Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 40
SÁDI-ARABÍA Sádiarabískir ríkissaksóknarar sækjast nú eftir dauðadómi gegn fimm aðgerðasinnum sem hafa tal- að fyrir mannréttindum í austur- hluta landsins. Samkvæmt tilkynningu Mann- réttindavaktarinnar hafa ríkis- saksóknarar sem ábyrgir eru gagn- vart konungi Sáda ákært aðgerða- sinnana fyrir friðsamlegar aðgerðir sem ekki eru glæpsam- legar samkvæmt lögum landsins. Meðal þeirra sem eiga á hættu að hljóta dauðadóm er Israa al- Ghomgham, sem hefur barist fyrir auknum réttindum sjíamúslima í Sádi-Arabíu. Hún er fyrsta konan sem gæti átt dauðadóm yfir höfði sér fyrir mannréttindastarf í land- inu. Al-Ghomgham hefur verið í fangelsi frá í desember 2015. Dauðadómur vofir yfir mann- réttindakonu 40 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is Glæsilegt úrval af trúlofunar- og giftingarhringapörum Gullsmiðir Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Paul Manafort, fyrrverandi kosn- ingastjóri Donalds Trumps Banda- ríkjaforseta, var í fyrradag dæmdur sekur fyrir átta ákæruliði um fjár- svik. Kviðdómnum kom ekki saman um tíu ákæruliði til viðbótar sem lagðir höfðu verið fram gegn Mana- fort. Manafort var fundinn sekur um að greina ekki rétt frá fjárhag sínum í fimm skattaframtölum, um tvær ákærur um fjársvik í tengslum við banka og að greina ekki frá banka- reikningum sem hann átti erlendis. Þegar Trump hitti stuðningsmenn sína á fjöldasamkomu í Vestur-Virg- iníu eftir réttarhöldin sagðist hann „mjög leiður“ yfir dómnum gegn Manafort, sem hann kallaði „góðan mann“. Trump hafði áður lýst því yf- ir að harkalegar hefði verið gengið fram gegn Manafort en gegn glæpa- foringjanum Al Capone og hefur oft kallað rannsókn Roberts Muellers, sem leiddi til handtöku Manaforts, „nornaveiðar“. Ekki er loku fyrir það skotið að Trump beiti forseta- valdi sínu til þess að náða Manafort. „Þetta kemur samráði við Rússa ekkert við!“ sagði Trump við frétta- menn fyrir fjöldasamkomuna. „Þetta eru nornaveiðar og þær eru til skammar!“ Rannsókn Muellers hófst sem rannsókn bandarísku alríkislögregl- unnar á tölvuárásum Rússa á gagna- grunn Demókrataflokksins í aðdrag- anda bandarísku forsetakosning- anna árið 2016. Mueller var skipaður í embætti sérstaks saksóknara af Rod Rosenstein varadómsmálaráð- herra til að halda rannsókninni áfram eftir að Trump rak James Co- mey, formann alríkislögreglunnar, í byrjun ársins 2017. Mueller bar fram ákæruna gegn Manafort í október sama ár. Greiðslur til klámstjarna Manafort er ekki sá eini sem varð fyrir barðinu á rannsókn Muellers í vikunni. Michael Cohen, lögfræðing- ur og samstarfsmaður Trumps til margra ára, hefur lengi verið undir smásjá Muellers. Á þriðjudaginn ját- aði Cohen sig sekan í ákæru um að hafa brotið á kosningalögum, fimm ákærum um skattsvik og einni um bankasvik. Cohen greindi ennfremur frá því að hafa greitt klámstjörnunni Stormy Daniels og Playboy-fyrir- sætunni Karen McDougal mútufé í skiptum fyrir þagmælsku þeirra um meint ástarsambönd þeirra við Trump. Cohen sagði Trump sjálfan hafa haft fulla vitneskju um greiðsl- urnar. Raunar hafi Trump sagt hon- um að greiða Daniels og McDougal til þess að „þagga niður upplýsingar sem kæmu sér illa fyrir frambjóð- andann og kosningaherferð hans“. Trump hafði áður neitað vitneskju um greiðslurnar til Daniels og McDougal. Cohen var greint frá því að hann gæti setið í fangelsi í allt að 65 ár vegna málsins. Dómur verður ekki kveðinn upp gegn honum fyrr en í desember. Sakfellingin gegn Manafort og játning Cohens þykir styrkja mjög lögmæti rannsóknar Muellers. Trump hefur ítrekað haldið því fram að rannsóknin sé lítið annað en póli- tísk atlaga gegn stjórn sinni og hefur gælt við hugmyndir um að láta hætta henni eða jafnvel taka sjálfur við um- sjón hennar. Nú þykir sannað að rannsóknin fáist við raunverulega glæpi og raunverulegt misferli í kosningunum 2016. „Sakfelling Manaforts sýnir að rannsókn Muell- ers er langt því frá að vera norna- veiði,“ sagði Adam Schiff, öldunga- deildarþingmaður Demókrataflokksins, við AFP. „Hún sýnir einnig að í kosningaherferð og stjórn Trumps er margt fólk með langa sögu af óprúttnu viðskiptaat- ferli og tengslum við erlenda hags- munahópa.