Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 37

Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 37
Fæstir eru að senda frá sér mynd af því þegar þeir detta í drullupoll eða eiga ömurlegan dag. Flottu mynd- irnar þjappast svo saman í símann í lófanum á okkur þar sem streyma inn myndir og myndbönd af öllu þessu glæsilega fólki sem virðist vera að upplifa stórkostlega hluti. Þá hættir mörgum til að finnast þeir lítils virði af því það er ekki það sama að gerast í þeirra lífi, þeir eru ekki með six- pack, ekki á flottum bíl, ekki að græða fullt af peningum eða útskrif- ast úr háskólanámi og eru ekki á ströndinni á Tenerife. Þetta veldur talsverðum áhyggjum hjá mörgum, bæði ungum og öldnum, sem getur leitt af sér depurð og vonleysi sem síðan hefur alvarlegri afleiðingar til langs tíma. Mikið ber á vandamálum tengdum þunglyndi og kvíða hjá ungu fólki, stjórnleysi á ýmsum svið- um svo sem tölvuleikjanotkun, lyfja- notkun, átröskunum, hárri tíðni ör- orku, brottfalli úr skólum og þeirri ömurlegu staðreynd að algengasta dánarorsök ungra manna eru sjálfs- víg. Það eru auðvitað fjölmargar or- sakir fyrir því hvernig fólki líður, uppvöxturinn, umhverfið, karakter- inn, líffræðilegir þættir og erfðir hafa allt sitt að segja. Þetta er allt áhuga- vert að skoða og mikilvægt að fara yf- ir alla mögulega þætti þegar ein- staklingar vilja ná breytingum í sínu lífi.“ Leiðir til að auka þroska Hvað getur þú sagt mér um nám- skeiðin sem eru haldin á ykkar veg- um í haust? „Hjá Fyrsta skrefinu eru fjölmörg námskeið á dagskrá næstu vikurnar, þar á meðal tvö sem eru ný. Lang- vinsælasta námskeiðið okkar heitir Meðvirkni og áföll í uppvextinum, en það fjallar um ýmsa þætti sem snúa að því hvernig við mótumst í uppvext- inum, hvaða atriði skipta mestu máli þegar kemur að því að við þróum heil- brigða sjálfsvirðingu og getum sett sjálfum okkur og öðrum eðlileg mörk. Þetta námskeið er þriggja klukku- stunda langt, öllum opið og stundum komast færri að en vilja. Annað nám- skeið sem vakið hefur talsverða at- hygli fjallar um ástarfíkn og óheil- brigð samskipti í samböndum en námskeiðið kallast Ástarfíkn og sam- bandsþrá og verður næst á dagskrá seinnipartinn í ágúst. Þetta námskeið höldum við saman, ég og Berglind og notum reynslu okkar á nokkuð hisp- urslausan hátt til þess að tengjast efninu. Á námskeiðinu er farið yfir hringrás sem margir þekkja úr sam- böndum sínum. Hringrásin hefst á því að mikil hrifning verður í upphafi sambands og annar aðilinn kemur svolítið eins og bjargvættur til leiks, á meðan hinn nýtur þess út í ystu æsar að falla í arma bjargvættarins, vill upplifa mikla nánd og tilfinningar. Þegar fram líða stundir kemur ákveð- ið ójafnvægi í ljós og annar aðili sam- bandsins fer að upplifa að maki hans sé ekki að sýna sambandinu nægan áhuga, virðist fjarlægur og taka aðra hluti fram yfir sambandið. þá byrjar mjög óþægileg atburðarás sem knúin er áfram af ótta við að verða hafnað þar sem annar aðilinn reynir hvað hann getur til að fá staðfestingu á sambandinu og meiri nálægð á meðan hinum finnst hann vera að kafna í sambandinu og þolir illa álagið. Við förum vel yfir þessa hringrás á nám- skeiðinu, hvað kemur henni af stað og hvernig hún þróast áfram, ásamt leið- um til að stíga út úr vítahringnum. Í