Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 37
Fæstir eru að senda frá sér mynd af
því þegar þeir detta í drullupoll eða
eiga ömurlegan dag. Flottu mynd-
irnar þjappast svo saman í símann í
lófanum á okkur þar sem streyma inn
myndir og myndbönd af öllu þessu
glæsilega fólki sem virðist vera að
upplifa stórkostlega hluti. Þá hættir
mörgum til að finnast þeir lítils virði
af því það er ekki það sama að gerast
í þeirra lífi, þeir eru ekki með six-
pack, ekki á flottum bíl, ekki að
græða fullt af peningum eða útskrif-
ast úr háskólanámi og eru ekki á
ströndinni á Tenerife. Þetta veldur
talsverðum áhyggjum hjá mörgum,
bæði ungum og öldnum, sem getur
leitt af sér depurð og vonleysi sem
síðan hefur alvarlegri afleiðingar til
langs tíma. Mikið ber á vandamálum
tengdum þunglyndi og kvíða hjá
ungu fólki, stjórnleysi á ýmsum svið-
um svo sem tölvuleikjanotkun, lyfja-
notkun, átröskunum, hárri tíðni ör-
orku, brottfalli úr skólum og þeirri
ömurlegu staðreynd að algengasta
dánarorsök ungra manna eru sjálfs-
víg. Það eru auðvitað fjölmargar or-
sakir fyrir því hvernig fólki líður,
uppvöxturinn, umhverfið, karakter-
inn, líffræðilegir þættir og erfðir hafa
allt sitt að segja. Þetta er allt áhuga-
vert að skoða og mikilvægt að fara yf-
ir alla mögulega þætti þegar ein-
staklingar vilja ná breytingum í sínu
lífi.“
Leiðir til að auka þroska
Hvað getur þú sagt mér um nám-
skeiðin sem eru haldin á ykkar veg-
um í haust?
„Hjá Fyrsta skrefinu eru fjölmörg
námskeið á dagskrá næstu vikurnar,
þar á meðal tvö sem eru ný. Lang-
vinsælasta námskeiðið okkar heitir
Meðvirkni og áföll í uppvextinum, en
það fjallar um ýmsa þætti sem snúa
að því hvernig við mótumst í uppvext-
inum, hvaða atriði skipta mestu máli
þegar kemur að því að við þróum heil-
brigða sjálfsvirðingu og getum sett
sjálfum okkur og öðrum eðlileg mörk.
Þetta námskeið er þriggja klukku-
stunda langt, öllum opið og stundum
komast færri að en vilja. Annað nám-
skeið sem vakið hefur talsverða at-
hygli fjallar um ástarfíkn og óheil-
brigð samskipti í samböndum en
námskeiðið kallast Ástarfíkn og sam-
bandsþrá og verður næst á dagskrá
seinnipartinn í ágúst. Þetta námskeið
höldum við saman, ég og Berglind og
notum reynslu okkar á nokkuð hisp-
urslausan hátt til þess að tengjast
efninu. Á námskeiðinu er farið yfir
hringrás sem margir þekkja úr sam-
böndum sínum. Hringrásin hefst á
því að mikil hrifning verður í upphafi
sambands og annar aðilinn kemur
svolítið eins og bjargvættur til leiks, á
meðan hinn nýtur þess út í ystu æsar
að falla í arma bjargvættarins, vill
upplifa mikla nánd og tilfinningar.
Þegar fram líða stundir kemur ákveð-
ið ójafnvægi í ljós og annar aðili sam-
bandsins fer að upplifa að maki hans
sé ekki að sýna sambandinu nægan
áhuga, virðist fjarlægur og taka aðra
hluti fram yfir sambandið. þá byrjar
mjög óþægileg atburðarás sem knúin
er áfram af ótta við að verða hafnað
þar sem annar aðilinn reynir hvað
hann getur til að fá staðfestingu á
sambandinu og meiri nálægð á meðan
hinum finnst hann vera að kafna í
sambandinu og þolir illa álagið. Við
förum vel yfir þessa hringrás á nám-
skeiðinu, hvað kemur henni af stað og
hvernig hún þróast áfram, ásamt leið-
um til að stíga út úr vítahringnum.
