Morgunblaðið - 23.08.2018, Síða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
VIÐTAL
Guðrún Vala Elísdóttir
vala@simenntun.is
Kristin Maria Palmer er bandarísk
kona af íslenskum ættum sem býr í
Fairport, NY og starfar þar sem
geðhjúkrunarfræðingur. Hún var
stödd hér á landi nýlega í fyrsta
sinn ásamt fjölskyldu sinni, eigin-
manninum Jamie og börnum
þeirra, Megan 18 ára og Alex 13
ára. Fréttaritari kynntist Kristinu
og fjölskyldu hennar fyrir 33 árum
á skiptinemaári sínu í Bandaríkj-
unum og var ákveðið að hittast eft-
ir öll þessi ár.
„Mig hefur langað að koma til Ís-
lands alveg frá því ég var lítil
stelpa. Amma mín talaði alltaf um
hversu mikið hún elskaði Ísland og
fjölskyldu sína. Ætlunin var að ég
kæmi hingað þegar ég var 18 ára,
svo þegar ég var 22 ára en aldrei
varð neitt af ferðinni. Lífið bara
leið áfram og alltaf var eitthvað í
veginum. En eftir að faðir minn dó
í janúar ákváðum við að fara til Ís-
lands og vera í eina viku,“ segir
Kristin.
Skipskaði við Nýfundnaland
Amma hennar hét Ásta Jóns-
dóttir, fæddist árið 1910 og ólst upp
í Varmadal á Kjalarnesi. Afi hennar
hét Jóhann Axel Jóhannsson, fædd-
ur 1900. Þau fluttu til Boston,
Massachusetts árið 1938, líklega í
leit að betri tækifærum. Í Boston
fæddust þeim dæturnar Gudrun
Paulino og Maria Berthora Rush,
sem núna eru 79 og 75 ára. Maria er
móðir Kristinar. ,,Axel afi var skip-
stjóri á skipinu Gudrun, sem hann
nefndi í höfuðið á dóttur sinni. Sá
hræðilegi atburður átti sér stað að
skipið fórst með öllum skipverjum í
aftakaveðri í janúar 1951, en þeir
höfðu verið að veiðum við Ný-
fundnaland. Ásta amma starfaði
sem saumakona eftir að hún missti
afa og ól dæturnar upp ein, en bjó
áfram í Bandaríkjunum,“ segir
Kristin.
Afmælið varð að
minningarathöfn
Ásta lést í hárri elli árið 2010. Hún
hafði ráðgert að halda upp á hundrað
ára afmælið sitt og von var á um 35
íslenskum ættingjum í gleðina. Því
miður dó hún tveimur vikum fyrir af-
mælið, svo það breyttist í minning-
arathöfn. Þá kynntist Kristin mörg-
um íslenskum ættingjum og hefur
haldið sambandi við marga þeirra
síðan.
„Amma mín átti sex systkini og
hélt ávallt sambandi við fjölskyldu
sína á Íslandi. Hún fór margar ferðir
hingað til Íslands og eins kom
mamma oft hingað, faðir minn og
Craig bróðir heimsóttu Ísland líka
nokkrum sinnum. Mamma vann t.d.
sem ritari í eitt ár í Reykjavík þegar
hún var ung og bjó þá hjá Siggu
frænku okkar. Hún skilur íslensku
vel og talar smávegis. Ég hins vegar
kann nánast enga íslensku en það
væri áhugavert að læra málið.“
Kristin segir að sig langi mjög
mikið að koma aftur til Íslands og
taka þá Jonathan bróður sinn með
sem enn hefur ekki komið hingað. Á
facebooksíðu sinni grínaðist hún með
að kannski myndi hún flytja hingað
síðar.
Sérstakt að sjá svartan sand
En hvað gerði hún og fjölskyldan á
meðan dvölinni stóð? „Við byrjuðum
á því að koma til Reykjavíkur og
rölta bara um borgina. Stefnan var
því næst sett á gullna hringinn og þá
skoðuðum við fleiri náttúruperlur í
leiðinni. Á þriðja deginum nutum við
þess að fara á hestbak í nágrenni
höfuðborgarinnar, en síðan var ferð-
inni heitið til Víkur. Þar fórum við í
„zip lining“ og skoðuðum okkur um,
til dæmis fannst okkur sérstakt að
sjá svartan sand í fjörunum á Íslandi.
