verður það minnsta kjörfylgi flokksins í sögu hans. Hægriflokkurinn Mod- eraterna mælist nú með 23,3% fylgi en það hefur verið tæp 20% í könn- unum í sumar. AFP Róttækur vinstrimaður Jonas Sjöstedt, leiðtogi Vinstriflokksins, á fundi í Stokkhólmi. Flokkurinn á rætur að rekja til Kommúnistaflokks Svíþjóðar. AFP Þjóðernissinni Jimmie Åkesson, leiðtogi Svíþjóðardemókratanna, á kosn- ingafundi í Sundsvall. Flokkurinn á rætur að rekja til nasistahreyfinga. Stefnir í að mjög erfitt verði að mynda næstu ríkisstjórn  Svíþjóðardemókrötum og Vinstriflokknum spáð mestri fylgisaukningu í Svíþjóð Nýr þjóðernisflokkur » Nýr þjóðernissinnaður flokkur, Annar kostur fyrir Sví- þjóð, stefnir að því að fá nógu mikið fylgi, eða minnst 4%, til að fá sæti á sænska þinginu. Ólíklegt er þó að honum takist það, ef marka má kannanir. » Flokkurinn stefnir m.a. að því að vísa a.m.k. hálfri milljón innflytjenda úr landi, með valdi ef þörf krefur. Rússneskir hakkarar, sem reyndu að hafa áhrif á kosningarnar í Bandaríkjunum árið 2016, hafa nú gert árásir á hugveitur repúblik- ana, að sögn Microsoft í gær. Fyrirtækið sagði að hakkararnir hefðu reynt að stela gögnum frá pólitískum stofnunum og hug- veitum, meðal annars Int- ernational Republican Institute og Hudson Institute. Hakkararnir eru sagðir tengjast leyniþjónustu rúss- neska hersins. Árásirnar fólust í því að þeir bjuggu til vefsíður sem virtust tilheyra hugveitunum og plötuðu fólk til að fara inn á þær, með það að markmiði að stela lyk- ilorðum þess og fleiri upplýs- ingum. Beinast gegn öllum sem leggjast gegn Pútín Á meðal stjórnarmanna í Inter- national Republican Institute eru þingmenn úr röðum repúblikana, svo sem John McCain, sem hafa gagnrýnt Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Sérfræðingar í barátt- unni gegn slíkum netárásum segja að markmið hakkaranna sé að ráð- ast gegn öllum pólitískum öflum sem leggjast gegn Pútín og hvetja til refsiaðgerða gegn Rússlandi. Microsoft sagði að hakkararnir hefðu beitt sömu aðferðum og beitt var fyrir kosningarnar í Banda- ríkjunum árið 2016 og í Frakklandi á síðasta ári. Tólf rússneskir leyni- þjónustumenn hafa verið ákærðir fyrir aðild að árásum hakkara sem brutust inn í tölvupósta lands- nefndar Demókrataflokksins og kosningastjóra Hillary Clinton og láku þeim í því skyni að koma höggi á hana í kosningabaráttunni vestanhafs fyrir tveimur árum. Stjórnvöld í Kreml hafa neitað þessum ásökunum. „Við skiljum ekki hvernig leyniþjónusta rúss- neska hersins á að tengjast þessu,“ sagði talsmaður Pútíns í gær. Nýjar netárásir vestra  Beindust að hug- veitum repúblikana Trípólí. AFP. | Íbúar strandbæja í grennd við Trípólí, höfuðborg Líbíu, vakna oft á morgnana við spreng- ingar þegar sjómenn nota dínamít- sprengjur við fiskveiðar, þótt þær valdi tjóni á sjávarlífi. Algengt hefur verið að fiskimenn í Líbíu beiti þessari aðferð til að fá sem mestan afla með sem minnstum tilkostnaði eftir uppreisnina í land- inu árið 2011. Síðan þá hefur verið glundroði í landinu og ráðstafanir til að vernda fiskistofna og lífkerfi sjáv- ar hafa ekki verið ofarlega á for- gangslista yfirvalda. Þótt bannað sé með lögum að nota sprengiefni án sérstaks leyfis og stunda slíkar veiðar með dínamíti virðast fiskimennirnir ekki eiga það á hættu að verða saksóttir. „Við heyrum spengingarnar en enginn getur gert neitt við þessu,“ sagði Bannour Abu Kahal, fulltrúi líbíska sjávarútvegsráðuneytisins í bænum Castelverde, austan við Trí- pólí. Sjávarlíffræðingar, sjómenn, fisk- salar og jafnvel trúarleiðtogar hafa hvatt fiskimennina til að hætta að beita þessari aðferð, en án árangurs. „Sprengjurnar skaða fiskstofna og drepa hrogn og sjávarplöntur,“ sagði fisksalinn Fathi al-Zaytuni, sem selur aðeins fisk sem veiddur er í net. Hættulegar veiðar Fiskimennirnir nota oftast sprengjur sem eru heimasmíðaðar. Tugir manna hafa látið lífið eða særst í sprengingum við veiðarnar eða þegar sprengjurnar eru búnar til, að sögn fjölmiðla í Líbíu. Til að mynda létu þrír fiskimenn í sömu fjölskyldu lífið í borginni Sirte í mars þegar þeir voru að setja saman sprengju. Nota sprengjur við fiskveiðarnar  Skaða sjávarlíf við strendur Líbíu AFP Afli dagsins Fisksalar sýna glæ- nýjan fisk á markaði í Trípólí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.