Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is „Hvernig líður þér? Ef álagið er far- ið að koma illa við þig er kominn tími til þess að vera hetjan sem þekkir sín mörk!“ Þannig hljómar auglýsingatexti úr nýjustu auglýs- ingaherferð VR, sem hefur vakið at- hygli enda ætlað að vera vitundar- vakning um kulnun í starfi og möguleg einkenni. Kulnun (e. burnout) er sálfræðileg lýsing á af- leiðingum langvinnrar streitu þar sem helstu einkennin eru sögð þreyta, pirringur, spenna og skort- ur á slökun. Umgjörð herferðar- innar er í líki spennumyndar, þar bregður fyrir fólki á framabraut sem skyndilega fer að missa tökin á sjálfu sér og aðstæðum í vinnu og heima fyrir. Ragnheiður Guðfinna Guðnadótt- ir, framkvæmdastjóri Streituskól- ans, ræddi auglýsingaherferðina og ástand fólks sem er komið í þessa stöðu í síðdegisþætti K100 hjá Hvata og Huldu Bjarna. Hún segir kulnun sálfræðilegt ástand mann- eskju vegna óeðlilegs ástands í nær- umhverfi. „Það verða einkenni um létti þegar viðkomandi fer út úr um- hverfinu, en einkennin koma svo aftur þegar hann kemur aftur og ástandið er þá óbreytt,“ Sjúkleg streita viðurkennd Ragnheiður Guðfinna, sem hefur sérhæft sig í að greina og meta ástand fólks auk þess að koma inn í fyrirtæki og fræða um streitu, kuln- un og sjúklega streitu, segir kuln- unarhugtakið hafa verið lengi þekkt. Það sé þó stundum erfitt að meta þar sem um marga huglæga þætti er að ræða. Í dag segir hún þau hjá Streituskólanum farin að vinna meira með klíníska greiningu, sem hafi nýlega verið viðurkennd sem „sjúkleg streita“. Hún segir það klínískan heilasjúkdóm, sem er í raun heilabilun. „Þá ertu búinn að keyra þig í það alvarlegt ástand að þú ert orðinn óvinnufær og færð greiningu.“ Álagið ekki bara í vinnunni Þegar auglýsingar VR ber á góma og það hvort annar hver maður á at- vinnumarkaði sé þá bara ekki í kuln- un svarar hún því að einkalífið sé stór hluti af orsökinni og auglýsing- unni sé sjálfsagt ætlað að minna á það að hegðunin og álagið nái út fyr- ir vinnustaðinn. „Við gefum okkur aldrei tíma til hvíldar. Við erum búin að stútfylla dagskrána og við erum alltaf síðust í forgangsröðinni. Þann- ig erum við sífellt í einhverju hlut- verki og áttum okkur ekki á því eftir hverju við erum að leita og hvað skiptir máli,“ útskýrir hún og bætir við: „Við erum alltaf í ofboðslega miklum samanburði við hvern og einn í samfélaginu og ganga umfram okkar eigin þolmörk sem við ráðum við.“ Einstaklingar fara í afneitun En hver er orsökin og hvar byrjar þetta að vinda upp á sig? „Mér finnst alltof mikil áhersla lögð á að atvinnurekandinn sé ábyrgur fyrir þessu. Ábyrgðin er tekin af ein- staklingnum sjálfum. Og ábyrgðin hlýtur að liggja hjá okkur, það erum við sem tökum ákvörðun um að bæta álagi ofan á núverandi álag og halda aðeins lengra áfram. Það er- um við sem förum í afneitun því við viljum ekki sjá að það fyrirfinnist vandamál. Þannig að það erum við sem þrömmum alveg fram á brúnina og köstum okkur af henni. Atvinnu- rekandinn sér þetta ekki endilega,“ segir Ragnheiður Guðfinna og bendir á að það séu oft til einfaldar lausnir og úrræði ef fólk bara við- urkenni vanda sinn fyrr. Það sé ekki nóg að vera bara duglegur, kreppa hnefann og halda áfram þar til allt gefi sig í einu, andlega og líkamlega. Vantar heildræna nálgun Hún segir því miður mörg dæmi þess að fólk sé sent í nokkurra vikna leyfi af heimilislækninum án leið- sagnar og handleiðslu. Fólk vanti því stuðning og standi svolítið ráð- þrota með hvernig tímanum verði best varið í veikindaleyfinu. Hún segir að