Morgunblaðið - 22.08.2018, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 22.08.2018, Qupperneq 27
persónu. Hún gekk að mestu óstudd í salinn og tók á móti vegsemdar- skjölum og blómum. Ásta bjó lengst af á Kársnesbraut 67 þar til í fyrravor að hún fékk pláss í Sunnuhlíð. Fjölskylda Eiginmaður Ástu var Gunnar Þorsteinn Þorsteinsson, f. 11.5. 1918, d. 11.10. 2008, rennismíða- meistari. Foreldrar hans voru hjón- in Þorsteinn Ólafsson, f. 23.11. 1890, d. 31.3. 1989, bóndi í Litluhlíð á Barðaströnd, og Guðrún Jóna Mar- grét Finnbogadóttir, f. 16.2. 1893, d. 11.10. 1978, ljósmóðir. Börn Ástu og Gunnars eru: 1) Júlíana Signý, f. 23.8. 1947, tækni- teiknari, maður hennar er Örn Jónsson, f. 1944, rafmagnstækni- fræðingur; 2) Óðinn Gunnsteinn, f. 27.9. 1948, vélvirkjameistari og for- stjóri, kona hans er Auður Hall- grímsdóttir, f. 1956, hjúkrunarfræð- ingur og fjármálastjóri. Þau reka Járnsmíðaverkstæði Óðins; 3) Anna Margrét, f. 20.4. 1950, kennari, maður hennar er Guðmundur Jóels- son, f. 1948, löggiltur endurskoð- andi. Stjúpdóttir Ástu er Sigrún Björk, f. 1.8. 1944, hjúkrunarfræð- ingur, maður hennar er Ásgeir Indriðason, f. 1945, fyrrverandi bú- stjóri. Stórfjölskyldan telur alls 70 manns. Systkini Ástu voru Þorbjörg, f. 19.9. 1913, d. 5.10. 2013; Daníel Guð- mundur Eyjólfur, f. 1.4. 1916, d. 12.6. 2002, húsasmíðameistari á Ísa- firði og vann mikið að slysavarna- málum; Óli Jóhannes, f. 1.4. 1916, d. 7.6. 1998, húsa- og skipasmíðameist- ari og rak timburverslunina Björk á Ísafirði. Fóstursystir og frænka þeirra var Anna Kristín Björns- dóttir, f. 23.2. 1908, d. 25.12. 1993, saumakona og verkakona á Ísafirði. Foreldrar Ástu voru hjónin Sig- mundur Brandsson, f. 2.8. 1870, d. 30.3. 1919, járnsmiður á Ísafirði, og Júlíana Óladóttir, f. 22.9. 1879, d. 9.6. 1951, húsfreyja og verkakona. Kristín Guðrún Daníels- dóttir húsfr. í Hvallátrum á Breiðafirði Ólína Jóhanna Jónsdóttir húsfr. í Hvallátrum Valdimar Ólafsson b. og skipa- smiður í Hvallátrum Jóhanna Valdimars- dóttir fata- hönnuður, síðast bús. á Akureyri Guðrún Björt Yngvadóttir alþjóðaforseti Lions-hreyfingar- innar Úr frændgarði Ástu Sigurrósar Sigmundsdóttur Ásta Sigurrós Sigmundsdóttir Ingibjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Neðri-Flekkudal Guðrún Þórðardóttir húsfreyja á Ísafirði Óli Hannesson sjómaður og formaður á Ísafirði Júlíana Óladóttir húsfreyja og verkakona á Ísafirði Guðríður Þorkelsdóttir húsfreyja í Hnitbjörgum Hannes Geirmundsson bóndi í Hnitbjörgum í Jökulsárhlíð, N-Múl. Hannes Ólason verkam. og verkstj. í Hnífsdal Óli Björn Hannesson augnlæknir, bús. í Garðabæ Ástríður Brands- dóttir húsfr. á Hólum í Reykhóla- sveit Valgerður Björnsdóttir húsfreyja í Hnífsdal, móðir Óla Björns Hannessonar augnlæknis Anna Kristín Björnsdóttir fóstursystir Ástu og slysavarnakona Kristín Grímsdóttir húsfreyja í Hlíð við Þorskafjörð Anna Daníelsdóttir húsfreyja á Kollabúðum