Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 61

Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 61
61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 ////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// Sellóleikarinn og tónskáldið Hildur Guðnadóttir hefur tekið að sér tón- smíðar fyrir kvikmynd um Jókerinn, Joker, erkióvin Leðurblökumanns- ins, að því er hún greinir sjálf frá á facebooksíðu sínni. Leikarinn Joa- quin Pheonix mun fara með titilhlut- verkið og feta þar með í fótspor leik- aranna Jacks Nicholsons, Heaths Ledgers og Jareds Letos sem allir hafa leikið óþokkann í ólíkum kvik- myndum, Leto nú síðast í Suicide Squad. Hildur hefur gert það gott sem kvikmyndatónskáld hin síðustu miss- eri og samkvæmt vefnum Internet Movie Database, IMdB, standa nú yfir tökur á stuttri sjónvarpssyrpu, Chernobyl, sem hún samdi tónlist við og af öðrum verkefnum hennar má nefna stuttmyndina The Beautiful Lady Without Mercy, glæpaþættina Ófærð, spennumyndina Sicario: Day of the Soldado og Mary Magdalene en í þeirri síðastnefndu fer Joaquin Pheonix með eitt aðalhlutverkið. Tónlist eftir Hildi hefur verið leikin í 19 kvikmyndum, þáttum, stutt- myndum og heimildarmyndum, sam- kvæmt vefnum, allt frá árinu 2007. Leikstjóri Joker verður Todd Philips sem á m.a. baki Hangover- gamanmyndirnar. Hildur semur tónlist við kvikmynd um Jókerinn Morgunblaðið/Styrmir Kári Eftirsótt Hildur Guðnadóttir tón- skáld og sellóleikari. Sýning Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, Hugleiðing um orku, er í tveimur söl- um safnsins og á svölum að auki. Hún segir að fyrst eftir að hún fékk það góða boð að vera með eina af opn- unarsýningunum hafi hún ætlað að gera „eitthvað nýtt og stórkostlegt! Svo róaðist ég niður og tók upp þráð- inn frá síðustu verkum“. Í tilkynningu segir að verkin á sýningu Aðalheiðar fjalli um næringu, náttúru, notagildi, sjálfbærni og samlyndi. Næring lík- ama og sálar, og tilvist í sátt við nátt- úruna og samfélagið, séu manneskj- unni lífsnauðsynlegir þættir. Ekki aðeins til að lifa af heldur einnig til að gefa lífinu tilgang: að upplifa, elska, nærast, gagnrýna og meðtaka. Aðalheiður útskrifaðist frá Mynd- listaskólanum á Akureyri 1993 og hef- ur síðan haldið yfir 150 einkasýningar í 14 löndum og tekið þátt í fjölda sam- sýninga. Árið 2000 var hún útnefnd bæjarlistamaður Akureyrar. Hún segist hafa sett upp sýningu á Safna- safninu á Svalbarðsströnd í fyrra og þar hafi „komið nýr gamall tónn“ í verk hennar, tónn sem ómi enn í þeim verkum sem hún hafi unnið fyrir þessa sýningu. „Ég hafði þá tekið mér sýninga- pásu frá 2013, síðan ég setti upp stór- ar og miklar sýningar hérna í Lista- safninu í tilefni af fimmtugsafmæli mínu. Þá lauk ég sýningaferli sem fjallaði um íslensku sauðkindina og þá menningu sem skapaðist út frá henni, og sýndi mest timburskúlptúra,“ segir hún. „Á síðustu árum hef ég meira tekið inn allskyns gamlar hugmyndir og endurunnið, sem ég vann jafnvel áður í önnur efni og á annan máta. Mér finnst eins og ég sé að safna mér sam- an í þau verk sem ég sýni núna. Ég leyfi öllum þeim aðferðum sem ég hef verið að snúllast í að vera með, mál- verkið kemur meira inn í verkin og lágmyndir sem hafa orðið sífellt meira málaðar, gjarnan með munsturmáln- ingu. Svo hef ég smám saman verið að færa mig meira yfir í náttúruna en mér er hugleikið hvernig við umgöng- umst hana og getum nýtt okkur að búa hér á þessu dásamlega landi.“ Aðalheiður segir að í raun setji hún nú upp þrjár insetningar í safninu og sé sú í stærsta salnum „einn stór skúlptúr með allskonar elementum, málverkum, vídeóverkum og skúlp- túrum. Nú hef ég gaman af því að búa til stór ný verk sem innihalda margt af því sem ég hef verið að fást við gegnum tíðina. Nú er ég orðin 55 ára og er farin að líta yfir farinn veg, það er kominn nógu langur tími til að ég geti horft til baka yfir einhvern feril, og ég hef mikið verið að fjalla um að við berum virðingu fyrir hvert öðru. Svo er nátt- úran að koma sífellt meira inn og mér er hugleikið að mála fjöll, blóm, fossa … en á minn máta.