Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Elínrós Líndal elinros@mbl.is Ó sk elskar að skipuleggja leiðangra utan venju- bundinna slóða landslags og menningar. Hvað heitir nám- skeiðið sem þú ert með í vetur og hvert er markmið þess? „Námskeiðið heitir Handverk og menning í Marokkó. Markmiðið er að kynna þátttakendum land og þjóð og ekki síst magnaða hand- verksmenningu í Norður-Afríku. Námskeiðið gefur innsýn í merki- legan menningarheim.“ Frábært námskeið fyrir forvitna Hvernig fólk sjáið þið fyrir ykkur að hefði not/ánægju af námskeiðinu? „Allir þeir sem eru forvitnir og áhugasamir um handverk og fornan menningarheim berba og araba. Það getur meðal annars verið liður í end- urmenntun fyrir kennara á öllum skólastigum.“ Hvert er megininntak námskeiðs- ins og hvernig kennir þú? „Við verðum tvær með námskeiðið í Marokkó, ég og Ragna Fróða, fata- og textílhönnuður sem auk þess er deildarstjóri textíldeildar Mynd- listaskólans í Reykjavik. Áður en lagt er í leiðangurinn verður boðið upp á fyrirlestur sem Þórir Hraundal Mið-Austurlanda- fræðingur mun halda um merka sögu og menningu Marokkó, trúar- brögð og tengsl við Ísland. Auk þess munum við Ragna Fróða kynna handverk, byggingarlist og daglegt líf. Á vettvangi verða skilningarvitin virkjuð, við horfum, þefum og þreif- um. Við fylgjumst með bygginu leir- húsa og fáum að taka til hendinni. Byggingaraðferðin er sú sama og á dögum Krists. Það gefst tækifæri til að snerta á leirkerasmíð og tadelakt sem er gömul aðferð við að gera yf- irborð gljáandi og vatnshelt. Við fáum námskeið í fornri leturgerð með bambusfjöður og náttúrulegu bleki. Við kynnumst spunatækni og vefnaði. Heimsækjum heimamenn og upplifum heimilisiðnað sem lifir góðu lífi í Marokkó líkt og fyrir nokkrum öldum á Íslandi. Leiðang- urinn liggur inn í annað tímabelti, við erum að tala um tímaflakk.“ Litrík og skemmtileg menning Hvað einkennir menninguna í Mar- okkó? „Menningin er litrík og skemmti- leg. Fólk er mjög vinalegt og for- vitið, hefur áhuga á að spjalla við gesti. Marokkóar eru mjög gestrisn- ir og bjóða gjarnan til tedrykkju. Slíkt boð er vinarþel sem sjálfsagt er að þiggja. Þá skapast tækifæri við að ná sambandi við heimamenn og spjalla um alla heima og geima. Þetta er fjölskyldusamfélag þar sem fjölskyldan er grunnur og kjölfesta en gerir líka miklar kröfur um hvernig fólk hagar lífi sínu. Sumu ungu fólki sem ég hef hitt finnst það ráða litlu um sitt eigið líf. Fjölskyld- urnar eru ólíkar, sumar strangtrúað- ar, aðrar frjálslyndari. Þetta sér maður helst á klæðaburði fólks. Konungurinn er að vísu búinn að banna konum að hylja andlit sitt á al- mannafæri. Það ríkir talsvert meira frjálslyndi í borgunum, sérstaklega í hverfum þar sem efnaðra og betur menntað fólk býr.“ En handverk frá Marokkó? „Litir, lykt, fegurð og fjölbreyti- leiki einkennir staðinn. Eins er mik- ið verið að vinna með höndunum. Alls staðar þar sem maður kemur er verið að spinna, vefa, sníða, sauma, smíða, súta, lita og verka leður. Allt er unnið frá grunni og aðferðirnar eru fornar og hafa lítið breyst í ald- anna rás. Manni finnst eins og tím- inn hafi staðið í stað.