Morgunblaðið - 22.08.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 22.08.2018, Síða 18
BAKSVIÐ Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is A ðsókn í djúpköfun í Silfru hefur minnkað umtals- vert, um 60-70%, eftir að öryggiskröfur til köf- unar í gjánni voru hert- ar til muna í mars á síðasta ári. Mikil ánægja er þó með hvað breytingar á öryggiskröfum hafa tekist vel. Þetta segja þeir Jón Þór Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Arctic Adventures, sem er eitt af þeim fyrirtækjum sem bjóða upp á köfunarferðir í Silfru, og Einar Á. E. Sæmundsen, þjóðgarðs- vörður á Þingvöllum, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins um að- sókn og öryggi í Silfru undanfarið ár. Aðsókn í snorkl svipuð og var „Aðsókn hefur minnkað mjög mikið en við bjuggumst við því á sín- um tíma þegar farið var í þessar að- gerðir. Mjög strangar kröfur voru settar þeim köfurum sem koma og því er það að einhverju leyti þannig í dag að þeir sem hefðu komið í djúp- köfun eru að koma að snorkla í stað- inn. Aðsókn í snorklið hefur haldist svipuð milli ára,“ segir Jón Þór Gunn- arsson. Með minni aðsókn hefur þó tekist að bæta stýringu á þeim fjölda sem kafar í Silfru að sögn Jóns. „Það er meira umstang í kringum djúpköf- unina og vegna þess hve aðsóknin hefur minnkað hefur flæði köf- unarhópa á móti batnað,“ segir Jón. Breytingar eftir banaslys Tæpt eitt og hálft er frá því að banaslys varð í Silfru á Þingvöllum þegar Bandaríkjamaður á sjötugs- aldri lést þegar hann var þar við yfir- borðsköfun. Banaslysið var þá það fimmta á sjö árum. Silfru var lokað í kjölfar slyssins, nánar tiltekið 10. mars 2017, en opnað var fyrir köf- unarþjónustu á nýjan leik þremur dögum síðar undir nýjum og hertum öryggisreglum. Í júlí síðastliðnum tóku svo ný köfunarlög gildi þar sem fjölmörgum ákvæðum frá fyrri lög- gjöf var breytt, sem eiga að stuðla að auknu öryggi við köfun. „Það er engin spurning að þær breytingar sem voru gerðar í samráði við fyrirtækin, Umhverfisstofnun og umhverfisráðuneytið og þjóðgarðinn hafa heppnast gríðarlega vel. Allir sem koma að þessu, þ.m.t. við fyr- irtækin, eru mjög ánægðir með hvernig þetta gengur fyrir sig,“ segir Jón. Viðbragðsmaður á staðnum Spurður hvort einhver alvarleg slys eða tilfelli hafi orðið í Silfru síðan öryggiskröfur voru hertar segir Ein- ar Á. E. Sæmundsen, þjóðgarðsvörð- ur á Þingvöllum, svo ekki vera. „Við bættum við viðbragði á staðnum á þessu ári. Við erum með sjúkraflutn- ingamann frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á staðnum, þannig að fyrsta viðbragð er mjög gott núna. Það var að nokkru leyti svar við því að við höfum upplifað ýmislegt bæði í Silfru og annars staðar í þjóðgarð- inum,“ segir Einar. Algjörlega nauðsynlegt var, seg- ir Einar, að herða öryggiskröfur. „Það urðu mörg alvarleg slys og nokkuð ört í Silfru, sem lentu mjög þungt á okkur og öllum ferðaþjón- ustufyrirtækjum. Niðurstaðan var að breyta reglum mjög ákveðið, sem hefur hjálpað mikið,“ segir Ein- ar. „Við getum aldrei komið al- gjörlega í veg fyrir slys, hvorki í Silfru eða við hvaða iðju sem fólk tekur sér fyrir hendur, en við verðum að gera allt til að stoppa í öll göt og við höfum verið að gera það á undanförnum árum,“ segir Einar. Aðsókn minnkað en öryggi aukist mjög 18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Lifrarbólga Cer algeng-asti lifrar- sjúkdómurinn og er talið að hátt í 200 milljónir manna séu sýktar í heiminum. Hér á landi hefur staðið yfir átak gegn lifr- arbólgu C undanfarin ár og hefur náðst talsverður árangur eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær. Á undanförnum tveimur ár- um hefur algengi sýkingar- innar dregist saman um 72% og segir Magnús Gottfreðsson, prófessor í læknisfræði við Há- skóla Íslands og sérfræðingur í smitsjúkdómum, í