ágúst verður tveggja daga nám- skeið eða öllu heldur meðferð í hönd- um Berglindar Magnúsdóttur. Með- ferðin kallast Intensive therapy – PIT og er lokað úrræði sem eingöngu er í boði fyrir fáa aðila sem þurfa að hafa lokið ákveðnu ferli áður en að meðferðinni kemur. Þetta úrræði hef- ur ekki verið í boði fyrr en nú þar sem allt meðferðarferlið fer fram á ís- lensku. Áður hafa erlendir PIT sér- fræðingar komið til landsins og haldið meðferð af þessu tagi með áhuga- verðum árangri. PIT stendur fyrir Post induction therapy meðferðarn- álgun sem er hönnuð til að meðhöndla áföll sem verða til í samskiptum í uppvexti og þeim áhrifum sem áföllin hafa á þroska einstaklinga á fullorð- insaldri, betur þekkt sem meðvirkni. Aðferðin er byggð á vinnu Piu Mel- lody sem þekktust er fyrir rann- sóknir sínar á meðvirkni og er aðferð- in grunnur að starfi hjá meðferð- arstofnuninni The Meadows í Bandaríkjunum. Meðferðarnálgunin byggir á sálgreiningu (e. psychoa- nalytic therapies), gestalt þerapíu (e. gestalt), fjölskyldukerfisfræði (e. fa- mily systems theory), tilfærslu í ald- urgreiningu sjálfsins (e. transactional analysis), tilfinningalegri meðferð- arnálgun (e. rational emotive the- rapy) ásamt því að styðjast við sið- ferðisþroskakenningu Eriks Erikson og mannúðarkenningu Carls Rogers. Meðferðin snýr að því að beita ein- staklings- og hópmeðferðarnálgun þar sem skjólstæðingurinn lærir að takast á við áföllin í uppvexti sínum og síðari birtingarmyndum í daglegu lífi. Námskeiðið í ágúst er fullbókað en reikna má með að næsta nám- skeið verði haldið í sept- ember eða október.“ Sáttari ungir menn Fyrsta september hefst nýtt námskeið sem heitir Sáttari ungir menn og er fyrir menn á aldrinum 20 til 30 ára. Námskeiðið á vel við í samfélaginu sem við búum í um þessar mundir. Hvað getur Valdimar sagt okkur um þetta námskeið? „Þetta er heilsdags námskeið, haldið á laugardegi og markmiðið er að efla sjálfstraust, styrkja sjálfs- myndina og finna sátt í eigin lífi. Námskeiðið er tilvalið fyrir alla unga menn sem eru að upplifa rótleysi og jafnvel áhugaleysi en langar að taka skrefið og skoða nýjar nálganir til þess að upplifa tilhlökkun og tilgang í sínu lífi. Þetta verður hvetjandi og skemmtilegt námskeið sem ég hlakka mikið til að taka þátt í. Nánar má lesa um námskeiðin og aðrar upplýsingar á heimasíðu okkar, www.fyrstaskre- fid.is.“ Valdimar segja marga aðila koma í einstaklings- og pararáðgjöf til þeirra hjóna. „Þannig gefst tækifæri til að skoða mál hvers og eins ofan í kjölinn. Námskeið eru hins vegar frábær af því þannig fær fólk almennt mikið af upplýsingum á skömmum tíma og geta því verið mjög hagnýt til þess að leggja grunn að næstu skrefum. Það er líka gott að upplifa hlutina saman, heyra mismunandi skoðanir og upp- lifa sig sem hluta af hóp. Eftir nokk- urra ára námskeiðs- og fyr- irlestrahald hefur safnast saman dýrmæt reynsla í gegnum upplifanir þátttakenda. