Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 12
Ljósmynd/Thinkstockphotos.
gott betra og líka
pör sem eru komin
í ójafnvægi með
sambandið og
vantar ráð til að
komast á rétta
braut aftur.“
Er raunveru-
lega hægt að
kenna gott kyn-
líf á námskeiði og
hvernig er þetta,
eru allir í fötum?
„Já, það er svo
merkilegt að gott kynlíf er
ekki flókið í sjálfu sér. En almennt
fáum við litla kynfræðslu og lítið er
talað um kynheilbrigði. Flesta skort-
ir aðeins upp á samskiptatæknina
þegar kemur að því að ræða kynlíf.
En þetta er stór partur af lífi flestra
og eitthvað sem vert er að huga að.
Það eru allir í fötunum í kynlífs-
ráðgjöf líkt og á námskeiðunum.
Fólk er aldrei beðið að gera neitt eða
sýna neitt! Fólk fær leiðbeiningar og
gerir svo æfingar heima í næði.“
Karlar og konur með
jafnt frumkvæði
Hvort eru það konur eða karlar sem
eiga frumvæðið að því að koma á
námskeið?
„Það er svo merkilegt að við vor-
um viss um að konur myndu frekar
sækja námskeið og eiga frumkvæði
að því að bóka sig á paranámskeið en
raunin er að karlar og konur eiga
frumkvæðið jafnt hvað þetta varðar.
Það er skemmtilegt að karlar eru
farnir að sækja geðheilbrigðisþjón-
ustu jafnt á við konur.“
Er fólk feimið að mæta á nám-
skeið fyrir pör eða námskeið um
kynlíf?
„Maður myndi ætla að fólk væri
feimið að mæta á slík námskeið eða í
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Á
slaug lauk meistaragráðu í
kynfræði frá Curtin-
háskóla í Ástralíu og svo
sérnámi í kynlífsráðgjöf
við háskólann í Hull í
Bretlandi. Áslaug er einn af eig-
endum Domus Mentis geð-
heilsustöðvar sem er þverfagleg
heilbrigðisþjónusta sem stofnuð var
í lok árs 2016. Þar starfar hópur sér-
fræðinga úr geðheilbrigðisstéttum,
s.s. sálfræðingar, geðlæknar og fé-
lagsráðgjafar.
Hvað getur þú sagt mér um nám-
skeiðin sem eru haldin á ykkar veg-
um í haust?
„Við erum spennt fyrir komandi
vetri og verðum með eldri og ný
námskeið í boði. Við munum halda
áfram að bjóða upp á námskeið fyrir
aðstandendur fólks með geðraskanir
og fólks með fíknivanda. Einnig
námskeið fyrir pör til að gera sam-
bandið skemmtilegra. Þar er farið í
hvernig má bæta samskipti en við
förum líka í það hvernig má bæta
kynlífið. Enda er kynlíf partur af
langflestum parsamböndum en oft
„tabú“ að ræða það. Einnig verðum
við með ný námskeið fyrir konur
sem vilja finna kynveruna í sér eða
leyfa henni að blómstra. Þá bjóðum
við líka upp á sérstök námskeið fyrir
konur sem hafa þolað kynferðislegt
ofbeldi og annað fyrir konur sem
finna fyrir sársauka við samfarir.
Hjá okkur er mikil þekking og
reynsla í áfallameðferð og því áhuga-
vert að blanda því saman við kynlífs-
ráðgjöfina. Slík námskeið eru þekkt
frá Bandaríkjunum og Kanada, því
langar okkur að bjóða nú upp á slík
námskeið hérna.
Námskeið fyrir
framhaldsskólanema
Annað nýtt námskeið er fyrir fram-
haldsskólanema til að takast á við
vanlíðan, prófkvíða og að læra að
skipuleggja námið og lífið. Þetta
námskeið er hjálplegt til að takast á
við krefjandi framhaldskólaár svo
þau verði bæði skemmtileg og ár-
angursrík.“
Áslaug talar sérstaklega um nám-
skeiðið Skemmtilegra samband og
samlíf. „Námskeiðið er stutt en stút-
fullt af fróðleik og heima-verkefnum
sem pör taka með sér heim og vinna
eftir því sem þeim hentar. Ég tel að
þetta námskeið ætti að vera skyldu-
nám fyrir þá sem vilja vera í lang-
tímasamböndum. Þetta námskeið
hentar bæði nýjum pörum og þeim
sem hafa verið lengi saman. Pör sem
sækja þetta námskeið eru pör þar
sem allt gengur vel en þau vilja gera
kynlífsráðgjöf
yfir höfuð en yf-
ir 200 pör hafa
komið til mín í
ráðgjöf og fleiri til
okkar á stöðinni.
