Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 19
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 MORGUNBLAÐIÐ 19
Er kominn tími til
að gera eitthvað?
Styrkleikar og núvitund
Færni í núvitund og aukin þekking á eigin styrkleikum stuðlar að vellíðan og sátt
með lífið.
Bókfærsla og tölvubókhald
Þátttakendur læra færslu bókhalds frá grunni og því ekki gert ráð fyrir forþekkingu
og námskeiðið nýtist einnig þeim sem hafa ákveðinn grunn fyrir.
Í fókus
Markmið námskeiðsins er að fræðast um hvernig ADHD hefur áhrif á líf okkar, og
hvernig við getum náð stjórn á lífi okkar og byggt upp sjálfsmyndina. Við tökum
skref í þessa átt á námskeiðinu.
ÚFF - Úr frestun í framkvæmd
Farið yfir ástæður frestunar, einkenni og afleiðingar. Fyrir þá sem vilja hætta að
fresta og fara að ná árangri í lífinu.
Tölvur
Markmið námskeiðsins er að efla færni þátttakenda í undirstöðuatriðum tölvu-
notkunar til undirbúnings námi í skólanum eða til eigin nota.
Aukin vellíðan
Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu þátttakenda á leiðum til þess
að auka andlega vellíðan og efla andlega heilsu og auka færni þeirra í að nota
þessar aðferðir í daglegu lífi.
Einkenni og afleiðingar meðvirkni
Tilgangur námskeiðsins er að fræðast um einkenni meðvirkni og afleiðingar.
Þátttakendum gefst kostur á að skoða eigin meðvirkni í einkaviðtali síðasta dag
námskeiðsins.
Næstu námskeið í boði hjá Hringsjá
Ég heiti Freyr
Jóhannsson.
Ég er rekstarstjóri
Hamborgarabúllu
Tómasar í Hafnar-
firði. Ég var nemandi
í Hringsjá náms-
og starfsendurhæfingu.
„Hringsjá gaf mér ómælda trú á
sjálfan mig og hjálpaði mér að sjá
hvað í mér býr“.
Hringsjá býður úrval af
öðruvísi og spennandi
námskeiðum sem hafa
hjálpað mörgum að
komast aftur eða í
fyrsta sinn af stað til
meiri virkni, meiri lífs-
gæða og fleiri valkosta
í námi eða starfi.
Ertu skapandi og handlagin/n og
langar að vaxa á því sviðinu? Langar
þig að geta framkvæmt hugmyndir
þínar og verið sjálfbær? Ef svo er þá
eru námskeiðin hjá Handverksskól-
anum eitthvað fyrir þig. Þar getur
þú til dæmis lært húsgagnasmíði,
silfursmíði og að búa til glerlistaverk
svo eitthvað sé nefnt.
Á námskeiðinu Húsgagnasmíði 1
læra nemendur að nota hand-
verkfæri við fínsmíði á ýmsum hlut-
um, s.s. húsgögnum og nytjahlutum.
Frá grunni læra þátttakendur að
smíða verkfærakistu (eða annan
kassa með haldi) úr efniviði sem hef-
ur þegar verið sniðinn til.
Kúnstin er að læra að mæla, saga
og hefla með ýmsum verkfærum
sem henta hverju sinni og setja sam-
an vandaðan kassa.
Samsetning byggi á geirneglingu
en ekkert lím er notað við samsetn-
ingu verkefnisins né skrúfur eða
naglar.
Mjög skemmtilegt námskeið fyrir
áhugasama því þeir kynnast mörg-
um hliðum á smíði með fjölbreyttum
vönduðum handverkfærum í góðu
umhverfi.
Kennarinn kryddar mjög efnið
með þekkingu sinni og fjölda þátt-
takenda er stillt í hóf og hver hefur
sína vinnuaðstöðu/hefilbekk fyrir sig
allan tímann.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er
Guðmundur „Muggi“ Stefánsson.
Námskeiðið stendur yfir í fjögur
kvöld í fjóra klukkutíma í senn. Nán-
ari upplýsingar á www.handverks-
husid.is
Langar þig
að búa til
þín eigin
húsgögn?
Dreymir þig um að geta smíðað eigin
húsgögn? Þá er þetta námskeið eitt-
hvað fyrir þig.
Námskeiðin hjá Handverkshúsinu eru
ákaflega vinsæl.
Það er valdeflandi að
vera sjálfbær. Nám-
skeiðin hjá Hand-
verkshúsinu hjálpa
fólki að láta drauma
sína rætast.