Í ágúst verður tveggja daga nám-
skeið eða öllu heldur meðferð í hönd-
um Berglindar Magnúsdóttur. Með-
ferðin kallast Intensive therapy –
PIT og er lokað úrræði sem eingöngu
er í boði fyrir fáa aðila sem þurfa að
hafa lokið ákveðnu ferli áður en að
meðferðinni kemur. Þetta úrræði hef-
ur ekki verið í boði fyrr en nú þar sem
allt meðferðarferlið fer fram á ís-
lensku. Áður hafa erlendir PIT sér-
fræðingar komið til landsins og haldið
meðferð af þessu tagi með áhuga-
verðum árangri. PIT stendur fyrir
Post induction therapy meðferðarn-
álgun sem er hönnuð til að meðhöndla
áföll sem verða til í samskiptum í
uppvexti og þeim áhrifum sem áföllin
hafa á þroska einstaklinga á fullorð-
insaldri, betur þekkt sem meðvirkni.
Aðferðin er byggð á vinnu Piu Mel-
lody sem þekktust er fyrir rann-
sóknir sínar á meðvirkni og er aðferð-
in grunnur að starfi hjá meðferð-
arstofnuninni The Meadows í
Bandaríkjunum. Meðferðarnálgunin
byggir á sálgreiningu (e. psychoa-
nalytic therapies), gestalt þerapíu (e.
gestalt), fjölskyldukerfisfræði (e. fa-
mily systems theory), tilfærslu í ald-
urgreiningu sjálfsins (e. transactional
analysis), tilfinningalegri meðferð-
arnálgun (e. rational emotive the-
rapy) ásamt því að styðjast við sið-
ferðisþroskakenningu Eriks Erikson
og mannúðarkenningu Carls Rogers.
Meðferðin snýr að því að beita ein-
staklings- og hópmeðferðarnálgun
þar sem skjólstæðingurinn lærir að
takast á við áföllin í uppvexti sínum
og síðari birtingarmyndum í daglegu
lífi. Námskeiðið í ágúst
er fullbókað en reikna
má með að næsta nám-
skeið verði haldið í sept-
ember eða október.“
Sáttari ungir menn
Fyrsta september hefst
nýtt námskeið sem heitir
Sáttari ungir menn og er
fyrir menn á aldrinum 20 til 30 ára.
Námskeiðið á vel við í samfélaginu
sem við búum í um þessar mundir.
Hvað getur Valdimar sagt okkur um
þetta námskeið?
„Þetta er heilsdags námskeið,
haldið á laugardegi og markmiðið er
að efla sjálfstraust, styrkja sjálfs-
myndina og finna sátt í eigin lífi.
Námskeiðið er tilvalið fyrir alla unga
menn sem eru að upplifa rótleysi og
jafnvel áhugaleysi en langar að taka
skrefið og skoða nýjar nálganir til
þess að upplifa tilhlökkun og tilgang í
sínu lífi. Þetta verður hvetjandi og
skemmtilegt námskeið sem ég hlakka
mikið til að taka þátt í. Nánar má lesa
um námskeiðin og aðrar upplýsingar
á heimasíðu okkar, www.fyrstaskre-
fid.is.“
Valdimar segja marga aðila koma í
einstaklings- og pararáðgjöf til þeirra
hjóna. „Þannig gefst tækifæri til að
skoða mál hvers og eins ofan í kjölinn.
Námskeið eru hins vegar frábær af
því þannig fær fólk almennt mikið af
upplýsingum á skömmum tíma og
geta því verið mjög hagnýt til þess að
leggja grunn að næstu skrefum. Það
er líka gott að upplifa hlutina saman,
heyra mismunandi skoðanir og upp-
lifa sig sem hluta af hóp. Eftir nokk-
urra ára námskeiðs- og fyr-
irlestrahald hefur safnast saman
dýrmæt reynsla í gegnum upplifanir
þátttakenda. Það er sérstaklega
ánægjulegt að fá í mörgum tilvikum
að fylgja fólki áfram í kjölfar nám-
skeiða, þar sem við fáum að sjá og
heyra af þeim árangri og lífsbreyt-
ingum sem fólk upplifir. Það er ekki
alltaf þannig, sumir ná ekki þeim ár-
angri sem þeir stefndu að og þurfa
mögulega að skoða aðrar leiðir en
þær sem við getum boðið upp á. Það
er líka gefandi að geta tekið þátt í að
vísa á aðra möguleika og reyna þann-
ig að taka þátt í að bæta lífsgæði
fólks. Margir hafa upplifað nýtt líf
eftir að þeir skoða sjálfa sig nánar og
opna fyrir nýjum upplýsingum og
leiðum til þess að breyta til. Það er
alltaf ánægjulegt að sjá. Stundum er
sagt að við þroskumst með aldrinum.
