Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 MORGUNBLAÐIÐ 31
Klassíski listdansskólinn býður upp á fjölbreytt nám í klassískum ballet og nútíma/samtímadansi frá 3. ára aldri.
Innritun er hafin á www.ballet.is. Kennsla fer fram við Álfabakka 14a og Grensásveg 14.
Inntökupróf fyrir framhaldsbraut 16 ára og eldri verður haldið 21. ágúst kl. 17:00.
Nánari upplýsingar hjá info@ballet.is og í síma 534 9030.
Klassíski listdansskólinn
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
E
rla Ara, eins og hún er vana-
lega kölluð, er með fram-
haldsskólaréttindi sem
enskukennari og er með
meistaragráðu í ensku-
kennslu fyrir útlendinga frá The Uni-
versity of East Anglia. Hún hefur
kennt ensku í grunnskóla, framhalds-
skóla og fullorðinsfræðslu.
Allir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi
Spurð um skólann Enska fyrir alla
segir hún:
„Við bjóðum upp á níu vikna nám-
skeið í Hafnarfirði.
Þau eru fyrir 35 ára og eldri og
hefjast í september ár hvert og síðan
aftur í janúar. Í boði eru 10 getustig,
frá byrjendum upp í framhaldshópa,
og er lögð áhersla á tal í öllum hópum.
Einnig er lögð áhersla á að þjálfa les-
skilning og fylgir hljóðdiskur öllu les-
efni.
Á sumrin stendur nemendum til
boða að fara í námsferð til Englands.
Nemendur stunda þá enskunám í
tvær vikur í Kent School of English
auk þess sem þeir njóta þess að kynn-
ast enskri menningu. Boðið er upp á
dagsferðir til Cambridge og Canter-
bury og einnig er enska sveitin heim-
sótt sem rómuð er fyrir sín fallegu
sveitaþorp og kastala,“ segir hún.
„Við förum einnig í göngutúra með-
fram fallegri klettaströndinni, kíkjum
við á krám og kaffihúsum þar sem við
gæðum okkur á English Cream Tea.“
Ferðalög fyrir unga fólkið
Þess fyrir utan eru námsferðir fyrir
13-16 ára og í því tilfelli er um að
ræða unglinga alls staðar að af Ís-
landi sem halda utan í tveggja vikna
námsferð til Broadstairs, þar sem
þeir stunda nám í Kent School of
English með hóp unglinga sem koma
víða að úr Evrópu. „Skólinn hefur
staðið fyrir námsferðum nemenda
vítt og breitt um England og komið
víða við á ferðalögum um landið. Á
vegum skólans hafa rúmlega eitt þús-
und manns farið til enskunáms í Eng-
landi.“
Kennsla í blóð borin
Spurð um áhuga hennar á kennslu
segir Erla:
„Kennsla virðist vera mér í blóð
borin því ég hef unnið við kennslu í
fjörutíu ár og notið þess að kenna á
nær öllum aldursstigum auk þess
sem ég hef haft yndi af því að stofna
minn eigin skóla. Í skólann sækja
tæplega tvöhundruð nemendur á
hverri önn, 95% af þeim eru konur,
meðalaldur í kringum 50 ára og bak-
grunnur þeirra ólíkur. Þau koma úr
hinum ýmsu starfsstéttum og hafa
allt frá grunnskóla- upp í háskóla-
menntun að baki. Þau koma flest frá
höfuðborgarsvæðinu en þó nokkuð
margir koma frá Selfossi, Hvera-
gerði, Akranesi, Suðurnesjum og allt-
af einn eða tveir sem koma lengra að
eins og til dæmis frá Borgarnesi,
Stykkishólmi og Ólafsvík.“
Að taka sig ekki of hátíðlega
Erla segir að ekkert gleðji hana
meira en að heyra frá nemendum
sem oft og tíðum hafa haft löngun
lengi til að koma og í skólann.
„Ég legg ríka áherslu á að nem-
endur séu í hópi við hæfi og reyni að
efla sjálfstraust þeirra, að þeim líði
vel, taki sig ekki of hátíðlega, sætti
sig við að gera mistök og hafi gaman
að því að læra. Allir geta lært, bara
mishratt,“ segir hún að lokum.
Allir geta lært nýja hluti
Erla Aradóttir hefur
starfað sem kennari í yf-
ir 40 ár. Hún stofnaði
árið 1993 skólann Enska
fyrir alla og leggur
metnað sinn í að færa
landsmönnum þá þekk-
ingu sem þeir vilja öðl-
ast á enskri tungu.
Ljósmynd/Aðsend
Að heimsækja ensku sveitina er mögnuð upplifun. Þannig getur tungumálanámið
verið lifandi og skemmtilegt. Erla Ara er kennari af lif og sál. Hún segir að allir geti lært tungumál á sínum hraða.