Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 57
ógleymanlegt nám í sumarháskóla
í Moskvu 1992.
Guðrún starfaði hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins, lögfræðideild,
1994-97: „Þar urðu Húsógeitur til,
sem hafa síðan verið mér ynd-
islegar og ómetanlegar vinkonur.“
Guðrún starfaði hjá EFA,
eignarhaldsfélagi Alþýðubankans,
1998-2003. Þá fór hún aftur í HÍ
og lauk BA-prófi í upplýsingafræði
með rússnesku sem aukafag 2007.
Hún hóf þá störf í mennta- og
menningarmálaráðuneytinu, þar
sem hún hefur starfað síðan.
„Auðvitað hef ég stöðugt og
fyrst og fremst áhuga á fjölskyld-
unni, börnunum og velferð þeirra,
og vinum okkar. Auk þess má
nefna ferðalög, göngur innan- og
utanlands, matreiðslu og því að
borða góðan mat með góðu fólki,
Madness, og síðast en ekki síst
chilli og majónes!
Hins vegar er svo hlaup nýjasta
áhugamál okkar hjónanna. Við er-
um í stórskemmtilegum hlaupa-
hópi Fram í Grafarholti þar sem
við njótum alls í senn, frábærra
félaga, hollrar hreyfingar og úti-
veru.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðrúnar er Bjarni
Jónsson, f. 13.4. 1965, bygginga-
tæknifræðingur og verkefnastjóri
hjá Verkís, verkfræðistofu. For-
eldrar hans eru hjónin Elsa Jóns-
dóttir, f. á Akranesi 6.1. 1942, og
Jón Haukur Bjarnason, f. í
Reykjavík 5.9. 1941, fyrrv. bændur
á Háholti í Gnúpverjahreppi, á
Þórisstöðum og Kringlu í Gríms-
nesi.
Börn Guðrúnar og Bjarna eru 1)
Edda Laufey, f. 11.3. 1995, nemi í
HÍ, og tvíburarnir Svandís Bríet
og Jón Haukur, f. 23.3.2001, nem-
ar í Verslunarskóla Íslands. Stjúp-
dóttir Guðrúnar er Tinna Bjarna-
dóttir, f. 17.6. 1985, nemi í
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Systkini Guðrúnar eru Laufey
Elfa Svansdóttir, f. 29.8.1958, bú-
sett í Noregi og vinnur hjá LINK
Arkitektur í Ósló, og Páll Kristján
Svansson, f. 3.4. 1961, viðskipta-
fræðingur og ráðgjafi í Reykjavík.
Foreldrar Guðrúnar: Svanur
Kristjánsson, f. á Þursstöðum í
Borgarnesi 11.2. 1937, d. 10.8.
2011, sveitarstjóri og versl-
unarmaður í Þorlákshöfn, og k.h.,
Edda Laufey Pálsdóttir, f. á Búr-
felli í Grímsnesi 20.10. 1938, fyrrv.
læknaritari í Þorlákshöfn.
Guðrún Ingibjörg
Svansdóttir
Ingunn Eyjólfsdóttir
húsfreyja á Laugarvatni
Böðvar Magnússon
hreppstjóri á Laugarvatni
Laufey Böðvarsdóttir
húsfreyja á Búrfelli í Grímsnesi
Edda Laufey Pálsdóttir
fv. læknaritari í Þorlákshöfn
Páll Diðriksson
b. og oddviti á Búrfelli í Grímsnesi
Ólöf Eyjólfsdóttir
húsfreyja í Vatnsholti
Diðrik Nóvember Stefánsson
b. í Vatnsholti
Helgi Kristjánsson rithöfundur,
fyrrverandi fiskverkandi og
fréttaritari Morgunblaðsins í Ólafsvík
Kristján Ágúst
Magnússon b. á
Snorrastöðum í
Kolbeinsstaðahreppi
Magnús
Kristjánsson b. í
Hrútsholti, síðar
í Borgarnesi
Magnea Sigurbjörg
Kristjánsdóttir
húsfreyja í Ólafsvík
Stefán Máni
Sigþórsson
rithöfundur í Rvík
Edda Guðmundsdóttir
fv. forsætisráðherrafrú
Hlíf Böðvarsdóttir húsfreyja á
Reykjum í Hrútafirði, lést 106 ára
Ragnheiður
Jónasdóttir fv.
starfsm. í mennta-
málaráðuneytinu
HrafnhildurArnardóttir
myndlistarkona og
fulltrúi Íslands á Feneyjar-
tvíæringnum 2019
Magnea Guðrún Böðvarsdóttir
húsfreyja í Ólafsvík og Rvík
öf Pálsdóttir fv.
æknaritari í Rvík
Ól
l
Auður Bjarnadóttir
jógakennari og fv.
dansari með Íslenska
dansflokknum
Ragnheiður
Pálsdóttir
íþrótta-
kennari í
Rvík
Laufey Alda
Sigvalda-
dóttir
kennari á
Seltjarnar-
nesi og fv.
lands-
iðskona í
handbolta
l
Sigvaldi
Eggerts-
son lands-
liðsmaður
í U18 í
körfubolta
Ingunn Pálsdóttir
fv. bankam. á
Selfossi
Páll Eysteinn
Guðmundsson
framkvæmdastj.
Ferðafélags Íslands
Laufey Böðvarsdóttir
kirkjuhaldari í
Dómkirkjunni
Böðvar Pálsson
hreppstjóri
á Búrfelli í
Grímsnesi
Guðrún Magnea Þórðardóttir
húsfreyja á Þursstöðum
Helgi Jónas Jónsson
b. á Þursstöðum í Borgarfirði
Ingibjörg Helgadóttir
húsfreyja á Ferjubakka, Borgarfirði
Kristján Ágúst Magnússon
b. á Ferjubakka, Borgarfirði
Anna Sigurborg Sigurbrandsdóttir
húsfreyja í Hrútsholti, Eyjahreppi
Magnús Þórarinsson
b. í Hrútsholti í Eyjahreppi
Úr frændgarði Guðrúnar Ingibjargar Svansdóttur
Svanur Kristjánsson
fv. sveitarstj., verslunar-
og verkam. í Þorlákshöfn
ÍSLENDINGAR 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
Þórir Bergsson er skáldanafnÞorsteins Jónssonar semfæddist í Hvammi í Norður-
árdal 23.8. 1885. Hann var sonur
Jóns Ólafs Magnússonar, prests á
Mælifelli og á Ríp í Skagafirði, en
síðast bónda í Bjarnarhöfn og í Ögri
í Helgafellssveit, og k.h., Steinunnar
Guðrúnar Þorsteinsdóttur hús-
freyju.
Jón var sonur Magnúsar Andrés-
sonar, bónda í Kolgröf og á Ytra-
Mælifelli, og Rannveigar Guð-
mundsdóttur húsfreyju, en Steinunn
Guðrún var dóttir Þorsteins Þor-
steinssonar, b. í Úthlíð í Biskups-
tungum, og Sesselju Árnadóttur.
Þórir var bróðir Magnúsar Jóns-
sonar, guðfræðiprófessors, alþm. og
atvinnuráðherra í minnihlutaríkis-
stjórn Ólafs Thors 1942. Bróðir Jóns
á Mælifelli var Konráð á Syðra-
Vatni, afi Eyjólfs Konráðs Jóns-
sonar alþm. og langafi Jóns Steinars
Gunnlaugssonar, fyrrv. hæsta-
réttardómara. Bróðir Steinunnar
Guðrúnar var Árni Þorsteinsson,
prestur á Kálfatjörn og jafnframt
faðir Gróu, eiginkonu Þóris.
Þórir ólst upp í foreldrahúsum á
Mælifelli og á Ríp, stundaði skóla-
lærdóm hjá föður sinum en fór ekki í
skóla sökum heilsubrests. Þó stund-
aði hann tungumálanám i einka-
tímum í Reykjavík um skeið. Þórir
var póstafgreiðslumaður í Reykja-
vík 1907-14, fulltrúi og deildarstjóri í
Landsbanka Íslands 1914-43 og
starfrækti eigin innflutningsverslun,
einkum á skrifstofuvélum.
Þórir er þekktasti smásagna-
höfundur Íslendinga en hann varð
þjóðkunnur fyrir smásögur sínar
sem birtust í tímaritum, löngu áður
en hann gaf þær út. Margar þeirra
hafa síðan oft verið endurprentaðar
í smásagnasöfnum. Smásögur Þóris
eru gjarnan hversdagssögur úr
samtíma hans. Þær fjalla oft um
tregablandnar tilfinningar og dap-
urleg örlög. Meðal smásagnasafna
hans eru Sögur, 1939; Hinn gamli
Adam, 1947, og Á veraldar vegum,
1953.
Þórir lést 14.11. 1970.
