Morgunblaðið - 23.08.2018, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
„Það er alveg gríðarlega mikið um
að vera hjá okkur og heilmikið fjör
við höfnina,“ segir Rúnar Gunn-
arsson, hafnarstjóri Seyðisfjarð-
arhafnar, en ísfisktogararnir Kald-
bakur EA og Gullver NS hafa hvor
um sig landað afla fjórum sinnum
þar það sem af er ágústmánuði.
„Þetta er komið eitthvað yfir ell-
efu hundruð
tonn, sem búið
er að landa
hérna,“ segir
Rúnar og bætir
við að ólíklegt sé
að nokkru sinni
áður hafi jafn
miklu magni af
bolfiski verið
landað á Seyð-
isfirði í einum
mánuði.
„Við höfum verið að ræða þetta.
Ég hugsa að þetta sé stærsti lönd-
unarmánuður frá upphafi. Ég held
að við höfum aldrei landað svona
miklu og við eigum eftir að ég held
tvær landanir til viðbótar, þannig
að þetta fer eflaust hátt í fimmtán
hundruð tonn. Ég veit að Gullver á
eftir að landa einu sinni og ég
reikna svo með Kaldbaki aftur í
næstu viku.“
Aldrei áður landað í höfninni
Mikið munar um komu Kaldbaks
til Seyðisfjarðar að sögn Rúnars.
„Gullver hefur verið að landa hjá
okkur um fjögur til fimm hundruð
tonnum, og kannski allt upp í sex
hundruð tonnum á mánuði. En svo
bætist Kaldbakur við – þeir eru að
landa 180 tonnum úr túr og eru því
búnir að landa yfir sjö hundruð
tonnum í þessum mánuði. Þetta er
hrein viðbót við okkar venjulegu
rútínu.“
Kaldbakur er skuttogari í eigu
Útgerðarfélags Akureyringa, smíð-
aður í Tyrklandi á síðasta ári. Rún-
ar segir skipið aldrei áður hafa
landað á Seyðisfirði, fyrr en einmitt
nú í ágúst.
„Hann hefur verið að landa í
Neskaupstað en einhverra hluta
vegna beindu þeir honum inn til
okkar, og síðan þá hefur hann land-
að hérna fjórum sinnum. Sem er
auðvitað hið besta mál,“ segir Rún-
ar léttur í lund. „Það eru allir
ánægðir með þessar landanir.“
Stutt er enda á miðin fyrir aust-
an, þangað sem skipin sækja þorsk,
ýsu og karfa að upplagi, þó ufsi
slæðist af og til með.
Hafnarstarfsmenn hlaupið
undir bagga við löndun afla
„Svo veit ég ekki hvernig þetta
verður þegar líða fer á veturinn.
Kaldbakurinn færir sig ef til vill á
önnur mið en Gullver heldur þó
áfram, þeir landa alltaf hjá okkur.“
Segja má að handagangur hafi
því verið í öskjunni fyrir austan í
þessum mánuði. Svo mikill að
starfsmenn hafnarinnar hafa þurft
að hlaupa undir bagga við löndun;
nokkuð sem þeir gera ekki alla
jafna.
„Við höfum hlaupið í skarðið þeg-
ar það vantar einn og einn mann.
Við erum viðstaddir löndunina
hvort eð er og við höfum því reynt
að hjálpa þeim eftir getu. Það er þó
ekki hluti af okkar starfi, við vigt-
um og skráum aflann, en þarna
vildi til að þá vantaði aðstoð og við
vorum í aðstöðu til að bregðast við
því. Þetta er náttúrlega langbest
unnið svoleiðis – það hjálpast allir
að.“
Fjöldi aðkallandi verkefna
Fleiri löndunum fylgja óhjá-
kvæmilega meiri tekjur fyrir höfn-
ina, í gegnum aðstöðu-, þjónustu-
og loks aflagjöld, sem skipta mestu
máli að sögn Rúnars. „Það munar
gríðarlega um það.“
Og eru aðkallandi verkefni við
höfnina sem krefjast fjárins?
„Já, það er af nógu að taka. Ég
veit eiginlega ekki hvar maður á að
byrja. Við erum nýbúnir að laga
þilið á gömlu ferjuhöfninni og þurf-
um að fara að laga smábátahöfnina,
auk fjölda annarra nauðsynlegra
verkefna. Það er ekkert mál að
eyða peningunum,“ segir Rúnar og
hlær.
Stærsti mánuðurinn frá upphafi
Hafnarstarfsmenn á Seyðisfirði hafa haft í nógu að
snúast þennan ágústmánuð, en allt stefnir í að met
verði slegið í lönduðu magni bolfisks þegar mán-
uðinum lýkur. 200 mílur tóku hafnarstjórann tali.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Landað úr Gullveri Hafnarstarfsmenn á Seyðisfirði hafa aðstoðað við löndun úr togurunum þegar mikið liggur við.
Rúnar Gunnarsson
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Á miðunum Gullver landar 4-600 tonnum á mánuði, að sögn Rúnars.
Stjórn Sjávarútvegsráðstefnunnar
ehf., sem næst heldur ráðstefnu í
nóvember, kallar um þessar
mundir eftir framúrstefnulegum
nýsköpunarhugmyndum sem
tengjast sjávarútvegi eða tengd-
um atvinnugreinum.
Í auglýsingu frá félaginu segir
að einstaklingar og/eða fyrirtæki
geti sent inn eða tilnefnt hug-
myndir, sem ýmist geti verið á
frumstigi, byggðar á nýjungum í
framleiðslu, þjónustu eða vöru,
rannsóknarverkefni og/eða nem-
endaverkefni.
Bent er á að með sjávarútvegi
og tengdum atvinnugreinum sé
átt við veiðar, eldi, frumvinnslu,
framhaldsvinnslu, líftækni, sölu og
markaðssetningu, þjónustu, rann-
sóknir, þróun og fræðslu.
Hafa þurfi í huga að hugmyndin
skuli sett fram á hnitmiðaðan hátt
þar sem fram komi lýsing á hug-
myndinni, tillaga að framkvæmd,
væntanlegur afrakstur og áhrif til
góðs fyrir ímynd íslenskra afurða.
Tekið er fram að allir geti sent
inn hugmyndir en þær þurfi að
uppfylla skilyrði um að vera fram-
úrstefnulegar, raunhæfar, fram-
sæknar og virðisaukandi og loks
skapi þær umræðugrundvöll eða
nýja hugsun, að því er segir í aug-
lýsingunni.
Nánari upplýsingar má finna á
vefnum: sjavarutvegsrad-
stefnan.is.
Leita að nýjum
hugmyndum
Atvinna