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá í mörgum tilvikum að fylgja fólki áfram í kjölfar nám- skeiða, þar sem við fáum að sjá og heyra af þeim árangri og lífsbreyt- ingum sem fólk upplifir. Það er ekki alltaf þannig, sumir ná ekki þeim ár- angri sem þeir stefndu að og þurfa mögulega að skoða aðrar leiðir en þær sem við getum boðið upp á. Það er líka gefandi að geta tekið þátt í að vísa á aðra möguleika og reyna þann- ig að taka þátt í að bæta lífsgæði fólks. Margir hafa upplifað nýtt líf eftir að þeir skoða sjálfa sig nánar og opna fyrir nýjum upplýsingum og leiðum til þess að breyta til. Það er alltaf ánægjulegt að sjá. Stundum er sagt að við þroskumst með aldrinum. Ég held að það sé ekki endilega rétt, nema þá kannski á líkamlega sviðinu. Eina sem er öruggt er að við eldumst með aldrinum. Þroski á sér stað ef við teygjum vitsmunalega á okkur, höld- um áfram að skoða nýja hluti, læra og upplifa. Það er aldrei of seint að læra nýja hluti og fjölmargir aldraðir koma í viðtöl og á námskeið. Það er í raun sérstaklega gaman að spjalla við eldra fólk sem er búið að átta sig á að maður veit ekki allt, að maður hefur ekki alltaf rétt fyrir sér og að það er í lagi að umturna ákveðnum skoðunum sem hafa fylgt fólki í mörg ár. Slíkum samtölum fylgir gjarnan ákveðin ró og auðmýkt. Flestir sem koma í viðtöl eða á námskeið eru að leita leiða til þess að líf þeirra geti orðið betra á einhvern hátt, að styrkja sjálfsvirðinguna, að vera sterkari í samskiptum, að eiga innilegra samband við annað fólk, að fá stuðning á erfiðum tímum, að vinna úr áföllum, að geta sett öðrum mörk, að ná tökum á stjórnleysi, að finna til- gang í lífinu, að ná markmiðum sínum og þannig mætti lengi telja. Stundum eru skilaboðin til okkar að ef okkur líður ekki vel, þá er eitthvað að sem verður að laga. Það er ekki alltaf þannig, okkur líður allavega og það er fullkomlega eðlilegt að upplifa ótta, reiði, kvíða, sorg og aðrar óþægilegar tilfinningar þegar þannig stendur á. Það er engu að síður gott að hafa ein- hvern að tala við þegar erfiðar tilfinn- ingar banka upp á og sérstaklega ef þær hafa fylgt einstaklingum í langan tíma. Að sama skapi er mjög gott að fá ráðgjöf þegar maður telur sig á góðum stað en vill ná enn lengra, hvort sem það er í starfi, íþróttum eða hvað annað sem við sækjumst eft- ir. Í raun mætti segja að grunn- þörfum flestra í hinum vestræna heimi sé fullnægt, við getum flest sof- ið með þak yfir höfuðið, við fáum að borða nokkuð reglu- lega og eigum flíkur til að klæðast. Í dag eru þessi grunnatriði ekki endilega að veita okkur mikla ánægju, við tökum þeim jafn- vel sem sjálfsögðum hlut, atriði sem voru ekki svo sjálfsögð fyrir einungis fáum áratugum. Marg- ir leita því að vellíðan í öðrum hlutum og þar spila markaðsöflin stórt hlut- verk.“ Skilaboð Salomons konungs Valdimar segir að okkur sé sagt á hverjum degi hvað það sé sem muni veita okkur gleði og hamingju í lífinu. „Nýjar tilbúnar þarfir verða til og okkur fer að langa mikið í eitthvað sem áður var ekki nauðsynlegt. Þar með er áherslan færð frá þörfum yfir í langanir og margir verða fyrir von- brigðum með það, því það endist ekki. Salomon konungur ritaði um það hvað máli skipti í lífinu. Hann hafði eignast alla hluti sem hugurinn gat girnst, auðæfi, heilu hallirnar, land- svæði, þekkingu, vinnufólk og þjóna svo eitthvað sé nefnt. Hann ritaði raunaþungur um að allt slíkt væri hé- gómi, hlaup á eftir vindi. Það sem raunverulega veitti ánægju væri að setjast niður að loknu góðu dagsverki og njóta stundarinnar með sjálfum sér og öðrum. Abraham Maslow kom fram með þarfapíramída sem byggð- ist á fimm þrepum. Hann vildi