Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 38

Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 OPIÐ fyrir umsóknir Lingó er vottaður umboðsaðili á Íslandi fyrir alþjóðlega fagháskóla á Englandi, Skotlandi, Þýskalandi, Ítalíu, Spáni, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Kanada og í Bandaríkjunum. Nám í slíkum skóla er einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti hug- mynda, stefnum og straumum víða að úr heiminum. Aðstaða og umhverfi er eins og best gerist og kennarar eru reyndir fagmenn og sérfræðingar. Nám erlendis í hönnun, miðlun, sjónlistum, stjórnun, sviðslistum, tísku, ferðaþjónustu eða viðskiptum, opnar einnig möguleika á að hitta „rétta“ fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði. Háskólanám erlendis á sviði skapandi greina Nám erlendis opnar þér nýjan heim, að heiman. Einnig bjóðum við námskeið á meist- arastigi í samstarfi við deildir Háskólans auk styttri námskeiða á ýmsum sviðum.“ Af hverju finnst þér að fólk eigi að leggja vinnu í að efla sig og læra stöðugt eitthvað nýtt? „Fjórða iðnbyltingin er skollin á, sem hefur þegar mikil áhrif á störf fólks og við þurfum öll að halda vel á spöðunum til að sitja hrein- lega ekki eftir.“ Vinnustofa fyrir þá sem sinna fjölskyldum Elín segir að eitt af því sem háskólinn bjóði upp á sé spennandi vinnustofa í fjölskyldu- hjúkrun í byrjun október. „Vinnustofan er með helstu sérfræðingum á því sviði hvað varðar þekkingu, rannsóknir og reynslu, þeim dr. Janice M. Bell og dr. Lorraine M. Wright. Þær Lorraine og Janice hafa þróað Elínrós Líndal elinros@mbl.is S purð hvað hún leitist við að gera í starfinu á degi hverjum segir Elín: „Við í Símenntun HA leggjum okkur fram um að vera með puttana á púlsinum og taka mið af þörfum og óskum samfélagsins um framboð á nám- skeiðum fyrir sem flesta.“ Fjölbreytt nám með starfi Við erum með nám með starfi eins og leiðsög- unám sem hefst í byrjun september og enn er mögulegt að komast að í því. Svo rekum við stjórnendaskóla (stjornendanam.is) í sam- starfi við Samband stjórnendafélaga og Sam- tök atvinnulífsins, nám sem kennt er í gegn- um netið. líkön í fjölskylduhjúkrun sem þýdd hafa verið á mörg tungumál: Calgary Family Assessment Mod- el (CFAM) and Calgary Family Intervention Mod- el (CFIM). Einnig hafa þær skrifað fjölda bóka og greina og eru þær eftirsóttir kennarar og leiðbeinendur víða um heim. Það mikill fengur að fá þær hingað í Háskólann á Ak- ureyri.“ Her er markhópurinn fyrir vinnustofuna? „Það eru allir sem koma að málefnum fjöl- skyldna. Aukin þekking er nauðsynleg til að mæta þörfum fjölskyldna sem glíma við flók- inn heilsufarsvanda. Dæmin sýna að fjöl- skyldur þurfa að læra að takast á við fjöl- þættan heilsufarsvanda því heilbrigðiskerfið hefur ekki bol- magn til þess eitt og sér.“ Hver er nýjasta stefna og straumar í því sem þú sérhæfir þig í? „Ég legg áherslu á flatan „stjórn- unarstrúktúr“ þar sem hver og einn fær að njóta sín til fulls. Ég vona að það nýtist til að sem flestir finni sig velkomna í skólann til okkar.“ Ljósmynd/Thinkstockphotos Fjórða iðnbyltingin er hafin Elín Hallgrímsdóttir er hjúkr- unarfræðingur að mennt með stjórnunarmenntun. Hún leiðir deildina sína með það að leiðarljósi að fólki finnist það velkomið í meira nám. Í miðri iðnbyltingu er nauðsynlegt að starfsmenn öðlist þekkingu í takt við tæknina. Fjölskyldan er í fyrirrúmi í einu af námskeiðunum hjá HA. Elín Hallgrímsdóttir, símenntunarstjóri Háskólans á Akureyri, segir að í miðri 4. iðnbyltingu sé mikilvægt að læra stöðugt nýja hluti svo við sitjum ekki eftir með úrelta þekkingu. Lífsgæðadagbók Heilsufélagsins er ætluð til að hjálpa þér að hámarka lífsgæði þín og þar með hamingju og árangur á hverjum degi. Bókin er gefin út í þeirri trú að hver dagur hafi þann megintilgang að auka styrk þinn og hugrekki til að lifa lífinu til hins ýtr- asta í stað þess að vera í kapphlaupi við tímann til þess að ná markmiðum sem eru í fjarlægri framtíð. Aðferðin sem þú lærir með því að nota bókina er ofureinföld en mjög árangursrík. 1. Að rækta samband þitt við sjálfa(n) þig. Þú gefur þér tíma til að skrifa niður hugleiðingar þínar um lífið og tilveruna og styrkja þannig tengslin við langanir þínar, þrár og tilfinningar. 2. Að setja í forgang það sem þér finnst nærandi og skemmtilegt. Þú gefur þér tíma til að skrifa niður það sem þig langar mest að gera og færa þannig áherslurnar frá því sem þú þarft að gera yfir á það sem þig langar mest að gera hvern dag. 3. Að takmarka verkefni sem eru nauðsynleg en ekki nærandi. Þú skrifar niður það sem þú verður að gera en takmarkar þau verkefni þannig að þau séu ekki of mörg og gangi ekki um of á orku þína. 4. Að forgangsraða í þágu lífs- gæða og hamingju. Þú forgangs- raðar verkefnum með það að mark- miði að hámarka nærandi verkefni en lágmarka þau sem eru það ekki. Lífsgæðadagbókin hjálpar þér að koma meiri reglu á hlutina og fá þig til að hugsa um hvað þú vilt fá út úr lífinu. Viltu meiri lífsgæði?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.