Ég held að það sé ekki endilega rétt,
nema þá kannski á líkamlega sviðinu.
Eina sem er öruggt er að við eldumst
með aldrinum. Þroski á sér stað ef við
teygjum vitsmunalega á okkur, höld-
um áfram að skoða nýja hluti, læra og
upplifa. Það er aldrei of seint að læra
nýja hluti og fjölmargir aldraðir
koma í viðtöl og á námskeið. Það er í
raun sérstaklega gaman að spjalla við
eldra fólk sem er búið að átta sig á að
maður veit ekki allt, að maður hefur
ekki alltaf rétt fyrir sér og að það er í
lagi að umturna ákveðnum skoðunum
sem hafa fylgt fólki í mörg ár. Slíkum
samtölum fylgir gjarnan ákveðin ró
og auðmýkt.
Flestir sem koma í viðtöl eða á
námskeið eru að leita leiða til þess að
líf þeirra geti orðið betra á einhvern
hátt, að styrkja sjálfsvirðinguna, að
vera sterkari í samskiptum, að eiga
innilegra samband við annað fólk, að
fá stuðning á erfiðum tímum, að vinna
úr áföllum, að geta sett öðrum mörk,
að ná tökum á stjórnleysi, að finna til-
gang í lífinu, að ná markmiðum sínum
og þannig mætti lengi telja. Stundum
eru skilaboðin til okkar að ef okkur
líður ekki vel, þá er eitthvað að sem
verður að laga. Það er ekki alltaf
þannig, okkur líður allavega og það er
fullkomlega eðlilegt að upplifa ótta,
reiði, kvíða, sorg og aðrar óþægilegar
tilfinningar þegar þannig stendur á.
Það er engu að síður gott að hafa ein-
hvern að tala við þegar erfiðar tilfinn-
ingar banka upp á og sérstaklega ef
þær hafa fylgt einstaklingum í langan
tíma. Að sama skapi er mjög gott að
fá ráðgjöf þegar maður telur sig á
góðum stað en vill ná enn lengra,
hvort sem það er í starfi, íþróttum
eða hvað annað sem við sækjumst eft-
ir. Í raun mætti segja að grunn-
þörfum flestra í hinum vestræna
heimi sé fullnægt, við getum flest sof-
ið með þak yfir höfuðið, við fáum að
borða nokkuð reglu-
lega og eigum flíkur
til að klæðast. Í dag
eru þessi grunnatriði
ekki endilega að veita
okkur mikla ánægju,
við tökum þeim jafn-
vel sem sjálfsögðum
hlut, atriði sem voru
ekki svo sjálfsögð
fyrir einungis fáum áratugum. Marg-
ir leita því að vellíðan í öðrum hlutum
og þar spila markaðsöflin stórt hlut-
verk.“
Skilaboð Salomons konungs
Valdimar segir að okkur sé sagt á
hverjum degi hvað það sé sem muni
veita okkur gleði og hamingju í lífinu.
„Nýjar tilbúnar þarfir verða til og
okkur fer að langa mikið í eitthvað
sem áður var ekki nauðsynlegt. Þar
með er áherslan færð frá þörfum yfir
í langanir og margir verða fyrir von-
brigðum með það, því það endist ekki.
