Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 36
Retor sérhæfir sig í íslenskukennslu ásamt því að bjóða ýmsar
fræðslulausnir fyrir innflytjendur. Okkar markmið er að auka verðmæti
mannauðsstofnana og fyrirtækja með fræðslu og tungumálakennslu.
Íslenskukennsla
fyrir erlent starfsfólk
Opnunartími mán.-fim. kl. 10.00-21.30
Retor fræðsla | Hlíðasmára 8 | 201 Kópavogur | retor.is | retor@retor.is
Beata Czajkowska
Verkefnastýra fyrirtækjalausna
beata@retor.is
Sími: 519 4800
Markmið fyrirtækjalausna Retor fræðslu
er að aðstoða íslensk fyrirtæki með erlent
starfsfólk við að gera íslensku að leiðandi
tungumáli á vinnustöðum.
Við bjóðum fyrirtækjum frítt stöðumat á íslenskukunnáttu erlends starfsfólks. Í fram-
haldinu gerum við fyrirtækjum tilboð byggt á niðurstöðum stöðumats og fyrirliggjandi
þarfagreiningu.
Markmið Retor fræðslu er að skapa sérhæfða og stefnumótandi fræðslulausn sem
hentar ólíkum þörfum hvers fyrirtækis. Að okkar mati er íslenskukennsla lykilþáttur í
starfsþjálfun á íslenskum vinnumarkaði.
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Þ
egar ferill minn er skoðaður
mætti áætla að um mjög
óstöðuga manneskju væri
að ræða, eiginlega týnda
manneskju,“ segir Valdi-
mar og hlær. „Ferillinn teygir anga
sína í ýmsar áttir og hvort sem það er
starfsreynsla eða menntun þá er fátt
sem tengir það saman. Það væri
reyndar hárrétt að segja að um óstöð-
ugleika hafi verið að ræða enda var
ég talsvert áttavilltur þegar ég kom
út í lífið. Unglingsárin einkenndust af
miklum öfgum sem tengdust áföllum
og áfengisdrykkju og báru með sér að
þarna var einstaklingur á ferð sem
hafði lélegt sjálfsmat og vissi í raun
alls ekki hvert hann ætti að stefna.
Þegar ég var 22 ára gamall kom að
uppgjöri gagnvart áfengi í mínu lífi.
Ég sá á þeim tíma að ég og áfengi
ættum illa saman. Upp úr því fór
áhugi minn að vakna fyrir ýmsum
þáttum tilverunnar sem snúa að sál-
rænni líðan, félagslegum þroska og
sjálfsvirðingu.“
Leitin að mér
Valdimar hófst handa við að leita að
sjálfum sér. „Síðan eru liðin 23 ár og
ég er enn stöðugt að læra, bæði á
sjálfan mig og aðra. Öfgar og hraði
fylgdu mér í mörg ár í viðbót og enda-
laus leit að einhverju sem gæti breytt
því hvernig mér liði. Hvort sem það
hefur verið í gegnum veraldlega hluti
af ýmsu tagi, að sækja í spennu,
ójafnvægi í mataræði, öfgar í hreyf-
ingu eða annarskonar stjórnleysi, þá
hefur fátt stoppað mig í að reyna að
breyta því hvernig mér líður. Í raun
var ég að leita þar sem svarið er ekki
að finna. Ég vil meina að ég hafi örlít-
ið róast, áhuginn farinn að snúast
meira um fjallgöngur og ritstörf,
heldur en „motocross“ og „boot-
camp“. Þessu eru ekki allir sammála,
það er að segja að ég hafi róast mikið
og þegar ég slasaði mig á snjósleða í
vor, ýtti það undir þau rök að það
megi enn hægja aðeins á.“
Fyrir sex árum veiktist Valdimar
talsvert vegna skordýrabits sem átti
sér stað í Noregi. „Bakteríusýking
sem fylgdi þessu var nánast búin að
leggja mig í gröfina og fyrstu fjögur
til fimm árin á eftir þurfti ég virkilega
á öllu mínu að halda til að halda mínu
striki. Eitt af verkefnunum sem
þessu hafa fylgt er að
veikindi af þessu tagi
eru ekki í kerfunum,
það er að segja þau
hafa ekki verið skil-
greind í heilbrigðiskerf-
inu og því stendur maður
svolítið einn í þessari
vinnu. Þrátt fyrir að starfs-
geta hafi á köflum verið lítil eða
engin, þá hefur ekkert annað kom-
ið til greina en að halda áfram og
finna leiðir til að komast af. Á þessum
árum hef ég prufað ótal leiðir, bæði
hefðbundnar og ekki síst óhefð-
bundnar, til þess að ná tökum á
ástandinu. Eitt af því sem mér hefur
þótt hjálpa hvað mest eru sérstakir
dropar sem ég nota og eru unnir úr
berki trjáa sem vaxa í yfir þúsund
metra hæð í Perú. Eftir talsverða
þrautagöngu er ég að komast nokk-
urn veginn á sama stað og ég var áð-
ur, bæði líkamlega og andlega. Það
má segja að þessi reynsla sé búin að
vera mjög dýrmæt og hefur hjálpað
mér og okkur fjölskyldunni að skilja
betur einstaklinga sem eiga við erf-
iðleika að stríða og hvaða álag það
getur valdið á fjölskylduna í heild.