Merkir Íslendingar
Þórir
Bergsson
100 ára
Heiðbjört Halldórsdóttir
90 ára
Sigríður Herdís Hallsdóttir
Svavar Jónsson
85 ára
Gunnar Smári Þorsteinsson
Kristín Fanney Jónsdóttir
80 ára
Guðrún Ormsdóttir
Jóna Jónsdóttir
Lea Egilsdóttir
Magnús Lillie Friðriksson
Stefán Guðfinnur Pálmason
Þorbjörg Þóroddsdóttir
75 ára
Bergljót Magnadóttir
Brynhildur Sigurðardóttir
Gunnhildur Eldjárnsdóttir
Helga Sigurbjörnsdóttir
Ingibjörg Jónasdóttir
Ólafur V. Skúlason
Þórunn Kolbeinsdóttir
70 ára
Björk Gísladóttir
Björn Bjarnason
Kjartan Þ. Guðmundsson
Kristbjörg Gunnarsdóttir
Ólafur G. Emilsson
Ragnheiður Skúladóttir
60 ára
Anna Stella Snorradóttir
Baldvin Garðarsson
Bjarnveig Eiríksdóttir
Erla Ólafsdóttir
Eyjólfur Guðmundsson
Jóhannes S. Ársælsson
Kári Ómar Eyþórsson
Margrét Sveinsdóttir
Ragna Pálsdóttir
Signe Reidun Skarsbö
Sigurgeir Kári Ársælsson
Sólrún Sævarsdóttir
50 ára
Brynjar Jónsson
Dariusz Szymanski
Guðni Hjálmarsson
Karlis Kuznecovs
Kristjana Bergsteinsdóttir
Krzysztof Stasieluk
Ólafur Þór Snorrason
Xiaoli Wang
40 ára
Beata Konopko
Bjarki Freyr Sigurgeirsson
Egill Freyr Ólason
Guðrún H. Guðmundsdóttir
Hallfríður Hilmarsdóttir
Ivana Bogdanovic
Jónas Tryggvason
Júlíus Arnar Birgisson
Lísbet Fjóla Hjörleifsdóttir
María Þórunn Helgadóttir
Orasa Somyong
Ricardas Dijokas
Thelma A. Grétarsdóttir
Valdimar Á. Kjartansson
30 ára
Aron Kárason
Ásdís María Ægisdóttir
Brynjar B. Guðmundsson
Fjóla Daníelsdóttir
Fríða Dögg Finnsdóttir
Guðbjartur H. Kristinsson
Gunnar B. Guðmundsson
Gunnar Björn Kolbeinsson
Haukur Einarsson
Íris Eysteinsdóttir
Linda H.K. Schiöth
Linda Rakel Jónsdóttir
Lukasz Hubert Matysiak
Milena Bobrowska
Sjöfn Ylfa Egilsdóttir
Thelma R. Hermannsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Þórhallur ólst upp
í Reykjavík, býr þar, lauk
BSc-prófi í jarðfræði frá
HÍ og starfar hjá Mekka
Wines and Spirits.
Maki: Rakel Gunnars-
dóttir, f. 1989, bókari hjá
Hilton Hotels.
Sonur: Gunnar Þór, f.
2015.
Foreldrar: Ragnar Hauks-
son, f. 1961, verkfræð-
ingur, og Esther Laufey
Þórhallsdóttir, f. 1962,
húsfreyja.
Þórhallur
Ragnarsson
30 ára Jökull ólst upp í
Danmörku, Sviss og
Reykjavík, býr þar, lauk
MSc-prófi í fjármála-
hagfræði og starfar hjá
Fjármálaeftirlitinu.
Systir: Salka Hauksdóttir,
f. 1986, lögfræðingur hjá
Landsbankanum.
Foreldrar: Haukur Ólafs-
son, f. 1950, stjórnmála-
fræðingur hjá utanríkis-
ráðuneytinu, og Erna
Gunnarsdóttir, f. 1955,
stjórnmálafræðingur.
Jökull
Hauksson
30 ára Jóhannes ólst upp
á Seltjarnarnesi, býr þar,
stundaði nám við Tækni-
skólann og lauk prófum í
grafískri miðlun.
Systkini: Hildur, f. 1991;
Grétar, f. 1993, og Katrín
Viktoría, f. 1999.
Foreldrar: Hjörtur Grét-
arsson, f. 1961, yfirmaður
Fasteignaskrár, og Helga
Jónsdóttir, f. 1961, hjúkr-
unarfræðingur við Land-
spítalann í Reykjavík. Þau
búa á Seltjarnarnesi.
Jóhannes
Hjartarson
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
fyrir mánudaginn 3. september
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Börn &
uppeldi
Víða verður komið við í uppeldi barna í
tómstundum, þroska og öllu því sem
viðkemur börnum frá fæðingu
til 12 ára aldurs.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 7. sept.