Morgunblaðið - 23.08.2018, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
Nýjar
vörur!
Nýjar vörur streyma inn
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Flórídanavöllurinn í Árbænum
hefur breyst mikið í sumar. Búið er
að leggja gervigras og setja upp
flóðljós við endurgerðan völlinn.
Meðal verktaka sem komu að
framkvæmdunum var Björn Sig-
urðsson, bróðir Ragnars, fyrrver-
andi landsliðsmanns í knattspyrnu,
eins þekktasta sonar Fylkis.
Guðmann Hauksson, vallarstjóri
á Flórídanavellinum, segir verk-
efnið hafa verið í undirbúningi hjá
Fylki síðustu 2-3 ár. Félagið hafi
svo fengið grænt ljós á útboð í vor.
Skipt um jarðveg
Framkvæmdirnar hófust í apríl.
Fyrsta skrefið var að fjarlægja
náttúrulegt grasið og góðan hálfan
metra af jarðvegi. Síðan var settur
nýr jarðvegspúði og komið fyrir 36
km af hitalögnum. Ofan á þær var
sett nokkurra sentímetra lag af
sandi. Hann var pressaður og ofan
á hann var lagt 25 millimetra lag af
gúmmíi til að gefa mýkt. Lagning
þess minnir á malbikun. Næst var
gervigrasið lagt ofan á gúmmíið.
Svo var sandur og gúmmí sett á
teppið. Að sögn Guðmanns tekur
nokkrar vikur að slétta og þétta
yfirborðið.
Samhliða þessu var grafið fyrir
undirstöðum flóðljósa, sem voru
komin upp í júní.
Vígsluleikur 29. september
Fyrsti keppnisleikurinn á nýja
grasinu var leikur karlaliðs Fylkis á
móti Stjörnunni sunnudaginn 12.
ágúst. Gestirnir unnu leikinn 2:0.
Að sögn Guðmanns spilar karla-
liðið vígsluleik á móti Fjölni laugar-
daginn 29. september. Þá fer fram
síðasta umferðin í Pepsi-deildinni.
19. júlí Vinna er hafin við að pressa gúmmí ofan á sandinn.10. júlí Undirlagi af sandi er dreift yfir hitalögnina. 24. júlí Vinna við að leggja grasið er hafin að norðanverðu.
26. júlí Vinna við að leggja gervigrasið er langt komin. 27. júlí Komið er að því að merkja teigana og endimörkin. 22. ágúst Fyrsti leikurinn hefur farið fram á nýja grasinu.
Það þarf líka að nostra við gervigrasið
Fylkismenn venjast nýju gervigrasi Vallarstjóri segir það taka tíma að þétta yfirborð á grasinu
Morgunblaðið/Baldur
Vinna Guðmann Hauksson vallarstjóri var að vinna við nýja völlinn um eftirmiðdaginn í gær.
Fylkir - Stjarnan Fyrsti leikurinn var 12. ágúst. Flóðljósin komu í júní.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon