Morgunblaðið - 23.08.2018, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 23.08.2018, Qupperneq 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 HLJÓÐMOGGI FYRIR FÓLK Á FERÐ Listasafnið á Akureyri opnað að nýju Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Dyr Listasafnsins á Akureyri verða á laugardaginn kemur opnaðar að nýju eftir stórfelldar endurbætur og stækkun á húsakynnum safnsins. Samhliða því að margar nýjar sýn- ingar verða opnaðar í sölunum verð- ur 25 ára afmælis Listasafnsins fagn- að með vikulangri opnunar- og afmælisdagskrá þar sem meðal ann- ars verður boðið upp á leiðsögn lista- manna, djasstónleika og ljóðalestur. Sýningarsalir safnsins voru fimm fyrir breytingarnar en eru nú tólf og margir þeirra á rúmgóðri hæðinni fyrir ofan þá sem safnið hefur haft til umráða til þessa. Þá verður nýtt kaffihús og safnbúð opnuð í tengi- byggingu milli aðalbyggingar safns- ins og Ketilhússins. Arkitektarnir Steinþór Kári Kárason og Ásmundur Hrafn Sturluson hjá Kurt og pí hönn- uðu breytingarnar. Framkvæmdirnar við safnbygg- inguna hafa staðið yfir í rúmt ár og safnið að mestu verið lokað á þeim tíma en sýningarhaldi þó verið fram haldið í Ketilhúsinu. Í tilkynningu frá safninu segir að kostnaður við end- urbæturnar og stækkunina nemi um 700 milljónum króna. Sex nýjar sýningar Við opnun safnsins á laugardag flytja ávörp Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Hlynur Hallsson safn- stjóri. Sex nýjar sýningar verða þá opnaðar. Viðamiklar einkasýningar Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, Hug- leiðing um orku, og Sigurðar Árna Sigurðssonar, Hreyfðir fletir; sýn- ingar Hjördísar Frímann og Magn- úsar Helgasonar í nýju safn- kennslurými, sýning á verkum úr safneign Listasafnsins á Akureyri, sýningin Svipir með portrettverkum úr safneign Listasafns ASÍ og ljós- myndasýningin Frá Kaupfélagsgili til Listagils. Sýning Anítu Hirlekar stendur áfram yfir í Ketilhúsinu. Tengibygging snilldarlausn „Þetta er nánast eins og nýtt safn, húsnæðið stækkar mjög mikið og gamall draumur er að rætast,“ segir safnstjórinn Hlynur Hallsson þar sem verið er að leggja lokahönd á sal- ina og uppsetningu verka í þeim. „Þegar safnið var stofnað árið 1993 þá var því valinn staður í gamla Mjólkursamlaginu, þar sem það hef- ur verið síðan, því menn sáu fyrir sér að hæðin fyrir ofan gæti verið frá- bært sýningarhúsnæði. Brauðgerð KEA var þá enn starfrækt þar en þegar hún hætti nokkru síðar þá var ekki til peningur, eða pólitískur vilji fyrir því að fara í endurnýjun á hús- næðinu og að Listasafnið fengi þetta framtíðarhúsnæði. Það hefur því tek- ið 25 ár.“ Hlynur segir að húsið hafi nú verið tekið algerlega í gegn en ekki hafði verið gert við það í tugi ára. „Við þetta fær Listasafnið aukið húsnæði, fleiri sali. Það eykur fjölbreytni sýn- inga og gerir okkur kleift að geta allt- af haft opið; þótt verið sé að skipta um sýningar í þremur sölum verða níu enn opnir! Seinna bættist Ketilhúsið við Listasafnið og var frábær viðbót. Það var þó sérkennilegt að vera með safnið í tveimur húsum hlið við hlið, með tvo innganga, en nú er komin sú snilldarlausn að hafa tengibyggingu þar sem rúmast kaffihús, ný gesta- móttaka og safnbúð, auk þess sem þar er kominn skemmtilegur salur.“ Ekki bara stærra og betra safn „Fyrir gesti þýðir þetta ekki bara stærra og betra Listasafn heldur er allt aðgengi miklu betra en áður. Það er komin lyfta í húsið en stiginn milli hæða er líka orðinn spennandi, með gott útsýni út um frábæran horn- glugga. Svo fáum við gott safn- kennslurými, gott svæði fyrir mót- töku verka og það eru almennilegar listaverkageymslur – þetta er loksins að verða fullkomið safn.“ Þrjár gestavinnustofur í vestur- enda byggingarinnar verða tilbúnar í október og Hlynur segir þær líka verða góða viðbót og það verði eft- irspurn eftir þeim. „Gilfélagið verður áfram með gestavinnustofu hinu- megin við götuna en við verðum með gestavinnustofur fyrir tvo myndlist- armenn og einn fræðimann. Við get- um nýtt þær fyrir listamenn sem koma að setja upp sýningar en mun- um annars leigja þær út.