Fréttablaðið - 20.10.2018, Blaðsíða 2
Veður
Suðvestan 15-25 m/s, hvassast á NV-
landi. Hviður allt að 40 m/s við fjöll.
Rigning um mest allt land og slydda
eða snjókoma til fjalla norðanlands.
sjá síðu 46
Norðurslóðir í brennidepli
595 1000
EINSTÖK HELGARFERÐ
Róm
1. nóvember í 4 nætur
Frá kr.
89.995
FÉLAGsMáL Sonja Ýr Þorbergsdóttir
var í gær kjörin nýr formaður BSRB
á lokadegi þings sambandsins.
Hlaut hún rúm 86 prósent atkvæða
í formannskjörinu en mótfram-
bjóðandi hennar, Vésteinn Val-
garðsson, hlaut tæp 14 prósent. Elín
Björg Jónsdóttir, fráfarandi formað-
ur, gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Í ávarpi sagðist Sonja Ýr hlakka
til að takast á við þau fjölbreyttu
verkefni sem fram undan væru.
Hún sagði að á þinginu hefði verið
mótuð skýr sýn í stefnu og ályktun-
um sem verði fylgt kröftuglega eftir.
Þá var Garðar Hilmarsson kjör-
inn fyrsti varaformaður sambands-
ins og Arna Jakobína Björnsdóttir
annar varaformaður. – sar
Sonja Ýr kjörin
formaður BSRB
Sonja Ýr Þorbergsdóttir. Mynd/BSRB
PÓLLAND Evrópudómstóllinn í
Lúxem borg hefur úrskurðað að
pólsk yfirvöld verði að hætta við að
lækka eftirlaunaaldur hæstaréttar-
dómara úr 70 árum í 65 ár. Lög þess
efnis gengu í gildi í apríl síðast-
liðnum í Póllandi.
Samkvæmt nýju lögunum hefðu
27 af 72 dómurum neyðst til að
fara á eftirlaun. Þeir hefðu þó með
samþykki forseta landsins getað
fengið leyfi til að starfa þremur
árum lengur. Gagnrýnendur bentu
á að dómstóllinn yrði ekki óháður
þegar stjórnmálamenn gætu haft
áhrif á störf hans. – ibs
Úrskurður gegn
dómaralögum
sAMFÉLAG Verð á helstu fíkniefnum
hér á landi hefur verið afar stöðugt
það sem af er á þessari öld. Verðið
lækkar mjög hægt en örugglega.
Ytri hagsveiflur í íslensku efna-
hagslífi virðast ekki hafa nokkur
áhrif á fíkniefnamarkaðinn hér á
landi ef frá er talinn örlítill kippur
árið 2008.
Verð á kannabis fór hæst í um
5.000 krónur grammið í byrjun árs
2009 en hefur hægt og rólega leitað
niður á við síðan þá, eða í rúman
áratug.
Er svo komið að nú tíu árum eftir
hrun er verðið á gramminu komið
undir þrjú þúsund krónurnar.
Verð á hassi stendur í stað en
bæði framboð og eftirspurn þar
hefur nánast hrunið enda sinnir
innlend framleiðsla kannabis öllum
þeim markaði.
Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ,
segir mikið jafnvægi í framboði og
eftirspurn.
„Þetta er mjög stöðugur mark-
aður þar sem verðið lækkar hægt
og rólega. Markaðurinn á þessum
efnum lýtur sömu lögmálum um
framboð og eftirspurn og það hefur
áhrif á verðið,“ segir Arnþór.
„Það virðist vera þannig að það er
alltaf nóg til af efnum og alltaf ein-
hverjir á hinum endanum sem vilja
nota efnin,“ heldur Arnþór áfram.
„Það kostar alltaf minna og minna
að kaupa þessi efni en það gerði hér
áður fyrr, það er bara þannig.“
Sama þróun hefur átt sér stað í
verðlagningu amfetamíns og kóka-
íns. Um aldamótin kostaði grammið
af kókaíni hérlendis um 25.000
krónur.
Nú, átján árum síðar, kostar
Eiturlyfjamarkaðurinn
sá stöðugasti á Íslandi
Ytri aðstæður í íslensku efnahagslífi virðast ekki hafa mikil áhrif á verð fíkniefna
hér á landi. Hæg en örugg verðlækkun hefur verið á markaðnum síðustu tvo
áratugina. Formaður SÁÁ segir mikið jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar.
Það virðist vera
þannig að það er
alltaf nóg til af efnum og
alltaf einhverjir á hinum
endanum sem
vilja nota
efnin.
Arnþór Jónsson,
formaður SÁÁ
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
Hass og gras
Uppreiknað miðað við vísitölu neysluverðs í september 2018
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 30.9.
2018
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
Amfetamín og kókaín
Uppreiknað miðað við vísitölu neysluverðs í september 2018
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
20
15
20
16
20
17
30
.9
.
20
18
grammið um fimmtán þúsund
krónur og sama þróun á sér stað í
amfetamíni sem hefur lækkað um
helming á þessu tímabili.
Arnþór segir einnig að SÁÁ sé
með verðkannanir á ópíóðum og
menn séu að nota þau lyf í meiri
mæli.
„Einnig liggur það fyrir að fleiri
og fleiri þurfa á okkar þjónustu að
halda,“ bendir formaður SÁÁ sömu-
leiðis á.
sveinn@frettabladid.is
Gestir á norðurslóðaráðstefnunni Arctic Circle stungu saman nefjum á göngum Hörpu í gær. Meðal þátttakenda er utanríkisráðherra Japans, Tarō
Kōno, sem flutti ávarp við opnunarathöfnina. Það gerði einnig Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Ráðstefnuna sitja um tvö þúsund manns frá yfir
fimmtíu löndum, meðal annars Kína, Rússlandi og Bandaríkjunum. Evrópusambandið á einnig háttsetta fulltrúa í fyrsta sinn. FRéttaBlaðið/SigtRygguR aRi
þjÓNustA Fyrirtækið Prime Tours
hefur hætt allri akstursþjónustu
fatlaðs fólks fyrir Strætó. Ástæðan er
gjaldþrot fyrirtækisins. Skiptastjóri
þrotabúsins tilkynnti þetta í gær.
Prime Tours var tekið til gjald-
þrotaskipta 3. október. Hjörleifur
Harðarson, annar eigenda fyrir-
tækisins, sagðist í samtali við Frétta-
blaðið tveimur dögum síðar vonast
eftir kraftaverki og að akstri yrði
haldið áfram.
Fimmtán undirverktakar Strætó
fóru í vinnustöðvun vegna áfram-
haldandi notkunar á bílum Prime
Tours sem starfrækti tuttugu bíla.
Guðmundur Heiðar Helgason,
upplýsingafulltrúi Strætó, sagði í
gær að viðskiptavinir þyrftu líklega
ekki að hafa áhyggjur af þjónustu
um helgina en að gera mætti ráð
fyrir skertri þjónustu næsta mánu-
dag þegar bílar Prime Tours detta
út. – gar
Ekki kraftaverk
hjá Prime Tours
Heimild: SÁÁ
2 0 . o k t Ó b e r 2 0 1 8 L A u G A r D A G u r2 F r É t t i r ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
0
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
1
-5
C
9
8
2
1
2
1
-5
B
5
C
2
1
2
1
-5
A
2
0
2
1
2
1
-5
8
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K