Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018
Fagháskólanám
í leikskólafræðum / fjarnám fyrir
leikskólastarfsmenn á Suðurlandi.
Umsóknarfrestur er til og með 20.ágúst
Nánari upplýsingar á
www.hfsu.is | hfsu@hfsu.is | s 560 2040 / 2042
ans þar sem þjálfun og reynsla
stjórnandans haldist hönd í hönd.“
Tilfinningagreind
stjórnandans mikilvæg
Guðrún segir að það kunni að hljóma
dálítið sérstakt en nýjasta nám-
skeiðalotan fjalli um tilfinn-
ingagreind (EO). Það er hvernig
stjórnendur geta nýtt sér tilfinn-
ingagreind, aukið sjálfsstjórn og hlúð
að jákvæðu andrúmslofti innan
vinnustaðarins. „Eins og með allt
annað þá þurfum við að þjálfa okkur í
að vera læs á eigin tilfinningar sem
árangri þeirra sem að hafa farið í
gegnum þjálfun hjá mér þá er fókus á
mannlegu hliðina hið nýja „harða“ í
leiðtogaþjálfun,“ segir Guðrún og út-
skýrir. „Helstu sérfræðingar á þessu
sviði eru að gera sér betur og betur
grein fyrir að það að fókusa á styrk-
leika hvers og eins og hvernig þeir
nýtast, gerir það að verkum að
starfsmaðurinn nýtur sín betur í
vinnunni.“
Guðrún segir að þjálfunarröðin
standi yfir í 6-9 mánuði, sé sérsniðin
að hverju fyrirtæki og meginmark-
miðið sé að stuðla að vexti stjórnand-
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
A
ðspurð hvaða námskeið séu
á döfinni í vetur segir Guð-
rún: „Það eru nokkur ólík
stjórnendanámskeið fram-
undan, en eftir langa
reynslu í því að vinna með stjórn-
endum er alltaf kjarninn í námskeið-
unum mínum að einblína á að kenna
stjórnendum að vinna með það sem
er sterkt í starfsemi fyrirtækisins.
Þessi nálgun að fókusa á styrkleika í
stað þess að byrja á því að fókusera á
vandamál, greiðir leið til að byggja
upp á jákvæðan og uppbyggilegan
hátt. Það er mín reynsla að vanda-
málunum fækkar og vöxtur fyrirtæk-
isins eykst.
Við vinnum svo með stjórnendum
og þjálfum þá í að vinna með þessa
aðferð með þeirra starfsmönnum t.d.
í gegnum styrkleikanálgun, þraut-
seigjuþjálfun en jafnframt leiðbeina
þeim í að taka á sínum stærstu áskor-
unum. Eftir áratuga reynslu sem
stjórnandi og eftir að hafa fylgst með
og annarra og
stjórnendur sem
tekst það vel geta
náð mun meiri ár-
angri en þeir sem
búa ekki yfir þessari
greind.“
Guðrún hefur einnig
verið að sérhæfa sig í nýrri
nálgun í stefnumótun og framtíð-
arsýn. „Nálgunin kallast AI (e.
appreciative inquiry) eða styrkleika-
miðuð stefnumótun. Það er mikið
frelsi fólgið í því að beina athyglinni
að því sem er öflugt, sterkt og heil-
brigt innan fyrirtækisins og í kjöl-
farið byggja trausta innviði út frá
þeirri hugmyndafræði. Þetta er ein
besta leið sem ég hef fundið til að
auka eignarhald allra starfsmanna í
lausnarmiðuðum anda.“
Hvernig vinnur þú með ein-
staklingum?
„Ég vinn með einstaklingum í
gegnum stjórnendamarkþjálfun (e.
executive coaching) og ráðgjöf.
Stjórnendamarkþjálfun leiðir til
nýrra lausna, eykur skilvirkni og
hjálpar við að skýra framtíðarsýn.
Einnig sýna rannsóknir fram á það
að markþjálfun er ein besta leiðin til
að festa nýja kunnáttu í sessi og er
því kærkomin viðbót við þjálfunina.
Mínir viðskiptavinir koma oftast til
mín í gegnum fyrirtæki sem ég
starfa með hverju sinni. Á meðan á
þjálfun stendur koma ítrekað upp
einhver sérstök viðfangsefni sem
stjórnendur vilja fá meiri stuðning
með og leita þá til mín.“
Hvaða viðfangsefni vinnur þú
með?
„Þau eru eins misjöfn og þeir sem
leita til mín. En endurtekin við-
fangsefni stjórnandans eru t.d.
forgangsröðun og framtíðarsýn,
áskoranir í starfsmannamálum og
leiðbeinandi hlutverk stjórnandans
Leitin að jafnvægi á milli starfs og
einkalífs. Að takast á við breyting-
arferli og auka þrautseigju.
Nýting styrkleika innan vinnu-
staðarins.“
Njóta nýrrar færni
Hvaða aðferðum beitir þú?
