Morgunblaðið - 22.08.2018, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk. | SÍMI 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Handafl er traust
og fagleg
starfsmannaveita
með margra ára reynslu
á markaði þar sem við
þjónustum jafnt stór
sem smá fyrirtæki.
ICQC 2018-20
Slender Man
Vinir í litlum bæ í Massachusetts
eru heillaðir af netþjóðsögunni
um hina hávöxnu og grönnu fíg-
úru Slender Man og leitast við að
sanna að hún sé ekki til í alvöru,
þar til einn af þeim hverfur með
dularfullum hætti.
Metacritic: 29/100
Rotten Tomatoes: 10%
The Happytime Murders
Sagan gerist í heimi þar sem
brúður búa í samfélagi með
mönnum. Þegar brúðuleikarar í
barnaþáttum frá 9. áratugnum
finnast myrtir einn af öðrum fer
fyrrverandi einkaspæjari, sem má
muna fífil sinn fegri, að rannsaka
málið ásamt fyrrverandi félaga
sínum, leiknum af Melissu
McCarthy.
Atak paniki (Kvíðakast)
Frumraun pólska leikstjórans
Pawels Maslona sem slegið hefur
í gegn í Póllandi. Myndin segir
sögur af sex persónum sem lenda
í ótrúlegum aðstæðum og liggja
leiðir þeirra saman með ein-
hverjum hætti. Upplifanir þeirra
leiða til þess að öll fá kvíðakast.
Crazy Rich Asians
Sögusviðið er Singapúr en sagan
byggist á vinsælum bókaflokki
Kevins Kwans sem gerist í heimi
þeirra ofurríku og dekruðu í
Singapúr. Við fylgjumst með því
þegar Rachel, sem alist hefur upp
í Bandaríkjunum, fer að slá sér
upp með Nick, sem er af forríkri
ætt í Singapúr. Móttökur fjöl-
skyldunnar reynast vægast sagt
kómískar.
Metacritic: 74/100
Rotten Tomatoes: 93%
Bíófrumsýningar
Ríkir Asíubúar, brúðu-
morð og kvíðaköst
AFP
Leikararnir Hluti af hópnum á
frumsýningu Crazy Rich Asians.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Systkinin Guðfinnur og Kristín
Sveinsbörn munu á morgun,
fimmtudag, syngja saman á sínum
fjórðu Systkinatónleikum og verða
þeir í Fella- og Hólakirkju kl. 20.
Venju samkvæmt hafa systkinin
fengið til liðs við sig ungt tónskáld
sem semur dúett fyrir tónleikana en
í þetta skipti er það Bára Gísladóttir
sem samdi verkið Átta lög við ljóð
Kött Grá Pjé (og nokkur hlægilega
stutt millispil), en eins og nafnið
gefur til kynna er textinn eftir rapp-
arann Kött Grá Pjé.
„Bára er gömul vinkona okkar
Kristínar. Hún hefur náttúrlega
verið að gera það alveg svakalega
gott síðustu ár. Hún hefur verið að
læra úti í Danmörku og m.a. samið
fyrir Sinfóníuhljómsveit Danmerkur
og Sinfóníuhljómsveit Helsinki,“
segir annað systkinanna tveggja,
Guðfinnur Sveinsson, um það hvers
vegna þau hafi fengið Báru til liðs
við sig í ár.
„Við höfðum oft talað um að
reyna að fá Báru til að semja fyrir
okkur en hún hefur verið svo upp-
bókuð að það hefur reynst erfitt. En
við náðum að fá hana þetta árið og
erum auðvitað svakalega ánægð
með það,“ segir Guðfinnur glaður í
bragði.