aníelína Brands- dóttir húsfr. á Ísafirði Svein- björn Hafliða- on lögfr., ús. á Sel- tjarnar- nesi s b Þórunn Svein- bjarnar- dóttir form. BHM og fv. alþm. og ráðherra Þórunn Svein- bjarnar- dóttir húsfr. í Rvík D Solveig Sveinbjörnsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Kristján Loftsson forstjóri Hvals Sig- mundur ónsson fjár- málastj. í Rvík J Gunn- augur M. Sig- mundsson ðskiptafr. g frkvstj. í Rvík l vi o Sigmundur Davíð Gunn- laugsson alþm. og fv. forsætis- ráðherrra Jón Hjaltalín Brands- son b. á Kambi í Reyk- hólasveit Brandur Sigmundsson bóndi á Kollabúðum við Þorskafjörð, A-Barð. Ingibjörg Guðbrandsdóttir húsfr. á Miðhúsum og í Hlíð Sigmundur Brandsson b. á Miðhúsum á Reykjanesi, A-Barð., og í Hlíð Sigmundur Brandsson járnsmiður á Ísafirði Þórður Jónsson bóndi í Neðri-Flekkudal í Kjós Gunnfríður Hjaltadóttir húsfr. á Kirkjubóli í Staðardal, Strand. Rögnvaldur Guðmundsson b. á Uppsölum í Ísafjarðar- djúpi og víðar Amalía Rögnvalds- dóttir húsfr. víðar í Álftafirði og á Ísafirði Hrefna Tynes skátaforingi og húsfr. í Rvík Daníel Hjaltason bóndi, hreppstjóri og gullsmiður í Hlíð við Þorskafjörð Systkinin Ásta í fanginu á Önnu og tvíburarnir Daníel og Óli til hliðar. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018 Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Jónína Sæmundsdóttir fæddist22. ágúst 1892 í Nikulás-arhúsum í Fljótshlíð. For- eldrar hennar voru hjónin Sæmund- ur Guðmundsson, f. 1842, d. 1922, og Þórunn Gunnlaugsdóttir, f. 1850, d. 1938. Þegar Nína var 14 ára brugðu foreldrar hennar búi og og fór hún þá til frænku sinnar í Kaupmanna- höfn. Nína hóf nám við Teknisk skole hjá Holger Grönvold, 1915 og nam síðan við höggmyndadeild Akadem- ísins á árunum 1916 til 1920. Nína dvaldi mikið í Evrópu næstu árin en árið 1926 var henni boðið að sýna í Art Centre í New York og settist hún þar að og bjó þar næstu fjögur árin. Árið 1930 flutti Nína til Hollywood þar sem hún undirbjó þátttöku í samkeppni um gerð lista- verks fyrir WaldorfAstoria- hótelið í New York og vann hún samkeppn- ina með höggmyndinni „Spirit of Ac- hievement“ eða „Framkvæmda- hugur“. Verkið var valið úr 400 tillögum og stendur það fyrir framan hótelið í New York. Auk þessarar höggmyndar við Waldorf-Astoria hótelið eru högg- myndir Nínu víðar. Meðal annarser verkið „Promoþeus“ í Westlake- garðinum í Los Angeles, högg- myndin „Leifur Eiríksson“ í Grif- fith-garðinum í Los Angeles og „Móðurást“ sem stendur í Mæðra- garðinum við Lækjargötu. Nína gerði einnig höggmynd af bandarísku leikkonunni Hedy Lam- arr og var það sýnt bæði á Heims- sýningunni í New York og á San Francisco Fair. Á árum sínum í Bandaríkjunum var hún oft fengin til að gera portrett eða brjóstmyndir af frægu fólki. Á síðari hluta fimmta áratugarins fór Nína að fást við málverk og á síð- ustu starfsárum hennar hafði sú iðja ýtt höggmyndalistinni til hliðar hjá henni. Hún flutti heim til Íslands 1955. Nína var trúlofuð Gunnari Thor- steinssyni, bróður myndlist- armannsins Muggs, þegar hann lést árið 1921 langt fyrir aldur fram. Nína lést í Reykjavík 29.1. 