„Ég legg mikla áherslu á hagnýt-
ingu, að stjórnendur fái tækifæri til
að koma með raunveruleg dæmi úr
sínu starfi og styðja þannig við vöxt
hver annars. Mínar kennsluaðferð-
irnar eru í formi styttri fyrirlestra,
hópmarkþjálfunar, samtala og hag-
nýtra verkefna. Á milli þjálf-
unarlotna fá stjórnendur verkefni til
að leysa og hafa því endurtekin
tækifæri til að þróa nýja færni í eig-
in nærumhverfi.“
Hvernig stjórnendur sækja nám-
skeiðin hjá þér?
,,Ég hef verið afskaplega lánsöm
og fengið að vinna með einstaklega
skemmtilegum og gefandi hópum
bæði innan einka- sem og opinbera
geirans. Samkvæmt því mati sem ég
hef fengið þá eru stjórnendur upp til
hópa afskaplega sáttir og þakklátir
fyrir þjálfunina. Stjórnendur hafa
verið ósparir á að deila með mér
þeim árangri sem þjálfunin hefur
veitt þeim í starfi. Vænst þykir mér
alltaf að heyra þegar stjórnendur og
starfsmenn þeirra ná miklum ár-
angri með breyttum áherslum sem
ég kenni.“
Guðrún hefur það orð á sér að
hafa hæfileika til að lesa í hópinn og
aðlaga kennsluefnið sitt. Það sem
skiptir hana sjálfa mestu máli er að
sjá jákvæðar breytingar á fólk-
inu sem hún vinnur með.
„Það eru mín stærstu
verðlaun sem mark-
þjálfi. Það getur
verið allt frá því
komast upp úr
gömlu hjólfari í
hegðun, ná í hug-
rekkið til að gera
það sem viðkom-
andi langar raun-
verulega til að gera
með líf sitt, aukið
sjálfstraust og sjálfsagi,
skýrari framtíðarsýn, aukin
afköst og vellíðan í starfi,“ segir hún.
Fólkið skiptir máli
Hvað breytti þínu lífi?
„Þegar ég skildi til fulls hversu
miklu máli fólk skiptir í raun og veru
þegar kemur að hamingju okkar og
farsæld. Fyrir mörgum árum heyrði
ég setninguna: Líttu á fólk sem
burðarstoðirnar í þínu lífi. Þessi litla
setning hefur verið eitt af mínum
fylgistefum í lífinu og er í samhljómi
við mínar áherslur sem þjálfari.“
Hvað er gott líf að þínu mati?
„Gott líf fyrir mér er innihaldsríkt,
með djúpum tilgangi, sterku gild-
ismati og dass af ævintýri. Að eiga
gott líf er fyrst og fremst að vera
umvafin góðu fólki sem hefur áhuga
á að upplifa lífið með manni.“
Þegar Guðrún er spurð um hvað
stjórnendur ættu að hafa efst í huga
að hennar mati inn í haustið segir
hún: „Að setja lífið í rútínu og setja
sjálfan sig í forgang. Að festa tíma í
dagbókinni til að hreyfa sig og hlúa
að sér. Finna út hvernig þeir ætla að
næra sig í haust, hvað þá langar að
skoða nánar eða læra meira um, eða
dvelja oftar í. Að þeir finni tíma í
dagbókinni fyrir slíkt. Mikilvægt er
að stjórnendur heyri í fólkinu sínu
eftir sumarið, setjist niður með því,
drekki kaffi með því og séu sýni-
legir. Að skapa yfirsýn áður en hjól-
in fara að snúast er mikilvægt, for-
gangsraða og stilla upp haustinu.
Mikilvægt er að fresta ekki áskor-
unum, að tala við starfsmanninn eða
taka slaginn, hver sem hann er. Að
byrja haustið með hreint borð er
mikilvægt.“
Að lokum segir Guðrún: „Að fá að
starfa við áhugamálið mitt og
ástríðu eru algjör forréttindi. Gjöf
sem ég vona að flestir fái að upplifa
á lífsleiðinni.“
Mannlega hliðin hið nýja
„harða“ í leiðtogaþjálfun
Guðrún Snorradóttir er
einn vinsælasti leiðtoga-
markþjálfi landsins. Hún
hefur komið að mörgum
verkefnum í gegnum ár-
in með fjölmörgum fyr-
irtækjum sem hafa séð
hag sinn í að þjálfa leið-
toga sína í að vinna með
það sem er sterkt í
starfsemi fyrirtækisins.
Guðrún Snorradóttir er
einn helsti sérfræðingur
landsins þegar kemur
að jákvæðri sálfræði.
Guðrún Snorradóttir er PCC (Profess-
ional Certified Coach) stjórnendamark-
þjálfi og einn af helstu sérfræðingum á
Íslandi í hagnýtingu jákvæðrar sálfræði á
fyrirtækjamarkaði.
Ljósmynd/Thinkstockphotos