Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 18
Kerfisstjórar þykja ómissandi hjá öllum stærri fyrirtækjum. hann nemendur skólans ýmist vilja bæta við sig námi til að styrkja sig í starfi eða til að skipta alveg um starfs- vettvang: Boðið starf fyrir útskrift „Stærsta námsbrautin okkar er bók- halds- og skrifstofunámið. Þeir sem taka einnar annar nám geta unnið ein- föld bókarastörf en flestir taka tvær annir og hafi þeim vegnað vel í öllum prófum eru þeir orðnir kandidatar í góða bókara. Þriðja önnin undirbýr nemendur síðan fyrir próf til við- urkenningar bókara sem atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið heldur.“ Að sögn Skúla hefur atvinnutæki- færin ekki vantað undanfarin ár. „Vinnuveitendur hafa oft samband við okkur að fyrra bragði ef þá vantar t.d. bókara, forritara eða kerfisstjóra. Síð- ustu ár hafa flestir af okkar bestu nemendum, ef þeir hafa verið í at- vinnuleit, fengið vinnu, en vitaskuld hefur almennt atvinnuástand áhrif á horfurnar hverju sinni.“ Forritunarnámið hjá NTV hefur líka notið mikilla vinsælda. Styttri námskeið eru í boði en líka eins og hálfs árs nám sem skilar þátttak- endum mjög hæfum út í atvinnulífið. „Tækniheimurinn er síbreytilegur og því gætum við þess að vera í sífellu að bæta og endurskoða námsskrána. Í upphafi námsins getum við gefið nem- endum ákveðna hugmynd um hvert námsefnið verður á þriðju önn en við tökum það skýrt fram að efnistökin geta breyst verulega á námstímanum í takt við tækniþróun og þarfir mark- aðarins á hverjum tíma.“ Leysa verkefni Kerfis- og netstjórnunarnámið skapar líka góð tækifæri á vinnumarkaði og segir Skúli að þar njóti nemendur m.a. góðs af því að NTV á fullkomna tölvu- stæðu frá Cisco sem notuð er við kennsluna. Bendir hann á að NTV er eini einkaskólinn á Íslandi sem er bæði viðurkenndur af Microsoft og Cisco netlausnum. „Í þessu námi hef- ur áherslan aukist á allt sem tengist öryggi netkerfa og gagna enda verður sífelt flóknara verk að tryggja að fyr- irtæki meðhöndli og geymi gögn með réttum hætti.“ Skúli bendir á að við skipulag náms- ins hlusti NTV á þarfir atvinnulífsins en skólinn vinnur með mörgum leið- Nemendur standa bet- ur að vígi á vinnu- markaði eftir nám- skeiðin hjá NTV. Þar má m.a. læra forritun, netstjórnun og bókun af fólki sem er leiðandi á sínu sviði. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is A llt frá stofnun hefur NTV sérhæft sig í að bjóða upp á starfsmiðað nám. Vinsæl- ustu námsbrautirnar taka tvær til þrjár annir en ef nemendurnir standa sig vel þá getur útskriftarskírteinið greitt þeim leið að vel launuðum og áhugaverðum störf- um. Skúli Gunnsteinsson er skólastjóri og framkvæmdastjóri NTV og segir „Námið er krefjandi og kallar á að nemendur leggi sig alla fram, en árangurinn sést á þeim at- vinnumöguleikum,“ segir Skúli Gunnsteinsson. Nám sem opnar fólki dyr andi fyrirtækjum í hugbúnaðar- og tæknigeiranum. „Við erum líka stolt af því að margir kennararnir okkar eru í framlínu stórra fyrirtækja, sér- fræðingar á sínu sviði og leiða nem- endur í gegnum verkefni sem hafa beina tengingu við þær áskoranir sem bíða þeirra hjá fyrirtækjum hér og þar. Ekki er um að ræða nám þar sem fólk kemur einfaldlega til að sitja í kennslusal og hlusta á fyrirlestra heldur er námið verkefnamiðað og í samræmi við nýjustu þekkingu.“ Verðmæt kunnátta Að sögn Skúla hafa á bilinu 15-20.000 manns útskrifast frá NTV frá því skólinn var stofnaður. „Námið er krefjandi og kallar á að nemendur leggi sig alla fram, en árangurinn sést á þeim atvinnumöguleikum sem standa nemendum til boða og því góða orði sem fer af útskriftarnemendum í atvinnulífinu,“ segir hann og bætir við að það nám sé vandfundið sem má ljúka á svona skömmum tíma og með jafn góðum atvinnu- og launahorfum. „Sjálfur er ég útskrifaður viðskipta- fræðingur og þykist vita að þriggja ára viðskiptafræðimenntun er í dag engin trygging fyrir starfi. Vitaskuld er ekki hægt að alhæfa fyrir alla nem- endur, en margir þeirra sem hafa út- skrifast frá okkur hafa látið ljós sitt skína hjá virtum fyrirtækjum. Það segir líka sína sögu að aðsóknin hefur aldrei verið meiri og voru öll met sleg- in á síðustu önn.“ 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Söngskóli og kórhús – skólasjóri Margrét J. Pálmadóttir Stúlknakór Reykjavíkur Stelpur 5-17 ára Aurora dömukór 17-26 ára Cantabile Fjörugar konur frá 45 ára aldri Þar sem röddin þín hljómar Opnaðu röddina – Söngkort fyrir alla á öllum aldri og þú ræður ferðinni! Nýtt – Domusdrengir Öflugt og skapandi tónlistarstarf fyrir stráka 5 ára og eldri Einsöngsdeild - grunnnám – miðnám – framhaldsnám I og II – tónleikar Skráning á www.domusvox.is og rafrænreykjavik.is Flest námskeið NTV má stunda í fjarnámi eða dreifnámi og segir Skúli það gert til að koma betur til móts við þarfir vinnandi fólks sem vill bæta við sig menntun en flestir nemendur skólans eru á vinnumarkaði með námi. NTV heldur líka úti vefsíðunni Netkennsla.is þar sem nálgast má stutt námskeið og kennsluefni um helsta skrifstofuhugbúnað en að sögn Skúla er þar að finna fjársjóð af hagnýtum fróðleik. Nemendur NTV fá ókeypis aðgang að Netkennslu.is, en einnig er hægt að nota vefinn með því að greiða ýmist mánaðar- eða ársáskrift.“ „Íslenskur kennari leiðir notendur í gegnum námsefnið skref fyrir skref og kennir t.d. á ýmsa notkunareiginleika Word, Excel, Power Point og Photos- hop,“ segir Skúli. „Vissulega má í dag finna alls kyns ókeypis tölvu- kennsluefni á netinu, og þeir sem leita að Excel kennslustundum á Google fá örugglega milljónir niðurstaðna – en hjá Netkennslu er hægt að stóla á gæðin og auðvelt fyrir notendur að fletta upp námskeiðshlutum til að nota til upp- rifjunar og hafa sér til stuðnings í daglegum störfum.“ Lært á helstu forrit yfir netið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.