Fréttablaðið - 20.10.2018, Blaðsíða 8
30,4-19%37,7 4,6
-38%
7,4
10
8
6
4
2
0
10,7
2,2
-80%
✿ Hagnaður (ma.kr.) ✿ Heildartekjur (ma.kr.) ✿ EBITDA (ma.kr.)
VEIðIgjölD Bæjarstjórn Bolungar-
víkur lýsir yfir áhyggjum af áhrifum
veiðigjalda á útgerðir í landsfjórð-
ungnum og telur margar litlar og
meðalstórar útgerðir í verulegum
vandræðum nú þegar. Áhrif auk-
inna veiðigjalda munu leiða til
fækkunar starfa, minni veltu og
samdráttar atvinnulífs á svæðinu
að hennar mati.
„Á síðasta ári greiddu bolvískar
útgerðir yfir 300 milljónir króna
í veiðigjöld og þrefölduðust þau
frá fyrra ári. Þetta hefur sérstak-
lega slæm áhrif á útgerðir sem ein-
göngu mega stunda krókaveiðar, en
rekstrargrundvöllur þeirra er annar
en útgerða sem stunda til að mynda
togveiðar,“ segir í umsögn Bolungar-
víkur um nýtt frumvarp Kristjáns
Þórs Júlíussonar um veiðigjöld.
Bæjarstjórn Bolungarvíkur ótt-
ast að tugir starfa muni tapast í
Bolungarvík á næstu misserum og
skorar bæjarstjórn á yfirvöld að
veiðigjöld endurspegli afkomu í
greininni og tryggi að gjöld leiði
ekki til samþjöppunar. Einnig að
horft verði sérstaklega til minni og
meðalstórra útgerða.
Afkoma félaga í botnfiskútgerð og
vinnslu á Norðurlandi vestra versn-
ar hlutfallslega meira en á landinu
öllu. Þetta kemur fram í samantekt
Deloitte um sjávarútveg í Norð-
vesturkjördæmi sem gerð var fyrir
sveitarfélögin á svæðinu. Afkoman
versnar bæði í útgerð og vinnslu.
„Tekjur í sjávarútvegi í Norð-
vesturkjördæmi drógust saman um
19 prósent á milli áranna 2016 og
2017. Kostnaður lækkaði jafnframt
nokkuð en hlutfallsleg EBITDA
lækkun var þó umtalsverð, eða 38
prósent. Samanlögð EBITDA þeirra
40 félaga sem skoðuð voru nam
4,6 milljörðum árið 2017,“ segir í
skýrslu Deloitte.
Á því tímabili sem var til skoðun-
ar þróuðust ytri hagstærðir almennt
með neikvæðum hætti fyrir sjávar-
útvegsfélög. Verðlag sjávarafurða
hefur lækkað verulega í íslenskum
krónum og launavísitala hefur
hækkað töluvert.
sveinn@frettabladid.is
Veiðigjöld fækki störfum í Bolungarvík
19%
samdráttur varð í tekjum
í sjávarútvegi í Norðvestur-
kjördæmi milli áranna
2016 og 2017.
Bolungarvíkurkaup-
staður segir tugi starfa í
hættu verði veiðigjöld
of íþyngjandi fyrir fyrir-
tæki í bænum. Deloitte
hefur tekið saman
stöðu sjávarútvegsfyrir-
tækja í kjördæminu.
Hagnaður þeirra hafi
dregist gríðarlega sam-
an á síðasta rekstrarári.
2016 2017 2017 20172016 2016
Samantekt á rekstri sjávarútvegsfélaga í Norðvesturkjördæmi
Unnin af Deilotte fyrir sveitarfélög í kjördæminu.
Hagnaður fyrirtækja í sjávarútvegi dróst saman um 80 prósent milli 2016 og 2017.
2 0 . o k T ó B E r 2 0 1 8 l A U g A r D A g U r8 f r é T T I r ∙ f r é T T A B l A ð I ð
2
0
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
1
-9
7
D
8
2
1
2
1
-9
6
9
C
2
1
2
1
-9
5
6
0
2
1
2
1
-9
4
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
0
4
s
_
1
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K