samtali við Morgunblaðið að það sé tölu- vert meira en sérfræðingar hafi gert sér vonir um á svo skömmum tíma. Sigurður Ólafsson, melting- arlæknir og ábyrgðarmaður meðferðarátaksins gegn sjúk- dómnum, segir að á síðasti ári átaksins hafi hátt í 700 ein- staklingar verið meðhöndlaðir og áætlar að náðst hafi til 90% þeirra, sem nú séu smitaðir. Hann skorar á þá sem séu smitaðir að leita sér aðstoðar. Lifrarbólga smitast þegar sýkt blóð berst frá einum ein- staklingi til annars. Óhreinar sprautunálar eru algengasta smitleiðin og er sérstök hætta á að sjúkdómurinn breiðist út meðal sprautufíkla sem deila nálum. Sjúkdómurinn getur einnig smitast við blóð og blóðhlutagjöf og kynmök, þótt það sé talið fátítt. Lifrarbólga C telst meiriháttar heilbrigðisvá. Markmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna er að árið 2030 verði búið að draga úr ný- gengi hennar um 80% þannig að hún verði það ekki lengur. Hér gæti sá árangur með sama áframhaldi náðst 10 árum fyrr. Lykillinn að árangrinum í þessu samstarfsverkefni SÁÁ og Landspítala er að lyfjaris- inn Gilead hefur gefið lyf til meðhöndlunar allra smitaðra á Íslandi í tengslum við rann- sókn á því hvernig sjúkdóm- urinn breiðist út. Lifrarbólga C er skæður sjúkdómur og hefur ekki verið fundið bóluefni gegn henni. Bólgan getur verið væg og án einkenna svo árum skiptir og jafnvel áratugum. Á endanum getur hún leitt til skorpulifrar og lifrarbilunar. Það er mikilvægt að þessi ár- angur í viðureigninni við lifr- arbólgu skuli vera í augsýn. Um leið verður að hafa í huga að haldi menn ekki vöku sinni getur hún blossað upp aftur. Fregnir af nýgengi sjúkdóma sem nánast voru taldir úr sög- unni á borð við mislinga, skar- latssótt, hettusótt og berkla bera því vitni. Heilbrigð- iskerfið þarf því að geta haldið þessu átaki til streitu. Tekist hefur að fækka sýkingum um 72% og ná til 90% smitaðra } Dregur úr lifrarbólgu C Nicolas Maduro,forseti Vene- súela, tilkynnti þjóð sinni á laug- ardaginn að hann hefði fundið lausnina á hinum gríðarlega efnahagsvanda sem hrjáð hefur landið síðustu árin. Einhverjir kynnu að ætla að næst hefði Maduro tilkynnt af- sögn sína, en í ljós kom að töfralausn forsetans fólst eink- um í því að fimm núll yrðu skor- in aftan af gjaldmiðli landsins, bólivarnum. Vegna verðbólg- unnar kosta einföldustu nauð- synjavörur nú milljónir. Þá tilkynnti Maduro að lág- markslaun yrðu hækkuð, svona í þeirri von að þau myndu geta haldið í við um 40.000% verð- bólgu á ársgrundvelli. Til að bæta gráu ofan á svart var einnig ákveðið að hinn nýi bó- livar yrði tengdur við gengi sérstakrar rafmyntar sem Venesúelastjórn hefur sett á laggirnar. Sú hefur fengið nafnið „petró“, þar sem verð- gildi hennar á að tengjast verði á olíu, helstu útflutningsvöru Venesúela. Petróið er hins veg- ar ekki hátt skrif- að, og hafa sumir sérfræðingar í raf- myntum jafnvel gengið svo langt að kalla myntina svikamyllu. Myntbreytingin tók gildi á mánudag, tveimur dögum eftir að hún hafði verið tilkynnt, með tilheyrandi ringulreið. Þá tilkynntu bæði Brasilía og Ekvador að þau myndu loka landamærum sínum að Vene- súela, en talið er að allt að 2,3 milljónir Venesúelamanna hafi flúið land á síðustu fjórum ár- um vegna ástandsins. Umfang flóttamannavandans er nú orð- ið svo mikið að helst mætti ætla að borgarastríð ríkti í landinu en ekki efnahags- þrengingar. Auðvelt er að skella skuld- inni af ástandinu á Maduro, handvalinn eftirmann Hugos Chavez, og víst er að ábyrgð hans er mikil. Ekki er þó hægt að horfa framhjá ábyrgð for- verans, sem fylgdi kenningum sósíalismans og lagði þannig grunninn að öllum þeim hörm- ungum sem nú hrjá Venesúela. Brjálæðið heldur áfram í Venesúela}Treyst á töfralausnir M isnotkun lyfja sem valdið geta ávana og fíkn hefur verið mikið í umræðunni og fréttir um alvarlegar