Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 12
Getty Images/iStockphoto
Liðin tíð? Ef til vill líður brátt undir lok sú ágæta kurteisisvenja að herra-
maðurinn dragi stólinn fram fyrir dömuna við borðhaldið.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Kurteisisfrasar á borð við„viltu gjöra svo vel“ eða„þakka þér fyrir“ kunna aðlíða undir lok á Bretlandi
og að sama skapi mun ekki þykja til-
tökumál að vera með olnbogana uppi á
borði. Á vefútgáfu breska dagblaðsins
The Independent var fyrir nokkru
greint frá rannsókn sem rennir stoð-
um undir að sú verði raunin þegar
fram líða stundir; „gamaldags“
mannasiðir séu í útrýmingarhættu.
Sjónvarpsstöðin Sky Atlantic lét
gera téða rannsókn áður en epíska
þáttaröðin Britannia fór í loftið. Þætt-
irnir fylgja rómverskum innrásarher
eftir og fjalla um samskipti hans við
hina uppreisnargjörnu og óhefluðu
heimamenn.
„Má bjóða þér te?“
Rannsakendur urðu margs vísari
um siði, venjur og viðhorf Breta nú-
tímans. Sumir þátttakendur kváðust
þurfa að leggja sig virkilega fram um
að bölva ekki og ragna í tíma og ótíma,
muna eftir að halda dyrunum opnum
fyrir næstu manneskju og að tala ekki
í símann við kvöldverðarborðið. Flest-
um fannst sjálfsagt að berja að dyrum
áður en þeir ganga inn í herbergi og
einnig að bjóða gestum upp á te um
leið og þeir koma í hús – sem kemur að
vísu ekki á óvart – en hvort tveggja var
þó alls ekki algild regla hjá öllum. Því
er kannski ekki að undra að tveir
þriðju hlutar þjóðarinnar eru þeirrar
skoðunar að breskt samfélag sé mun
ósiðaðra en forðum daga að því hermt
er í The Independent. Og að þriðjung-
ur telji að undanfarin ár þyki kurteisi
ekki eins mikilvæg og áður.
Meira en helmingur þeirra sem
þátt tóku í rannsókninni telja að hefðin
„dömurnar fyrst“ sé að líða undir lok
og 47% finnst ekkert að því að mala í
símann við borðhald. Tæpur helm-
ingur var alveg sáttur við að hætta að
segja „viltu gjöra svo vel“ eða „þakka
þér fyrir“ og voru líka á því að formæl-
ingar í samræðum væru algengari en
áður. Að heilsa með handabandi við
fyrstu kynni var að mati þriðjungs
þátttakenda valkvætt, hvorki sér-
staklega mikilvægt né kurteisistákn.
Þrír af hverjum tíu sögðust ekki
myndu ómaka sig með því að segja „af-
sakið“ vildu þeir ná athygli. Hvernig
þeir bæru sig að fylgir hins vegar ekki
sögunni.
Kossaflangs
Því má skjóta hér inn að 71%
þátttakenda vildi óska að fólk væri sér
meira meðvitandi um mannasiði og al-
menna kurteisi. Tveir af hverjum
fimm telja samt að í framtíðinni muni
fólk ekki halda dyrum opnum hvað
fyrir öðru eða standa upp í strætó fyrir
þeim sem meira þurfa á sætinu að
halda.
Að þessu sögðu kemur kannski
ekki á óvart að einn af hverjum fimm
sagði það fara óskaplega í taugarnar á
sér að þurfa að kyssa nýja kunningja á
kinnina. Gera má að því skóna að sá
siður, sem líka er að verða landlægur á
Íslandi, sé af suðrænum toga. Ein nöt-
urlegasta niðurstaða þessarar könn-
unar var sú að þriðjungur þátttakenda
er sannfærður um að það borgi sig að
vera ruddalegur og brjóta almenna
kurteisissiði samfélagsins. Tveimur af
hverjum fimm fannst þjóðin vera of
einstrengingsleg þegar slíkir siðir
væru annars vegar.
Að haga sér almennilega
Og áfram skal haldið, 11%
hlakka til þeirra tíma þeg-
ar þeir þurfa ekki að
hafa svona mikið fyrir
því að vera kurteisir og
13% finnst rudda-
skapur nauðsyn-
legur svo fólk viti
hvað þeim finnst
um það. Einn af
hverjum tíu trúir því
að með því að sýna
fólki ókurteisi fái
hann oftar og fyrr
það sem hann vill. Slíkt framkoma er
þó ekki látin óátalin af samborg-
urunum því einn af hverjum fjórum
Bretum kvaðst hafa verið ávíttur á al-
mannafæri fyrir að fylgja ekki grund-
vallar mannasiðum eða kurteisissiðum
og einum af hverjum sex var sagt „að
hegða sér almennilega“.
Rannsóknin varpaði
líka ljósi á manna-
siði sem Bretar
halda hvað fastast
í, þótt almennt eigi
kurteisi undir
högg að sækja.
53% sætta sig við
bresku biðraða-
menninguna, að vísu
fúlir og tuðandi,
og tveir þriðju
halda fyrir nef og
munn þegar þeir hnerra. Til allar ham-
ingju.
Að lokum telur The Independent
upp 20 siði í útrýmingarhættu á Bret-
landi. Auk þeirra sem þegar hafa verið
nefndir eru þessir helstir:
Að tyggja með lokaðan munninn.
Að segja „afsakið“, jafnvel af litlu
tilefni.
Að bíða eftir að allir hafi fengið á
diskinn áður en maður byrjar að
borða.
Að taka sér stöðu í biðröð án þess
að stjaka við þeim sem þar eru fyrir.
Að halda rétt á hnífi og gaffli.
Að horfast í augu við þann sem
maður heilsar.
Að láta hnífapör á diskinn miðjan
þegar maður er búinn að borða.
Hvernig skyldu niðurstöður sam-
bærilegrar könnunar á Íslandi líta út?
Eru mannasiðir á
undanhaldi í Bretaveldi?
Bretar hafa löngum verið þekktir fyrir að halda fast í gamla siði. Í könnun sem
gerð var í sumar kveður við svolítið annan tón því í ljós kom að mörgum finnst
algjör óþarfi að viðhalda kurteisisvenjum.
Gamall siður Bretar bjóða gestum
upp á te um leið og þeir koma í hús.
SLÖKKTU Á EYÐSLUNNI OG
KVEIKTU Á SP M
FYRIR HUGSANDI FÓLK
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
Mitsubishi Outlander PHEV er glæsilega hannaður, rúmgóður og háþróað fjórhjóladrifið kemur
þér lengra allt árið. Þú getur ekið á hreinni íslenskri orku svo að bíllinn verður sparneytnari
og umhverfisvænni. Outlander PHEV var vinsælastur í flokki jeppa og jepplinga árið 2017.
Nú fylgir 350.000 kr. sumarauki ásamt hleðslustöð að verðmæti 150.000 með öllum
nýjum Mitsubishi Outlander PHEV bílum keyptum hjá HEKLU. Slökktu á eyðslunni og
kveiktu á sparnaðinum í nýjum Outlander PHEV. Hlökkum til að sjá þig!
Outlander Instyle PHEV
Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn frá:
5.490.000 kr.
Mitsubishi PHEV kemur þér inn í framtíðina
Sumarauki og hleðs
lu-
stöð að verðmæti
500.000kr. fylgir!
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018