Salomon konungur ritaði um það
hvað máli skipti í lífinu. Hann hafði
eignast alla hluti sem hugurinn gat
girnst, auðæfi, heilu hallirnar, land-
svæði, þekkingu, vinnufólk og þjóna
svo eitthvað sé nefnt. Hann ritaði
raunaþungur um að allt slíkt væri hé-
gómi, hlaup á eftir vindi. Það sem
raunverulega veitti ánægju væri að
setjast niður að loknu góðu dagsverki
og njóta stundarinnar með sjálfum
sér og öðrum. Abraham Maslow kom
fram með þarfapíramída sem byggð-
ist á fimm þrepum. Hann vildi meina
að til þess að líða sem best þyrfti
maðurinn að uppfylla meðfæddar
grunnþarfir sem væru í raun lík-
amlegar, að fá að borða, að eiga ein-
hvers staðar heima, öryggi í verald-
legum skilningi, að eiga góða að og að
upplifa vináttu og virðing frá öðrum
og virðingu fyrir sjálfum sér. Ef þess-
um atriðum væri fullnægt vildi Mas-
low meina að hægt væri að fara í efsta
stig píramídans sem kallast sjálfs-
birting, að vera besta eintakið að
sjálfum sér. Það er erfitt að segja
hvað nákvæmlega skiptir mestu máli
og við erum misjöfn eins og við erum
mörg. Það virðist samt vera að ein-
faldleikinn haldi alltaf velli á end-
anum, og að því leytinu til er áhuga-
vert að skoða hvað Maslow hafði að
segja. Ef við sinnum okkur, heilsunni,
hugum að mataræði, svefni og hreyf-
ingu þá er strax miklu komið til leið-
ar. Að vera í félagslegum tengslum,
eiga góða vini og upplifa kærleika í
nánum samböndum hlýjar okkur um
hjartarætur. Ef við berum svo gæfu
til að hafa frelsi og hugrekki til að
finna þá góðu eiginleika sem í okkur
búa og getum notið þess að fá útrás
fyrir þá, þá eru talsverðar líkur á að
við séum hamingjusöm. Fyrirstaðan
er fyrst og fremst í huganum okkar,
við erum með ýmsar hugmyndir um
okkur sjálf og lífið í heild, sem geta
verið að vinna gegn okkur og halda
okkur uppteknum í ótta og óöryggi.
Þessar hugmyndir eru mjög iðulega
komnar frá fyrstu tíð, það er að segja
úr uppvextinum þar sem við lærum af
því að fylgjast með öðrum og í gegn-
um þeirra framkomu við okkur. Þar
geta fjölmargar góðar aðferðir og
lífsskoðanir leynst, en líka þær sem
mætti endurskoða og jafnvel henda.
Þess vegna er mikilvægt að vinna úr
því til þess að fara að sjá upp yfir
áhyggjurnar og fara að njóta alls þess
sem lífið hefur upp á að bjóða.
Það er alveg sama hvað það er, ef
við viljum breyta einhverju þá þurf-
um við að taka af skarið og gera eitt-
hvað til þess að breytingar geti átt
sér stað.“
Valdimar vísar í hvataráðgjafann
Jim Rohn. „Hann var vanur að segja
að ef við höldum áfram að gera það
sama og við höfum verið að gera, þá
eru allar líkur á því að við höldum
áfram að fá það sem við höfum verið
að fá. Það er mikið til í því. Ef það eru
einhver atriði sem eru að valda ein-
staklingum vanlíðan, eru þrálát eða
yfirþyrmandi, þá er um að gera að
taka skrefið og gera eitthvað nýtt.
Það getur verið að fara á námskeið, í
viðtalstíma eða einfaldlega að gera
eitthvað nýtt í lífinu. Mörgum þykir
erfitt að fara af stað, hafa jafnvel
reynslu af því að það hafi ekki gengið
áður eða óttast sársaukann við að
vinna í sér. Það er vel skiljanlegt. Það
er engu að síður oftast þannig að fólk
er ánægt þegar fram í sækir, þegar
það sér að einhverjar breytingar hafa
átt sér stað. Aðalatriðið er að taka
fyrsta skrefið,“ segir Valdimar að lok-
um.
Það er aldrei of
seint að læra nýja
hluti og fjölmargir
aldraðir koma í við-
töl og á námskeið.
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 MORGUNBLAÐIÐ 37
fyrir veturinn 2018 - 2019 stendur yfir
INNRITUN
Ungdeildir (8-15 ára)
Almennar söngdeildir
Háskóladeildir
Söngnámskeið
songskolinn@songskolinn.is
www.songskolinn.is
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
skólans, sími 552-7366 kl. 10-16 alla virka daga
SÖNGNÁM FYRIR ALLA