afleiðingar af notkun ungmenna á ávana- bindandi lyfjum hafa upp á síðkastið verið allt- of margar. Ljóst er að þessi vandi er marg- þættur og því miður er enga eina lausn að finna. Heilbrigðisyfirvöld verða þó að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að sporna gegn misnotkun umræddra lyfja án þess þó að ganga gegn hagsmunum þeirra sjúklinga sem þurfa að hafa aðgang að þeim. Eitt af fyrstu verkum mínum sem heilbrigð- isráðherra var að stofna starfshóp sem falið var að gera tillögur um aðgerðir til að stemma stigu við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja. Hópurinn skilaði tillögum sínum til mín í maí. Tillögur hópsins miðast fyrst og fremst að því að takmarka magn ávanabindandi lyfja í umferð hér á landi, styðja við góðar ávísanavenjur lækna og efla eftirlit. Starfshópurinn ítrek- aði einnig mikilvægi þess að almenningur væri upplýstur um þá hættu sem stafar af rangri notkun umræddra lyfja. Margar af tillögum starfshópsins eru nú þegar komnar til framkvæmda og aðrar eru í vinnslu. Af þeim tillögum sem komnar eru til framkvæmda má nefna tillögu sem snýr að því að takmarka aðgang að ávanabindandi lyfjum. Ný reglugerð um lyfjaávísanir, nr. 1266/2017, tók gildi 1. júlí sl., en í henni felast ýmis nýmæli sem miða að því að veita læknum meira aðhald í lyfjaávísunum en áður og stuðla að öruggari lyfjanotkun. Reglugerðin hefur meðal annars þær breytingar í för með sér að frá 1. september má aðeins ávísa ýmsum ávana- og fíknilyfjum til 30 daga notkunar í senn, ekki er hægt að fá afgreidd lyf úr ákveðnum lyfjaflokkum nema fyrir liggi lyfja- skírteini fyrir viðkomandi sjúkling og auknar kröfur eru um að einstaklingar sem fá lyfjum framvísað sýni skilríki í apótekum auk þess sem ekki verður heimilt að innleysa lyfjaávísanir vegna ávana- og fíkniefna sem gefnar eru út á EES-svæðinu. Af aðgerðum sem nú er unnið að má nefna að- gerðaáætlun við stefnu í áfengis- og vímuvörn- um, sem Embætti landlæknis vinnur að í sam- vinnu við velferðarráðuneytið, og nýja reglugerð sem mun innihalda hertar reglur um innflutning einstaklinga á lyfjum, einkum ávana- og fíkni- lyfjum, en tekið verður mið af samsvarandi reglum sem gilda í Noregi. Opnun neyslurýma fyrir langt leidda vímu- efnaneytendur er einnig í undirbúningi í velferðar- ráðuneytinu. Aukin fræðsla um ávana- og fíkniefni og al- varlegar afleiðingar neyslu slíkra lyfja er einnig aðkallandi. Það er ljóst að við þurfum að beita öllum tiltækum ráð- um til að stemma stigu við misnotkun ávana- og fíknilyfja. Það er von mín að aðgerðir stjórnvalda sem þegar hefur verið gripið til, og þær aðgerðir sem eru í farvatninu, séu til þess fallnar að leysa þennan vanda. Svandís Svavarsdóttir Pistill Aðgerðir gegn misnotkun lyfja Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Öryggisreglur í Silfru voru hertar í mars í fyrra. Í regl- unum felst m.a. að fækka köf- urum á hvern leiðsögumann, skilyrði sett um reynslu af köf- un í þurrbúningi, læknisvott- orðs krafist um líkamlegt og andlegt heilbrigði, aðgangs- stýring yfir daginn og krafa um að kafarar séu syndir. Al- gjör samstaða var meðal rekstraraðila og yfirvalda um breytingarnar. „Ég hef heyrt á máli manna, t.d. frá umhverf- isráðuneytinu, að þeir eru mjög ánægðir með bæði samstarfið og hvernig þetta hefur gengið fyrir sig síðan ráðist var í ör- yggisbreytingarnar. Í stuttu máli var sam- starfið til fyrirmyndar og lausnin var einnig til fyr- irmyndar,“ segir Jón Þór Gunnarsson hjá Arctic Adventures. Skilyrði sett um reynslu HERTAR ÖRYGGISREGLUR Jón Þór Gunnarsson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Náttúruperla Umhverfið og tært vatnið í gjánni Silfru gerir staðinn afar vinsælan. Á bilinu 50-60 þúsund manns kafa eða snorkla í Silfru árlega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.