Morgunblaðið - 23.08.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 155.500 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
eh
f.
Aðventutöfrar í Tíról
Í faðmi fjallanna er dýrðin einstök á aðventunni. Tíról
í Austurríki er alger ævintýraheimur út af fyrir sig.
Við heimsækjum fagurlega skreytta jólamarkaði með
fjölbreyttum varningi og sýnishorni af því dæmigerða í mat
og drykk heimamanna.
28. nóvember - 3. desember
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Sérfræðingar á sviði opinberrar
stjórnsýslu töldu í umfjöllun Morg-
unblaðsins í gær að framganga borg-
arritara og skrifstofustjóra Reykja-
víkurborgar í garð Vigdísar
Hauksdóttur væri einstök og töldu
líklegt að embættismennirnir hefðu
hlaupið á sig þegar þeir sökuðu kjör-
inn fulltrúa um trúnaðarbrest sem
síðar kom á daginn að var enginn
trúnaðarbrestur.
Morgunblaðið hugðist í gær leita
viðbragða oddvita allra framboða í
borgarstjórn en náði í tölvupósti
sambandi viðoddvita meirihlutans,
Dag B. Eggertsson borgarstjóra,
sem sagðist í tölvubréfi til blaða-
manns mundu svara spurningum
sem hann fékk sendar í tölvupósti.
Lesa má svör borgarstjórans í frétt
fyrir neðan þessa umfjöllun. Sömu-
leiðis náði blaðamaður í Líf Magn-
eudóttir, oddvita VG, og Þórdísi Lóu
Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar
símleiðis, sem báðar kváðust mundu
svara spurningum blaðamanns síðar
um daginn. Aðeins Þórdís Lóa svar-
aði.
Morgunblaðið náði tali af öllum
oddvitum minnihlutans, þeim Eyþóri
Laxdal Arnalds, oddvita Sjálfstæðis-
flokksins, Vigdísi Hauksdóttur, odd-
vita Miðflokksins, Sönnu Magdalenu
Mörtudóttur, oddvita Sósíalista-
flokks Íslands, og Kolbrúnu Baldurs-
dóttur, oddvita Flokks fólksins.
Ráðist á kjörna fulltrúa
Eyþór sagði spurður um álit sér-
fræðinganna á sviði opinberrar
stjórnsýslu á að framganga borgar-
ritara og skrifstofustjórans í garð
Vigdísar Hauksdóttur væri einstök:
„Þetta er staðfesting á því að þessi
framganga embættismannanna er
ámælisverð. Kjörnir fulltrúar hafa
þurft að sæta árásum og þetta er eitt
dæmi þess. Annað dæmi er að það
var kvartað formlega yfir því að við
ræddum um aukinn rekstrarkostnað
stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og sú
umræða okkar var öll byggð á upp-
lýsingum sem eru opinberar. Þegar
svona er gengið fram er í raun og
veru verið að vega að lýðræðinu. Það
er eitthvað mikið að og þetta getur
ekki verið eitthvað sem meirihlutinn
sættir sig við. Hann þarf að ganga
fram og hreinsa til í þessum málum.“
Eyþór var spurður hvers vegna
hann teldi að borgarstjóri hefði ekki
brugðist við með neinum hætti þegar
hann bæri ábyrgð á öllum embætt-
ismönnum borgarinnar: „Mér finnst
það mjög undarlegt en borgarstjóri
verður sjálfur að svara fyrir það. Það
liggur fyrir að borgarritari og skrif-
stofustjórinn sem sendu þessi minn-
isblöð eru báðir á skrifstofu hans.“
Vigdís sagði spurð um álit sér-
fræðinganna: „Mér kemur álit sér-
fræðinganna ekkert á óvart. Ég var
alltaf með hreinan skjöld í þessu
máli. Ég er nokkuð vel að mér í
stjórnsýslunni og ég vissi alltaf að
þessi framkoma borgarritara og
skrifstofustjórans væri einstök og
dæmalaus. Þótt þetta hafi alls ekki
komið mér á óvart finnst mér frá-
bært að fá það staðfest frá fræði-
mönnum á sviði opinberrar stjórn-
sýslu að ég hafði rétt fyrir mér.“
Aðspurð hvers vegna hún teldi að
borgarstjóri hefði í engu brugðist við
sendingum borgarritara og skrif-