Fólk er einnig óhrætt
við það að mæta á para-
námskeið. Það er gott að
finna að maður er ekki einn í sínu,
við deilum svo mikilli sammannlegri
reynslu sem við teljum stundum ein-
staka.“
Er eitthvað nýtt að koma fram á
þínu sviði um þessar mundir?
„Það sem er að gerast nýtt núna
er að við fáum nýja útgáfu af sjúk-
dómsflokkunarkerfi frá Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni sem við notum í
heilbrigðisþjónustu á Íslandi en það
verður tekið upp í byrjun næsta árs.
Í þessari nýju útgáfu fá kynlífsrask-
anir sinn eigin flokk, áður heyrðu
þær undir geðraskanir. Þetta finnst
mér verulega spennandi og þetta eru
tímamót í sögu minnar fræðigreinar.
Annars er líka hávær umræða í mínu
fagi núna síðustu misseri um framtíð
langtímasambanda. Fólk er að velta
því fyrir sér hvort verði bylting í því
hvernig við lítum á hjónabönd.
Yngra fólk er síður að gifta sig eða
skuldbinda sig til æviloka eins og
tíðkaðist hjá elstu lifandi kynslóð-
unum. Þetta er spennandi og eldheit
umræða á köflum.“
Þeir eldri stunda meira kynlíf
Er nokkurt kynlíf eftir 60?
„Heldur betur, það er ein af þess-
um goðsögnum að við hættum að
stunda kynlíf eftir miðjan aldur. En
það er ekkert sem styður þetta þeg-
ar gerðar eru kannanir og rann-
sóknir á kynhegðun fólks. Það
merkilega er að yngri kynslóðir
stunda jafnvel minna kynlíf en þær
eldri gerðu. Það er líklegt að yngra
fólk stundi minna kynlíf en foreldrar
þeirra gerðu eða gera. Hvað veldur
er svo stóra spurningin. Margir vilja
benda á snjalltækin.“
Telur þú fólk geta lært á öllum
aldri?
„Já, það veit ég. Manneskjan er
þannig gerð að við viljum alltaf vera
að bæta okkur, það er því mikill drif-
kraftur í okkur að læra meira og
meira. Það er oft erfiðara að láta af
hegðun sem hefur verið í föstu
mynstri til margra ára en það er vel
hægt. Það þarf bara að æfa sig.“
Hvað einkennir gott kynlíf að þínu
mati?
„Gott kynlíf snýst um jafnvægi og
góð samskipti. Þeir sem stunda kyn-
líf saman þurfa að tala um væntingar
og hvað þarf til að allir séu ánægðir.
Svo á kynlíf að vera skemmtilegt,
það eru lítil lífsgæði í því að gera
þetta alltaf eins. Fólk þarf að virkja
sköpunarkraftinn í kynlífinu og
stundum að vera úrræðagott.“
Hvað skiptir þig mestu máli í líf-
inu?
„Ætli það sé ekki bara ástin sem
skiptir mig mestu máli. Ástin í mínu
persónulega lífi, börnunum og fjöl-
skyldunni og svo ástin í starfinu. Ég
segi oft í gríni að ég vinni við að
bjarga samböndum og þar með ást-
inni. En það er svo auðvitað fólkið
sjálft sem leitar til mín sem bjargar
sér, ég bara hjálpa aðeins til.“
Eitthvað að lokum?
„Fyrir áhugasama má finna frek-
ari upplýsingar um námskeið og
kynlífsráðgjöf á www.dmg.is“
Bylting í þróun hjónabanda
Áslaug Kristjánsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur, starfar sem kynlífsráðgjafi á Domus Mentis geðheilsustöð í Þverholti, ásamt því
að vera framkvæmdastýra stöðvarinnar. Áslaug fjallar um fjölmörg áhugaverð námskeið. Hvernig bylting er að verða í hjónabönd-
um, þar sem unga kynslóðin er ekki tilbúin að festa sig fyrir lífstíð. Eins fjallar hún um hvað gott kynlíf felur í sér.
Áslaug Kristjáns-
dóttir er einn helsti
sérfræðingur
landsins þegar
kemur að kynlífi.
Pör þurfa stundum aðstoð við að gera gott
kynlíf betra. Þá eru námskeið góður kostur.
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018
English for All – Let’s speak English
Skipuleggjumeinnig námsferðir til Englands fyrir fullorðna og 13-16 ára
Nánari upplýsingar á
www.enskafyriralla.is
Enskunámskeið í Hafnarfirði fyrir byrjendur og lengra komna
Á hverri önn sækja um 200 nemendur enskunám í skólanum,
langflest konur á aldrinum 35 ára og eldri.
• 10 getustig með áherslu á tal
• Öllu lesefni fylgja hljóðdiskar
• Styrkt af stafsmenntasjóðum
Skráning stendur yfir í síma 891 7576 og erlaara@enskafyriralla.is