Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 2018 Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að Leiðsögn erlendra og innlendra ferðamann um Ísland. • Flest stéttarfélög styrkja nemdur til náms. • Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu. Helstu námsgreinar: • Helstu viðkomustaðir ferpamanna á Íslandi í máli og myndum. • Mannleg samskipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga. • Saga landin, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. • Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði. Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða. Umsögn: Fyrir nokkrum áruð stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands. Námið stóð vel undir væntingum þar sem fjölmargir kennarar komu að kennslunni og áttu þeir auðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og ekki síst að vekja mig til umhugsunar um þá auðlind sem landið okkar er og virðingu sem okkur ber að sýna í því. Kennararnir voru mjög færir og fróðir hver á sínu sviði og áttu auðvelt með að koma efninu til skila. Námið gefur mikla atvinnumöguleika og spennandi tímar eru framundan. LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466 Guðrún Helga Bjarnadóttir OPIÐ 8-22 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þ egar styttist í haustið fer fagfólkið að athuga hvaða sniðugu námskeið eru í boði hjá Opna háskól- anum við Háskólann í Reykjavík. Jóhanna Vigdís Guð- mundsdóttir segir flesta gæta þess að stunda endurmenntun samvisku- samlega enda margvíslegur ávinn- ingur sem fylgir því að bæta við sig nýrri þekkingu jafnt og þétt: „Námið við Opna háskólann miðar að því að veita fólki hagnýta þekk- ingu sem eflir það í starfi, en þess utan er ágætt að fá tækifæri til þess að slíta sig frá tölvunni og símanum og sitja áhugavert nám- skeið þar sem hitta má annað fólk úr atvinnulífinu sem oft glímir við sambærilegar áskoranir. Fólk lærir afskaplega mikið í gegnum slíkt samtal.“ Jóhanna er framkvæmdastjóri Opna háskólans og segir hún að á haustönn megi velja um ótal spenn- andi námskeið, bæði stutt og löng. „Af nýlegum viðbótum við náms- framboðið má nefna nám í mann- auðsstjórnun og leiðtogafærni. Þar er áherslan lögð á stefnumiðaða mannauðsstjórnun og fellur það vel að þörfum íslenskra fyrirtækja sem einkennast oft af jafningjastjórnun og flötu stigveldi þar sem stjórn- endur þurfa að hvetja, styðja og leiða. Um er að ræða nám sem ætti að gagnast stjórnendum og milli- stjórnendum alveg sérstaklega en farið er í saumana á atriðum á borð við grunnatriði hefðbundinnar mannauðsstjórnunar, vinnurétt, ráðningarferli, góð samskipti og síðast en ekki síst markþjálfun,“ segir Jóhanna. „Þetta var eitt vin- sælasta stjórnendanámið okkar í fyrra og skráningarnar benda til góðrar aðsóknar í ár.“ Gagnagreining gerð einföld Jóhanna vekur einnig sérstaka at- hygli á námskeiði í vinnslu og greiningu gagna (e. data analytics). „Öll fyrirtæki sitja á miklu magni gagna og í þeim geta verið fólgin töluverð verðmæti. Svo fremi sem gögnin eru ekki persónugreinanleg má nota þau óháð ákvæðum GDPR-reglugerðarinnar, og t.d. nýta til markvissari ákvarð- anatöku,“ segir Jóhanna og bendir á að námskeiðið sé þannig hannað að nemendur þurfa ekki endilega að kunna skil á forritun áður en námskeiðið hefst. „Farið er í grunnatriðin við að sækja gögn og vinna í gagnasöfnum, en nemendur taka einnig grunnkúrs í Python- forritun, sem er auðskiljanleg og þægilegt að læra sem fyrsta forrit- unarmál. Þó að um sé að ræða lengri námslínu þá er hægt að taka hverja lotu námsins sem sjálfstætt stutt námskeið, og skipta þannig upp yfir lengri tíma ef það hentar þátttakendum betur.“ Markaðskraftar netsins Annað áhugavert námskeið fjallar um stafræna markaðssetningu og viðskipti á netinu en meðal kennara er dr. Valdimar Sigurðsson. Áhersla er lögð á stefnumótun, ár- angursgreiningu og helstu tæki og tól sem nota má til að ná betri ár- angri í netviðskiptum og -markaðs- setningu. Um lengra námskeið er að ræða og kennt í eins eða tveggja daga lotum frá 9 til 17 á fimmtu- dögum og/eða föstudögum, og tvær vikur á milli lotna. Líkt og með Vinnslu og greiningu gagna má taka hverja lotu Stafrænnar mark- aðssetningar sem sjálfstætt stutt námskeið s.s. til að læra um mark- aðssetningu með tölvupóstum, al- mannatengsl á netinu eða framtíð smásölu á netinu.“ Jóhanna segir Valdimar í hópi fremstu fræðimanna landsins á sviði markaðsmála og honum lagið að koma hagnýtum atriðum fræð- anna til skila til nemenda. „Það vill brenna við að fyrirtæki vita ekki hvað þarf til að ná árangri við markaðssetningu á netinu, og halda stjórnendur jafnvel að hæfasta manneskjan sé sú sem er alltaf með nefið límt við snjallsímann eða eyðir löngum stundum á Facebook. Raunin er önnur og byggist árang- ursrík markaðssetning á netinu á því að búa yfir ákveðinni fagþekk- ingu og eins að fylgjast vel með þeirri öru þróun sem einkennir net og samfélagsmiðla.“ Nám sem eflir fólk í starfi Í haust verður m.a. hægt að fræðast um mannauðsstjórnun, gagnagreiningu og markaðssetningu á netinu hjá Opna háskólanum. Morgunblaðið/Valli Fyrir nokkru síðan tók Háskól- inn í Reykjavík við starfsemi fræðslufyrirtækisins Skema sem boðið hefur upp á forrit- unarkennslu fyrir börn. Starfið hefur síðan verið styrkt með sameiningu Skema og forrit- unarsamtakanna Kóder, sem nú starfa í HR undir merkjum Skema. „Þessi starfsemi hefur verið sameinuð Opna háskól- anum og samhliða því að nota skemmtilegar aðferðir til að kenna börnunum að forrita stefnum við núna að því að bjóða í auknum mæli upp á námskeið fyrir fullorðna sem byggjast á svipaðri að- ferðafræði,“ segir Jóhanna. Sérstaða Skema felst í því að börnin læra í gegnum leik og ná þannig smám saman tökum á lykilatriðum forritunar, sem við fyrstu sýn myndu virðast flókin og ekki á færi barna. „Það er ekkert sem segir að ekki megi beita svipaðri nálgun á fullorðna og mörg forrit- unarmál eru þannig úr garði gerð að það eru ekki nein eld- flaugavísindi að læra að nota þau.“ Vilja beita aðferðum Skema á fullorðna „Það vill brenna við að fyrirtæki vita ekki hvað þarf til að ná árangri við markaðs- setningu á netinu“ segir Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir en bæði löng og stutt námskeið um stafræna markaðssetningu eru í boði í haust. Ítalska tísku- húsið Gucci hefur aldrei verið vinsælla en akkúrat núna. Yfir- hönnuður fyr- irtækisins, Alessandro Michele, tók við starfinu 2015 og síðan hefur salan aukist og aukist. Hönnuðurinn heim- sótti Ísland á dögunum og gerði þetta helsta eins og að fara í Bláa lónið og skoða Reynisfjöru svo eitt- hvað sé nefnt. Þessir strigaskór eru ákaflega heitir núna en þeir fást á www.net-a-porter.com. Eftirsóknar- verðir striga- skór

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.