stofustjóra á minnisblöðunum, sagði
Vigdís:
Embættismenn vinni skítverk
„Borgarstjóri beitir bara embætt-
ismönnunum fyrir sig og það kristall-
ast algjörlega í þessu máli. Svo virð-
ist vera sem embættismennirnir séu
alls ekki hlutlausir, heldur vinni póli-
tísk skítverk fyrir borgarstjóra sem
á að hafa eftirlit með embættis-
mannakerfinu. Því miður er illa kom-
ið fyrir Reykjavík.“
Sanna Magdalena sagði þegar hún
var spurð um hver viðbrögð hennar
væru: „Það kemur mér á óvart að
embættismenn borgarinnar vilji siða
kjörna fulltrúa til. Borgarstjórn er
kjörnir fulltrúar borgarbúa og þeir
verða að hafa svigrúm til að veita
embættismannakerfinu aðhald. Um-
boð þeirra er klárt, borgarbúar hafa
valið þetta fólk til að sinna hagsmun-
um sínum. Embættismenn verða að
beygja sig undir vilja borgarbúa,
hverja borgarbúa hafa valið til setu í
borgarstjórn. En auðvitað eiga borg-
arfulltrúar að sýna embættismönn-
um kurteisi og virðingu eins og öðru
fólki. En krafan um það getur ekki
falið í sér að kjörnir borgarfulltrúar
fjalli ætíð um embættismannakerfið
eins og embættismennirnir sjálfir
myndu gera það. Ég legg til að allir
aðilar, borgarfulltrúar jafnt sem
embættismenn, snúi sér að því að
sinna sínum verkefnum af sem mest-
um heilindum og hætti að reyna að
ala hverjir aðra upp í kurteisi og góð-
um siðum. Fólk sem gefur sig í þessi
störf má ekki gera eigin persónu og
móðgunargirni að aðalatriði máls.“
Var slegin óhug
Kolbrún sagði þegar hún var
spurð álits: „Ég var sleginn óhug
þegar Vigdís sýndi mér þetta skeyti
frá borgarritara og ég fékk mikla
ónotatilfinningu. Þetta er fáheyrð
framganga hjá borgarritara, ekki
síst í ljósi þess að hann er lögfræð-
ingur að mennt. Ég verð samt sem
áður að segja það að þetta hafi ekki
komið mér mikið á óvart því strax frá
upphafi fékk maður það á tilfinn-
inguna að maður ætti að læra að
hlýða. Um það get ég nefnt önnur
dæmi sem ég hef rætt við formann
borgarráðs. Í stað þess að hafa feng-
ið leiðbeiningar og ráðgjöf hafa borg-
arritari og borgarlögmaður gert lítið
úr manni.
Við erum nýr hópur í minnihlut-
anum og við erum kraftmikil. En
finnum það frá meirihlutanum og
ákveðnum embættismönnum að við
eigum að aðlagast hlutunum eins og
meirihlutinn vill að þeir séu gerðir.“
Kolbrún segir að hún hafi sagt við
borgarritara að hún teldi bréfasend-
ingu hans til Vigdísar hafa verið
mjög stuðandi. „Traust mitt á emb-
ættismönnum borgarinnar hefur
stórskaddast við þetta, ekki bara
gagnvart borgarritara heldur gagn-
vart fleiri embættismönnum. Og ég
tel að borgarstjóri hafi átt að beita
sér í þessu máli,“ sagði Kolbrún.
Sá oddviti meirihlutans sem
hvorki svaraði síma né tölvupósti í
gær, er Dóra Björt Guðjónsdóttir,
oddviti Pírata.
Segir að illa sé komið fyrir Reykjavík
Oddvitar minnihlutans segja að álit sérfræðinganna í opinberri stjórnsýslu sé staðfesting á því að
framganga embættismannanna hafi verið ámælisverð Meirihlutinn þurfi að hreinsa til í kerfinu
Morgunblaðið/Ómar
Eyþór Laxdal
Arnalds
Vigdís
Hauksdóttir
Sanna Magdalena
Mörtudóttir
Kolbrún
Baldursdóttir
Ráðhús Ef marka má orð oddvita minnihlutans í borgarstjórn má ætla að andrúmsloftið í Ráðhúsinu sé lævi blandið
þessa dagana. Hver höndin virðist upp á móti annarri og traust minnhlutans í borgarstjórn á embættismönnum þverr.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og
oddviti Samfylkingarinnar í borgar-
stjórn, vísar gagnrýni sérfræðinganna
á bug.
