Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 12
Ljósmynd/Thinkstockphotos. gott betra og líka pör sem eru komin í ójafnvægi með sambandið og vantar ráð til að komast á rétta braut aftur.“ Er raunveru- lega hægt að kenna gott kyn- líf á námskeiði og hvernig er þetta, eru allir í fötum? „Já, það er svo merkilegt að gott kynlíf er ekki flókið í sjálfu sér. En almennt fáum við litla kynfræðslu og lítið er talað um kynheilbrigði. Flesta skort- ir aðeins upp á samskiptatæknina þegar kemur að því að ræða kynlíf. En þetta er stór partur af lífi flestra og eitthvað sem vert er að huga að. Það eru allir í fötunum í kynlífs- ráðgjöf líkt og á námskeiðunum. Fólk er aldrei beðið að gera neitt eða sýna neitt! Fólk fær leiðbeiningar og gerir svo æfingar heima í næði.“ Karlar og konur með jafnt frumkvæði Hvort eru það konur eða karlar sem eiga frumvæðið að því að koma á námskeið? „Það er svo merkilegt að við vor- um viss um að konur myndu frekar sækja námskeið og eiga frumkvæði að því að bóka sig á paranámskeið en raunin er að karlar og konur eiga frumkvæðið jafnt hvað þetta varðar. Það er skemmtilegt að karlar eru farnir að sækja geðheilbrigðisþjón- ustu jafnt á við konur.“ Er fólk feimið að mæta á nám- skeið fyrir pör eða námskeið um kynlíf? „Maður myndi ætla að fólk væri feimið að mæta á slík námskeið eða í Elínrós Líndal elinros@mbl.is Á slaug lauk meistaragráðu í kynfræði frá Curtin- háskóla í Ástralíu og svo sérnámi í kynlífsráðgjöf við háskólann í Hull í Bretlandi. Áslaug er einn af eig- endum Domus Mentis geð- heilsustöðvar sem er þverfagleg heilbrigðisþjónusta sem stofnuð var í lok árs 2016. Þar starfar hópur sér- fræðinga úr geðheilbrigðisstéttum, s.s. sálfræðingar, geðlæknar og fé- lagsráðgjafar. Hvað getur þú sagt mér um nám- skeiðin sem eru haldin á ykkar veg- um í haust? „Við erum spennt fyrir komandi vetri og verðum með eldri og ný námskeið í boði. Við munum halda áfram að bjóða upp á námskeið fyrir aðstandendur fólks með geðraskanir og fólks með fíknivanda. Einnig námskeið fyrir pör til að gera sam- bandið skemmtilegra. Þar er farið í hvernig má bæta samskipti en við förum líka í það hvernig má bæta kynlífið. Enda er kynlíf partur af langflestum parsamböndum en oft „tabú“ að ræða það. Einnig verðum við með ný námskeið fyrir konur sem vilja finna kynveruna í sér eða leyfa henni að blómstra. Þá bjóðum við líka upp á sérstök námskeið fyrir konur sem hafa þolað kynferðislegt ofbeldi og annað fyrir konur sem finna fyrir sársauka við samfarir. Hjá okkur er mikil þekking og reynsla í áfallameðferð og því áhuga- vert að blanda því saman við kynlífs- ráðgjöfina. Slík námskeið eru þekkt frá Bandaríkjunum og Kanada, því langar okkur að bjóða nú upp á slík námskeið hérna. Námskeið fyrir framhaldsskólanema Annað nýtt námskeið er fyrir fram- haldsskólanema til að takast á við vanlíðan, prófkvíða og að læra að skipuleggja námið og lífið. Þetta námskeið er hjálplegt til að takast á við krefjandi framhaldskólaár svo þau verði bæði skemmtileg og ár- angursrík.“ Áslaug talar sérstaklega um nám- skeiðið Skemmtilegra samband og samlíf. „Námskeiðið er stutt en stút- fullt af fróðleik og heima-verkefnum sem pör taka með sér heim og vinna eftir því sem þeim hentar. Ég tel að þetta námskeið ætti að vera skyldu- nám fyrir þá sem vilja vera í lang- tímasamböndum. Þetta námskeið hentar bæði nýjum pörum og þeim sem hafa verið lengi saman. Pör sem sækja þetta námskeið eru pör þar sem allt gengur vel en þau vilja gera kynlífsráðgjöf yfir höfuð en yf- ir 200 pör hafa komið til mín í ráðgjöf og fleiri til okkar á stöðinni. Fólk er einnig óhrætt við það að mæta á para- námskeið. Það er gott að finna að maður er ekki einn í sínu, við deilum svo mikilli sammannlegri reynslu sem við teljum stundum ein- staka.