Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 31

Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 31
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 MORGUNBLAÐIÐ 31 Klassíski listdansskólinn býður upp á fjölbreytt nám í klassískum ballet og nútíma/samtímadansi frá 3. ára aldri. Innritun er hafin á www.ballet.is. Kennsla fer fram við Álfabakka 14a og Grensásveg 14. Inntökupróf fyrir framhaldsbraut 16 ára og eldri verður haldið 21. ágúst kl. 17:00. Nánari upplýsingar hjá info@ballet.is og í síma 534 9030. Klassíski listdansskólinn Elínrós Líndal elinros@mbl.is E rla Ara, eins og hún er vana- lega kölluð, er með fram- haldsskólaréttindi sem enskukennari og er með meistaragráðu í ensku- kennslu fyrir útlendinga frá The Uni- versity of East Anglia. Hún hefur kennt ensku í grunnskóla, framhalds- skóla og fullorðinsfræðslu. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi Spurð um skólann Enska fyrir alla segir hún: „Við bjóðum upp á níu vikna nám- skeið í Hafnarfirði. Þau eru fyrir 35 ára og eldri og hefjast í september ár hvert og síðan aftur í janúar. Í boði eru 10 getustig, frá byrjendum upp í framhaldshópa, og er lögð áhersla á tal í öllum hópum. Einnig er lögð áhersla á að þjálfa les- skilning og fylgir hljóðdiskur öllu les- efni. Á sumrin stendur nemendum til boða að fara í námsferð til Englands. Nemendur stunda þá enskunám í tvær vikur í Kent School of English auk þess sem þeir njóta þess að kynn- ast enskri menningu. Boðið er upp á dagsferðir til Cambridge og Canter- bury og einnig er enska sveitin heim- sótt sem rómuð er fyrir sín fallegu sveitaþorp og kastala,“ segir hún. „Við förum einnig í göngutúra með- fram fallegri klettaströndinni, kíkjum við á krám og kaffihúsum þar sem við gæðum okkur á English Cream Tea.“ Ferðalög fyrir unga fólkið Þess fyrir utan eru námsferðir fyrir 13-16 ára og í því tilfelli er um að ræða unglinga alls staðar að af Ís- landi sem halda utan í tveggja vikna námsferð til Broadstairs, þar sem þeir stunda nám í Kent School of English með hóp unglinga sem koma víða að úr Evrópu. „Skólinn hefur staðið fyrir námsferðum nemenda vítt og breitt um England og komið víða við á ferðalögum um landið. Á vegum skólans hafa rúmlega eitt þús- und manns farið til enskunáms í Eng- landi.“ Kennsla í blóð borin Spurð um áhuga hennar á kennslu segir Erla: „Kennsla virðist vera mér í blóð borin því ég hef unnið við kennslu í fjörutíu ár og notið þess að kenna á nær öllum aldursstigum auk þess sem ég hef haft yndi af því að stofna minn eigin skóla. Í skólann sækja tæplega tvöhundruð nemendur á hverri önn, 95% af þeim eru konur, meðalaldur í kringum 50 ára og bak- grunnur þeirra ólíkur. Þau koma úr hinum ýmsu starfsstéttum og hafa allt frá grunnskóla- upp í háskóla- menntun að baki. Þau koma flest frá höfuðborgarsvæðinu en þó nokkuð margir koma frá Selfossi, Hvera- gerði, Akranesi, Suðurnesjum og allt- af einn eða tveir sem koma lengra að eins og til dæmis frá Borgarnesi, Stykkishólmi og Ólafsvík.“ Að taka sig ekki of hátíðlega Erla segir að ekkert gleðji hana meira en að heyra frá nemendum sem oft og tíðum hafa haft löngun lengi til að koma og í skólann. „Ég legg ríka áherslu á að nem- endur séu í hópi við hæfi og reyni að efla sjálfstraust þeirra, að þeim líði vel, taki sig ekki of hátíðlega, sætti sig við að gera mistök og hafi gaman að því að læra. Allir geta lært, bara mishratt,“ segir hún að lokum. Allir geta lært nýja hluti Erla Aradóttir hefur starfað sem kennari í yf- ir 40 ár. Hún stofnaði árið 1993 skólann Enska fyrir alla og leggur metnað sinn í að færa landsmönnum þá þekk- ingu sem þeir vilja öðl- ast á enskri tungu. Ljósmynd/Aðsend Að heimsækja ensku sveitina er mögnuð upplifun. Þannig getur tungumálanámið verið lifandi og skemmtilegt. Erla Ara er kennari af lif og sál. Hún segir að allir geti lært tungumál á sínum hraða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.