„Málið er einstakt að því leyti að
Vigdís Hauksdóttir birti facebook-
færslu 10. ágúst sl. þar sem rangfærð
er niðurstaða dómsmáls í starfs-
mannamáli. Þvert á þær upplýsingar
sem borgarfulltrúar hafa fengið þá
kallar hún málið „eineltismál“ og að
dómur hafi fallið í „eineltismáli“. Þetta
stangast beinlínis á við dóminn sjálfan,
upplýsingar sem borgarfulltrúar hafa
fengið í borgarráði og er raunar líka
þvert á upplýsingar sem hún hafði
fengið í tölvupósti frá Kjarafélagi við-
skipta- og hagfræðinga. Það er einnig
einstakt að borgarfulltrúi hafi dreift
upplýsingum um viðkvæm starfs-
mannamál sem veitt hafa verið í trún-
aði í borgarráði. Ég man ekki til þess
að það hafi verið gert þann tíma sem
ég hef verið hjá borginni,“ segir m.a. í
svari borgarstjóra.
– Sérfræðingarnir segja að það sé
ekki eitt af hlutverkum embættis-
manna að hjóla í kjörna fulltrúa, held-
ur að vinna með öllum kjörnum
fulltrúum hvort sem þeir skipa meiri-
hluta eða minni-
hluta. Hvað segir
borgarstjóri um
þá skoðun þeirra?
„Hvorugur sér-
fræðingurinn tek-
ur þannig til orða
að einhver hafi
„hjólað í kjörinn
fulltrúa“ enda er
um að ræða hóf-
stilltan tölvupóst
að gefnu tilefni sem sendur var Vigdísi
Hauksdóttur borgarfulltrúa og hún
kaus sjálf að gera opinberan. Tölvu-
pósturinn fól í sér athugasemdir um
að trúnaður um viðkvæmt mál sem
var til umfjöllunar í borgarráði var
brotinn og undirstrikað að það væri al-
varlegt mál sem yrði að fara yfir enda
er það eðli málsins samkvæmt mik-
ilvægt að geta kynnt viðkvæmar trún-
aðarupplýsingar, hvort sem þær lúta
að viðkvæmum starfsmannamálum,
samningum eða fjármálum í borgar-
ráði, án þess að kjörnir fulltrúar
hlaupi með þær á facebook, hvað þá
snúi út úr þeim eða rangfæri þær.“
– Mun borgarstjóri aðhafast í mál-
inu, til dæmis með því að áminna borg-
arritara og skrifstofustjórann?
„Mér finnst eðlilegt að forsætis-
nefnd fari yfir málið og facebook-
færslu Vigdísar Hauksdóttur. Ég ber
fullt traust til borgarritara og það var
mjög eðlilegt að hann brygðist við
málinu í fjarveru minni þó að það eigi
sér fá fordæmi eða kannski einmitt
vegna þess,“ segir Dagur.
– Nú þegar ljóst er að Vigdís byggði
frásagnir sínar á bréfum frá Kjara-
félagi viðskipta- og hagfræðinga, væri
ekki eðlilegt að hún væri beðin afsök-
unar vegna þess að hún var sökuð um
trúnaðarbrest?
„Vigdís hefur sagst hafa vísað í
tölvupóst frá Kjarafélagi viðskipta- og
hagfræðinga sem hún hefur birt. Það
stenst enga skoðun. Borgarfulltrúinn
vísar alls ekki til upplýsinga frá félag-
inu í facebook-færslu sinni. Þvert á
móti heldur Vigdís því fram að um ein-
eltismál og eineltisdóm sé að ræða en
tölvupóstar KVH voru ekki síst sendir
til að halda því til haga að ekki væri
um eineltismál að ræða. Borgar-
fulltrúinn hafði því ofangreinda tölvu-
pósta í raun að engu,“ var lokasvar
borgarstjóra.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti
Viðreisnar, segir m.a.: „Ég legg mikla
áherslu á góða stjórnsýslu, gegnsæi
og greinagóða upplýsingagjöf. Ég
bind vonir við að borgarfulltrúar sem
og embættismenn nái jafnvægi í þessu
landslagi sem við erum í.“
Vigdís rangfærði
niðurstöðu dómsmáls
Borgarstjóri gefur lítið fyrir skoðanir sérfræðinganna
Eðlilegt að borgarritari hafi brugðist við í fjarveru hans
Dagur B.
Eggertsson