“ Hlynur segir að eftir breyting- arnar verði Listasafnið á Akureyri fjölbreyttara safn og fjölbreyttari sýningar verði í gangi á hverjum tíma. „Ég held að við munum ná til fleiri hópa og þeir blandist líka. Er- lendir ferðamenn spyrja mikið um sýningar úr safneign okkar og nú fáum við loksins tækifæri til að hafa slíka sýningu uppi; við leggjum aust- ursalinn á neðri hæðinni undir sýn- ingu á verkum 19 listamanna úr safn- eigninni sem eru býsna margbreytileg, og breytum henni eftir tvö ár. Við eigum bara rétt rúm- lega 700 verk en það hefur verið safn- að mjög óreglulega gegnum árin. Sem betur fer er stór hluti þessara verka til sýnis, í ýmsum stofnunum bæjarins, en hluti hennar í geymslum. Við viljum leggja áherslu á að fá fjármagn til að geta stækkað safneignina, og keypt verk mark- visst.“ Auðga ímyndunaraflið Auk sýninga Sigurðar Árna og Að- alheiðar, sem listamennirnir segja frá hér til hægri, og sýningarinnar úr safneigninni, verður opnuð sýningin Svipir með verkum úr stofngjöf Ragnars í Smára til Listasafns ASÍ. Á henni eru til að mynda verk eftir Jóhannes Kjarval, Nínu Tryggva- dóttur, Gunnlaug Scheving og Louisu Matthíasdóttur. Hún er í nýju tengibyggingunni sem liggur úr austursalnum yfir í Ketilhúsið. „Sýningar Hjördísar Frímann og Magnúsar Helgasonar eru í tvískiptu rými sem við köllum safnkennslu- rými,“ segir Hlynur. „Það er engin tilviljun að við byrjum með verk lista- manna tveggja kynslóða sem bæði vinna mjög litrík og spennandi verk. Magnús vinnur til dæmis með segla sem er freistandi að snerta – og það má. Í verkum Hjördísar eru oft fald- ar spiladósir sem hægt er að snúa. Þetta eru allt litrík verk sem henta vel til að auðga ímyndunaraflið.“ Hlynur segir að Ketilhúsið verði framvegis notað meira undir mót- tökur og fundi en það tengist nú kaffihúsinu nýja. Ein sýning enn er á gömlum ljósmyndum og unnin með Minjasafninu. „Það eru gamlar myndir af hús- unum hér í gilinu áður en þetta varð Listagilið, sögusýning sem stendur lengi,“ segir Hlynur. „Textar skýra söguna og eru mikilvægir því það breytist hratt frá einni kynslóð til annarrar hvernig talað er um þessi hús. Hér var vagga iðnaðar á Ak- ureyri og þetta var kallað Kaup- félagsgilið því Sambandið og KEA áttu öll húsin og byggðu upp slát- urhús, kaffibrennslu, málningarverk- smiðju, sultugerð, pylsugerð, gos- drykkjaframleiðslu, bakarí … “ Menningarbærinn Akureyri Hlynur er afar sáttur við þá ákvörðun bæjaryfirvalda að ráðast í stækkun safnsins og segir stórkost- legt að bærinn geti fjárfest í menn- ingu af svo miklum krafti. „Það er eitt að gera upp húsin sem lágu undir skemmdum, en annað að ákveða að fylgja þeirri stefnu sem var mörkuð fyrir 25 árum, að það kæmi listasafn í húsið. Það er frábært yfirlýsing um að festa Akureyri í sessi sem menn- ingarbæ. Síaukinn ferðamanna- straumurinn hjálpar til því það verð- ur að líta til þess hvað þeir vilja sjá, en eitt af því er listasafn sem sýnir góð og skemmtileg verk. Með þessari framkvæmd er vegur myndlistar- innar aukinn í bænum.“ Merkir stækkunin ekki miklar breytingar á rekstrinum og þar með fyrir Hlyn og samstarfsfólk hans? „Jú, og við hlökkum líka til að geta verið öll á sama stað, ólíkt því sem verið hefur. Í fjárhagsáætlun er ekki gert ráð fyrir mikilli aukningu á út- gjöldum til safnsins. Innri leiga hækkar vitaskuld en við vonum að safnið haldi áfram að vaxa og dafna og að við getum til dæmis farið að sinna rannsóknarhlutverkinu og miðluninni betur. Öll starfsaðstaða okkar batnar verulega. Áður tókum við við sýningum í forstofunni og það var engin aðstaða til að geyma kassa eða umbúðir, þar verður bylting. Það er skemmtilegt að það sé hægt að ganga inn í allar fjórar hæðir hússins af jarðhæð á bakhliðinni. Á bak við húsið er brekka þar sem mjólkurbílar komu áður með mjólk- urbrúsana en nú koma þar að sendi- bílar með listaverk. Það er táknræn breyting, frá iðnaðarbæ í menning- arbæinn Akureyri,“ segir Hlynur. „Gamall draumur er að rætast“  Listasafnið á Akureyri opnað á ný eftir stækkun og miklar endurbætur Ljósmyndir/Magnús Helgason Safnið Húsnæði Listasafnsins á Akureyri í Listagilinu. Ketilhúsið neðst, þá nýja tengibyggingin með innganginum, kaffihúsi, safnbúð og sýningarsal, og efst aðalsafnbyggingin. Á efstu hæðinni eru nokkrir nýir sýningarsalir. Safnstjórinn „Þetta er loksins að verða fullkomið safn,“ segir Hlynur Hallsson. Sýningarsölum fjölgar um sjö og aðstaðan gjörbreytist.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.