Aðspurður hvernig rapparinn
Kött Grá Pjé hafi komið inn í verk-
efnið svarar Guðfinnur: „Við vildum
gefa tónskáldinu fullt frelsi og ég
held að Bára haldi bara mikið upp á
Kött Grá Pjé. Þrátt fyrir að hún sé
svona á hinum klassíska enda tón-
listarinnar þá ákvað hún, sem mikill
aðdáandi, að taka texta úr bókinni
hans.“ Guðfinnur segir það ekki
hræða þau systkinin að syngja texta
eftir harðkjarnarappara eins og
Kött Grá Pjé þótt það sé vissulega
skemmtileg áskorun. „[Bára] tekur
alveg „element“ úr rappinu þannig
að þetta eru kannski ekki hefð-
bundnustu sönglög sem við höfum
sungið. Þetta er mjög framúr-
stefnulegt en textarnir eftir Kött
Grá Pjé eru alveg frábærir.“
Nýju verkin lykilatriði
Spurður um seinni hlutann í titli
verksins, þ.e. „nokkur hlægilega
stutt millispil“, segir Guðfinnur:
„Það er strengjakvartett sem leikur
með okkur og millispilin á milli
ljóðanna eru eiginlega bara hlægi-
lega stutt. Þetta eru kannski fimm
til tíu sekúndna millikaflar. Bára
ákvað því bara að setja það í titil
verksins.“
Eins og áður segir verða
Systkinatónleikarnir nú haldnir
fjórða árið í röð og segir Guðfinnur
þau systkinin vera að safna
„systkinadúettum“ í sarpinn.
„Þessi nýju verk setja alltaf mest-
an svip á hverja tónleika fyrir sig.
Við hugsuðum í upphafi að okkur
langaði að byrja tíu ára plan. Að fá
alltaf ungt tónskáld með okkur í lið
og safna dúettum. Eftir tíu ár yrð-
um við þá komin með tíu dúetta.“
Bjarni Frímann Bjarnason, tón-
listarstjóri hjá Íslensku óperunni og
nýr aðstoðarhljómsveitarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands, mun
leika undir á tónleikunum en þeir
Guðfinnur hafa þekkst um nokkurt
skeið.
„Við Bjarni kynntumst í Eistlandi
fyrir sjö – átta árum. Þá var hann að
leika á fiðlu með Ólafi Arnalds og ég
var á ferðalagi með hljómsveitinni
minni. Svo hafa Kristín og Bjarni
spilað saman áður, svo við ákváðum
bara að leita til hans. Hann er frá-
bær listamaður eins og Bára og var
til í að gera þetta með okkur.“
Auk hins nýja verks Báru eru á
efnisskránni óperuaríur og dúettar
og þýskur og íslenskur ljóðasöngur.
Verk við texta rappara
Guðfinnur og
Kristín Sveinsbörn
halda sína fjórðu
Systkinatónleika
annað kvöld
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Dúó „Við hugsuðum í upphafi að okkur langaði að byrja tíu ára plan. Að fá alltaf ungt tónskáld með okkur í lið og
safna dúettum. Eftir tíu ár yrðum við þá komin með tíu dúetta,“ segir Guðfinnur um tónleika þeirra Kristínar.
Tónskáld Bára Gísladóttir.
Morgunblaðið/Hari
Textahöfundur Kött Grá Pé.
Kvikmynd Benedikts Erlingssonar
leikstjóra, Kona fer í stríð, verður
fulltrúi Íslands í keppninni um Kvik-
myndaverðlaun Norðurlandaráðs í
ár. Benedikt og Ólafur Egill Eg-
ilsson skrifuðu handritið. Valið var
tilkynnt gær á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Haugasundi. Verð-
launin verða veitt í fimmtánda skipti
30. október, í tengslum við þing
Norðurlandaráðs sem verður þá
haldið í Osló.
Vetrarbræður, kvikmyndin sem
Hlynur Pálmason leikstýrði og skrif-
aði handritið að, verður fulltrúi
Dana.
Einnig eru tilnefndar finnska
kvikmyndin Armomurhaaja (Góð-
hjartaði dráparinn), Teemu Nikki
leikstýrði og skrifaði handrit; norska
kvikmyndin Thelma sem Joachim
Trier leikstýrði og skrifaði handritið
að; og sænska kvikmyndin Korparna
(Hrafnarnir), sem Jens Assur leik-
stýrði og skrifaði handrit að.
Þá hefur verið tilkynnt að Kona
fer í stríð og Undir trénu, kvikmynd
Hafsteins Gunnars Sigurðssonar,
hafi verið tilnefndar til Evrópsku
kvikmyndaverðlaunanna, ásamt 47
öðrum kvikmyndum. Verðlaunin
verða afhent 15. desember.
Vinsæl Kvikmyndin Kona fer í stríð
hefur vakið eftirtekt víða um lönd.
Kvikmyndir
tilnefndar til
verðlauna