Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
LAUGAVEGI 91
allt að 50%afsláttur af gönguskóm
ÚTSALA
Talsmenn meirihlutans í borgar-stjórn hljóma býsna ánægðir
með upphaf nýs starfsárs í leik- og
grunnskólum borgarinnar. Og
meirihluti borgarstjórnar, bæði sá
sem sat fyrir kosningar og svo sá
sem nú situr með stuðningi Við-
reisnar, hefur kynnt mikil áform
um að bæta
stöðuna í
þessum
málum.
Þegartölur
eru skoð-
aðar verður þó ekki sagt að útlitið
sé sérstaklega bjart fyrir foreldra í
Reykjavík. Einungis 50% leikskóla
borgarinnar eru fullmönnuð og í
níu leikskóla vantar fólk í þrjár eða
fleiri stöður.
Staðan að þessu leyti er enn verrií grunnskólunum, þar sem að-
eins er búið að fullmanna 44% skól-
anna.
Þetta er þó hvort tveggja hátíðhjá frístundaheimilunum, en
innan við 5% þeirra eru fullmönnuð
og ekki er búið að ráða í nema 71%
stöðugildanna.
Það er því óhætt að segja aðreykvískir foreldrar geti búist
við áframhaldandi erfiðleikum
þrátt fyrir hástemmd loforð um að
allt kapp verði lagt á að leysa þenn-
an vanda.
Vissulega er það svo að mönnunþessarar starfsemi er ekki létt
verk. Engu að síður eru þessar töl-
ur víðs fjarri því að vera viðunandi.
Og borgarbúar hljóta að spyrjasig hvort þetta sé ekki frekar
enn eitt dæmið um ónýta stjórn-
sýslu en að vandinn sé raunveru-
lega óleysanlegur.
Fullmönnuð 5%
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 22.8., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 9 alskýjað
Akureyri 11 alskýjað
Nuuk 5 rigning
Þórshöfn 11 alskýjað
Ósló 18 skýjað
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 18 skýjað
Helsinki 18 heiðskírt
Lúxemborg 29 heiðskírt
Brussel 24 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 16 léttskýjað
London 21 alskýjað
París 29 heiðskírt
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 29 heiðskírt
Berlín 28 heiðskírt
Vín 31 heiðskírt
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 29 heiðskírt
Madríd 32 léttskýjað
Barcelona 29 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Róm 28 léttskýjað
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 21 heiðskírt
Montreal 20 skúrir
New York 26 skýjað
Chicago 21 léttskýjað
Orlando 30 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:44 21:17
ÍSAFJÖRÐUR 5:39 21:33
SIGLUFJÖRÐUR 5:21 21:16
DJÚPIVOGUR 5:11 20:50
Donald Trump Bandaríkjaforseti
hefur útnefnt Jeffrey Ross Gunter
sem nýjan sendiherra Bandaríkj-
anna á Íslandi. Eitt og hálft ár er síð-
an Robert Barber hætti störfum sem
sendiherra hér á landi. Öldungadeild
bandaríska þingsins þarf að sam-
þykkja útnefningu Gunters áður en
hann getur tekið við starfinu.
Jeffrey Ross Gunter er læknir,
sérfræðingur í húðsjúkdómum, og
rekur læknastofur í tveimur ríkjum í
Bandaríkjunum, Kaliforníu og Ne-
vada. Gunter er sjálfur frá Kaliforn-
íu. Auk móðurmálsins talar hann
spænsku, hollensku og frönsku.
Hann hefur verið ötull stuðnings-
maður Donalds Trumps. Lagði Gun-
ter fé í kosningabaráttu forsetans
árið 2016 og tók þátt í vinnu við
framboðið. Dr. Gunter situr í stjórn
RJC, samtaka gyðinga í Repúblik-
anaflokknum.
Á meðan þess er beðið að nýr
sendiherra taki við stöðu sinni hér á
landi gegnir staðgengill skyldum
forstöðumanns sendiráðsins. Síðustu
misseri hafa staðið yfir framkvæmd-
ir við nýtt sendiráð Bandaríkjanna
við Engjateig í Reykjavík. Fram hef-
ur komið í fjölmiðlum að bygging
sendiráðsins kosti minnst sex og
hálfan milljarð króna, enda verði
skothelt gler í öllum gluggum og
þykkir veggir tryggi öryggi starfs-
manna þar. Stefnt er að því að nýtt
sendiráð verði tekið í notkun sum-
arið 2019.
Gunter
skipaður
sendiherra
Jeffrey Ross
Gunter
Donald
Trump
Staðan laus frá
því í janúar 2017