1965. Merkir Íslendingar Nína Sæmundsson 101 ára Ásta Sigurrós Sigmundsdóttir 95 ára Dagbjört R. Bjarnadóttir Ingibjörg Zophoníasdóttir 90 ára Vigdís Runólfsdóttir Vilhjálmur Geir Þórhallsson 85 ára Hildur Káradóttir 80 ára Jón Breiðfjörð Höskuldsson Ólafur Steinþórsson Sólveig Guðmundsdóttir 75 ára Bryndís S. Sigurðardóttir Davíð Árnason 70 ára Anna Guðmundsdóttir Bryndís Sveinsdóttir Guðrún Hafliðadóttir Gyða Halldórsdóttir Helga G. Líndal Þorbergsdóttir Kristjana Óskarsdóttir Sigríður Jörundsdóttir Sigurður Guðjón Jónsson Sveinn Magnússon Sæunn Oddsdóttir 60 ára Helgi Gunnar Jónsson Sesselja Auður Eyjólfsdóttir 50 ára Baldur Ólafsson Baldur Pálsson Bjarni Finnbogason Dariusz Niescier Gunnar Þór Sigurðsson Inga Snæfells Reimarsdóttir Ingveldur Guðmundsdóttir Janusz Wojciech Sienkiewicz Priscilla Almiran Basalan Rúnar Þór Báruson Þuríður Óttarsdóttir 40 ára Andri Hugo Runólfsson Ellen Dana Elíasdóttir Eyjólfur Örn Jónsson Finnbogi Vikar Florin Tudor Gróa Norðfjörð Jónsdóttir Kresimir Kerek Krzysztof Sylwester Nazaruk Sigurlaug Vilhjálmsdóttir Snorri Borgar Óðinsson Sólrún Björg Ólafsdóttir Sveinn Óli Garðarsson Tomasz Jan Kaszny Tomasz Ryszard Swierz Þorsteinn Theodór Ragnarsson 30 ára Aron Arnar Sighvatsson Ágústa Sveinsdóttir Bjarni Fannar Björgvinsson Björgvin Matthías Hallgrímsson Grímur Snorrason Guðmundur Freyr Kristbergsson Helga Hilmarsdóttir Hrafnkell Orri Sigurðsson Marcin Jan Zarzycki Snorri Ásbjarnarson Sævar Örn Oddsson Valgeir Elís Marteinsson Til hamingju með daginn 40 ára Andri er Vest- mannaeyingur og er með BA í hljóð- og upptöku- verkfræði frá SAE í Amsterdam. Hann er verslunarstj. og tækni- maður hjá Tölvun ehf. Foreldrar: Runólfur Gísla- son, f. 1950, d. 2006, verkamaður og forstöðu- maður hjá Heimaey, og Margo Brenner, f. 1953, á og rekur skrifstofu- húsnæði fyrir sálfræðinga og geðlækna í Milwaukee, Bandaríkjunum. Andri Hugo Runólfsson 30 ára Grímur er frá Ísa- firði en býr í Kópavogi. Hann er smiður. Maki: Julie Björk Gunn- arsdóttir, f. 1988, dag- mamma. Börn: Christian Jökull, f. 2017. Stjúpbörn: Sebastian Örn, f. 2008, og Freyja Kirstine, f. 2012. Foreldrar: Snorri Gríms- son, f. 1954, verslunarstj. í Vínbúðinni á Ísaf., og Árný Hallfríður Herbertsdóttir, f. 1958, kennari á Ísafirði. Grímur Snorrason 30 ára Guðmundur er úr Reykjavík en er ferðaþjón- ustubóndi á Háafelli í Hvítársíðu. Hann er með BS í umhverfisskipulagi. Maki: Elsa Þorbjarnar- dóttir, f. 1990, deildarstj. á leikskólanum Hnoðra- bóli í Reykholtsdal. Börn: Þorbjörg Ásta, f. 2014, og Bergur, f. 2016. Foreldrar: Kristberg Tómasson, f. 1958, og Ásthildur Gyða Torfa- dóttir, f. 1958, bús. í Rvík. Guðmundur F. Kristbergsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.