Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
Listamennirnir
Ragnar Kjartans-
son og Theaster
Gates ræða um
listsköpun sína í
tengslum við
gjörninga í Lista-
safni Reykjavík-
ur, Hafnarhúsi, í
kvöld kl. 18. „Þeir
eru báðir þekktir
fyrir margbrotin verk þar sem gjörn-
ingar eru hluti rýmis- og/eða mynd-
bandsverka eða eru tímabundin inn-
grip í rými eða samfélag. Theaster
Gates er, eins og Ragnar, leiðandi í
heimi alþjóðlegrar samtímalistar.
Hann er þekktur fyrir verk sem hafa
víða samfélagslega skírskotun um
leið og hann byggir á ríku handverki,
endurvinnslu og leirkerasmíði, en þar
liggur grunnur hans sem listamanns.
Gates er frá Chicago og hefur alla tíð
búið í fátækari hluta borgarinnar.
Þar hefur hann beitt sér fyrir verk-
efnum sem eru eins konar samfélags-
skúlptúrar og haft með því umtals-
verð áhrif á líf og störf íbúa fátækari
hverfa Chicago. Viðburðurinn er hluti
af umræðudagskrá Nasher Sculpture
Center sem haldin er árlega á ólíkum
stöðum í heiminum. Nasher Sculp-
ture Center starfar í Dallas og veitir
árlega hin virtu Nasher-verðlaun.
Theaster Gates er handhafi verð-
launanna í ár,“ segir í tilkynningu.
Aðgangur er ókeypis.
Gjörningur
sem skúlptúr
Theaster Gates
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Myndlistarheimurinn í dag er afar
umfangsmikill og ýmiskonar stefnur
og straumar í gangi á hverjum tíma,
eins og sýningarstjórinn Dan Byers
bendir á. Hann hefur valið saman út
frá ákveðnum forsendum verk fimm
bandarískra myndlistarmanna í
yngri kantinum – sá yngsti er á þrí-
tugsaldri og elsti á fimmtugsaldri,
frá ólíkum stöðum í Bandaríkjunum,
og hefur áhugaverð sýning á verkum
þeirra verið opnuð í i8 galleríi við
Tryggvagötu undir heitinu Að sjá er
að trúa er að halda á og handleika.
Listamennirnir eru Kelly Akashi frá
Los Angeles, Kahil Robert Irving frá
St. Louis, Michelle Lopez frá Fíla-
delfíu, B. Ingrid Olson frá Chicago
og Daniel Rios Rodriguez frá San
Antonio í Texas.
Sýningarstjórinn Dan Byers hefur
á undanförnum árum sankað að sér
umtalsverðri reynslu við störf í sam-
tímadeildum nokkurra virtra mynd-
listarstofnana vestanhafs, og hefur
fylgst grannt með hræringum í sam-
tímalistinni. Síðan í fyrra hefur hann
gegnt stöðu sýningarstjóra við Can-
penter Center for the Visual Arts við
Harvard-háskóla.
Byers segir að það hafi verið í
gegnum vinnu sína með Ragnari
Kjartanssyni í Bandaríkjunum sem
hann komst í kynni við i8 galleríið og
Börk Arnarson sem stjórnar því og
bauð honum að setja saman þessa
sýningu á bandarískri samtímalist.
„Ég hitti Ragnar fyrst þegar ég
var í framhaldsnámi og fyrsta sýn-
ingin sem ég setti saman þegar ég
var orðinn sýningarstjóri í Carnegie-
safninu í Pittsburg var með honum.
Þá kynntist ég líka Berki sem er gall-
eristi Ragnars. Nú eru nær tíu ár síð-
an við fórum fyrst að ræða að ég setti
saman sýningu hér – það kom loksins
að því,“ segir hann og brosir.
„Leiðir okkar Ragnars hafa ann-
ars legið saman víðar því sýningin
sem ég skipulagði í Pittsburg ferðað-
ist síðar til samtímalistasafnsins í
Boston og var að hluta ástæðan fyrir
því að ég var þar aðalsýningarstjóri
um tíma.“
Sérkennilegt andrúmsloft
Sýningin sem Byers hefur sett upp
er forvitnileg, með þrívíðum verkum
úr ýmsum efnum, meðal annars
plasti, gleri, postulíni og fundnum
efnum, og ljósmyndaverkum. Byers
segir að í vinnu sinni í söfnum sé
hann oftar í sambandi við eldri sam-
tímalistamenn en hann hafi ákveðið
að velja á þessa sýningu verk yngstu
kynslóðarinnar sem sé farin að geta
sér gott orð, vinna með virtum gall-
eríum og koma fæti inn fyrir dyr
safna.
„Við valið velti ég fyrir mér verk-
um fjölbreytilegs hóps listamanna
sem vinna með ólíkar hugmyndir,
efnivið og viðfangsefni, en eiga það
einkum sameiginlegt að verk þeirra
eru mjög líkamleg eða áþreifanleg,
með víðtækar samfélagslegar vís-
anir,“ segir hann.
