Morgunblaðið - 23.08.2018, Síða 43

Morgunblaðið - 23.08.2018, Síða 43
43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 Brákarey Eyjan er sögð nefnd eftir Þorgerði brák, ambátt á Borg og fóstru Egils Skallagrímssonar. Í Egils sögu segir að faðir hans hafi banað Þorgerði á Brákarsundi með steinkasti. Eggert Canberra | Kofi Ann- an á skilið að vera minnst sem eins mest framúrskarandi fram- kvæmdastjóra Samein- uðu þjóðanna. Frábær- ir framkvæmdastjórar þurfa að hafa skýra sýn á hvernig þeir beita valdi sínu, sér í lagi þegar það felur í sér vald yfir alþjóð- legum stofnunum. Velgengni Annans byggðist á getu hans til þess að blanda saman raunsæi sínu og auðmýkt við skýra framtíðarsýn um þróun og einingu mannkynsins. Þessi blanda sýnar og mann- gerðar kom kannski skýrast fram í þúsaldarmarkmiðunum í þróun- armálum (2000-2015), sem settu fram metnaðarfull forgangsmál fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Að auki, knú- inn áfram af mannúðarhyggju og trúmennsku við anda sem og inni- hald stofnsáttmála Sameinuðu þjóð- anna, náði Annan að teygja fram- kvæmdavald stofnunarinnar með því að túlka sáttmálann á frumlegan hátt með aðstoð síns heillandi per- sónuleika, til þess að tryggja það að hin spennandi en erfiða grundvall- arregla um að ríki beri ábyrgð á að vernda fólk (Right to protect eða R2P) væri tekin upp. Annan, barnabarn ættbálkahöfð- ingja og sonur héraðsstjóra í bresku nýlendunni Gullströndinni (sem í dag heitir Ghana), blandaði saman hástéttarlegum leiðtogastíl við mjúkmælgi, persónutöfra, samúð, vitsmunalega dýpt og fínan klæða- burð. Ár hans í stól framkvæmda- stjórans (1997-2006) mörkuðust af pólitískri dómgreind, háttvísi og heiðarleika. Einn helsti vitnisburð- urinn um það hversu góður ferill hans var er sú varanlega trú- mennska, sem nálg- aðist dálæti, sem hann kallaði fram í þeim hæfileikaríka hópi sem hann kallaði sér til að- stoðar. Heimurinn breyttist á margvíslegan hátt á þessum stormasömu árum. Annan hafði yf- irumsjón með stór- felldri aukningu á frið- argæsluverkefnum SÞ, sem var svar við aukn- um kröfum og vænt- ingum. Mörg þessara verkefna voru hins vegar sögð hafa skilað litlu og voru plöguð af ásökunum um fjármálaspillingu og kynferðislega misnotkun friðargæsluliða á skjól- stæðingum sínum. Ein helsta áskorunin, sem Annan þurfti að takast á við, með mis- jöfnum árangri, var hvernig ætti að samþætta hið einstaka forræði Sam- einuðu þjóðanna við hlutverk örygg- isráðsins sem nokkurs konar stjórn- klefa alþjóðastjórnmálanna. Þegar stórveldin voru sammála gat hann ekki annað en hlýtt. Þegar þau fóru í hár saman vegna mikilvægra hags- munaárekstra gat hann lítið gert. En þegar alþjóðasamfélagið skiptist í tvö horn reyndi hann að mynda samkomulag með því að finna hvar sameiginlegu hagsmunirnir lægju og með því að finna leiðir til þess að aðildarríkin gætu haldið andlitinu með málamiðlunum. Það hvernig Annan sá um umbæt- ur á Sameinuðu þjóðunum var lær- dómsríkt. Hann sagði mér að finna stóru alþjóðlegu málin sem krefðust þess að samtökin tækju þátt. Svo átti ég að horfa framhjá málefn- unum þar sem ríkin yrðu ekki sam- mála um sameiginlega hagsmuni og líka þeim þar sem þau yrðu sammála vegna sameiginlegrar forgangsröð- unar. Hann sá engan tilgang í að eyða takmörkuðu pólitísku bolmagni þegar sú var raunin. Hann einblíndi í staðinn á stóru málin þar sem aðgerðir aðildarríkj- anna gátu riðið baggamuninn með því að setja orðstír og umboð fram- kvæmdastjórans á bak við þær. Annan náði árangri sem fram- kvæmdastjóri með því að beita mjúkri leiðsögn og þeim viðsjála hæfileika að geta látið aðra tengjast á tilfinninga- og vitsmunalegan hátt við stærri málstað sem reis ofar stundarhagsmunum þeirra. Annan naut „rokkstjörnufrægð- ar“ á fyrra kjörtímabili sínu og var í stöðugum samskiptum við leiðtoga ríkja, alþjóðasamtaka, fjölþjóðlegra fyrirtækja og ýmissa félagasamtaka. Það var sjaldgæft að hinn hljóðláti erindrekstur sem Annan rak frá einkaskrifstofu sinni þyrfti aukinn styrk með því að nýta hinn opinbera prédikunarstól sem Sameinuðu þjóðirnar gátu gefið. Annan reyndi til dæmis að víkka út „heimildir“ alþjóðalaga til þess að gera Sameinuðu þjóðunum kleift að beita sér gegn þeim ríkjum sem skýldu sér í hegðun sinni á bak við fullveldi sitt. Á hinn bóginn nýtti hann „taumhald“ samtakanna til þess að halda árásargirni stórveld- anna í skefjum. Annan benti á það árið 2004 að innrásin í Írak stangaðist á við ákvæði stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna um valdbeitingu. Með því reitti hann til reiði helstu hug- myndafræðingana í ríkisstjórn George W. Bush, sem hótuðu því að gelda Sameinuðu þjóðirnar á al- þjóðavettvangi. Hefði öryggisráðið hins vegar látið undan þrýstingi enskumælandi ríkjanna og stutt stríðið á grundvelli ýktra ásakana um hryðjuverkastarfsemi og fals- aðra sönnunargagna um gereyðing- arvopn hefðu Sameinuðu þjóðirnar orðið fyrir alvarlegri og varanlegri skaða. Annan blandaðist í hneykslismálið um sölu olíu frá Írak í skiptum fyrir matvæli, og nýttu andstæðingar hans sér það til hins ýtrasta. En jafnvel þar höfðu siðferðisbrestir að- ildarríkjanna – þar á meðal Banda- ríkjanna og Ástralíu, sem neituðu að bregðast við þegar embættismenn SÞ bentu á vandann – alvarlegri af- leiðingar. Það að sonur hans var flæktur í málið olli Annan persónu- legri angist. Öllu alvarlegri blettur á orðspori Annans var ábyrgð hans á því að friðargæsluliðar samtakanna túlk- uðu umboð sitt þröngt í verkefnum sínum í Rúanda og í Srebrenica árin 1994-1995. Raunar vilja sumir halda því fram að Annan hafi aldrei borið þá pólitísku ábyrgð sem honum bar fyrir þá vanrækslu sem þar kom í ljós. En Annan setti hins vegar á fót rannsóknir innan samtakanna á því hvers vegna þessi mistök, sem skóku samvisku samtakanna, hefðu átt sér stað og hvatti rannsakendurna til þess að fara hvert sem sannleiksleit þeirra myndi leiða þá. Þegar þeir höfðu lokið sér af heimilaði Annan að niðurstöður þeirra yrðu birtar, jafn- vel þó að í þeim kæmi fram gagnrýni á bæði galla í uppbyggingu stofnana SÞ og á það hvernig hann hafði sjálf- ur brugðist sem æðsti yfirmaður friðargæslunnar á þessum tíma. Annan var brennimerktur af þess- ari reynslu sinni og reyndi að nota slæma samvisku sína til þess að móta varanlega arfleifð þriggja grundvallarreglna og umbóta í starfi samtakanna. Vernd óbreyttra borg- ara varð að helsta markmiði friðar- gæslu samtakanna. Hann ýtti undir málstað R2P-reglunnar til þess að komast framhjá misnotkun ríkja á fullveldisrétti sínum og koma í veg fyrir að grimmir leiðtogar fremdu grimmdarverk á þegnum sínum. Og hann fagnaði stofnun Alþjóðlega sakamáladómstólsins sem þess tóls sem gæti bundið enda á refsileysi og dregið herforingja og stjórn- málamenn til ábyrgðar fyrir glæpi sína. Vilji Annans til að þjóna mann- kyninu þvarr ekki þegar hann yfir- gaf Sameinuðu þjóðirnar. Hann tók áfram þátt í baráttunni gegn fátækt, aðstoðaði við að binda enda á deilur og studdi við mannúðaraðstoð með tilstuðlan SÞ, Kofi Annan-stofnun- arinnar og Öldungaráðið (Group of Elders) sem einn af varðmönnum samvisku heimsins. Annan var einstaklega kurteis og umhugað um starfslið sitt, og sýndi því mjúka kímnigáfu. Einu sinni voru nokkrir af starfsmönnum SÞ fastir á bardagasvæði þar sem ástandið fór hríðversnandi. Tveir af helstu ráðgjöfum hans voru að út- skýra alvarleika málsins fyrir Annan þegar annar þeirra spurði: „Hvers vegna ertu ekki að fara á taugum?“ „Af hverju ætti ég að fara á taug- um,“ svaraði Annan, „þegar ég hef þig til þess að gera það fyrir mig?“ Eftir Ramesh Thakur » Frábærir fram- kvæmdastjórar þurfa að hafa skýra sýn á hvernig þeir beita valdi sínu, sér í lagi þeg- ar það felur í sér vald yf- ir alþjóðlegum stofn- unum. Kofi Annan hafði slíka sýn sem fram- kvæmdastjóri SÞ – og hæfileikana til að hrinda henni í framkvæmd. Ramesh Thakur Höfundur er fyrrverandi aðstoðar- framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, prófessor emeritus við Craw- ford School of Public Policy og Australian National University og meðstofnandi Asia-Pacific Leader- ship Network for Nuclear Non- Proliferation and Disarmament. ©Project Syndicate, 2018. www.project-syndicate.org Afrek Kofis Annans

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.