“ Trump benti þó á að glæpir Mana- forts og Cohens tengdust ekki meintu samráði hans við afskipti Rússa af kosningunum og skoraði á Mueller að færa sönnur á að hann hefði haft hönd þar í bagga. Alls hef- ur Mueller í rannsókn sinni ákært 33 menn, þar af 25 Rússa, og þrjú fyr- irtæki. Sekir menn í kringum Trump  Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóri Trumps, dæmdur sekur um fjársvik  Michael Cohen, fyrrverandi lögfræðingur Trumps, játar brot á kosningalögum AFP Veiddir Frá vinstri: Michael Cohen, fyrrverandi lögfræðingur Donalds Trumps, Donald Trump Bandaríkjaforseti og Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóri Trumps. Óhætt er að segja að þetta sé ekki góð vika fyrir neinn þessara manna. „Ekki glæpur!“ » „Michael Cohen játaði sig sekan um tvö ákæruatriði um kosningafjárlagabrot sem eru ekki glæpur!“ skrifaði Trump um játningu Cohens á Twitter. » Trump sakaði Cohen einnig um að ljúga upp á hann til að fá vægari dóm. Hann mælir ekki með því að fólk í leit að góðum lögfræðingi ráði Cohen. Trump talaði betur um Mana- fort og kallaði hann „hug- rakkan mann“. Að minnsta kosti tíu ráðherrar í ríkisstjórn Malcolms Turnbulls, for- sætisráðherra Ástralíu, hafa til- kynnt afsögn sína í vikunni. Turn- bull hefur þó að svo stöddu aðeins fallist á tvær þeirra. Turnbull vann á þriðjudag naum- an sigur í leiðtogakjöri ástralska Frjálslynda flokksins en vandræð- um hans er þó langt því frá lokið og búist er við því að andstæðingar hans innan flokksins muni brátt reyna á ný að velta honum úr for- mannssætinu. Helsti keppinautur Turnbull um formannsstólinn er Peter Dutton. Hann kennir Turnbull um lélegt gengi flokksins í skoðanakönn- unum fyrir kosningar sem haldnar verða á miðju næsta ári. AFP Ástrali Malcolm Turnbull, forsætisráð- herra Ástralíu, úr Frjálslynda flokknum. Þjarmað að Turnbull ÁSTRALÍA Ríkisstjórn Venesúela greip til ör- þrifaráða á þriðjudaginn til þess að bæta úr efnahagskreppunni sem hrjáir landið. Venesúelski bólívarinn var gengisfelldur um 96 prósent samkvæmt tilkynningu ríkisbank- ans. Stuttu áður en þetta var til- kynnt hafði ríkisstjórn Nicolás Mad- uro forseta gefið út nýja seðla þar sem fimm núll höfðu verið fjarlægð af gömlu myntinni. Maduro hefur fest gengi bólívars- ins við gengi venesúelska petrósins. Petróinn er rafrænn gjaldmiðill sem á að samsvara andvirði tunnu af ven- esúelskri olíu. Petróinn nýtur lítils trausts og hagfræðingum þykir lítið til þessarar áætlunar forsetans koma. „Að festa bólívarinn við petró- inn er að festa hann við ekkert,“ sagði hagfræðingurinn Luis Vicente León við AFP. Sum fyrirtæki í höfuðborginni Caracas eru enn lokuð vegna gjald- miðilsbreytingarinnar. Stjórnarand- stöðuflokkarnir kölluðu eftir sólar- hringsverkfalli til þess að hafna stefnumálum Maduro. Langar raðir mynduðust í hrað- banka snemma morguns eftir að nýi gjaldmiðillinn tók gildi. Landsmenn gátu þó aðeins tekið út tíu bólívara seðla, sem nægir vart fyrir kaffibolla í landinu um þessar mundir. Nýr gjaldmiðill kynntur í Venesúela AFP Gjaldmiðill Brakandi nýir venesúelskir bólívarseðlar í höndum konu í höfuðborginni. Ríkisstjórnin hafði nýlega fjarlægt fimm núll af seðlunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.