Fréttablaðið - 20.10.2018, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 20.10.2018, Blaðsíða 74
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5407. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Ástu Guðjónsdóttur frá Vogatungu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Höfða fyrir góða umönnun og hlýju. Drífa Garðarsdóttir Jóhannes Eyleifsson Skúli Garðarsson Lilja Kristófersdóttir Halldóra Garðarsdóttir Gunnlaugur Sölvason Guðrún Garðarsdóttir Karl Örn Karlsson Friðgerður Bjarnadóttir ömmu- og langömmubörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Pétur Sigurðsson fv. forseti Alþýðusambands Vestfjarða, andaðist sunnudaginn 14. október. Minningarathöfn verður í Fossvogskirkju, fimmtudaginn 25. október kl. 15.00. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju, laugardaginn 27. október kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hans láti líknarfélög njóta þess. Hjördís Hjartardóttir Sigurður Pétursson Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Edda Pétursdóttir Bergsteinn Baldursson og afabörn. Jón Ingvar Gunnarsson veiðimeistari. Innilegar hamingjuóskir með 60 ára stórafmælið. Megi dagurinn færa þér mikla gleði og kátínu. Þín eiginkona, börn, makar og barnabörn. 60 ára Hjartans þakkir fyrir sýndan hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, Sesselju Sigurrósar Gísladóttur (Settu) Minning hennar lifir í hjörtum okkar. Viggó Vilbogason Reynir Örn Viggósson Berglind Harpa Helgadóttir Rósa Viggósdóttir Emil Sigurður Magnússon Gísli Páll Jónsson og barnabörn. Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Skúli Heiðar Óskarsson bifreiðarstjóri, lést á Landspítalanum þann 14. október síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þann 23. október kl. 15.00. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild A4 á Landspítala sem annaðist hann af alúð. Kristín Friðriksdóttir Sigrún Ragna Skúladóttir Jónas Þór Kristinsson Ragnhildur Skúladóttir Andrés J. Snorrason Anna María Skúladóttir Hálfdan Þorsteinsson Óskar Dan Skúlason Dísa Friðleifsdóttir Ólafur G. Skúlason Svanhvít Friðriksdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Sigrún Óskarsdóttir, guðfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Móðir okkar, Ástríður Magnúsdóttir Meistaravöllum 15, Reykjavík, er látin. Guðrún Ingibjörg Gunnarsdóttir Helga Gunnarsdóttir Ásta Kristín Gunnarsdóttir Mig langar til að fólk geti stjórnað því hvernig það upp-lifir tónlistina sem ég spila,“ segir Mikael Máni Ásmundsson gítarleikari sem ætlar að flytja lög eftir Bob Dylan á sólógítar í Björtulofum á morgun, sunnudag. „Systir mín, Lilja María, handskrifaði textana við lögin og fólk hefur val um það á tónleikunum hvort það les þá eða ekki meðan ég spila.“ Mikael Máni er staddur í Stokkhólmi þegar ég hringi í hann. Þar á hann kær- ustu í MA-námi í söng sem heitir Marína Ósk Þórólfsdóttir. Saman gerðu þau plötu í fyrra sem nefnist Beint heim og var til- nefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins í flokknum djass og blús. „Við Marína kynntumst úti í Hollandi,“ segir Mikael Máni, sem lauk fjögurra ára BA-námi í gítarleik í júní í sumar við Conservatorium van Amsterdam. Kom síðan heim og tók upp plötu með eigin efni. „Það er tríóplata og þar spila Skúli Sverrisson og Magnús Trygvason Elíassen með mér,“ lýsir hann. Þú semur sem sagt líka? „Já, ég sem mikið, það er eitt af því sem gerir tónlist náttúrulega fyrir mér. Öll lögin á plötunni minni eru byggð á karaktereinkennum eða tímabilum í lífi Bobby Fischer,“ segir hann og kveðst þó aldrei ákveða fyrirfram um hvað hann ætli að semja. „Fyrsta lagið varð til á hálftíma og ég áttaði mig á því eftir á að það var um Fischer. Um það leyti var ég að lesa ævisögu hans og hún snerti mig mikið, enda vildi ég verða skákmaður þegar ég var um átta ára aldurinn, var mikið að tefla og spá í stærðfræði þá.“ Hann byrjaði líka ungur í tónlist. „Mamma setti mig í tónlistarskóla fimm ára,“ segir hann og upplýsir að móðir hans sé Guðrún Bjarnadóttir bókari og faðir hans Ásmundur Jónsson, kenndur við Smekkleysu. Eftir nám í Tónskóla Sigursveins lá leið Mikaels Mána í FÍH þar sem meistararnir Óskar Guðjónsson, Hilmar Jensson og Sigurður Flosason höfðu sín áhrif. „Það var heilmikil breyting,“ segir hann. „Ég tók líka þátt í samspili með jafnöldrum mínum sem ég er enn í miklum samskipt- um við. Þeir hafa mikinn áhuga á djassi.“ Tónleikarnir í Björtuloftum hefjast klukkan 20 annað kvöld og aðgangur er ókeypis. gun@frettabladid.is Fólk hefur val um hvort það les textana eða ekki Gítarleikarinn Mikael Máni Ásmundsson kemur fram á fyrstu tónleikum haustsins í tón- leikaröðinni Velkomin heim. Þeir verða í Björtuloftum í Hörpu annað kvöld. Þeir nefnast Textar gegnum tónlist og þar verða lög eftir Bob Dylan á dagskránni. Sígildir sunnudagar. „Þegar ég þekki textana við lög þá hafa þeir áhrif á mig þegar ég hlusta á hljóðfæraútgáfu af þeim. Þetta langar mig að endurskapa hjá fólkinu á tónleikunum,“ segir Mikael Máni. Ég sem mikið, það er eitt af því sem gerir tónlist náttúrulega fyrir mér. Öll lögin á plötunni minni eru byggð á karaktereinkennum eða tímabilum í lífi Bobby Fischer. 1989 Borgarleikhúsið í Reykjavík er vígt með mikilli við- höfn. Húsið, sem er yfir tíu þúsund fermetrar að grunnfleti, hafði verið 13 ár í byggingu. 1999 SkjárEinn byrjar sjónvarpsútsendingar. 2006 Íslenska kvikmyndin Mýrin er frumsýnd. 2011 Muammar Gaddafi er drepinn í fæðingarbæ sínum Sirte og hersveitir Þjóðarráðs Líbíu ná þar yfirráðum. 2011 ETA, aðskilnaðarsamtök herskárra Baska, senda frá sér yfirlýsingu þess efnis að samtökin séu endanlega hætt vopnaðri baráttu. 2012 Haldin er þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi um tillögur stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá fyrir Ísland. Merkisatburðir 2 0 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r38 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tímamót 2 0 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 2 1 -6 6 7 8 2 1 2 1 -6 5 3 C 2 1 2 1 -6 4 0 0 2 1 2 1 -6 2 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 0 4 s _ 1 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.