Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018
Þín leið
til fræðslu
Sveitamennt styrkir starfsmenntun beint til sveitafélaga
og stofnana þeirra á landsbyggðinni.
Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum
stéttarfélaganna.
Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin
um afgreiðslu þeirra í umboði Sveitamenntar.
Kynntu þér rétt þinn á www.sveitamennt.is
Sveitamennt
Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • sveitamennt@sveitamennt.is
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Á
relía skrifar um það sem
henni býr í brjósti hverju
sinni. Bókin hennar
„Sterkari í seinni hálf-
leik“ sló rækilega í gegn
hjá landsmönnum.
Lífsgleði Árelíu er smitandi. Hún
hlær, er opin og einlæg. Það er á
hreinu að þessi kona hefur fundið
sinn innri styrk í breytingum.
„Ég er bara venjuleg húsmóðir í
Vesturbænum. Ég á þrjú börn og
bíl. Er einhleyp sjálfstæð kona sem
hefur gaman af líf-
inu.“
Horfði á eftir fólk-
inu á 1. farrými
Árelía segist reyna
að njóta lífsins út í
ystu æsar, hvað sem
það færir henni.
Hvað ertu að
vinna að um þessar
mundir?
„Ég er að vinna í skrifum, svo er
ég að kenna í MBA náminu í Við-
skiptafræðideild háskólans og að
undirbúa mig fyrir kennslu í meist-
aráminu fyrir haustið. Auk þess er
ég að vinna í að uppfæra í Árelía
2018.“
Um tildrög uppfærslunnar segir
hún. „Ég var á ferðalagi í vetur. Á
leiðinni heim þegar það var kallað
út í vélina og fólk á fyrsta farrými
var beðið að fara um borð.
Þar sem ég sat og horfði á eftir
fólkinu ganga inn í flugvélina flaug
í gegnum huga minn spurningin:
Hvað þyrfti ég að gera til að vera á
fyrsta farrými í lífinu?“ Árelía tek-
ur fram að þá meini hún allt lífið.
„Ég hugsaði með mér að öll
snjalltækin sem við eigum þurfa
stöðuga uppfærslu. Síminn þarf
reglulega uppfærslu, tölvan mín
líka.“ Þannig leiddi eitt af öðru og
Árelía fékk góða hugmynd.
„Mér fannst blasa við á þessari
stundu að auðvitað þyrfti ég upp-
færslu líka. Á þessum
tímapunkti ákvað ég
að hrinda í fram-
kvæmd uppfærslunni
á Árelíu 2018.“
Til að njóta
lífsins betur
Hvernig fórstu í gegn-
um uppfærsluna?
„Ég byrjaði ferlið á
að hugsa út í alla þætti sem mögu-
lega væri áhugavert að uppfæra.
Ég horfði á líkama minn, andlegt
líf, tilfinningar mínar og þekkingu.
Ég velti fyrir mér hugmyndum
mínum um mig. Bar þetta allt sam-
an við nýjustu tækni, hvernig sá
iðnaður skoðar stöðugt hvernig
hægt er að nota tæknina betur til
að auðvelda okkur lífið. Auðvitað
komst ég að því að það er heil-
margt sem ég get gert til að nýta
líf mitt betur svo ég setti í fram-
kvæmd áætlun sem miðaði að því.“
Árelía segist hafa byrjað á heim-
ilinu. Hún flokkaði, losaði sig við
dót, raðaði upp á nýtt og end-
urskipulagði þannig að heimilið
nýttist nýjum lífsstíl hennar betur;
lífsstíl konu sem vill láta tímann
vinna fyrir sig en ekki öfugt. „Ég
gerði það sama með sálfræðingi,
næringarfræðingi og svo mætti
lengi áfram telja. Í raun má segja
að ég hafi breytt svo miklu að und-
anförnu að það eina sem ég á
ennþá eru börnin mín og já vinnan,
vinirnir og fjölskyldan,“ segir hún
og skellihlær.
Árelía er með smitandi hlátur og
lífsorka hennar er svo mögnuð að
mann langar að tappa henni á
flöskur og koma á alla landsmenn.
Hún segir nýjan lífsstíl í fyrstu
hafa verið eins og þegar maður er
með nýja uppfærslu í snjalltækinu.
„Maður þarf smávegis tíma að
venja sig við. Í fyrstu leikur allt á
reiðiskjálfi, líkt og þegar maður
uppfærir símann sinn og týnir
Árelía 2018; ný uppfærsla
til að nýta lífið betur
Árelía Eydís Guðmundsdóttir er ein lífsglaðasta
kona landsins. Hún starfar sem dósent við Við-
skiptadeild Háskóla Íslands en er einnig farsæll rit-
höfundur og sjálfstæð þriggja barna móðir í Vest-
urbænum. Hún segir að ný uppfærsla á Árelíu sé
nauðsynleg svo hún geti notið alls þess sem lífið
hefur upp á að bjóða.
Morgunblaðið/Valli
Lífsgleði og jákvæðni Árelíu þyrfti að tappa á flöskur og selja víðsvegar um heim.
Árelía segist reyna
að vera lífskúnstner.
Hún sé harðdugleg
kona, með öllum
þeim kostum og göll-
um sem því fylgir