Morgunblaðið - 23.08.2018, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 23.08.2018, Qupperneq 39
Íslendinga og fólks af íslenskum ættum í Bandaríkjunum ár hvert. Fastur punktur í tilverunni Hátíðin hefur verið fastur sum- arpunktur í tilveru íbúa og brott fluttra og var nú haldin í 119. sinn. „Fjölskyldur sameinast í Mountain um þessa helgi og auk þess höfum við fengið marga aðra gesti, ekki síst frá Íslandi,“ segir Curtis en yfir 100 Íslendingar heimsóttu Mountain og nágrenni um nýliðna verslunarmannahelgi. Curtis bendir á að í þriðja sinn hafi forsætisráðherra Íslands og ríkisstjóri Norður-Dakóta verið saman á hátíðinni. Geir Haarde og John Hoeven hafi verið sérstakir gestir 2007, Jóhanna Sigurð- ardóttir og John Hoeven 2010 og nú Katrín Jakobsdóttir og Doug Burgum. Hann segir að íslenskir ráðamenn hafi sýnt að þeir kunni vel að meta hið mikla starf heima- manna við að vernda og efla ís- lenska menningararfleifð með þeim hætti sem raun ber vitni og taki glaðir þátt í hátíðinni. „Við reynum að vera tilgerðarlaus með öllu, komum til dyranna eins og við erum klædd og leggjum áherslu á að skemmta okkur,“ heldur Curtis áfram. „Ég held að það falli íslenskum ráðamönnum vel í geð og gefi þeim tækifæri til þess að vera áhyggjulausir frá annars daglegu amstri, þar sem öll spjót standa á þeim. Hérna fá þeir tækifæri til þess að eiga stund með öðrum viðstöddum í af- slöppuðu umhverfi og slá á létta strengi.“ Um 80 manns búa í Mountain. Curtis segir að allar ákvarðanir í tengslum við þessa árlegu hátíð séu teknar á lýðræðislegan hátt á mánaðarlegum fundum Íslend- ingafélagsins og um 15 til 20 manna kjarni sjái um útfærslu helstu mála en töluvert fleiri frá Bandaríkjunum, Kanada og Ís- landi komi að skipulagningu at- riða á sumarhátíðinni. „Við fest- um okkur ekki í nefndum og ráðum heldur sjá einstaklingar um ákveðin atriði án þess að stjórnin sé stöðugt á bakinu á þeim. Þetta fólk veit hvað þarf að gera, hvenær og hvernig.“ Tímamót að ári Ólafur Ragnar Grímsson, þá- verandi forseti Íslands, var heið- ursgestur á hátíðinni 1999 og síð- an hafa íslenskir ráðamenn verið í því hlutverki árlega. Curtis segir að heimsókn þeirra skipti mjög miklu máli. Þeir gefi hátíðinni aukið vægi og auki áhuga annarra á henni. „Heimamenn eru agn- dofa yfir fjölmennum heimsókn- um Íslendinga til okkar á þessum tíma og ráðamenn í Norður- Dakóta gera sér grein fyrir mik- ilvægi hátíðarinnar. Þeir vilja taka þátt í því að bjóða íslenska ráðamenn velkomna sem og aðra gesti frá Íslandi.“ Í lok hátíðardagskrárinnar á dögunum sagði Curtis að erfitt yrði að gera betur en það yrði vissulega reynt. „Skipulagning fyrir 120 ára afmælishátíðina á næsta ári hefst í september og það kemur í ljós hvernig til tekst.“ Fjölskylduhátíð Fólk kemur víða að til að njóta samverunnar. FRÉTTIR 39Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 Margir hafa unnið ötullega að sam- skiptum fólks af íslenskum ættum í Vesturheimi við Ísland. Einn þeirra er Davíð Gíslason, skáld og fyrrver- andi bóndi á Svaðastöðum í Geysis- byggð í Manitoba í Kanada. Davíð, sem nú býr í Árborg vestra var sér- stakur heiðursgestur á hátíðar- fundi Alþingis á Þingvöllum mið- vikudaginn 18. júlí sl. Í veislu um kvöldið í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands flutti Davíð kveðju á íslensku frá Vest- urheimi. „Það eru gríðarlega marg- ir íbúar í Norður-Ameríku í dag sem eru stoltir af þessu mikla af- reki ykkar,“ sagði hann og vísaði til þess að talið væri að jafnmargir væru af íslenskum ættum vestan hafs og íbúar Íslands. „Öll eru þau mjög stolt af sínum íslenska upp- runa og óska ykkur til hamingju með allt sem ykkur hefur áunnist.“ Davíð benti á að íslenska menn- ingu væri víða að finna í Norður- Ameríku. Hann nefndi m.a. af- steypu af styttu af Jóni Sigurðssyni á Austurvelli, sem væri í garði þinghússins í Winnipeg, og af- steypu af styttu af Guðríði Þor- bjarnardóttur og Snorra Þorfinns- syni, syni hennar, sem væri í Landsbóka- og skjalasafni Kanada í Ottawa. Hann benti á að þorrablót væru haldin víðs vegar um Banda- ríkin og Kanada og lagði áherslu á mikilvægi íslenskudeildar Mani- toba-háskóla í Winnipeg. Margir íslenskir innflytjendur og afkomendur þeirra gegndu her- þjónustu í kanadíska og bandaríska hernum. Davíð sagði að jafnvel í hernum hefði fólk af íslenskum ætt- um fylgst með sjálfstæðisbaráttu Ís- lands. „Ég var mjög hrærður yfir því að í sjálfum skotgröfunum mátti finna þá sem höfðu ekki gleymt landi og þjóð uppruna síns,“ sagði hann í ræðu sinni. steinthor@mbl.is Sterk tenging yfir hafið Riverton Davíð Gíslason og Katrín Jakobsdóttir við upplýsingaskilti, sem forsætisráð- herra afhjúpaði um Sigtrygg Jónasson, sem kallaður hefur verið faðir Nýja Íslands. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Nýlegir bílar, yfirfarnir og með eins árs viðbótarábyrgð frá seljanda AIL 4x4 m. - Sjálfskiptur 4x4 Beinskiptur 1.290 þ.kr.2.490 þ.kr. uzuki JIMNY 014 - Ek. 57 þ. km. - .190 þ.kr. issan XTR 017 - Ek. 53 þ. k Subaru FORESTER 2017 - Ek. 81 þ. km. - Sjálfskiptur VW POLO 2017 - Ek. 67 þ. km. - Sjálfskiptur Renault MEGANE Station 2013 - Ek. 168 þ. km. - Sjálfskiptur Renault Clio 2017 - Ek. 71 þ. km. - Beinskiptur 3.690 þ.kr. 1.940 þ.kr. 990 þ.kr. uzuki GRAND VITARA 2 - Ek. 188 þ. km. - Beinskiptur . . Kia CEED Station 2017 - Ek. 67 þ. km. - Sjálfskiptur . . . S 201 . Kia Sportage EX 4x4 2017 - Ek. 88 þ. km. - Sjálfskiptur Renault MEGANE Station 2012 - Ek. 192 þ. km. - Sjálfskiptur Subaru Forester 2012 - Ek. 86 þ. km. - Sjálfskiptur Kia SPORTAGE EX 4x4 2017 - Ek. 99 þ. km. - Sjálfskiptur 3.650 þ.kr. 890 þ.kr.2.250 þ.kr. 3.490 þ.kr. Þjónustuauglýsingar Fáðu Tilboð hjá söluráðgjafa í síma569 1390 eða á augl@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.