Við fórum líka á leynistað þar sem er
heit náttúrulaug og gengum þar um í
nágrenni heitra hvera. Útsýnið um
allt Ísland er stórbrotið og algjörlega
einstakt,“ segir Kristin, og bætir við
að þau hafi því miður ekki haft tíma
til að heimsækja staðinn þar sem
amma Ásta ólst upp, en þau hafi not-
ið gestrisni frændfólks og heimsótt
Salvöru Jónsdóttur frænku sína og
fjölskyldu tvisvar sinnum, en Maria
og hún eru systkinabörn.
Kristin er þakklát fyrir að hafa á
endanum haft sig í það að heimsækja
Ísland, fá að upplifa menninguna og
þessa fallegu náttúru eins og hún
tekur til orða, auk þess sem hún
kann vel að meta gestrisni Íslend-
inga.
Þakklát fyrir að hafa loksins komið
Kristin Palmer
heimsótti Ísland
með fjölskyldunni
Heimsókn Mæðgurnar Kristin og Megan Palmer í Íslandsheimsókn sinni á dögunum. Kristin hefur lengi ætlað sér að sækja Ísland heim.
Forfeður Ásta Jónsdóttir og Jóhann
Axel Jóhannsson, amma og afi
Kristinar, sem fluttu til Boston frá
Íslandi árið 1938.
Marion Lerner, dósent við íslensku-
og menningardeild Háskóla Íslands,
flytur fyrirlestur á Kvoslæk í Fljóts-
hlíð laugardaginn 25. ágúst kl. 15 um
efnið menntun og vísindi í þágu þjóð-
ar, Tómas Sæmundsson og ferðabók
hans.
Þetta er þriðji fyrirlesturinn undir
heitinu Fullveldið og hlíðin fríða á
Kvoslæk. Fullveldissjóður og Upp-
byggingarsjóður Suðurlands (SASS)
styðja fyrirlestraröðina.
Á árunum 1832-34 ferðaðist séra
Tómas Sæmundsson um Evrópu. Eft-
ir heimkomu samdi hann uppkast að
Ferðabók sem átti að fræða Íslend-
inga um allt hið nýja, merkilega og
nytsama sem ferðalangurinn hafði
séð. Í þeim bókarköflum sem liggja
fyrir fjallar Fjölnismaðurinn ítarlega
um „menntunarmeðöl“ á borð við
söfn, bækur, skóla og margt fleira
sem hann hafði kynnt sér í Prúss-
landi.
Umfjöllun Tómasar gefur innsýn í
skoðanir hans varðandi menntun
þjóðar. Hvers konar menntun er
nauðsynleg? Í hverju felst menntun
fyrst og fremst? Hver er tilgangur
menntunar? Þurfa allir að mennta
sig? Í fyrirlestrinum verður gerð dá-
lítil tilraun: Hvers konar stofnanir,
skóla, söfn o.s.frv. hefði Tómas viljað
sjá á Íslandi til að stuðla að framför-
um í landinu, ef það hefði verið hægt?
Fjölnismaðurinn séra Tómas Sæ-
mundsson (1807-1841) var prestur á
Breiðabólstað í Fljótshlíð og andaðist
þar. Honum var reistur minnisvarði í
kirkjugarðinum á Breiðabólstað.
Dósent Marion Lerner flytur fyrirlestur um menntun og vísindi í þágu þjóð-
ar, Tómas Sæmundsson og ferðabók hans næstkomandi laugardag kl. 15.
Tómas Sæmundsson
og menntun og vísindi
BETA SUMARTILBOÐ
ekki bara gott verð...
skápur
Verkfæraskápur
Kr. 198.227.-
Beta EASY verkfæraskápur
374 stk
7 skúffur (588x367 mm) á rennibrautum
Skúffubotn varinn með mjúkri gúmmímottu
4 hjól - 125 mm
2 hjól föst og 2 með beygju, 1 bremsa
Miðlæg læsing á framhlið fyrir skúffur
Thermoplast vinnuborð, ber 800 kg
Hægt að bæta við pappírsrúlluhaldi
Fáanlegur flösku og brúsahaldari
Vörunúmer: BE024002101 -
024509011, 024509080,
024509130, 024509210
923E/C25
Kr. 14.228.-
Topplyklasett
1/2” - 25 hlutir
903E/C42
Kr. 5.490.-
Topplyklasett
1/4” - 42 hlutir
Öll sumartilboðin frá Beta má sjá á heimasíðu Iðnvéla: www.idnvelar.is
1263/D6
Kr. 3.906.-
Skrúfjárnasett
6 stk (+ og -)
2056 E/E17
Kr. 52.496.-
Verkfærataska
144 hlutir