Það hefur kennt okkur mikilvægi
þess að eiga góða að og hvað skil-
greinir góða vináttu. Ég byggi mína
vinnu sem ráðgjafi ekki síður á þeim
ósigrum sem ég hef upplifað og mis-
tökum sem ég hef gert en þeim sigr-
um sem hafa unnist og ákvörðunum
sem hafa skilað góðum árangri. Að
mínu mati er mikilvægt að nálgast
fólk þar sem það er statt, á einlægan
máta.“
Heilbrigð sjálfsvirðing
„Eitt af mínum uppáhalds viðfangs-
efnum á síðustu árum hefur verið að
skoða hvað mótar heilbrigða sjálfs-
virðingu og sjálfstraust. Fjölmargir
eiga erfitt uppdráttar hvað þetta
varðar, eru óöruggir og þegar þeir
eru spurðir „hver ert þú?“ þá komast
margir að því að það er lítið um svör.
Margir upplifa tómleika og ófull-
nægju, finnst eins og þeir séu ekki
spennandi, að þeir geti ekki staðist
kröfur samfélagsins eða haldið í við
alla hina sem virðast á fljúgandi ferð.
Í dag er þetta sérstaklega áberandi
meðal ungs fólks þar sem í ljós kemur
að mörgum líður illa með sig og sitt
líf. Þar kemur meðal annars inn hraði
og áreiti samfélagsins sem hefur stór-
aukist á fáeinum árum. Hvort sem
það eru kunningjar úr skólanum eða
vinnu, frægir einstaklingar á Íslandi
eða útlöndum, þá eru flestir að senda
frá sér myndir, myndbönd og frá-
sagnir af einhverju skemmtilegu, ein-
hverju flottu, einhverjum glæsilegum
afrekum og þar fram eftir götunum.
Þroski á sér stað ef við
teygjum vitsmunalega á okkur
Valdimar Þór Svav-
arsson starfar sem ráð-
gjafi og fyrirlesari hjá
ráðgjafarstofunni Fyrsta
skrefinu ásamt eig-
inkonu sinni Berglindi
Magnúsdóttur. Hann á
ótrúlega sögu að baki
og hefur sigrast á
mörgu í lífinu. Valdimar
varð nýlega 45 ára en
hann er ungur í anda að
eigin sögn. Hann segir
að fólk eldist með aldr-
inum, en til að öðlast
aukinn þroska þurfum
við að reyna á okkur.
Valdimar er vinsæll
fyrirlesari og ráð-
gjafi í landinu.
Að læra nýja hluti um okkur sjálf er verðugt verkefni. Fjárfesting sem skilar sér í aukinni vellíðan.
Ljósmynd/Aðsend.
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018
Við bjóðumm.a. upp á:
n Náms- og starfsráðgjöf
n Markviss-ráðgjöf og gerð fræðsluáætlana
n Raunfærnimat
n Áhugasviðspróf
n Nám fyrir innflytjendur
n Sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir
n Nám fyrir fatlaða
n Nám fyrir atvinnuleitendur
n Tómstundanámskeið
n Þjónusta við fjarnemendur
Kíktu á www.simenntun.is og
https://www.facebook.com/simenntun
Menntun er skemmtun,
getum við aðstoðað þig?