Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
H
áskólamenntun mín,
starfsnám mitt við
bandaríska fjölmiðla-
samsteypu, bækurnar
sem ég hef skrifað og
reynslan af að taka viðtöl í beinum
útsendingum árum saman small
saman í einn punkt og leiddi mig í
þetta starf sem er að efla fólk og
þjálfa í samskiptafærni. Oftast eru
þetta lokuð námskeið innan stofn-
ana eða fyrirtækja. En svo eru ým-
is styttri námskeið í símenntun sem
eru opin mörgum. Ég starfa sjálf-
stætt og í samstarfi við Háskólann
á Bifröst. Það hentar mér vel að
reka mig sem fyrirtæki og koma
með sérsniðin námskeið á ólíka
vinnustaði,“ segir Sirrý og heldur
áfram.
Hagnýt námskeið í framkomu
„Ég hef kennt við allar deildir Há-
skólans á Bifröst í 8 ár. Byrjaði að
þjálfa laganema í að halda ræður og
koma fram í fjölmiðlum og á fund-
um. Svo hefur þetta vaxið og þróast
og ég kenni núna við allar deildir.“
Sirrý segist njóta þess að kenna
líka við styttri námslínur, en sí-
menntun er öflug á Bifröst. „Ég
kem til dæmis með þjálfun inn í
námskeiðin „Máttur kvenna“ og
„Rödd byggðarlagsins“.
Hvað getur þú sagt mér um þessi
námskeið?
„Þetta eru annars vegar hagnýt
námskeið fyrir konur á tímamótum
sem margar reka fyrirtæki eða
stefna að því og vilja efla sig á
rekstrarsviðinu. Og svo hins vegar
námskeið fyrir fólk í ferðaþjónustu
sem vill taka á móti ferðamönnum af
öryggi og efla framkomu og sam-
skiptafærni sína enn frekar.“
Hvernig fólk sérðu fyrir þér að
hafi not/ánægju af námskeiðunum?
„Flestallir. Því það er sama
hversu góð við erum til dæmis í
reikningi, fær í tölvum, vel lesin,
vöðvastælt og svo mætti lengi áfram
telja. Það er ekki nóg ef við erum
ekki fær í mannlegum samskiptum.
Við þurfum öll að eiga í beinum per-
sónulegum samskiptum við fólk.
Konur sem ætla að stofna fyr-
irtæki þurfa að geta kynnt fyr-
irtækið og tjáð sig af öryggi við við-
skiptavini og fjárfesta. Þar kemur
námskeiðið „Máttur kvenna“ sér vel.
Eins þeir sem starfa í ferðaþjón-
ustu verða að geta talað við við-
skiptavini, komið vel fyrir, verið
skýrmæltir, hlustað og sagt frá.
Stutta námskeiðið „Rödd byggð-
arlagsins“ fjallar um þetta.
Viðskiptahugmyndir, heimasíður,
samskiptamiðlar, allt skiptir þetta
gríðarlegu máli en það er fátt sem er
mikilvægara en góð mannleg sam-
skipti.“
Máttur kvenna mikilvægur
Hvert er megininntak námskeiðsins
og hvernig er kennt?
„Máttur kvenna er 11 vikna nám
fyrir konur sem vilja öðlast þekk-
ingu og færni í rekstri fyrirtækja.
Kennsla fer fram í fjarnámi og geta
nemendur hlustað á fyrirlestra á
netinu og unnið verkefnin hvenær
sem þeim hentar. Þar að auki eru
kennslustundir á vinnulotum þar
sem lögð er áhersla á hópavinnu
nemenda. Vinnuhelgi er í upphafi og
um miðbik námsins en náminu lýkur
með formlegri útskrift. Það myndast
mjög skemmtileg stemning á vinnu-
helgum enda koma konur víða að af
landinu og eru fegnar að geta borið
saman bækur sínar og hjálpast að
við námið.
Þetta hefur verið vinsælt nám í
mörg ár en er í stöðugri þróun.
„Máttur kvenna“ er nú skipulagt
með nýju sniði. Nýnæmið felst fyrst
og fremst í því að nú verður enn
meiri áhersla lögð á hagnýtingu
námsins, auk þess sem vinsæl nám-
skeið eins og „Framsækni og örugg
tjáning“ sem ég er með og fræðsla
um nýsköpun og frumkvöðla munu
fá aukið vægi í vetur. Jafnframt
verða ný fög kennd eins og stofnun
fyrirtækja og rekstrarform. Þá hef-
ur einnig verið bætt við vinnuhelgi
um miðbik námsins. Nýtt námskeið
hefst 7. september 2018 og er skrán-
ing í gangi. Fyrir skipulagðar konur
er sjálfsagt að taka fram að vinnu-
helgarnar verða 7.-8. september og
6.-7. október 2018. Gisting er í boði á
Bifröst og eftir kennsludagana er
farið í heita pottinn, út í náttúruna,
borðað í arinstofunni á Bifröst og
mikið spjallað.
Mitt innlegg er í byrjun nám-
skeiðsins til að þétta hópinn, efla og
hvetja konur sem eru að fara langt
út fyrir sinn þægindahring. Ég
byggi þetta upp á fyrirlestrum, um-
ræðum og hópverkefnum. En það að
spjalla saman yfir góðum mat er líka
mikilvægur partur af þessu.“
En hitt námskeiðið: Rödd byggð-
arlagsins?