meina að til þess að líða sem best þyrfti maðurinn að uppfylla meðfæddar grunnþarfir sem væru í raun lík- amlegar, að fá að borða, að eiga ein- hvers staðar heima, öryggi í verald- legum skilningi, að eiga góða að og að upplifa vináttu og virðing frá öðrum og virðingu fyrir sjálfum sér. Ef þess- um atriðum væri fullnægt vildi Mas- low meina að hægt væri að fara í efsta stig píramídans sem kallast sjálfs- birting, að vera besta eintakið að sjálfum sér. Það er erfitt að segja hvað nákvæmlega skiptir mestu máli og við erum misjöfn eins og við erum mörg. Það virðist samt vera að ein- faldleikinn haldi alltaf velli á end- anum, og að því leytinu til er áhuga- vert að skoða hvað Maslow hafði að segja. Ef við sinnum okkur, heilsunni, hugum að mataræði, svefni og hreyf- ingu þá er strax miklu komið til leið- ar. Að vera í félagslegum tengslum, eiga góða vini og upplifa kærleika í nánum samböndum hlýjar okkur um hjartarætur. Ef við berum svo gæfu til að hafa frelsi og hugrekki til að finna þá góðu eiginleika sem í okkur búa og getum notið þess að fá útrás fyrir þá, þá eru talsverðar líkur á að við séum hamingjusöm. Fyrirstaðan er fyrst og fremst í huganum okkar, við erum með ýmsar hugmyndir um okkur sjálf og lífið í heild, sem geta verið að vinna gegn okkur og halda okkur uppteknum í ótta og óöryggi. Þessar hugmyndir eru mjög iðulega komnar frá fyrstu tíð, það er að segja úr uppvextinum þar sem við lærum af því að fylgjast með öðrum og í gegn- um þeirra framkomu við okkur. Þar geta fjölmargar góðar aðferðir og lífsskoðanir leynst, en líka þær sem mætti endurskoða og jafnvel henda. Þess vegna er mikilvægt að vinna úr því til þess að fara að sjá upp yfir áhyggjurnar og fara að njóta alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Það er alveg sama hvað það er, ef við viljum breyta einhverju þá þurf- um við að taka af skarið og gera eitt- hvað til þess að breytingar geti átt sér stað.“ Valdimar vísar í hvataráðgjafann Jim Rohn. „Hann var vanur að segja að ef við höldum áfram að gera það sama og við höfum verið að gera, þá eru allar líkur á því að við höldum áfram að fá það sem við höfum verið að fá. Það er mikið til í því. Ef það eru einhver atriði sem eru að valda ein- staklingum vanlíðan, eru þrálát eða yfirþyrmandi, þá er um að gera að taka skrefið og gera eitthvað nýtt. Það getur verið að fara á námskeið, í viðtalstíma eða einfaldlega að gera eitthvað nýtt í lífinu. Mörgum þykir erfitt að fara af stað, hafa jafnvel reynslu af því að það hafi ekki gengið áður eða óttast sársaukann við að vinna í sér. Það er vel skiljanlegt. Það er engu að síður oftast þannig að fólk er ánægt þegar fram í sækir, þegar það sér að einhverjar breytingar hafa átt sér stað. Aðalatriðið er að taka fyrsta skrefið,“ segir Valdimar að lok- um. Það er aldrei of seint að læra nýja hluti og fjölmargir aldraðir koma í við- töl og á námskeið. FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 MORGUNBLAÐIÐ 37 fyrir veturinn 2018 - 2019 stendur yfir INNRITUN Ungdeildir (8-15 ára) Almennar söngdeildir Háskóladeildir Söngnámskeið songskolinn@songskolinn.is www.songskolinn.is Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans, sími 552-7366 kl. 10-16 alla virka daga SÖNGNÁM FYRIR ALLA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.