Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
fagnar
afmæli
Af því tilefni bjóðum við
20% afslátt
af öllum CHARNOS
undirfötum
Gildir út laugardag.
60
1958 - 2018
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
„Ég vona bara að ég geti deilt
reynslu minni með jákvæðum hætti
því lífið er núna,“ sagði Stefán Karl
Stefánsson leikari í samtali við
menningardeild Morgunblaðsins í
október á síðasta ári. Stefán Karl
lést í fyrradag eftir tveggja ára bar-
áttu við gallgangakrabbamein, 43
ára að aldri.
Í október hafði hann lokið sýningu
á leiksýningunni Með fulla vasa af
grjóti sem sýnd var í beinni útsend-
ingu á RÚV, örfáum vikum eftir tvo
erfiða holskurði, geisla- og lyfja-
meðferðir vegna meinsins.
„Lífið er núna“ eru slagorð
Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt
fólk sem greinst hefur með krabba-
mein og aðstandendur þess. „Þessi
slagorð urðu mér hvatning til að
drífa mig af stað í hringferð um
landið í því skyni að búa til minn-
ingar með fjölskyldunni. Ég veit
ekkert hvað ég á langt eftir – en það
veit svo sem enginn. Slagorðið gildir
fyrir allt og alla. Lífið er núna, hvort
sem þú ert með krabbamein, glímir
við önnur veikindi eða heldur að þú
sért fullkomlega frískur,“ sagði Stef-
án Karl, sem fullyrða má að elskaður
hafi verið af íslensku þjóðinni.
Á ferli sínum tókst honum oftar en
ekki að kitla hláturtaugar áhorfenda
og var hann fyrr á þessu ári sæmdur
riddarakrossi hinnar íslensku fálka-
orðu fyrir framlag sitt til íslenskrar
leiklistar og samfélags, en hann var
einnig ötull baráttumaður gegn ein-
elti og stofnandi samtakanna Regn-
bogabarna. Í viðtali við Morgun-
blaðið, skömmu eftir að Stefán Karl
greindist með krabbamein, sagði Ari
Matthíasson þjóðleikhússtjóri að
hann væri þjóðargersemi.
Tíminn það dýrmætasta í lífinu
Í mars á þessu ári lét krabbinn
aftur á sér kræla og þá varð ljóst að
meinið væri ólæknanlegt. „Það er
ekki fyrr en manni er sagt að maður
muni deyja fljótlega, sem maður átt-
ar sig á hve stutt lífið er. Tíminn er
það dýrmætasta í lífinu því hann
kemur aldrei aftur og hvort sem
maður eyðir honum í örmum ástvina
eða í fangelsisklefa, þá er lífið það
sem maður nýtir tímann í. Látið
ykkur dreyma stóra drauma,“ skrif-
aði Stefán Karl til fylgjenda sinna á
samfélagsmiðlum fyrr á þessu ári.
Alþjóðlega athygli vakti leikur
Stefáns Karls í Latabæ, sjónvarps-
þáttum sem sýndir voru um heim
allan, og söngleiknum „Þegar Trölli
stal jólunum“ sem sýndur var í
Bandaríkjunum og Kanada. Í takt
við heimsaðdáun á Stefáni Karli hef-
ur fjöldi erlendra fjölmiðla greint frá
andláti hans þ. á m. BBC, CNN,
Daily Mail, Metro og Mirror.
„Orðstír deyr aldrei“
Fjölmargir vinir Stefáns Karls
hafa minnst hans, þ. á m. bandaríska
leikkonan Julianna Rose Mauriello,
sem lék Sollu stirðu á móti Stefáni í
Latabæjarþáttunum. „Andlát skilja
eftir sig hjartasár sem aldrei gróa,
en ást lætur eftir sig minningar sem
enginn getur stolið. Ég mun alltaf
dansa við hlið þér og ég veit þú ert
ekki einn, mamma mín og amma eru
hjá þér. Gerðu það, vaktu yfir mér
og ég mun reyna að vera sterk,“
skrifaði hún.
„Orðstír deyr aldrei. Orðstír lifir.