“ Og hún gleðst yfir hinu stóra og endurbætta safni. „Þetta er stórkost- legt! Og að Akureyri hafi til að byrja með lagt í þetta fyrir 25 árum, og gef- ið góð fyrirheit um þetta góða hús. Fólkinu sem stóð að því í upphafi og allar götur síðan ber að þakka. Síðan biðum við öll þessi ár eftir framhald- inu – ég var hér með vinnustofu í 15 ár og tók þátt í starfseminni hér í gilinu frá upphafi – og nú er komið að glæsi- legri uppskeruhátíð. Og mér sýnist hafa tekist ofboðslega vel til hér, það er falleg og notaleg stemning í hús- inu.“ Komið að uppskeruhátíð  Aðalheiður set- ur upp þrjár nýjar innsetningar Ljósmynd/Magnús Helgason Gleðst „Nú hef ég gaman af því að búa til stór ný verk sem innihalda margt af því sem ég hef verið að fást við gegnum tíðina,“ segir Aðalheiður. „Gróf hugmynd að sýningunni var að ná tengingu milli veggverka úr áli og málverka, og mér finnst þetta líta ágætlega út,“ segir Sigurður Árni Sigurðsson þar sem hann er langt kominn við uppsetningu einn- ar opnunarsýningar safnsins. Hann kallar hana Hreyfðir fletir og er hún í þremur nýjum sölum safnsins. Í einum salnum eru veggverk úr út- skornu áli og málverk í öðrum en í þeim þriðja, sem Sigurður Árni seg- ir að verði líklega einkum notaður undir vídeó og slíka miðla, er sýnd heimildarmynd sem Þorsteinn J. hefur gert um Sigurð Árna og heim verka hans. „Það er ákveðið samtal milli mál- verkanna og veggverkanna, mál- verkin fara út í rýmið, fást við hið óræða rými sem gengur út frá mál- verkinu, en veggverkin sem eru þrí- víð ganga inn í vegginn, varpa skugga og virkja innra rými,“ segir hann. Og hann segist hafa unnið öll verkin fyrir þessa sýningu, með hliðsjón af nýjum rýmum safnsins. „Þau eru í beinu framhaldi af því sem ég hef verið að gera í mínum verkum upp á síðkastið en þar sem rýmið er stórt fékk ég tækifæri til að stækka verkin, sem var skemmtilegt og spennandi. Salirnir í safninu eru stórkostleg- ir og mikil birta í salnum sem vegg- verkin eru í; þau taka breytingum eftir dagsbirtunni, og nánast anda. Út frá því kemur reyndar titill heimildarmyndar Þorsteins, „Skuggar sem anda“. Það er eins og verkin lifni við í salnum.“ Sigurður Árni fæddist á Akureyri árið 1963. Hann hefur unnið að myndlist í Frakklandi og á Íslandi, hefur haldið tugi einkasýninga og má finna verk eftir hann í öllum helstu listasöfnum á Íslandi auk listasafna í Evrópu. Nokkur verka hans eru í opinberum rýmum svo sem Sólalda við Sultartangavirkjun, glerverkið Ljós í skugga á dval- arheimilinu Hlíð á Akureyri og úti- listaverkið L’Eloge de la Nature í Loupian í Frakklandi. Myndlist hans dregur athygli áhorfandans að tengslum milli veruleika og hug- mynda og sambandi hluta og ásýnd- ar. Verkin eru leikur með rými, bil- ið á milli hins tvívíða og þrívíða, forgrunns og bakgrunns, ljóss og skugga. Sigurður Árni segir það hafa ver- ið gaman að vinna að þessari sýn- ingu en þegar hann fékk boðið var ekki búið að teikna salina í end- anlegri mynd. „Á leiðinni urðu eðli- legar breytingar, eins og vill verða þegar gömlu húsi er breytt. Ég gerði módel af sölunum sem ég vann út frá, fór líka á staðinn öðru hvoru og skoðaði, og það eru vissu- lega forréttindi að fá að vera fyrst- ur til að sýna í þessu nýja húsnæði. Og að fá að vera með í þessari opn- un safnsins í nýrri og mun stærri mynd,“ segir hann. Sigurður tók þátt í opnunarsýn- ingu safnsins fyrir 25 árum, var með einkasýningu þar ári síðar, auk þess að hafa sett upp einkasýningu við formlega opnun Ketilhússins ár- ið 2000. Hann hefur því sterk tengsl við Listasafnið. „Þetta er orðinn mjög skemmti- legur og góður bæjarkjarni, Lista- gilið, leikhúsið, göngugatan og Hof. Listasafnið hefur alla burði til að vera gott. Efsta hæðin er í raun frá- bær viðbót við sýningarrými hér á landi – og hentar mjög vel fyrir samtímalist. Salirnir eru með- færilegir í formi og stærð, það er hátt til lofts og þeir eru mjög fal- legir. Svo fær safnið sal til að sýna listaverkaeignina. Þetta er heldur betur góð viðbót,“ segir Sigurður Árni. Skuggar sem anda  Ál- og málverk Sigurðar Árna – og kvikmynd Ljósmynd/Magnús Helgason Skuggar „Það er ákveðið samtal milli málverkanna og veggverkanna, segir Sigurður Árni. Hann er hér við uppsetningu eins álverksins á sýningunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.