Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 3. Á G Ú S T 2 0 1 8
Stofnað 1913 197. tölublað 106. árgangur
Stækkaðu heiminn og tryggðu þér besta verðiðmeðáskriftarkorti
borgarleikhus.is
VAR SÖNN
ÞJÓÐAR-
GERSEMI ÁST Í BLAND VIÐ MS
HIMINHÁTT
VERÐ Á HÁ-
TÍSKUVERSLUN
KÆRLEIKSRÍKT FJÖLSKYLDULÍF 50 VIÐSKIPTAMOGGINNSTEFÁN KARL 20
Guðrún Erlingdóttir
ge@mbl.is
„Fullorðið fólk er í umönnunarhlut-
verki allan sólarhringinn og starfs-
menn Alzheimersamtakanna
klökkna oft við frásagnir aðstand-
enda sem eru gjörsamlega uppgefn-
ir,“ segir Vilborg Gunnardóttir,
framkvæmdarstjóri samtakanna.
Skortur á dagþjálfunarúrræðum
fyrir fólk með heilabilun veldur
bæði aðstandendum og sjúklingum
óþarfa álagi og skerðir lífsgæði
þeirra.
Sigurður Helgi Jóhannsson segir
að eiginkona hans geti ekki beðið
eftir að komast í dagþjálfun í Fríðu-
hús og vera hennar þar veiti honum
þá hvíld sem hann þarfnist til þess
að geta sinnt henni þegar heim er
komið.
Ragnheiður Kristín Karlsdóttir
segir að í dagþjálfun hafi eiginmaður
hennar haft eitthvað fyrir stafni og
þjálfunin auðveldað honum lífið. Hún
segir að alzheimerkarlinn hafi komið
óboðinn í fjölskylduna þegar hjónin
ætluðu að fara að njóta lífsins eftir
langa starfsævi.
Vinkonurnar Auður Bárðardóttir
og Anna Karlsdóttir eru í dagþjálfun
í Fríðuhúsi og segjast báðar vera
miklu glaðari eftir að þær byrjuðu í
dagþjálfun.
178 eru á biðlista eftir 168 dag-
þjálfunarplássum á höfuðborgar-
svæðinu. Morgunblaðið/Hari
Glaðar Auður Bárðardóttir og Anna Karlsdóttir eru vinkonur sem una
sér vel í dagþjálfun í Fríðuhúsi og takast á við alzheimer af æðruleysi.
„Gjörsamlega uppgefnir“
Dagþjálfun eykur lífsgæði fólks með heilabilun og aðstandenda þess Skortur
er á dagþjálfunarplássum Í umönnunarhlutverki allan sólarhringinn
M Alzheimer »24 og 25
Það viðraði vel á höfuðborgarsvæðinu í gær og
margt var um manninn á iðjagrænum golf-
völlum.
Þessar efnilegu stúlkur æfðu púttin á Grafar-
kotsvelli, sem er sex holu æfingavöllur sem nýt-
ur nokkurra vinsælda.
Ekki veitir af því að æfa stutta spilið, það
verður að halda einbeitingu á golfvellinum og
klára hverja holu.
Morgunblaðið/Eggert
Púttstrokan æfð á Grafarkotsvelli
Hreinorkubílar
þurfa að vera
orðnir um 100
þúsund talsins ár-
ið 2030 að öllu
óbreyttu ef Ís-
lendingar ætla
sér að standast
skilmála Par-
ísarsamkomulagsins frá 2015 að
sögn Sigurðar Friðleifssonar, fram-
kvæmdastjóra Orkuseturs. Segir
hann rafbílavæðinguna þurfa að
ganga hraðar svo það megi takast
en í dag nemur fjöldi þeirra tæplega
9 þúsundum. »ViðskiptaMogginn
100 þúsund hrein-
orkubílar 2030
Fleiri Hreinorkubíl-
um þarf að fjölga.
Oddvitar minnihlutans í borgar-
stjórn Reykjavíkur eru hvassir í
gagnrýni sinni á borgarritara,
skrifstofustjóra Reykjavíkur-
borgar og borgarstjóra og taka
undir þá gagnrýni sem kom fram í
máli tveggja sérfræðinga í opin-
berri stjórnsýslu í Morgunblaðinu
í gær.
Vigdís Hauksdóttir, oddviti Mið-
flokksins, segir m.a. í samtali við
Morgunblaðið í dag: „Borgarstjóri
beitir bara embættismönnunum
fyrir sig og það kristallast algjör-
lega í þessu máli. Svo virðist vera
sem embættismennirnir séu alls
ekki hlutlausir, heldur vinni pólit-
ísk skítverk fyrir borgarstjóra,
sem á að hafa eftirlit með emb-
ættismannakerfinu.“
Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, segir m.a.:
„Þetta er staðfesting á því að
þessi framganga embættismann-
anna er ámælisverð.“
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri vísar allri gagnrýni á bug.
agnes@mbl.is »6
Vinni skítverk fyrir
borgarstjórann
Arna Dís
Ólafsdóttir, sem
sá fram á að
komast hvorki í
nám né á vinnu-
markað, skoðar
nú þau atvinnu-
tilboð sem hún
hefur fengið. Í
kjölfar fréttar
Morgunblaðsins
um slæma stöðu
100 þroskahamlaðra ungmenna
tóku nokkur fyrirtæki og stofnanir
við sér og buðu Örnu Dís vinnu. »4
Arna Dís fær tæki-
færi á vinnumarkaði
Arna Dís
Ólafsdóttir