Þess vegna mun Stefán Karl Stef-
ánsson lifa í minningu og vitund okk-
ar sem vorum svo heppin að fá að
kynnast honum,“ skrifaði Gunnar
Helgason leikari.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á sviði Árið 2000 sló í gegn sýningin Með fulla vasa af grjóti, þar sem Stefán Karl og Hilmir
Snær Guðnason fóru með aðalhlutverk. Aftur var sýningin sett á svið árin 2012 og 2017.
Morgunblaðið/Stella Andrea
Leiksýning Stefán Karl ásamt börnum sínum, Bríeti Ólínu Kristinsdóttur, Júlíu Stefánsdóttur
og Þorsteini Stefánssyni og Valgerði Þorsteinsdóttur, mágkonu sinni, á sýningunni Slá í gegn.
Stefán Karl var sönn þjóðargersemi
Stefán Karl Stefánsson leikari er fallinn frá 43 ára „Slagorðið gildir fyrir alla: Lífið er núna“
Aðdáendur og vinir minnast gleðigjafans fjöruga Erlendir fjölmiðlar greina frá andlátinu
Morgunblaðið/Golli
Leiklistarhjón Eftirlifandi eiginkona Stefáns Karls er Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir, leikkona og ritstjóri Kvennablaðsins. Eiga þau fjögur börn.
Leiklistarferill Stefáns Karls hófst
í grunnskóla Hafnarfjarðar þar
sem hann lék í skólaleikritum. 12
ára gamall fór hann að leika með
Leikfélagi Hafnarfjarðar í ung-
lingadeild leikfélagsins. Með leik-
félaginu lék hann m.a. í leikrit-
unum Hróa hetti, Mó Mó og Hans
og Grétu.
Hóf hann nám við Leiklistar-
skóla Íslands árið 1995 og útskrif-
aðist árið 1999. Sama ár fékk hann
fastráðningu við Þjóðleikhúsið. Á
starfsferlinum kom hann víða við
og strax á upphafsárum sínum í
leikhúsinu lék hann tannlækninn í
Litlu hryllingsbúðinni, drykkju-
mann, föður kerlingar og Pál post-
ula í Gullna hliðinu, Fílóstratus og
Bokka í Draumi á Jónsmessunótt
og Jepíkhodov í Kirsuberjagarð-
inum. Þá fór hann með eitt aðal-
hlutverka í Syngjandi í rigning-
unni.
Miklar vinsældir vakti frammi-
staða þeirra Stefáns Karls og
Hilmis Snæs Guðnasonar í Með
fulla vasa af grjóti árið 2000 sem
sýnt var 160 sinnum. Aftur var
sýningin sýnd árið 2012 og síðast
árið 2017. Stefán Karl lék titilhlut-
verk í leikritinu Glanni glæpur í
Latabæ árið 1999, en leiksýningin
varð innblástur sjónvarpsþátta-
raðarinnar Latibær (e. Lazy town)
sem framleiddir voru fyrir börn um
allan heim. Í þáttunum túlkaði
Stefán Karl Glanna glæp áfram. Á
þeim vettvangi naut hann mikilla
vinsælda fólks um heim allan.
Árið 2009 tók Stefán Karl við
hlutverki Trölla í söngleiknum Þeg-
ar Trölli stal jólunum, sem sýndur
var í Bandaríkjunum og Kanada á
árunum 2008 til 2015.
Söngrödd Stefáns Karls var
stórgóð og þótti hann einnig af-
bragðsgóð eftirherma. Gat hann
brugðið sér í allra kvikinda líki og í
tónlistargagnrýni í Morgunblaðinu
um plötuna Jaba Daba Dúúú!!!
sagði Arnar Eggert Thoroddsen
Stefán Karl vera „mann hinna þús-
und radda“.
Blómlegur ferill á fjölunum, í
kvikmyndum og í þáttaröðum
STEFÁN KARL ÞEKKTUR UM HEIM ALLAN
Morgunblaðið/Ómar
Latibær Stefán Karl tók föstum tökum
hlutverk Glanna glæps í Latabæ.