Og Byers vildi líka leita út fyrir
myndlistarkjarna stórborganna Los
Angeles og New York. „Mjög fínir
listamenn starfa svo víða í Banda-
ríkjunum. Og núna, þegar andrúms-
loftið í landinu er mjög sérkennilegt
og undir áhrifum af þeim klofningi og
ágreiningi sem Trump hefur magn-
að, þá er áhugavert að skoða list-
sköpun í hinum ýmsu landshlutum.
Fyrir vikið má segja að þessi sýning
sé á vissan hátt portrett af listsköpun
ungra myndlistarmanna í Bandaríkj-
unum í dag.“
Fólk langar að snerta
Byers segir alla listamennina
starfa á hefðbundinn hátt í vinnustof-
um sínum, oft með afar hefðbundna
tækni eins og blásið gler, postulín
eða gamaldags ljósmyndatækni, og
séu ekki að neinu marki í stafræna
heiminum í útvinnslunni. Tilraun-
irnar og áhættan sem listamenn geti
tekið í hefðbundinni vinnustofuvinnu
séu með allt öðrum hætti en hjá þeim
sem vinna orðið að mestu á tölvu-
skjáum að útfærslu myndverka. „Við
valið á verkunum kaus ég að hafa þau
afar áþreifanleg og í raun líkamleg,
mörg þeirra eru afar viðkvæm en
hafa þó bit í rýminu og eru með
margskonar vísanir, en þau tengja til
að mynda við arkitektúr og borg-
arsamfélög. Og mörg verkanna eru
með þeim hætti að þau kalla eigin-
lega á að áhorfendur langar til að
snerta þau, til að staðfesta að þau séu
úr þeim efnum eða með þá áferð sem
manni sýnist vera á þeim. Það er ekki
leyft og mörgum finnst það ergilegt –
en mér finnst það fallegt hvernig ein
tilfinning og skynjun kallar á aðra,
sjónin kallar á snertingu. Verkin hér
eru öll ögrandi á þennan hátt. Mér
finnst að listamennirnir séu allir
meðal þeirra áhugaverðustu af sinni
kynslóð í Bandaríkjunum í dag.“
Byers bætir við að í dag sé mikill
áhugi fyrir fígúratífri list vestra, og
verkum sem endurspegla og takast á
við líkamann á einhvern hátt. „Enda
er pólitíska andrúmsloftið með þeim
hætti að fólk hefur aukinn áhuga á að
sjá endursköpun heimsins sem það
lifir og hrærist í. Fyrir mörg okkar
er heimalandið skyndilega orðið ógn-
vænlegt og illþekkjanlegt, það er
mikið hugsað og rætt um öryggi og
mannréttindi og ég held að þessir
listamenn hér takist meðal annars á
við það, en á sinn abstrakt og per-
sónulega hátt.“
Viðkvæm en þó með bit
Verk fimm ungra bandarískra
myndlistarmanna sýnd í i8 galleríi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Áþreifanleiki Listamaðurinn Kahlil Robert Irving fyrir aftan eitt verka sinna, B. Ingrid Olson fyrir framan eitt af
sínum, sýningarstjórinn Dan Byers og Börkur Arnarson galleristi í i8. Fimm listamenn eiga verk á sýningunni.
Skúlptúr Eitt verka B. Ingrid Ol-
son, Future Body, plastteikning.
Þrívítt Verk eftir Michelle Lopez frá 2008, C3PO, úr bronsi, blaðgulli og
resin. Verkin á sýningunni búa yfir allrahanda vísunum, að sögn Byers.
5-9 SEPTEM
BER
Tjarnarbíó - Hannesarholt - Iðnó - Grand Hótel - Gömlu Kartöflugeymslurnar - Borgarbókasafn
MIÐASALA Á TIX.IS
reykjavikjazz.is
afsláttarpakkar á 4, 6 og 8 viðburði í boði
MARILYN MAZUR’S SHAMANIA - RALPH TOWNER
GIULIA VALLE TRIO - MARCIN WASILEWSKI TRIO
KATRÍN HALLDÓRA & ARCTIC SWING KVINTETT - AGNAR MÁR & LAGE LUND
INGI BJARNI TRIO - DOH TRIO - SIGURÐUR FLOSASON & LARS JANSSON
SUNNA GUNNLAUGS TRIO & VERNERI POHJOLA - ANDRÉS ÞÓR & MIRO HERAK
SCOTT MCLEMORE KVARTETT - ÞÓRDÍS GERÐUR SEXTETT - SKELTR & UNA STEF BAND
RICHARD ANDERSSON’S TRIO NOR - SIGMAR ÞÓR MATTHÍASSON & ÁRÓRA