Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 Myndatextar víxluðust Myndatextar með frétt á bls. 11 í Morgunblaðinu í gær víxluðust á þann hátt að undir mynd af Erlu Sólbjörtu Jónsdóttur stóð nafn syst- ur hennar, Perlu Sólbrár Jóns- dóttur, og öfugt. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Við erum á Facebook Laugavegi 82 | 101 Reykjavík Sími 551 4473 Fegurðin kemur innanfrá Skoðið laxdal.is/yfirhafnir Skipholti 29b • S. 551 4422 FISLÉTTTIR DÚNJAKKAR frá kr. 19,900,- Dúnvesti frá kr. 9900,- Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Regnkápur Kr. 16.900 Vatnsheldar, vindheldar, fóðraðar Str. S-XXL Litir: dökkblátt, grænt Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is Str. 38-58 Nýjar vörur í hverri viku NÝ HAUSTVARA! Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is 70-80% afsláttur ÚTSÖLULOK ALGJÖRT VERÐHRUN Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Ármúla 44, 108 Reykjavík s. 562 6062 Nýjar vörur frá Claire og EVA & CLAUDI Einnig nýir handunnir skór frá BUBETTI Munið eftir útsöluhorninu Erum á facebook Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Það fylgir því mikil ábyrgð að vera með hund en einnig að rækta hunda,“ segir Sif Traustadóttur, dýralæknir og dýraatferlisfræð- ingur, í samtali við Morgunblaðið. Lögreglan í Vestmannaeyjum greindi frá því á Facebook-síðu sinni í fyrradag að heimilishundur af tegundinni Alaskan Malamute hefði ráðist á eiganda sinn og bitið hann í andlit og aðra höndina. Til stendur að aflífa hundinn að ósk eigandans. Hundur sömu tegundar beit barn í andlitið með þeim af- leiðingum að sauma þurfti yfir 80 spor, en talsvert var fjallað um það mál í fjölmiðlum í vor. „Það er erfitt að segja til um hvers vegna hundar bíta án þess að þekkja málsatvik vel. Þarna eru tvö tilvik út af hundum sömu teg- undar, og það þarf að passa að setja ekki strax samasemmerki þar á milli, þar sem að um hreina til- viljun gæti verið að ræða,“ segir Sif, sem segir að almennt séð sé engin ein tegund hunda líklegri en önnur til að bíta fólk, en áhugavert gæti verið að vita hvort báðir þess- ir hundar séu frá sama hundarækt- andanum. „Það er mikilvægt að rækta hunda með góða skapgerð og að velja sér hund af kostgæfni. Kynna sér ræktandann vel og fá að vita hvernig lundarfar foreldra hvolps- ins er,“ segir Sif. Ýmsar aðferðir við að þjálfa hunda séu úreltar, mikil harka í þjálfun og umgengni geti t.d. orðið til þess að hundurinn hætti að treysta eigandanum og öðrum. „Það þarf að vanda þjálfun hunda og læra að þekkja tjáningu þeirra, þeir bíta yfirleitt ekki nema þeir séu hræddir eða óöruggir, og þá eftir að hafa sýnt þess ýmis merki áður en til þess kemur að bíta,“ segir Sif, sem vill að lokum ítreka að fólk eigi aldrei að nálgast hunda sem það þekkir ekki, nema með leyfi eigandans, og á þann hátt að leyfa hundinum frekar að nálgast sig fyrst. Ljósmynd/Wikipedia Alaskan Malamute Almennt ekki líklegri en aðrir hundar til að bíta fólk. Mikil ábyrgð fylgir hundum  Ræktun, val, þjálfun og um- gengni lykilatriði Launavísitalan í júlí var 663,4 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði, en síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,3%, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. „Það er í raun lítið um þessa mælingu að segja, en almennar hækkanir frá því í maí og júní hafa töluverð áhrif á hækk- unartaktinn til þriggja mánaða, en árstakturinn er 6,3%,“ segir Róbert Farestveit, hagfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands, í svari við skriflegri fyrirspurn Morgunblaðsins um ástæður hækkunarinnar. „Hvað varðar framhaldið, þá er erfitt um það að segja að svo stöddu. Öll félögin eru í und- irbúningi og eru að eiga samtöl við sína félagsmenn,“ var svar Róberts við því hvort hægt væri að spá eitthvað um framhaldið. ernayr@mbl.is Hækkanir koma fram í launavísitölu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.