“ Til að tengja aftur við upprunann Hvað getur þú sagt mér um áhrif menningar og listar að þínu mati á líf fólks? „Við sem lifum í nútímasamfélagi höfum kannski að einhverju leyti misst samband við það hvernig hlut- irnir verða til. Úr hverju þeir eru, hvaðan þeir koma. Það er áhugavert og hugvíkkandi að heimsækja sam- félag þar sem þetta samband hefur haldist óslitið frá örófi alda. Allt er búið til frá grunni, alls staðar verið að taka til hendinni.“ Hvað skiptir þig mestu máli í líf- inu? „Fegurðin, margbreytileikinn, gleðin.“ Eitthvað að lokum? Námskeiðin verða tvö, annað í haustfríinu 13.-22. október og seinna námskeiðið 25. október-3. nóvember. Svo er annað námskeið í und- irbúningi næsta vor sem ég er að skipuleggja með Haraldi Jónssyni myndlistarmanni. Þá verðum við í norðrinu á slóðum hippa og beatnik- skálda með handverkshefðina yfir og allt um kring.“ Þar sem við tengjum við upprunann Ósk Vilhjálmsdóttir er myndlistarmaður og fjallageit að eigin sögn. Hún er haldin mikilli ferðaþrá og er forvitin um ómælisvíddir veraldar. Hér ræðir hún áhugavert námskeið sem hún er með um handverk og menningu í Marokkó. Ósk elskar að ferðast um og kynna fyrir almenningi menninguna í Marokkó. Fegurðin er mögnuð á þessum stað í heiminum. Landsmennt Styrkur þinn til náms Landsmennt er fræðslusjóður samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni. Sjóðurinn styrkir starfsmenntun beint til fyrirtækjanna sjálfra. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Landsmenntar. Kynntu þér rétt þinn á www.landsmennt.is Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • landsmennt@landsmennt.is Flex stóllinn er ein af vinsælustu vörunum hjá A2S, sem er þýskt fyr- irtæki sem sérhæfir sig í skóla- húsgögnum. Verslunin Bústoð selur þessa vöru á Íslandi og er með samning við Ríkiskaup. Stóllinn var 3 ár í hönnun og var leitað til skólasamfélagsins þegar hann var hannaður. Í byrjun var stóllinn hannaður með loftgötum á plastskel úr end- urvinnanlegu fjölprópýlen en þeir sem unnu við ræstingar í skólunum gerðu athugasemd við þau göt þar sem matarleifar gætu myglað í göt- unum og tæki þar af leiðandi langan tíma í þrifum. Eftir þessa at- hugasemd ákvað A2S að setjast aft- ur að teikniborðinu til að finna lausn á vandamálinu. Eftir mikla vinnu komu hönnuðir fyrirtækisins upp með þá lausn að útbúa loftrásir í skelina sem varnar því að nemendur svitni og auðveldar þrif. Stóllinn hef- ur einnig marga aðra kosti. Hönnun skeljarinnar er einstaklega góð og var takmarkið að byggja upp plast- skel sem auðveldar hreyfingu not- andans og dregur úr þreytu í baki. Lag skeljarinnar er hannað til að nemandinn geti snúið fram eða aft- ur. Stólinn er hægt að fá 6 mismun- andi hæðum og grind stólsins fáan- leg í 7 mismunandi litum. Öll húsgögn frá A2S standast það álag sem skólahúsgögn þurfa að þola og er 5 ára ábyrgð á öllum hús- gögnum. Fyrirtækið leitar ávallt leiða til að gera húsgögnin vandaðri en dæmi um það er að öll húsgögn eru framleidd með laserkanti í stað hefðbundnar kantlímingar. Það eyk- ur endingu húsgagnanna þar sem þéttleiki kanta er mun meiri. mm@mbl.is Stóllinn sem bætir lífsgæði nemenda Flex stólarnir eru ekki bara vandaðir og vel hannaðir. Þeir eru líka litríkir og fallegir. Bústoð flytur inn Flex stólinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.