þverfaglega nálgun vanti; utanumhald um einstaklinginn sem er kominn í þrot. Það sé ekki nóg að senda fólk bara heim í hvíld, það þurfi að greina streituvaldana til að átta sig á hvað valdi þessu ástandi. Það sé ekki nóg að senda fólk bara úr vinnunni. En hvað eiga þeir sem eru komnir í veikindaleyfi að gera? „Bataferlið og endurhæfing þarf að ganga út á hvíld fyrst og fremst,“ segir hún. „Þú þarft hvíld á heila og þú þarft hvíld á líkama. Svo þarftu markvissa hreyfingu og þarft að draga úr öllu áreiti. Þú þarft að gefa þér tíma til að vera en ekki gera.“ Viðtalið má nálgast í heild á heimasíðunni www.k100.is. Síðdegisþáttur K100 er á dagskrá alla virka daga frá 16-18. „Að vera en ekki gera“ „Hvernig líður þér? Ef álagið er farið að koma illa við þig er kominn tími til þess að vera hetjan sem þekkir sín mörk!“ Þannig hljómar auglýsingatexti úr nýjustu auglýsingaherferð VR, sem hefur vakið athygli, enda ætlað að vera vitundarvakning um kulnun í starfi og möguleg einkenni. Ragnheiður Guðfinna Guðnadótt- ir, framkvæmdastjóri Streituskólans, ræddi auglýs- ingaherferðina og ástand fólks sem er komið í þessa stöðu í síðdegisþætti K100 hjá Hvata og Huldu Bjarna. VR Auglýsingaherferð um kulnun í starfi lýsir fólki á framabraut sem fer að missa tökin á sjálfu sér. „Ég var að keppa á fullu í þríþraut þar sem ég bjó í London og lenti upp- haflega í slysi þar sem ég braut á mér mjöðmina en komst alveg á fæt- ur eftir það og fór að hjóla þó svo að þríþrautark- arríerinn væri bú- inn,“ segir Karen Axelsdóttir, af- rekskona í íþrótt- um og hjólaþjálfi. Eftir að hún komst aftur í fyrra form lenti Karen í öðru slysi sem átti eftir að hafa afdrifaríkari áhrif á líf hennar. „Ég lenti í því að fara fram fyrir mig; nota bene hjólreiðar eru ekki svona hættulegar, ég var bara að tala við félaga minn en endaði á því að háls- brjóta mig.“ Áverkinn var alvarlegur og var Karen meira og minna frá vinnu í tæp fjögur ár. „Bein gróa fljótt og vel og ég hélt að þetta yrði allt í lagi og ég kæmist fljótlega á fætur.“ Þrátt fyrir að Karen væri smám sam- an að ná fyrri heilsu gekk henni illa að ná upp orku og stoðkerfið hrein- lega hrundi. „Sama hvað ég reyndi aftur að byrja að hreyfa mig þá fékk ég bara eins konar flensueinkenni, höfuðverki, ógleði og svima þannig að ég tolldi hvorki á æfingu né á vinnumarkaði. Það er svo skrýtið með svona og allt sem maður lendir í kemur upp á yfirborðið fyrr eða síð- ar. Ég missti bróður minn þegar ég var lítil og hafði aldrei unnið úr því og var eins og slegin utan undir og þurfti að fara að vinna úr því. Þetta kom allt saman í einu. Mér fannst batinn ekki fara að koma fyrr en ég tók öll púslin í mínu lífi og fór að setja þau saman.“ Þakklát fyrir erfiðleikana Í dag er Karen á góðum stað og þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna úr erfiðum tilfinningum. „Ég segi bara eins og er: þetta er mín stærsta gjöf í lífinu, maður lærir hversu mikilvægt það er að hafa heilsuna.“ Karen opnaði nýlega sitt eigið hjólastúdíó innan veggja jóga- stöðvarinnar Sóla og segir jóga eiga góða samleið með hjólreiðunum. „Við íþróttafólkið erum svo oft alltaf bara á hörkunni og oft í einhæfum hreyfingum. Við erum oft alltof stíf og þótt við séum hraust og sterk er- um við ekki heilbrigð. Ég náði öllum mínum bestu titlum sjálf þegar ég stundaði jóga með öðru,“ segir hún og bætir við að í endurhæfingunni hafi hún sjálf fundið fyrir því hversu mikilvægt það er að horfa líka inn á við. „Þetta er mín stærsta gjöf í lífinu“ Karen Axelsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.