“ Er eitthvað nýtt að koma fram á þínu sviði um þessar mundir? „Það sem er að gerast nýtt núna er að við fáum nýja útgáfu af sjúk- dómsflokkunarkerfi frá Alþjóðaheil- brigðisstofnuninni sem við notum í heilbrigðisþjónustu á Íslandi en það verður tekið upp í byrjun næsta árs. Í þessari nýju útgáfu fá kynlífsrask- anir sinn eigin flokk, áður heyrðu þær undir geðraskanir. Þetta finnst mér verulega spennandi og þetta eru tímamót í sögu minnar fræðigreinar. Annars er líka hávær umræða í mínu fagi núna síðustu misseri um framtíð langtímasambanda. Fólk er að velta því fyrir sér hvort verði bylting í því hvernig við lítum á hjónabönd. Yngra fólk er síður að gifta sig eða skuldbinda sig til æviloka eins og tíðkaðist hjá elstu lifandi kynslóð- unum. Þetta er spennandi og eldheit umræða á köflum.“ Þeir eldri stunda meira kynlíf Er nokkurt kynlíf eftir 60? „Heldur betur, það er ein af þess- um goðsögnum að við hættum að stunda kynlíf eftir miðjan aldur. En það er ekkert sem styður þetta þeg- ar gerðar eru kannanir og rann- sóknir á kynhegðun fólks. Það merkilega er að yngri kynslóðir stunda jafnvel minna kynlíf en þær eldri gerðu. Það er líklegt að yngra fólk stundi minna kynlíf en foreldrar þeirra gerðu eða gera. Hvað veldur er svo stóra spurningin. Margir vilja benda á snjalltækin.“ Telur þú fólk geta lært á öllum aldri? „Já, það veit ég. Manneskjan er þannig gerð að við viljum alltaf vera að bæta okkur, það er því mikill drif- kraftur í okkur að læra meira og meira. Það er oft erfiðara að láta af hegðun sem hefur verið í föstu mynstri til margra ára en það er vel hægt. Það þarf bara að æfa sig.“ Hvað einkennir gott kynlíf að þínu mati? „Gott kynlíf snýst um jafnvægi og góð samskipti. Þeir sem stunda kyn- líf saman þurfa að tala um væntingar og hvað þarf til að allir séu ánægðir. Svo á kynlíf að vera skemmtilegt, það eru lítil lífsgæði í því að gera þetta alltaf eins. Fólk þarf að virkja sköpunarkraftinn í kynlífinu og stundum að vera úrræðagott.“ Hvað skiptir þig mestu máli í líf- inu? „Ætli það sé ekki bara ástin sem skiptir mig mestu máli. Ástin í mínu persónulega lífi, börnunum og fjöl- skyldunni og svo ástin í starfinu. Ég segi oft í gríni að ég vinni við að bjarga samböndum og þar með ást- inni. En það er svo auðvitað fólkið sjálft sem leitar til mín sem bjargar sér, ég bara hjálpa aðeins til.“ Eitthvað að lokum? „Fyrir áhugasama má finna frek- ari upplýsingar um námskeið og kynlífsráðgjöf á www.dmg.is“ Bylting í þróun hjónabanda Áslaug Kristjánsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur, starfar sem kynlífsráðgjafi á Domus Mentis geðheilsustöð í Þverholti, ásamt því að vera framkvæmdastýra stöðvarinnar. Áslaug fjallar um fjölmörg áhugaverð námskeið. Hvernig bylting er að verða í hjónabönd- um, þar sem unga kynslóðin er ekki tilbúin að festa sig fyrir lífstíð. Eins fjallar hún um hvað gott kynlíf felur í sér. Áslaug Kristjáns- dóttir er einn helsti sérfræðingur landsins þegar kemur að kynlífi. Pör þurfa stundum aðstoð við að gera gott kynlíf betra. Þá eru námskeið góður kostur. 12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 English for All – Let’s speak English Skipuleggjumeinnig námsferðir til Englands fyrir fullorðna og 13-16 ára Nánari upplýsingar á www.enskafyriralla.is Enskunámskeið í Hafnarfirði fyrir byrjendur og lengra komna Á hverri önn sækja um 200 nemendur enskunám í skólanum, langflest konur á aldrinum 35 ára og eldri. • 10 getustig með áherslu á tal • Öllu lesefni fylgja hljóðdiskar • Styrkt af stafsmenntasjóðum Skráning stendur yfir í síma 891 7576 og erlaara@enskafyriralla.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.