„Það er stutt og hagnýtt nám-
skeið fyrir fólk í ferðaþjónustu sem
þarf starfs síns vegna að koma fram
og vera í samskiptum við við-
skiptavini. Þarf að geta tekið á móti
fólki, sagt frá, náð athygli og látið
rödd sína hljóma.
Á námskeiðinu verður farið í eft-
irfarandi þætti: Örugg tjáning, Sam-
skiptafærni, Örugg framkoma, Að
koma vöru/þjónustu á framfæri og
ná til fólks.
Fyrirkomulag er þannig að nám-
skeiðið er 6 klst. Og er pantað hjá
Háskólanum á Bifröst. “
Lærdómur heldur manni ferskum
Hvað er að þínu mati áhugaverðast
við að vera alltaf að bæta við sig
þekkingu?
„Það heldur manni ferskum og
meira lifandi að lesa, læra og hugsa
eitthvað nýtt. Einnig að kynnast
nýju fólki sem er samferða í áhuga-
verðu námi. Slíkt getur verið víta-
mínsprauta fyrir tengslanetið og
sálina.“
Telur þú fólk geta lært á öllum
aldri?
„Já, ég veit það. Eftir að hafa
þjálfað fólk á öllum aldri á ýmsum
námskeiðum er ég sannfærð um að
besta útkoman fæst þegar fólk á
ólíkum aldri kemur saman og lærir
hvað af öðru. Öflugustu hóparnir
sem ég kenni eru samsettir af fólki á
ólíkum aldri og úr ólíkum áttum. Þá
er mest gaman. Hver og einn hefur
einhverju einstöku að miðla. Þrátt
fyrir að ungt fólk sé oft fljótara að
tileinka sér tækninýjungar þá er
eldra fólk oft sterkara í einhverju
öðru sem kallar á reynslu.“
Konur í fjölmiðlum
Nú hefur þú bæði mikla reynslu af
að taka viðtöl og ert með námskeið í
fjölmiðlafærni. Eru konur tregari til
að koma fram í fjölmiðlum en karl-
ar?
„Það er nú mismunandi eftir
starfsgreinum, fjölmiðlinum sjálfum
og málefnum.
Margar konur í dag eru vel
menntaðar, færar í sínu starfi og
koma fram í fjölmiðlum af mikilli
fagmennsku og öryggi. Samt halda
frambærilegustu konur oft að þær
séu ekki nóg og aðrir séu betur til
þess fallnir að fara í viðtöl. Það þarf
oft bara að benda þeim á hvað þær
gera þetta vel, sannfæra þær um að
þær séu alveg með þetta. Svo má
gefa þeim nokkur hagnýt ráð og oft
er mjög gagnlegt að opna á umræðu
um sviðsskrekk, frammistöðukvíða,
reynslu af fjölmiðlaviðtölum og við
það vex samkennd og sjálfsöryggi.
Það sama má reyndar alveg segja
um karlana. Þeir hafa líka gott og
gaman af að fá hagnýt ráð, umræðu
og hvatningu.
Viðtöl í fjölmiðlum eru oft stutt en
áberandi og mikilvægt að nota tæki-
færið vel.“
Hvað einkennir góðan stjórnanda
að þínu mati?
„Mér finnst mikilvægt að stjórn-
endur tjái sig af öryggi og í því felst
ekki síst að hlusta á aðra. Góður
stjórnandi þarf að hvíla svo vel í
sjálfum sér að hann geti bæði komið
með skýr skilaboð og hlustað á sjón-
armið starfsfólks. Öruggur stjórn-
andi talar minna og hlustar meira og
leyfir öðrum að blómstra. Starfsfólk
þarf að fá að tjá sig um hlutina og
hafa áhrif á starfsumhverfi sitt. Það
heftir sköpun og vinnugleði að vera í
umhverfi þar sem umræða er lítil og
allt skotið í kaf eða gagnrýnt. Ég
trúi því að kulnun í starfi sé alveg
örugglega oft tilkomin vegna þess að
starfsfólk fær ekki að vera skapandi,
fær ekki að tjá sig og hefur of lítil
áhrif á starfið sitt.“
Fjölskyldan í fyrsta sæti
Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu?
„Fjölskyldan mín skiptir mig
mestu máli. Síðan það að fá að
skapa, miðla og gefa af mér með
áhugaverðu fólki,“ segir Sirrý og
bætir við: „Ég hef mikið að þakka
fyrir. Hef verið mjög lánsöm í einka-
lífi mínu og er núna að byrja að
skrifa nýja bók og fæ að vinna að því
verkefni með áhugaverðu fólki.
Þetta er mikilvægast fyrir mig.“
Morgunblaðið/Golli
Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona er sérfræðingur í að koma fram í fjölmiðlum. Hún miðlar þessari þekkingu áfram til þeirra sem vilja efla sig á því sviði.
Góður stjórnandi
þarf að tjá sig af öryggi
Sirrý Arnardóttir er stjórnendaþjálfari sem á að baki 30 ára farsælan feril sem fjölmiðlakona. Sirrý stjórnaði vinsælum þáttum í
beinum útsendingum í sjónvarpi og útvarpi um árabil og ritstýrði tímariti. Á 30 ára starfsafmæli sínu sem fjölmiðlakona ákvað hún
að hætta og snúa sér alfarið að því að þjálfa fólk í öruggri tjáningu og að koma fram í fjölmiðlum.
storkurinn.is
storkurinn@storkurinn.is
• Prjóntækni •
• Byrjendaprjón •
• Sjalaprjón •
• Hekltækni •
• Leikfangahekl •
• Útsaumur •
o.fl.
NÁMSKEIÐ
STORKSINS